Morgunblaðið - 03.05.1966, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 03.05.1966, Qupperneq 4
4 MORGUNBLADIÐ Þriðjudagftr 3. maí 196ft BÍLALEIGAN FERÐ SÍMI 34406 SENDU M LITLA bílaleigan Ingólfsstræti 11. Volkswagen 1200 og 1300. Sími 14970 t,MI 3-11-60 mfíif/m Volkswagen 1965 og ’66. BIFREIÐALEIGiVIU VEGFERÐ Grettisgötu 10. Sími 14113. Keflavík - Suðurnes Höfum fyrirliggjandi: Steypustyrktarjárn, stærðir 8 til 16 mm. Galvaníseraður fittings, stærðir Y*” til 3”. Maskínuboltar Stálboltar, fínir og grófir. Óð/nn s.k Hafnargötu 88. — Sími 2530. ATHUGIÐ Þegar miðað er við útbreiðslu. er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðinu en öðrum blöðum. BOSCH Þurrkumótorar 9 volt Brœðurnir Ormsson Lágmúla 9. — Sími 38820. ÍT Mývatn Undanfarið hefur verið rætt um byggingu Kisilgúrverk smiðju við Mývatn og hugsan- leg spjöll á náttúrunni þar. Að gefnu tilefni hefur Velvakandi fengið afrit af bréfi Náttúru- verndarráðs til Kísiliðjunnar um mál þetta — og fer bréfið hér á eftir í heild: „Eftir móttöku erindis Kísil- iðjunnar h.f., dags. 4. maí s.L, þar sem leitað er álits náttúru- verndarráðs á fyrirhuguðu framkvæmdum við vinnslu kísilgúrs við Mývatn, vill ráðið taka eftirfarandi fram: Náttúruverndarráð hefur að lögum eigi valdsvið til þess að taka ákvarðanir um nýjar at- vinnuframkvæmdir í landinu, þar af leiðandi fellur það eigi í þess hlut að hafa nein áhrif á hvort tii hins umrædda verk- smiðjurekstrar verður stofnað við Mývatn. Hins vegar telur náttúruverndarráð sig máli skipta og undir sitt verksvið heyra að íylgjast með því, að fyllstu varfærni sé gætt, þegar til nýrra atvinnuframkvæmda er stofnað á stöðum, sem sér- legt gildi hafa sem prýði ís- lenzkrar náttúru. Að fengnum ítarlegum upp- lýsingum frá sérfræðingi Kísil- iðjunnar, Baldri Líndal, efna- verkfræðingi, um það, hvaða ráðstafanir fyrirhugaðar eru til þess að koma í veg fyrir að úr- gangsefni frá verksmiðjunni eða rekstrarefni í sambandi við hráefnisöflun eða framleiðslu, svo sem olía, valdi tjóni á nátt- úru Mývatns og umhverfis þess, skaí Kísiliðjunni h.f. hér með tjáð, að náttúruverndarráð hef- ur eigi við hinar fyrirhuguðu fram kvæmdir að athuga, að því tilskildu: 1. Að þær varúðarráðstafanir sem Kísiliðjan h.f. og áðurnefnd ur sérfræðingur hennar hafa lýst yfir að gerðar verði, verði framkvæmdar og þeim fram- fylgt út í yztu æsar. 2. Að haft verði náið samráð við náttúrufræðinga um fyrir- komulag og framkvæmd þeirra öryggisráðstafana. 3. Að framkvæmdar verði á kostnað Kísiliðjunnar þær rann sóknir á hugsanlegu tjóni af völdum rekstrarefna og úr- gangsefna, sem náttúrufræðing ar geta með rökum bent á að eigi sér stað, þrátt fyrir gerðar öryggisráðstafanir. 4. Að gerðar verði fyllri og fullnægjandi öryggisráðstafan- ir, ef í Ijós kemur, að þær ráð- stafanir nægi ekki, sem fyrir- hugaðar eru. 5. Að Kísiliðjan leggi árlega af mörkum einhverja fjárupp- hæð, eftir nánara samkomulagi við náttúruvemdarráð, sem varið verði til þess að stuðla að varðveizlu náttúrufegurðar þessa sérstæða náttúrufyrir- bæris, sem Mývatn og Mývatn- sveit er, að dómi allra, sem til þekkja, og til verndar dýra- riki og jurtagróðri staðarins. Með virðingu F. h. Náttúruverndaráðs“ it Hægri — vinstri Hér er enn eitt bréf um vinstri og hægri handar akstur: „Kæri Velvakandi. Undanfarið hef ég fylgzt með skrifum varðandi umferðarmál- in, vinstri og hægri handar akst ur. Hafa þessar umræður nær eingöngu farið fram í dálkum þínum og leyfí ég mér því að leggja orð í belg. Ég er fylgjandi því að um- ferðarreglur verði samræmdar — þannig, að sömu reglur gildi um allan heim. En eftir mikil heilabrot hef ég komizt að þeirri niðurstöðu, að breyting úr vinstri í hægri sé ekki jafn aðkallandi og ýmsir vilja vera láta. Svíar eru að gera þessa breytingu hjá sér — og þykir þeim kostnaðurinn vist nógur. Þar er þetta ill nauðsyn vegna legu landsins. Hér er viðhorfið allt annað. Hér verður aldrei „gegnum- gangandi" bílaumferð frá öðr- um löndum — og slysahættan því hverfandi lítil. Og ekki hef ég heyrt þes<s getið, að útlend- ingur hafi valdið Slysi á íslandi vegna þess að vinstri handar akstursreglan hafi truflað hann. Þau rök, sem mér hafa þótt styðja breytinguna bezt, snúa að hinni tæknilegu hlið málsins og þar á ég einkum við hættuna á því að farartæki svo sem al- menningsvagnar verði ekki framleiddir fyrir annað en hægri handar akstur í framtíð- inni. Að athuguðu máli virðast þessi rök sérlega sterk: Meðan Bretar breyta ekki (og það gera þeir áreiðanlega ekki í bráð) er ekkert að óttast. Auk Breta hafa allmargar þjóðir enn vinstri handar akstur, eða sam- tals um 700 milljónir manna, Helztu löndin eru: Ástralía, Ceylon, Malaya, Hong Kong, Indland, Singapore og Suður- Afríka. Hins vegar er hægt að breyta almenningsvögnum með væg- um kostnaði ef nægur fyrirvari er veittur fyrir breytingunni, til dæmis 10—12 ár. Bifvélavirki“ Þorsteinn Júlíusson héraðsdómslögmaður Laugavegi 22. Opið 2—5. Sími 14045. GUSTAF A. SVEINSSON hæstaréttarlögmaður Laufásvegi 8. Sími 11171. Til sölu Einbýlishús (raðhús) við Langholtsveg. Nánari upplýsingar gefur: málflutningsskrifstofa Finars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar, Guðmundar Péturssonar. Aðalstræti 6. — Símar 1-2002, 1-3202 og 1-3602. KAIIPIÐ IMU PRI gastækin fyrir sumarið US Suða Hiti Liós Úrval af gastækjum. Suðutæki með gaskút og lampa. SHELLGAS PRIMUS gastækin eru nú mest notuðu gastæki í Evrópu í dag. Þau eru notuð í ferðalög og útilegu, í sumarbústöðum, á skipum og heimilum. — Úrval af tækjum sem leysa úr öllum þörfum til suðu, hit- unar og ljósa. Seld um allt land Umboðsmenn: Þórður Sveinsson & Co h.f.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.