Morgunblaðið - 03.05.1966, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 03.05.1966, Blaðsíða 19
ÞrfSTJiida-gur 3. maí 1966 MORGUNBLAÐIÐ Ingi Þór Steíánsson skrifstotustj, — Minning ÞAÐ var einhvern tíma í fyrra- sumar, að hann stakk upp á að við gerðum okkur ofurlítinn dagamun, og þar sem við sátum þá saman man ég enn hve ég dáðist að hreysti hans og lífs- þrótti, öfundaði hann af þeim ólifuðu árum, sem okkar lágu í milli, óskaði mér að vera aftur orðinn svona ungur og spræk- ur. Og þegar mér barst fyrir nokkrum dögum fregnin um að saga hans væri öll, þá varð mér það eitt að orði: „Guð sé lof. Fari hann í friði.“ Svona eru örlögin undarleg, vegir mannsins óútreiknanlegir, blindleiki þess holds alger, sem aldrei veit hvers biðja ber. A örfóum mánuðum verður þessi stælti, ungi maður svo yfirkom- inn af vonlausri þjáningu, að vinir hans eiga honum þá ósk eina til handa, að lífsþráðurinn slitni sem allra fyrst til að firra !hann þeirri kvöl, sem jafnvel olli þeim sárum þjáningum, er fjarri voru sjálfum sjúkrabeð- inum. En það var eins og ótrúleg hreysti og sú blekkingarblæja lífsvonarinnar, sem dauðinn sveipar stundum þann, sem hann hefir tekið örugglega í arma sér, ætlaði aldrei að láta undan. Og í þessu stríði var annar, sem einnig barðist af miklum hetju- móði, ótrúlegri fórnfýsi, ógleym- anlegum kærleik^, sá förunaut- ur, sem hann hafði valið sér til samfylgdar, eiginkonan, sem fylgir honum síðasta spölinn í dag. Þessi samstaða þeirra and- spænis skelfilegum örlögum er svo sérstæð, að ég veit nú varla, nema hún verði ennþá eftir- minnilegri en sá lífsþróttur, sem einkenndi þau bæði meðan allt lék í lyndi og unnt var — að því er virtist — að horfa áhyggju lítið fram til hinan mörgu ólif- uðu yndislegu ára. Við, samstarfsmenn og vinir Inga Þórs, munum þó aldrei gleyma því hve frábær félagi ihann var prýðilegur samverka- maður og hvers manns hugljúfi. Ég held, að þó að sú hjálp, sem við reyndum að veita honum Ihafi ekki verið mikil og vitan- lega orðið gagnslaus, þá hafi hún þó sannað það hugarþel, er starfs menn Loftleiða báru til hans, ->g ég efast um, að allir hefðu vott- að nokkrum öðrum manni jafn almenna samúð og honum við svipaðar aðstæður. Ég minnist þessa hér til sönnunar því, að fullyrðingin um að Ingi Þór hafi verið hvers manns hugljúfi er á gildum rökum reist. Einnig hún kemur nú e.t.v. í engan stað nið- ur í dag, en síðar mun það þó mikil huggun eftirlifandi konu og börnum að við vitum það líka sem til þekktum að þau misstu góðan dreng og mikinn mann. Helztu æviatriði Inga eru þessi: Hann fæddist á Seyðisfirði 16. september 1931. Móðir hans, frú Steinunn Kristín Þórarinsdottir, er látin fyrir nokkrum árum, en faðir hans, Stefán Hannesson, er bifreiðastjóri hér í bænum. Ég veit ekki hvenær þau Steinunn og Stefán fluttu til Reykjavíkur, en Ingi hefir þá áreiðanlega verið mjög ungur því að hér hóf hann sína skóla- göngu og lauk henni með prófi frá Verzlunarskóla íslands árið 1950. Hugur hans mun þá einnig hafa hneigzt til íþrótta, því að árið 1952 lýkur hann kennara- prófi frá íþróttakennaraskóla París, 30. apríl — NTB. Kafarar hafa í gær og dag leitað að liki marokk- anska uppreisnarforingjans Ben Barka í tveimur tjörnum utan Parísar. Ekkert fannst. Tjarnirnar eru í nágrenni húss þess, sem var í eigu af- brotamannsins Georges Bouc- hesiche, en Ben Barka var rænt í París, 29. október sl. fslands. Um þenna ríka þátt í æviferli Inga veit ég fátt um- fram það, að hann verður ungur ágætur íþróttamaður og einn af framámönnum íþróttamála borg- arinnar, er kjörinn formaður Körfuknattleiksráðs Reykjavík- ur, er einn stofnenda Körfu- knattleiksdeildar Í.R., og þannig mætti lengi telja til sönnunar því, að í hópi íþróttamanna mun hans lengi minnst með virðingu og þökk. í ársbyrjun 1957 kvænist hann Hrefnu Ingimarsdóttur, ættaðri af Vestfjörðum. Þau eignast tvo sonu, Sigmar Þór og Stefán Þór, nú 7 og 12 ára. Hrefna og Ingi bjuggu að Skólagerði 3 i Kópa- vegi, þar sem þau horfðu til þess að geta að nokkrum árum liðnum setið skuldlítil og horft á drengina sína tvo vaxa úr grasi. Árið 1960 hóf Ingi almenn skrifstofustörf hjá Loftleiðum, en fjórum árum siðar er hann bú- inn að vinna sér svo mikið traust, að honum er þá falin forysta skrifstofu félagsins á Keflavík- urflugvelli, þar sem sívaxandi starfsemi krafðist traustrar for- sjár. Allt virðist leika í lyndi þang- að til fyrir nokkrum mánuðum er hann tekur að kenna sjúk- dóms. Hann er undir læknis- hendi alla tíð síðan, bæði hér í Reykjavík, og vestur í New York unz yfir lapk föstudaginn 22. þ.m. Þá var saga hans öll, Ingi Þór 'endurminning ein — minning um mætan mann, sem féll fyrir aldur fram. Frá samstarfsmönnum Inga hjá Loftleiðum færi ég ástvinum hans þakkir fyrir mikil og góð kynni. Hvers vegna það var hann en ekki eitthvert okkar hinna, sem kallið fékk að þessu sinni, fáum við eflaust aldrei að vita, og þess vegna er þýðingarlaust að spyrja um rétt eða rangt, skynsamlegt eða óhyggilegt af blindleik þess holds, sem veit ekki nú fremur en fyrrum hvers biðja ber, sjálfu sér eða öðru til handa. Hið eina, sém við vit- um í rauninni er það, að hann er farinn, en eftir standa aðrir, og sumir með „brynju slitna, sundrað sverð og syndagjöld", en allir eiga þeir eftir að fara sömu leiðina — og áreiðanlega ekki margir með jafn hreinan skjöld og hann. Og hve löng er sú bið í raun og veru? Hvað er skammlífi? Hvað er langlifi? Og hver veit svo, hvort sjálf- ur dauðinn er jafn dapurlegur og okkur virðist hann vera í dag? Hver veit nema að það sé satt, sem skáldið segir, að það að deyja sé ekkert annað en að standa „nakinn í blænum og hverfa inn í sólskinið"? Hver veit? Sigurður Magnússon. t HANN var vinur minn. Hann var vinur okkar. Hann var vinur allra er hon- um kynntust. Þann 22. april sl. kvaddi vin- ur minn Ingi Þór Stefánsson þennan heim í blóma lífsins, að- eins 34 ára að aldri, og í dag fer útför hans fram. Síðastliðið haust kenndi hann sér sjúkdóms þess er honum veitt ist ekki að yfirstíga með sinni alkunnu bjartsýni og kárl- mennsku. Við ólum þær vonir í brjósti, að. honum yrði lengri lífdaga auðið, en stöndum nú ráðþrota og skiljum ekki rök þeirrar tilveru, er við hrær- umst í. Ingi Þór, eins og hann var ætíð kallaður, fæddist á Seyðisfirði 16. september 1931, sonur hjón- anna Steinunnar Kristínar Þór- arinsdóttyr og Stefáns Hannesson ar. Hann fluttist nokkurra mán- aða gamall með foreldrum sínum til Reykjavíkur og ól allan sinn aldur hér i borg. Árið 1949 and- aðist móðir hans, en þá var hann aðeins 17 ára og elztur systkina, sem þá og æ síðan hafa notið hjálpsemi hans og elsku. Hann lauk prófi frá Verzlun- arskóla íslands árið 1950, stund- aði síðan nám við íþróttakenn- araskólann að Laugarvatni og lauk þaðan prófi 1952. Allt sem að íþróttum sneri var ofarlega í huga hans. Hann gerðist félagi í íþróttafélagi Reykjavíkur þegar sem ungur drengur og varð brátt virkur félagi í Handknattleiks- deild félagsins og keppti í meist- araflokki þeirrar deildar aðeins 16 ára. Hann var einn af stofn- endum Körfuknattleiksdeildar fé lagsins og í stjórn hennar frá upphafi og formaður í mörg ár. Hann var um tíma formaður Körfuknattleiksráðs Reykjavíkur (KKRR) og í stjórn Körfuknatt- leikssambands íslands (KKÍ) í I aðalstjórn íþróttafélags Reykja- víkur var hann fyrst 1951 og varaformaður félagsins 1965. Hann stundaði verzlunar og skrifstofustörf og í febrúar 1960 réðist hann til Loftleiða, þar sem hann starfaði til dauðadags. Þar voru honum falin þau störf, er hann hvað bezt kunni til og fljótlega sáu ráðamenn þar, hvað þessi fjölhæfi og góði starfsmað- ur bar af, og þegar Loftleiðir Keflavík h.f. var stofnað, var honum falið skrifstofustjórastarf ið og gegndi hann því af stakri samvizkusemi. Það var hamingjudagur 4. janúar 1957 er Ingi gekk að eiga Hrefnu Ingimarsdóttur frá Hnífs dal, trausta og góða konu, búna miklum kostum, sem komu ekki hvað sízt í ljós í hinni hörðu veikindabaráttu Inga. Þau eign- uðust tvo drengi, Stefán Þór, sem nú er 12 ára og Sigmar Þór 7 ára. Þau áttu sér hlýlegt heim- ili að Skólagerði 3, heimili, sem ávallt var opið öllum, heimili, þar sem glaðværð og gestrisni ríkti og ávallt var gott að koma á. — Fundum okkar bar fyrst saman í Verzlunarskóla íslands, og urðu þau kynni að órjúfandi vináttu sem aldrei bar skugga á. Á þess- um tíma, í leik og alvöru, kynnt- ist ég kostum hans hvað bezt. Honum var margt gott gefið, far- sælar gáfur, létt lund og skemmti leg glettni og því aldrei dauflegt í návist hans. Yndi hafði hann af lestri góðra bóka, en þar fyr- ir utan held ég að ljóðalestur hafi verið honum hvað kærastur, sjálfur var hann fljótur að setja saman vísur við ýmis tækifæri, en var lítt um að guma af því. Hann var hreinlyndur, tryggur og vinsæll, enda vinahópurinn stór, og margir munu minnast hjálpfýsi hans. Á þessari stundu verður mér hugsað til Hrefnu og drengjanna, því þeirra harmur er hvað sár- astur og því bið ég að góður Guð megi styrkja ykkur á þess- um reynslutímum. í» foreldrum og öðrum ættingjum færi ég samúð mína. Nú þegar þú ert allur, kæri vinur, þakka ég þér allar þæi ógleymanlegu stundir, sem vií höfum átt saman. Friður fylgi þér. Gunnar Petersen. t F. 16. sept. 1931. D. 22. apríl 1966. KVEÐJA FRÁ SKÓLASYSTKINUM í DAG kveðjum við skólabróður okkar, Inga Þór, hinztu kveðju, þótt svo skammur tími virðist liðinn, síðan hann gekk með okk ur út í vordýrðina austur á Laugarvatni, að loknu síðasta prófinu frá Í.K.f. vorið 1952. Fjórtán ár eru að vísu alllangur tími, en samt kvaddi hann þetta líf í blóma aldurs síns, aðeins 34 ára, og framtíðin virtist brosa við honum. Hann var kvæntur glæsilegri konu, Hrefnu Ingimarsdóttur, íþróttakennara, og átti með henni tvo myndarlega sonu. Þau hjónin höfðu búið sér fagurt heimili í nýreistu húsi og Ingi hafði með höndum ábyrgðar- mikla stöðu hjá þekktu fyrir- tæki. En skyndilega syrti að. Ingi barðist mánuðum saman við kvalafullan sjúkdóm, sem hann mætti með þreki og einbeitni. Hann gekk úndir miklar skurð- aðgerðir erlendis og um skeið vonuðum við öll, að tekizt hefði að ná fyrir rætur sjúkdómsins, en eftir að Ingi kom heim aftur kulnaði sú von og sýnt var að hverju dró. Enn höfum við ekki áttað okk- ur til fulls, að hann er horfinn úr hóp okkar skólasystkinanna, þótt hinum bitru staðreyndum verði víst ekki neitað. En mynd þessa sviphreina glæsimennis er skýr í hugum okkar. Að baki' saknaðar og trega glitrar minn- ingin um glaðar samverustundir við íþróttaiðkanir og nám. Ingi var jafnan hrókur alls fagnaðar glaðlynda skólabróður okkar. Við sendum konu hans, Hrefnu Ingimarsdóttur, innilegar samúðarkveðjur. Hennaf þraut hefur verið þung, undanfarna mánuði, en hún létti manni sín- um sjúkdómsstríðið með sannri ástúð og fórnfýsi. Sonunum tveimur, föður hans og öðrum skyldmennum, sendum við einn- ig samúðarkveðjur. Góði vinur og skólabróðir. Lífskveikur þinn brann hratt, en hann lýsti sært. Á kveðjustund fylgja þér saknandi hugir okkar til hins óþekkta. Föður hans, systkinum, tengda

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.