Morgunblaðið - 03.05.1966, Blaðsíða 30
so
MORGU N BLAÐIÐ
Þriðjudagur 3. maí 1966
jr
Jón Arnason prefaldur
fslandsmeistari í badminton
Fjölmennasla og skemmtilegu
Islandsmóti lauk á sunnudag
ISLANDSMÓTIÐ í badminton
fór fram um helgina. Var það
f jölmennasta Islandsmót til
Ifaraldur Kornelíusson vakti
sérstaka athygli í unglinga-
flokki. Þar er mikið efni á ferð
— og stór stjarna ef allt fer að
vonum.
þessa, m.a. með góðri þátttöku
— þó ekki nægri — utan af landi
og leikir mótsins voru margir
hverjir mjög skemmtilegir.
Margt manna fylgdist með leikj-
um mótsins sem stóðu klukku-
stundum saman á laugardag og
sunnudag.
Jón þrefaldur meistari.
Frækilegastan sigur á þessu
móti vann Jón Árnason TBR
sem varð þrefaldur íslandsmeist
ari — eða í eins mörgum flokk-
um og mögulegt er fyrir hann
að vinna.
Jón keppti til úrslita við Ósk-
ar Guðmundsson í einliðaleik
karla. Fór Óskar vel af stað,
komst í 8-3 í fyrri lotu, en þá
náði Jón tökum og leiknum og
-vann lotuna með 15-9. Skoraði
Jón því 12-1 síðari hluta lotunn-
ar. Lék Jón mjög snjallan leik.
í síðari lotunni hafði Jón yfir
burði og raunar meiri en úrslit
lotunnar 15:11 gefa til kynna,
því hann leyfði sér nokkrum
sinnum vafasöm högg. En í öll-
um leik hafði hann talsverða
yfirburði og var vel að sigrin-
um kominn.
Skemmtilegasta keppnin.
Tvíliðaleikur karla var
skemmtilegasta keppni mótsins.
Þar léku þeir saman Jón og Ósk-
ar móti Láruéi Guðmundssyni
og Karli Maack, sem báðir eru
af æskuskeiði og teknir að
þyngjast. En „gömlu“ mennirn-
ir veittu harða keppni og sáust
góð tilþrif á báða bóga. Úthald
og kunnátta réði þó úrslitum, en
þeir eldri áttu öllu samstilltari
íslandsmeistararnir Óskar -Guð mundsson (t.v.) og Jón Arna-
son, þrefaldur íslandsmeistari.
Leikmenn Uruguays sem
mæta í lokakepþninni um
heimsmeistaratitilinn í knatt-
spyrnu næsta ár hljóta 300
þúsund pesos (næstum 200
þús. ísl. kr.) í verðlaun ef
þeir vinna heimsmeistaratitil-
inn. Það er knattspyrnusam-
band landsins sem kunngert
hefur þetta.
Sigurvegarar í tvíliðaleik kvenna: Lovísa Sigurðardóttir
Hulda Guðmundsdóttir. — Mynir: Sveinn Þorm.
leik sem par. Fyrri lotuna unnu
Jón og Óskar með 15--11 en hina
síðari með 18-15. Áhorfendur
skemmtu sér vel og hvöttu sér-
staklega vel hina eldri.
Aðrir flokkar.
í tvenndarkeppni sigruðu þau
Lovísa Sigurðardóttir og Jón
Árnason.
í tvíliðaleik kvenna sigruðu
Lovísa Sigurðardóttir og Hulda
Guðmundsóttir.
í 1. fl. karla báru þeir sigur
úr býtum Sveinn Björnsson og
Pétur Kristjánsson, sem þekktur
er úr sundinu.
Skemmtileg var keppni ungl-
inga og vakti sérstaka athygli
Haraldur Kornelíusson. Sigraði
hann í einliðaleik unglinga og
tvíliðaleik þá ásamt Finnbirni
Finnbjörnssyni.
Litla bikarkeppnin:
Hafnfirðingar sigruðu KefS-
víkinga með 2 gegn 1
10 ára
FYFIR 10 árum tók FH við
íslandsbikar í meistaraflokki
karla í handknattleik. Meðal
liðsmanna þá voru þeir sem
þér eru á myndinni f.v. Einar
Sigurðsson, Hjalti Einarsson,
Birgir Björnsson og Ragnar
Jónsson. Marg oft siðan hafa
þeir tekið við bikarnum og
það verðskuldað ævinlega. Nú
afmæli
10 árum síðar veita þeir hon-
um enn viðtöku.
Þetta er skemmtilegt afmæli
og næsta sjaldgæft í ísl.
iþróttum. En marga aðra dáð
hafa þeir drýgt á þessum ára-
tug og ekki eiga þeir siztan
þáttinn í mörgum góðum sigr
um og ágætum árangri ísl.
landsliðsins á þessu tímabili.
ANNAR af tveim fyrstu
knattspyrnuleikjum sumarsins
fór fram á malarvellinum í
Keflavík á sunnudag, er ÍBK
og ÍBH mættust í fyrri umferð
hinnar árlegu Litlu-bikar-
keppni.
Úrhellisrigning hafði verið all
an daginn og völlurinn því
blautur og þungur, enda nokkr-
ir vatnspollar, einkum framan
við mörkin.
Það má því segja með nokkr-
um rétti, að völlurinn hafi ver-
ið sá aðili, er mestu réði um
gang þessa leiks. Bæði liðin voru
nokkuð þung og svifasein, eins
oft vill sjást í fyrstu leikjum á
vorin. Mikið var um tilgangs-
lausar langspyrnur og gjafir til
mótherja, en þó virtust Hafn-
firðingar gera sér meira far um
að leita uppi samherja með
gjafir sínar.
Jón Jóhannsson skoraði fyrir
Keflavík í fyrri hálfleik, er
hann fékk skallað köttinn yfir
Karl markvörð Hafnfirðinga, en
Kari var vel staðsetur og hefði
haft hönd á knettinum ef hann
hefði ekki runnið í svaðinu og
hrasað í markinu.
Bergþór Jónsson jafnaði fyrir
Hafnarfjörð um miðjan siðari
hálfleik eftir nokkur mistök hjá
vörn Keflavíkur.
Sigurmarkið fyrir Hafnarfjörð
skoraði Ólafur Valgeirsson um
5 min. fyrir leikslok, með langri
jarðarspyrnu, en Kjartan mun
hafa runnið til í bleytunni og
missti af knettinum ,sem rann
í markið. Vörnin hjá Keflvík-
ingum var ákaflega opin í þess-
um leik og sóknarliðum gekk
illa að ná saman. Saknaði mað-
ur úr liði Keflavíkur ýmissa af
þeirra sterkustu leikmönnum
frá fyrra ári, svo sem Högna
Gunnlaugs, Karls Hermannsson-
ar, Rúnars, Guðna og Sigurvins.
Aftur á móti léku nú með lið-
inu þeir Jón Jóhannsson og
Magnús Torfason, sem báðir
voru frá vegna meiðsla i fyrra.
AKURNESINGAR unnu Breiða-
blik í Kópavogi í leik í Litlu
bikarkeppninni á sunnudaginn,
en tveir fyrstu leikir hennar
voru tveir fyrstu knattspyrnm-
leikirnir á sumrinu hér á landi.
Úrslitin urðu 8 gegn 2.
Akurnesingar áttu mun meir
í leiknum en tókst ekki þrátt
fyrir ýmis tækifæri að skora fyrr
en um 10 mín voru til hálfleiks,
en þá var eins og tappi væri tek-
inn úr flóðloku því í hálfleik
stóð 5—0. Skoraði Björn Lárus-
son tvö marka Akurnesinga með
þrumuskotum í stöng og í netið.
Var hann bezti leikmaður Skaga-
manna. Eitt markanna var siálfs-
mark.
Hafnfirðingar geta verið á-
nægðir með sigur sinn í þessum
leik. Leikmenn sýndu oft góða
viðleitni til að nota samherj-
ana og þeir voru einatt fljótari
á knöttinn heldur en Keflvík-
ingar. jRúnar Björnsson mið-
vörður ÍBH átti oftast í fullu
tré við Jón Jóhannsson og var
sterkasti varnarleikmaðurinn á
vellinum.
Dómari var Einar Hjartarson
og skilaði hlutverki sínu vel.
BÞ.
I síðari hálfleik skoruðu
Breiðabliksmenn fyrst, síðan Ak-
urnesingar þá Breiðabliksmenn
en undir lokin skoruðu Skaga-
menn tvívegis.
Leikurinn var heldur slakur
og þrátt fyrir að Akurnesingar
eru með marga sína „gömlu og
reyndu“ menn t.d. Rikarð og
Þórð Jónsson sem aftur er kom-
inn á vinstri kant og mjög sprett-
harður enn þá náði liðið ekki
föstum tökum á leiknum ef á
heildina er litið. En þess ber að
geta að iiðið verður heldur ekki
dæmt eða neitt ráðið um getu
þess af þessum leik við Breiða-
blik.
Akranes vann 8:2
— / Kópavogi á sunnudag