Morgunblaðið - 06.05.1966, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 06.05.1966, Blaðsíða 5
Föstudagur B. maf 196ð ^ MORCUNBLAÐIÐ 5 HVAÐ SEGJA ÞAU UM UÚMINN? Almenn gleði ríkjandi yfir dómsúrskurðinum ER FREGNIN um að danska menntamálaráðu- neytið hefði verið sýknað af ákæru Árnanefndar og afhending handritanna þar með talin lögleg, brá blaða maður Mbl. sér út á götu og hitti að máli nokkra borgarbúa á förnum vegi og spurði þá um álit þeirra á dómnum. Fara svör þeirra hér á eftir. Birgir Finnsso-', forseti sameinaðs þings: „Þetta eru ánægjuleg gleði- tíðindi. Ég vona að dómsniður staðan verði staðfest í Hæsta- rétti og að við fáum handritin heim. Það verður hátíðlegur viðburður í íslenzkri sögu“. Brjánn Jónasson, skr if stof ust j ór i: „Ég varð innilega glaður, þegar ég heyrði þessa fregn, og ég hef alltaf trúað því að málalyktir yrðu þessar. Þetta er mikill sigur en réttlátur fyrir okkar málstað“. Hrefna Tynes, var askátahöf ðingi: „Vissulega gleðst ég við að heyra þessar góðu fréttir, en mér hefur alltaf fundizt ís- lendingar eiga siðferðilegan rétt á að fá handritin heim. Að mínu áliti fylgir endur- heimt handritanna mikil á- byrgð og við verðum að setja okkar þjóðarmetnað í að gera sem flestum kleift að njóta þeirra, og að þau verði ekki einkaeign einstakra grúskara. Því fylgir ætíð mikil gleði, er maður hlýtur eitthvert hnoss, og ég tala nú ekki um þegar lengi hefur ríkt óvissa um málalyktir. En það er alltaf erfiðara að gæta fengins fjár en afla, og þess vegna verðum við öll að vera á verði bæði ungur sem gamall“. Jón Guðmundsson, menntaskólakcnnari: „Þetta eru vissulega góð tíðindi, en þessi dómur er að vísu aðeins undirréttardómur, sem gefur góðar vonir um end anleg úrslit handritamálsins. Ég vona að þessi gleðifregn verði Islendingum hvatning til að hraða og vanda undir- búning, til að taka við hand- ritunum“. Magnús Guðmundsson, verkanlaður: „Það er gott að vera að fá þau heim eftir margra ára baráttu og nú verðum við að hlúa sem bezt að þeim. Endurheimt handritanna hef ur mikið gildi fyrir þjóð vora, og það er gott, að farið er að losna eitthvað um ísinn“. Kristján Aðalsteinsson, skipherra: „Ég er mjög glaður, en ég hef aldrei efazt um að Danir stæðu við sitt. Ég þekki sækjandann í málinu, Gunnar Christrup, mjög vel, og um daginn hitti ég hann og sagði við hann að hann mætti alls ekki vinna þetta mál. Hann svaraði því til að hann skyldi áreiðanlega vinna málið. — Christrup er þekktur sem mjög snjall og harður mál- flutningsmaður, en ég veit að þrátt fyrir allt ber hann hlýj an hug til íslands og íslend- inga“. Sigurður Ólason, hæstar éttarlögmaður: „Þetta eru stórkostlegar og ánægjulegar fréttir, og von- andi, að málflutningsmanni stjórnarinnar takist að fylgja sigrinum fram í Hæstarétti í haust“. Thor Vilhjálmsson, rithöfundur: „Þetta eru stórar fréttir, og ég vona að við verðum menn til þess að fara vel með þau. Einhver var að stinga upp á því hér um árið að taka þau úr umferð og geyma þau í Skálholti, svo að þýzkir sand aladoktorar gætu komið þang að og þuklað þau á leið sinni inn í Landmannalaugar til að jóðla á marglitum tindum. En við skulum vona að þau komi að góðum notum hér í Reykja vík, og að hér rísi vegleg mið stöð þeirra fræða og að menn ingin sem á rætur í þessum handritum taki góðan fjör- kipp. Birgir Finnsson Brjánn Jónasson Hrefna Tynes Ég vona að afkomendur þeirra sem skrifuðu þessar ó dauðlegu bækur, „Sögurnar1* okkar, muni eftir því að g'anga uppréttir í dag og verði ekki að bráðlágkúrulegum þægðar vilja í skjóli fornra afreka". Jón Guðmundsson Þórir Kr. Þórðarson, prófessor: „Ég er ákaflega glaður yfir þessari frétt, og hún styrkir mig í trúnni á ágæti dönsku þjóðarinnar og gefur fyrir- heit um vaxandi samstarf ís- lands og Danmerkur". Kristján Aðalsteinsson Magnús Guðmundsson Sigurður Ólason Þórir Kr. Þórðarson Thor Vilhjálmsson Verðlags- og kaupgjaldsmál rædd á adalfundi Vinnuveitenda- sambandsins I kjarabreytingum, er samið var | um við verkalýðsfélögin á sl. I sumri og hausti. En þær voru m. a. fólgnar í styttingu vinnu- 1 tímans í 45—44 klst.. hækkun grunnkaups um 4%, hækkanir á kaupi eftir starfsaldri og aukn- ar greiðslur í veikinda og slysa- tilfellum. Þá ræddi hann horfur Framhald á bls. 19 AÐALFUNDUR Vinmuveitenda- sambands tslands hófst í gær kl. 14.15 að Hótel Sögu og og sóttu hann 78 fulltrúar víða að af land- inu. Formaður Vinnuveitenda- sambandsims, Kjartan Thors, setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna. Þá minnist formaður tveggja forustumanna Vinnuveit- endasambandsins, er létust á sl. ári, þeirra Guðmundar Vilhjálms sonar, fyrrverandi framkvæmda- stjóra Eimskipafélags íslands, er var í stjórn Vinnmveitendasam- bandsins frá byrjun og lengst af í framkvæmdanefnd, og Guð- mundar Halldórssonar, húsa- smíðameistara, er átti sæti í stjóm sambandsins í 15 ár. Risu fundarmenn úr sætum sínum, til að votta hinum látnu forustu- mönnum virðingu sina. Formaður Vinnuveitendasam- bandsins Kjartan Thors var kjör- inn fundarstjóri og tilnefndi hann Leif Guðmundsson fundar- ritara. _ Á fundinum flutti Björgvin Sigurðsson, framkvæmdastjóri, ýtarlega skýrslu um störf sam- takanna á liðnu ári og gerði m.a. grein fyrir helztu kaup- og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.