Morgunblaðið - 06.05.1966, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.05.1966, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ r Föstudagur 6. maí 1966 0«RKVÖLD í LÍDÓ Ferðaskrifstofan Útsýn efnir til skemmtunar í LIDO laugard. 7 . maí kl. 21.00. Húsið opið matargestum frá kl. 19.00. Myndasýning — Stuttir kvikmyndaþættir úr Útsýnarferðum. D a n s — Ferðahappdrætti — vinningur 25 daga ferð fyrir 2 að andvirði kr. 40 þúsund. Þátttakendur í Útsýnarferðum og annað ferðafólk, velkomið, meðan húsrúm leyfir — aðgangur ókeypis. FERÐASKRIFSTOFAN ÚTSÝN. Sedrus húsgögn Hverfisgötu 50 — Sími 18830. 4 SÆTA SÓFASET, sófanum má breyta í svefnsófa. — Verð frá kr. 13.850.00. SVEFNBEKKIR, verð frá kr. 3.400.00. HJÓNARÚM með dýnum, verð 7.600.00. SÓFASETT, verð frá 14.500.00. § Sendum í póstkröfu. Frá Tónlistarskólanum í Reykjavlk Inntökupróf í Tónlistarskólann í Reykjavík fyrir skólaárið 1966—1967 verða laugardaginn 7. maí kl. 5 s.d. að Skipholti 33. SKÓLAST J ÓRI. íbúð til leigu íbúð 5—6 herb. í Austurbænum til leigu frá 14. maí. Uppl. sem greini frá fjölskyldustærð og fleira sendist Mbl. fyrir hádegi laugardag merkt: „Glæsileg íbúð — 9218“. Faðir okkar, stjúpfaðir og afi ] ÞORBJÖRN GUÐMUNDSSON frá Blómsturvölium Eyrarbakka, andaðist á Elliheimilinu Grund laugardaginn 30. apríl. Jarðarförin ákveðin laugardaginn 7. maí*kl. 2.00 e.h. frá Eyrarbakkakirkju. Katrín Þorbjörnsdóttir, Svanhvít Þorbjörnsdóttir, Kristín Þorbjörnsdóttir, Steinn Emarsson, og barnabörn. PÉTUR PÁLSSON frá Hafnardal, andaðist í Landakotsspítala 4. þ.m. Jarðarförin ákveðin síðar. Sigíður Jónsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Öllum þeim sem hafa sýnt okkur hluttekningu vegna andláts og jarðarfarar okkar kæru systur GUÐRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR frá Norðtungu, sendum við okkur innilegustu þakkir. Ingibjörg Sigurðardóttir, Sigurbjörg Sigurðardóttir, Elínborg Sörenson. Innil<_0_r þakkir færum við öllum þeim, er sýndu sanjúð og vinahug við fráfall og jarðarför EINARS KRISTJÁNSSONAR óperusöngvara. Martha Kristjánsson, Vala Kristjánsson, Brynja Kristjánsson. BÍLALEIGAN FERÐ SÍMI 34406 SENDUM Jóhanna Björnsdóttir, Víðidals- tungu - F. 9. des. 1868 — d. 27. apríl 1966 Víðidalstunga var í fimm aldir höfuðból þeirrar ættar, sem bezt og lengst hefur sameinað harð- fylgi auðsæld og andans mennt á íslandi. Sú óðalsætt hófst, eftir því sem bezt verður vitað, með Gissuri galla, sem kominn var í móðurætt af Hafliða Mássyni á Breiðabólstað, en í föðurætt af Hvamms-Sturlu og Hrafni Svein bjarnarsyni á Eyri, bar sjálfur nafn Gissurar jarls og andaðist í Víðidalstungu árið 1370, meira en 100 ára gamall, eftir langan ævintýraferil, utan lands og inn- an. Sonarsonur hans' var Jón Há- konarson, sem lét rita Flateyjar- bók og Vatnshyrnu. Rúmri öld síðar bjó þar Jón lögmaður Sig- mundarson, sá er deilur átti við Gottskálk biskup og var afi Guð- brands biskups, en langafi Arn- gríms lærða. Um 1700 bjó þar dóttursonur Arngríms, Páll lög- Minning að hana vantaði aðeins þrjá mánuði í 100 ár. Jóhanna giftist 14. sept. 1893 frænda sínum Teiti Teitssyni, sem var þremenningur við hana frá Guðmundi Björns- syni á Húki, - sem Húksætt er kennd við. Þau byrjuðu með lítil efni, 'bjuggu fyrst eitt ár á Gilá í Vatnsdal, fjögur ár á Haga í Þingi og fimm ár á Ægissíðu í Vesturhópi, þangað til Teitur keypti hálfa Víðidalstungueign, eins og áður er sagt, árið 1904 fyrir 8000 krónur. Var það all- ’mikið fé í þá daga, en þó kosta- kaup á helmingi tíu járða. Teitur var hestamaður mikill, ferðamað ur og fjárafla og hef ég sagt nokkrar sögur af honum í Föður túnum. Hann dó 1923 og sat Jó- hanna eftir það 18 ár í óskiptu búi með Óskar son sinn sem ráðs mann, eða þar til Óskar kvænt- ist 1941 og tók við búi. Settist þá gamla konan í helgan stein um á fyrstu ferð minni í skóla. Var þá tún þar þýft og sundur- slitið af mýrarsundum, en nú er það stækkað að mun og ein sam felld slétta, en jarðarhús öll byggð frá grunni. Á Óskar sonur hennar mestan þátt í þeim fram kvæmdum ásamt móður sinni. Laxveiðina hafði Einar Benedikts son tekið undan, er hann seldi þeim Teiti og Jóhönnu jörðina, en veiðin var síðar keypt undir höfuðbólið og sömuleiðis hinn helmingur eignarinnar. Hafa sum börn Jóhönnu fengið útjarðir Víðidalstungueignar til eignar og ábúðar, en sumar jarðirnar voru kot, sem komin eru í eyði. Höfuð bólinu sjálfu átti Jóhanna þátt í að lyfta til nýs vegs, en hún gleymdi þó aldrei bókinni fyrir búskapnum, frekar en hinir gömlu stórbændur í Víðidals- tungu. Ekki átti hún kost skóla- göngu í æsku sinni, en elliárin notaði hún til bóklestrar og bóka vörzlu, enda varð hún langelzti bókavörður landsins. Hún tók ástfóstri við jörð sína og sveit hennar, eins og sýndi sig í því, að hún gaf kirkjunni góðar gjaf ir og allmyndarlega upphæð til elliheimilis í Vestur-Húnavatns- sýslu. Með þakklæti og virðingu óska ég þessari hljóðlátu og hugljúfu frændkonu minni fararheilla 1 fegra og betra heimi. P. V. G. Kolka. maður Vidalín. Fimmti maður frá honum var alnafni hans, Páll Jónsson Vídalín, stúdent og alþingismaður, einn af ágætustu forustumönnum Húnvetninga á síðustu öld. Hann dó 1873, 46 ára að aldri, og lauk þá setu ættleggs hans á þessu forna höfuðbóli. Meðal þeirra stoða, sem stóðu undir auði Vídalínanna, var lax- veiðin í Víðidalsá og eign afrétt- arinnar á Viðidalstunguheiði. Óðalseignin tók yfir 10 jarðir, allar í næsta nágrenni höfuð- bólsins, og var óðalsbóndinn kall aður „húsbóndinn“ af sveitungum sínum almenntt, samsvarandi orðinu „squire“ í enskum sveit- um. Eftir lát Páls alþingismanns hélzt eignin sem ein heild, þótt eignarrétturinn væri í höndum fleiri erfingja, búsettra utanhér- aðs, og hélzt svo í þrjá áratugi, að ábúðin var í höndum leigu- liða. Hrakaði þá húsum og bú- skap í Tungu, en þar hafði fyrir miðja síðustu öld verið reistur sá bær, er mestur og glæsilegast ur var talinn á íslandi á þeirri tíð. Leifar hans hrundu sumarið 1946. Árið 1904 hófst nýtt tímabil í sögu Víðidalstungu, þá keypti hálfa eignina af Einari Benedikts syni skáldi Teitur Teitsson og fluttist þangað ásamt konu sinni, Jóhönnu Björnsdóttur frá Marðar núpi. í tíð hennar, manns hennar og sonar hefur þetta forna höfuð ból öðlast nokkuð af sinci fornu reisn á ný. Þessi merkiskona andaðist 27. f.m. og verður jarð sett í Víðidalstungu á morgun. Jóhanna Björnsdóttir var fædd í Gröf í Víðidal 9. des. 1868, dóttir hjónanna Björns Guð- mundssonar frá Síðu og Þor- bjargar Helgadóttur frá Gröf. Hún var næstelzt 15 barna þeirra, en elztur var Guðmundur land- læknir. Jóhanna fluttist korn- ung að Marðarnúpi og ólst þar upp, en þar áttu foreldrar hennar heimili til dauðadags og dóu bæði fjörgömul. Urðu föðursyst- kini Jóhönnu öll mjög langlif og þó Guði-ún amma mín elzt, því og tók að sinna því áhugamáli sínu að annast bókasafn sveitar- innar, en það hafði áður verið í mesta ólestri. Þetta starf rækti hún af mikilli prýði allt til dauða dags, enda var hún mjög bók- hneigð, en síðustu 2—3 árin var sjón og heyrn nokkuð farin að bila. Hélt hún þó minni og hugs- un vel og gat annazt bækur sínar fram til þess síðasta. Vil ég vísa til samtals, 9em Björn Daníels- son skólastjóri átti við hana síð- asta haust og birtist í Fálkanum 31. jan. sl. undir fyrirsögninni: Það heifur víst ekki versnað, fólkið. Þaðan er og mynd sú, er hér birtist af henni á 95 ára af- mæli hennar. Þau Teitur og Jóhanna eignuð ust 13 börn og dóu tvö þeirra i frumbernsku. Hin eru Þorbjöm bóndi í Sporði, kvæntur Fríði Sigurbjörnsdóttur, Anna, gift Gunnlaugi Jóhannessyni bónda á Bakka, Eggert áður bóndi á Þorkelshóli, kvæntur Herdísi Jó hannesdóttur, Óskar bóndi í Víði dalstungu, kvæntur Hallfríði Bjömsdóttur, Jóhann bóndi á Refsteinsstöðum, kvæntur Ingi- björgu Sigfúsdóttur, Guðrún, gift Birni Sigvaldasyni, áður bónda í Bjarghúsum, Ragnheið- ur, dáin, Aðalsteinn skólastjóri í Sandgerði, dáinn 1957, kvæntur Guðnýju Björnsdóttur, Þorvald- ur, ókvæntur, Ingunn, gift Guð- mundi Daníelssyni kaupmanni og Elísabet, gift ólafi Guðmunds- syni, og eru þrjú þau síðast- nefndu búsett í Reykjavík. Ég kom fyrst að Víðidalstungu 1908 og gisti þar ásamt Guð- mundi landlækni og föður mín- Ung hjón með eitt barn, óska eftir að taka á leigu 2ja herb. íbúð. Alger reglusemi, og góðri um- gengni heitið. Fyrirfram- greiðsla, ef óskað er. Tilboð merkt: „Reglusemi — 9257“, sendist blaðinu fyrir 14. maí. LITLA bílaleigon Ingólfsstræti 11. Volkswagen 1200 og 1300. Símí 14970 0 S,H'3-11-60 m/UF/M c. Volkswagen 1965 og ’66. BILA m MIAGNÚSAR SKIPHOITI 21 SÍMAR 21190 eftir lokun slmi 40381 BIFREIDALEICAItt VEGFERÐ Grettisgötu 10. Simi 14113.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.