Morgunblaðið - 06.05.1966, Blaðsíða 27
Föstuðagur 6. maí 1966
MORGU N BLADIÐ
verður hafizt handa um að
hygrgja Bústaðakirkju og á sunnu
daginn að lokinni guðsþjónustu
í Réttarholtsskólanum verður að
alsafnaðarfundur sóknarinnar.
„Hálfnað er verk þá hafið er“,
segja þeir bjartsýnu, og vist er
um það, að vonir só'knarmanna í
Bústaðaprestakalli eru miklar
og draumarnir bjartir, þegar
hafizt er nú handa um að reisa
kirkju í sókninni. Verður stutt
athöfn á kirkjulóðinni við Bú-
staðaveg, austur af Tunguvegi,
kl. 7:30 á laugardagsmorguninn.
Mun þá sóknarpresturinn, séra
Ölafur Skúlason flytja bæn, for
Komu öðru
hvoru til með-
vitundor í gær
' Keflavík, 5. maí: —
PILTARNIR tveir, sem hafa ver-
íð ineðvitundarlausir í sjúkra-
húsinu í Keflavík eftir árekstur
aðfaranótt sunnudags, virðast nú
vera í þann veginn að fá meðvit-
und aftur.
Komu þeir til meðvitundar
öðru hvoru í gærdag, en þrátt
fyrir það er líðan þeirra enn
mjög alvarleg. — hsj.
Gamulmenna-
hótíð í Jóseisdal
ÁRMENNINGAR halda sína
árlegu GAMALMENNAHÁTÍÐ
í Jósepsdal um næstu helgi. Á
laugardaginn stendur til að
keppni verði háð í ýmsum
greinum fyrir eldri félaga, og á
'laugardagskvöldið verður ýmis-
legt til skemmtunar í skála fé-
lagsins, svo sem skíðakvikmynd
o.fl. Á sunnudaginn verður efnt
til skíðaferðar í Bláfjöllin.
Dráttarbrautin verður í gangi
í Ölafsskarði bæði laugardag og
sunnudag. Stjórn skíðadeildar-
innar leggur áherzlu á að sem
flestir félagar mæti á --gamal-
mennahátíðinni, en þó sérstak-
lega eldri félagar.
maður sóknarnefndar, Guðmund
ur Hannesson, flytur ávarp, og
að því loknu mun Axel L. Sveins
sem verið hefur um árabil
dyggur og þolgóður framámað-
»r í safnaðarmálunum, taka
fyrstu skólflustunguna.
Bústaðakirkja er teiknuð hjá
húsameistara ríkisins af Helga
Hjálmarssyni, arkitekt. Hafa
teikningar og líkan kirkjunnar
verið til sýnis almenningi, auk
þess sem þær hafa legið frammi
á fundum sóknarinnar, áður en
þær voru samþykktar. Mun
kirkjan sjálf taka um 350 manns
í sæti, en auk þess er hægt að
tengja safnaðarsalinn, sem ætl-
aður er fyrir um 200 manns,
sjálfri kirkjunni og fá þar aukið
rými við sérstakar guðsþjónust-
ur. Þá eru í safnaðarheimilinu
skrifstoifur prests og safnaðar-
stjórnar. kennslustofa fyrir ferm
ingarbörn, eldhús og brúðarher-
bergi og herbergi fyrir kirkju-
vörðinn auk mjög rúmgóðrar for
kirkju og fatageymslu. Þá er í
kjallaranum sérstök aðstaða fyr
ir æskulýðsheimili og má segja,
að kirkjan sé teiknuð með það
fyrir augum, að þar geti farið
fram það starf, sem nú hefur
þegar verið hafizt handa um í
söfnuðinum við óhagstæðar aö-
stæður, en mun aukast til mikilla
muna, þegar kirkjan rís. Verk-
fræðiþjónustu við kirkjubygg-
inguna annast Almenna bygginga
félagið, en verktaki og bygging-
armeistari er Davíð Kr. Jensson.
Eftir guðsþjónustu safnaðar-
ins á sunnudaginn verður svo
aðalsaifnaðarfundur, þar sem
lagðir verða fram endurskoðaðir
reikningar og skýrslur um starf
safnaðar og prests, kosningar
fara fram og rætt verður nánar
um kirkjubygginguna og annað
það, sem efst er á baugi í Bú-
staðasókn. En ofarlega á blaði er
almenn fjársöfnun, sem nú mun
fara fram, því ekki mun af veita,
að allir þeir, sem stuðla vilja að
byggingu kirkjunnar, leggi fram
sinn skerf, svo að hraða megi
framkvæmdum sém mest. Þörfin
er mikil, það dylst engum, sem
þekkir, og nægir að benda til þess
að nú í vor urðu fimm fermingar
athafnir að fara fram í þrem
kirkjum. Er því heitið á sóknar-
börn og aðra þá, sem styrkja vilja
Bústaðakirkju, að ljá þörfu máli
lið sitt.
Hafin bygging
Búsfaðakirkju
f A. LAUGARDAGSMORGUN
Fljóthreinsun í Keflavík
Fljóthreinsun heitir nýstofnað . í Hafnargötu 49. Þar hafa verið
firma í Keflavík og er til húsa I settar upp Norge-hraðhreinsi-
vélar af fullkomnustu gerð og
hreinsa þær fatnað og annað á
45 mínútum. Taka þær 4 kg. í
senn og kostar hreinsun á sliku
magni 130 kr. Allt er afgreitt
samdægurs.
Eldur í íbúðar-
húsi i Skagafiröi
Sauðárkróki, 5. maí: —
UM KL. 5 síðdegis í dag kom upp
eldur í íbúðarhúsinu að Haf-
stcinsstöðum í Skagafirði. Húsið
er nýlcgt steinhús, tvær hæðir.
Eldurinn, sem kom upp á neðri
hæð, mun sennilega hafa orsakazt
af notkun gastækja. Steypt plata
er milli hæða og má fullvíst
telja, að það hafi komið í veg
fyrir frekari útbreiðslu eldsins.
Fólk kom af næstu bæjum til
hjálpar og einnig var óskað eftir
aðstoð slökkviliðsins á Sauðár-
króki, sem kom fljótlega á vett-
vang, en þá var að mestu búið að
ráða niðurlögum eldsins. Hins
vegar fylltizt húsið af reyk og
má gera ráð fyrir, að hann hafi
valdið talsverðu tjóni.
Sólfari með
næni 1000 tonn
Annars er ekki vitað með
vissu, hve miklar skemmdir urðu
á húsinu.
Á Hafsteinsstöðum búa Jón
Björnsson, söngstjóri og tónskáld
og sonur hans Sveinbjörn. — Jón.
Sjálfboðaliðar
Sjálfstæðisflokkinn vantar
fjölda sjálfboðaliða við skriftir í
dag og næstu daga. Þeir sem
vilja leggja til liðs sitt hringi
í síma 22719 — 17100 eða komi
á kosningaskrifstofu Sjálfstæð-
isflokksins Hafnarstræti 19 3.
hæð. (Hús HEMCO).
Sýna sjónleik
á Sauðárkróki
Skagaströnd, 5. maí: —
UNGMENNAFÉLAGIÐ Fram og
Lionsklúbbur Höfðakaupstaðar
hafa að undanförnu sýnt sjón-
leikinn „Svört á brún og brá“,
eftir Philip King, undir leikstjórn
Bernódusar Ólafssonar, hér á
Skagaströnd.
Einnig hefur leikritið verið
sýnt þrisvar sinnum á Blönduósi
og tvisvar á Hvammstanga við
mjög góðar undirtektir áhorf-.
enda.
Ákveðið er nú, að sýna það á
Sauðárkróki nk. laugardag kl. 4
síðdegis. — Þórður.
Kosningaskrifstofur
Sjálfstæðisflokksins
Nokkurt magn af rækju
finnst d Breiðafirði
FYRIR skömmu fannst nokk-
uð magn af rækju í mynni
Skálmarfjarðar og Kollafjarðar
við Breiðafjörð, en verulegt
magn af rækju hefur ekki fund-
ixt áður á þessum slóðum.
Gunnar Jónsson fiskifræðing-
ur, sem tók þátt í rækjuleitarleið
angrinum fyrir hönd Rannsókn
arstofnun sjávarútvegsins, tjáði
blaðinu í gær, að leiðangurinn
hefði verið gerður út 19. apríl og
staðið yfir til 1 .maí. Leitað var
víðsvegar í Breiðafirði, m.a. inni
á fjörðum, þar sem dýpi var
nóg og togfært, auk þess var
leitað í Bjarneyjarál, í kringum
Flatey og víðar. Sagði Gunnar,
að þeir hefðu einungis orðið
rækju varir í fyrrnefndum
fjörðum, og fengu þar 550 kg. í
tveimur hölum. Ekki taldi Gunn-
ar rækjumagnið á þessum slóð-
— Alþingi
Framhald af bls. 32.
þingmönnum fyrir samstarf í
vetur og árnaði þeim góðs sum-
«rs og afturkomu til pingstarfa
að hausti. Eysteinn Jónsson
þakkaði forseta og árnaði lion-
um og fjölskyldu hans heilla.
Tóku þingmenn undir þær ósk-
ir til forseta með því að rísa
úr sætum.
um nægilega mi'kið fyrir alla
rækjubátana en sagði, að þarna
gæti orðið góð veiði fyrir 1—2
báta.
Er nú unnið að því á vegum
Rannsóknarstofnanna að vinna
úr gögnum þeim, sem leiðangur
inn kom með úr hinni ýtarlegu
leit sinni.
Washington 5. maí — AP.
William Fulbright, formaður
utanríkismálanefndar Banda—
ríkjaþings, lýsti því yfir í dag,
að „Saigon væri bæði í orði og
á borði orðin að bandarísku
vændishúsi". Hélt Fulbright á-
fram árásum sínum á utanríkis-
málastefnu Bandaríkjanna í kjöl
far harðrar gagnrýni á aðgerðir
hans frá Barry Goldwater, for-
setaefni repúblikana í síðustu
kosningum, sem krafizt hefur
þess, að Fulbright segi af sér for
mennsku í utanríkismálanefnd
þingsins vegna „niðurlægjandi
gagnrýni“ hans á utanrikismála-
stefnu Bandaríkjanna.
Bæði Goldwater og Jacofo K.
Javits, þingmaður frá New York.
Akranesi, 5. apríl: —
í GÆR lönduðu 10 bátar hér
samtals 60 tonnum. Aflahæstir
voru Höfrungur I með 11 tonn
og Sólfari með 9 tonn.
I dag er norðaustan stormur á
miðunum og aðeins tveir bátar
á sjó.
Sólfari er langaflahæstur á
þessari vertíð, skortir aðeins 20
tonn til að ná eitt þúsund. Bát-
urinn stundaði ekki linuveiðar,
en hóf veiðar í þorskanet 10.
febrúar sl. — Oddur.
hafa ráðizt harkalega að þeirri
fullyrðingu Fulbrights að Banda
ríkin séu nú tekin að sýna merki
„valdahroka" svipuðum þeim,
sem leitt hafi til hruns Frakk-
lands Napoleons og Þýzkalands
nazismans.
FuLbright sagði í kvöld í fyrir
lestri, sem hann flutti við Johns
Hopkins háskólann, að „sér dytti
ekki eitt andartak í hug, að
Bandaríkin, sem rætur sínar eiga
svo djúpt í lýðræðinu, séu líkleg
að hefja herferð í því augna-
miði að sigra heiminn á sama
hátt og Hitler og Napóleon
gerðu." í þessum fyrirlestri við
hafði Fulbright einnig þau orð
um Saigon, sem að framan get-
ur.
Fulbright gagnrýnir enn hnrð-
lega steínu Bandaríkjanna
SJÁLFSTÆBISFLOKKURINN hefur kosningaskrifstofol
utan Reykjavíkur á eftirtöldum stöðum:
AKRANESI
Vesturgötu 47, simi: 2240
opin kl. 10—12 og 14—22.
ÍSAFIRÐI
Sjálfstæðishúsinu II. hæð, sími 537 og 232 /
opin kl. 10—19.
SAUÐÁRKRÓKI
Aðalgötu 5, sími 23 — opin kl. 10—18.
SIGLUFIRÐI
Sjálfstæðishúsinu, simi 71154
opin kl. 13—19.
AKUREYRI
Hafnarstræti 101, simi 11578
opin kl. 10—12, 14—18 og 20—22.
VESTMANNAEVJUM
Samkomuhúsinu, Vestmannabraut 19, sími 223S
opin kl. 10—22.
SELFOSSI
Hafnartúni, sími 291
opin kí. 9—17 og 19,30—21.
KEFLAVIK
Sjálfstæðishúsinu, simi 2021
opin ki. 10—19.
H AFN ARFIRÐI
Sjálfstæðishúsinu, simi 50228
opin kl. 9—22.
GARÐAHREPPI
Lyngási 8, simi: 51690 — 52340
opin kl. 15—18 og 20—22,
laugardaga og sunnudaga kl. V
KÓPAVOGI
Sjálfstæðíshúsinu, sími: 40708
opin kl. 9—22.
SELTJARNARNESI
Melabraut 56, simi 24378
y opin kl. 18—22.