Morgunblaðið - 15.05.1966, Síða 12

Morgunblaðið - 15.05.1966, Síða 12
12 MORGU NBLAÐIÐ Sunnudagur 15. maí 196ð GIIMIMI BORGIINIIMI ORGIIVIVI ÞAÐ er mikið vafamál að til sé stærri vinnustaður hér í . Reykjavík, en sjálf Reykjavík- urhöfn . Líklega útvegar eng- inn einn vinnustaður jafn mörgu fólki atvinnu, og þó er þar stöð- ug mannekla. En það er þó ekki svo ýkja einkennilegt, er við hugsum út í það, hve starfsemi Reykjavíkurhafnar er marg- þætt. Þarna koma fiskibátar og fiskLskip, flutningaskip og far- þegaskip, og öllum þessum flota þarf höfnin að sjá fyrir þjón- ustu. Höfnin þarf að sjá um hafnarskemmur til vörugeymslu, og aðstöðu til fiskaðgerðar, en hún má ekki vera við nögl skor- Pétur hafnarvörður: — Stóru bátarnir óðir að þrífa sig fyrir síldina. (Ljósm. Sv. Þorm.) Reykjavíkurhöfn tn, því að Reykjavík er nú stærsta verstöð landsins. Fer hiutverk hennar sem verstöðvar ört vaxandi, þrátt fyrir að tog- araútgerð hafi dregizt saman núna hin síðari ár. Vegur þar upp á móti — og vel það — að bátaútgerðin er í stöðugum vexti. Og nú stendur Reykjavíkur- höfn á merkum tímamótum, segir í grein í Morgunblaðinu hér á dögunum. Er nú gamla Reykjavíkurhöfnin orðin full- ixýtt, og verður því enn að færa út kvíarnar. Mun þess nú skammt að bíða, að hafnar verði framkvæmdir við hið fyrirhug- aða stórathafnasvæði, sem er eins og flestir vita, Sundahöfn- in. Enn inni í Sundum eru hafn armöguleikar sagðir mjög góðir, og nær óþrjótandi möguleikar til hvers konar hafnarmann- virkja. Gamla höfnin verður þó ekki þar með úr sögunni, því að hún mun halda áfram að gegna veigamiklu hlutverki, en kannski ekki í eins ríkum mæli og nú er. Verða gerðar á henni margar skipulagsbreyting- ar, þegar þar að kemur, og t d. er það í ráði, að Vesturhöfnin verði smátt og smátt að fiski- bátahöfn eingöngu. Heklan virtist einmana. Allt þetta hvarflaði um huga okkar, er við gengum um Reykja víkurhöfnina hér í fyrrakvöld, og virtum fyrir okkur blómstr- andi atvinnulífið, sem þar var. * Lítill fiskibátur var að renna inn um hafnarkjaftinn eftir spegilsléttum sjónum, og Akra- borgin var að leggja frá bakk- anum, Hún færi víst ekki lengra en til Akraness núna, eða stóð það ekki í blöðunum hér á dög- unum, að hún væri hætt Borg- arnesferðum? Og út á Ytri-höfn eáum við hvar annar fiskibátur sigldi út. Kannski var hann að fara á veiðar, kannski var hann bara að fara til heimahafnar- innar til þess að skipshöfnin gæti verið heima á sjómanna- daginn. Það var aldrei að vita. Ails staðar sáum við menn að vinnu, og alls staðar frá bárust tiróp og köll, og alls staðar frá Toárust drunurnar frá vélum hinna stórvirku tækja, sem þarna voru víða að verki. Þama brunuðu lyftarar um allar triss- ur með stóreflis kassa framan á, á öðrum stað voru himinháir kranar að landa vörum úr er- lendu flutningaskipi, og á enn einum stað hljóp fólk annað hvort um borð í Kronprins Frede rik, eða frá borði, en hann virt- ist tiltölulega nýkominn. Aðeins Heklan virtist laus við allt um- stang, þar sem hún ,lá ein við eina bryggjuna. Hún virtist næst um því einmana. Kann bezt við sig við höfnina. Við röltum í hægðum okkar í áttina að Hafnarbúðum. Þar firði. Og maður reynir af fremsta megni að verða við því því að það er alltaf heldur sárt að vita báta verða stopp vegna mannaskorts. Aðallega eru það matsveinar, sem maður er beð- inn um að ráða, en stundum líka hásetar. Ég verð að játa það, að ekki eru það alltaf sem vanastir menn, sem manni tekst að fá — en þrátt fyrir allt — betra en ekkert. SJÓMANNADAGURINN ætluðum við að rabba svolítið við forstöðumann þeirra, mann sem lifir og hrærist þarna við höfnina, nefnilega Harald Hjálm arsson. Hann hefur veitt Hafn- arbúðum forstöðu síðan 1. maí 1962, eða frá byrjun. Áður veitti hann Verkamannaskýlinu for- stöðu, eða allt frá 1958, en þar áður sigldi hann á togurum Kveldúlfs og Bæjarútgerðarinn- ar alveg frá 1936. Haraldur er því sjómaður í eðli sínu, enda þótt hann hafi gerzt landkrabbi hin síðari ár, og er mikill máti allra sjómanna. Hann tók á móti okkur af sinni alkunnu hlýju, spaugaði svolítið með okkur fyrst, en sneri sér svo að al- vörunni: — Hingar í Hafnarbúðir koma aðallega útlendingair, sagði hann t.d. allir enskir sjómenn, sem eru hér á vegum Geir Zoega, svo og langflestir Færeying- anna. En svo koma líka hingað í Hafnarbúðir sjómenn úr öllum verstöðvum landsins, sem eru hér með báta í viðgerð. Það er því yfirleitt ailtaf nóg að gera hér, og mikið um að vera. — Hvernig ég kunni við mig? Alveg ágætlega. Ég kann bezt við þessa menn, sem hingað sækja, enda hef ég lengst af umgengizt þá. Nú, og svo er maður hérna innan um sjálft atvinnulífið, er farinn að þekkja flest alla bátana, sem fara hér um jafnvel þótt þeir séu staddir út á ytri höfn. í gegnum starf mitt hef ég kynnzt fjöldanum öllum af sjómönnum, ég get nefnt sem dæmi, að það kemur jafnvel fyrir að skipstjórar hringja í mig, og biðja mig um að ráða á báta vestur um alla — Ó, jú, auðvitað hafa orðið miklar breytingar á mörgum sviðum við höfnina síðan ég byrjaði að starfa hér. Það er komið mikið af nýjum skipum, og nýjum tækjum o.fl. En hins vegar virðist mér sjósóknin nú og þá vera mjög áþekk, nema hvað það er kominn miklu betri útbúnaður í þessa báta, og þar af leiðandi orðið meira öryggi, segir Haraldur. Margt breyzt á 30 árum. Við rákumst á góðlegan, mið- aldra mann, þar sem hann stóð fyrir framan vöruskemmu Rík- isskip. Þetta var Guðmundur Jónsson, aðstoðarverkstjóri í vöruskemmu Ríkisskip. Þarna hefur hann starfað í rúm 30 ár, þekkir því þetta svæði hafnar- innar flestum öðrum betur. Enda fannst okkur líka tiivalið að fá hann til þess að segja okkur frá breytingunum, sem orðið hafa á höfninni á þessum 30 árum. — Þetta er alveg tvennt ó- líkt, höfnin eins og hún er í dag, og var fyrir 30 árum, sagði hann. — Þá var hér allt unnið með höndunum einum saman, en nú eru komin stórvirk tæki, sem létta geysilega alla erfiðustu vinnuna. En fólkinu hefur fækk- að til muna, það er alltaf stöð- ug vöntun á fólki. Væri nú ó- hugsandi að vinna það verk núna með handaflinu einu, sem unnið var hér áður fyrr — ekki vegna þess að fólkið sé neitt afkasta- minna en var þá, heldur vegna þess hve mannekla er mikil. Það er helzt á laugardögum sem okk ur tekst að fá menn til vinnu, en þá kemur hingað mikið af lausafólki. — Á hinn bóginn get ég ekki sagt að umhverfið hér hafi breyzt svo ýkja mikið. Mér finnst það a.m.k. ósköp svipað. Að vísu hafa nokkrar nýjar bryggjur verið smíðaðar, og nokkrar gamlar horfið. T.d. var Sprengisandur, eða Grófar- bryggja eins og hún heitir víst, ekki komin, þegar ég byrjaði hér. Hún ihlaut nafnið Sprengisand- >ur, þegar það fór að koma sprunga í þilið strax á fyrsta ári. Þá var heldur ekki búið að fylla upp í Austurgarð þá. Gamli garðurinn var svo allur lagður smásteinum til skamms tíma, en hann hefur nú verið malbikaður. Þá . hefur gamla steinbryggjan horfið, og Zimsen bry-gigjan, einnig. En ný tæki eru víða komin og setja svip sinn á umhverfið hér, og einnig hafa risið hér allmargar byggingar, síðan ég fór að vinna hér, svo sem Hafn- arbúðir, Hafnarhvoll, Hafnar- húsið, hluti Sambandshússins, og auðvitað vöruskemmur Rík- isskip, sagði Guðmundur og brosti við, sem hermennirnir reistu á stríðsárunum. Þá má einnig nefna Austurskálann, eða USA-skálinn, eias og hann er oftast kallaður og loks tollskýl- ið. En mestar breytingar hafa orð ið á mótorflotanum sem hér fer um, en þær eru geysilegar. En þó eru enn nokkur skip af þess- um gömlu enn við líði. Vorin eru annatími. Næst litum við inn til hafn- sögumannanna. Þeir voru þá tveir á vakt, og aðeins annar inni við., Páll Björnsson. Röbb- uðum við stutta stund við hann, enda þótt hann virtist hafa ænð nóg að gera við að svara í sím- ann, því hvað eftir annað var hringt, og spurt, hvort að Helga fellið væri ekki komið, og síð- an hvar það lægi. Sigurður á vigtinni: — Hingað koma skipstjórarnir á kvöldin, líta á aflaskýrsluna til þess að sjá hvað Wnir hafa fengið. UR BORGINMI II Haraldur í Hafnarbúðum: — Stundum verður maður að ráða á báta vestur um allar hafnir. — Er alltaf nóg að gera, Páll? — Nei, ekki alltaf. Það er ákaflega misjafnt hvað kemur inn af skipum, og hvað fer. En það er oft ákaflega mikið að gera á vorin, eins og núna, en svo koma tímaibil, sem eru mjög dauf. — Hvað eruð þið margir, hafn sögumennirnir? — Við erum átta, og sjö, sem tökum vaktir. Við erum venju- lega tveir á vöktunum, og svo eru auðvitað vélamenn með okkur á lóðsbátunum. — Hvað eruð þið með marga núna? — Við erum með þrjá báta I gangi, Magna, Jötunn og Haka, en einn, sá elzti, sem heitir Nóri, er í viðgerð. — Hvaða skipum ber ykkur að sigla inn í höfnina? — Við tökum inn alla togara flutningaskip og farþegaskip, og yfirleitt öll þessi stærri skip, en yarðskipin eru þó undanþegin, Öll útlend skip eru lóðsskyld. — Hvað mundi vera stærsta OKGIMMI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.