Morgunblaðið - 15.05.1966, Side 25
Sunnu<Jagur 15. maí 1966
MORGU N BLADIÐ
25
Guðmundur Erlends-1 Jassklúbburinn 5 ára
son yfirvélstj. Minning
AÐ morgni föstudagsins 6. maí
kom strandferðaskipið Esja til
Reykjavíkur, úr einni af sínum
mörgu strandferðum, og var ekk-
ert sérstakt við þessa ferð, frem-
>ur en svo oft áður. Yfirvélstjór-
inn, Guðmundur Kristinn Er-
lendsson, var með í þessari ferð,
og gátum við skipsfélagar hans
ekki séð nú fremur en áður, að
til tíðinda myndi draga fyrir
Bólarlag þennan dag. Guðmund-
ur var að vísu ekki heill heilsu,
hafði fyrir nokkrum árum kennt
sér meins og legið um tíma á
sjúkrahúsi, og vissum við, að
íhann var ekki búinn að fá að
fullu mót meina sinna, en samt
kom það okkur skipsfélögum
hans á óvart, er fréttin barst um
kaffileytið nefndan dag, að hann
væri allur. — Hafði hann farið
hress og kátur að vanda frá
(borði, í þetta sinn fór hann í
Landssmiðjuna 1 erindagjörðum
skipsins, en er hann kom þangað
hneig hann niður örendur.
Guómundur Kristinn Erlends-
son var 64 ára, er hann féll frá,
hann fæddist 30. september 1901,
í Bakkakoti á Seltjarnarnesi, en
fluttist barn að aldri með for-
eldrum sínum til Hafnarfjarðar,
og bjó þar ætíð síðan. Foreldrar
hans voru þau hjónin Erlendur
Jónsson sjómaður og Gróa
Bjarnadóttir. Guðmundur var
yngstur fjögurra systkina sinna,
og sá fyrsti þeirra, er kveður
þennan heim.
Um bernsku Guðmundar veit
ég ekki fram yfir það, sem að
framan er getið. Hann mun hafa
útskrifazt úr Vélstjóraskólanum
árið 1928, og var eftir það, um
áratug, á togurum sem vélstjóri.
Til skipaútgerðar ríkisins réðist
hann árið 1940, þá sem vélstjóri
á es. Súðina. Síðan var nann á
varðskipum, og seinna á hinum
minni strandferðaskipum, unz
hann sótti ms. Herjólf sem yfir-
vélstjóri, í árslok 1959, en á ms.
Esju kom hann á sextugsafmælis
degi sínum 1961, og hefur verið
þar síðan.
Guðmundur Kristinn kvænt-
Ist 9. maí 1942 Þórdísi Guðjóns-
dóttur frá Þórshöfn, en hún lézt
6. nóvember 1944. Þeim Guð-
mundi og Þórdísi varð íveggja
barna auðið, sem bæði eru á lífi,
en þau eru, Kristín, gift Bjarna
Þórðarsyni, tryggingafræðingi,
og Erlendur, flugmaður hjá
Loftleiðum. Fyrir hjónaband
Bitt átti Guðmundur eina dóttur,
Báru Kristínu.
i Guðmundur Kristinn Erlends-
son hefur á langri ævi kynnzt
mörgum, og margir eru þeir, sem
hafa haft hann sem yfirmann
•inn. Störf Guðmundar ein-
kenndust af samvizkusemi, eins
og hún gerðist áður fyrr. Hann
vildi hafa allt í röð og reglu i
vélarúminu, og er það að sjálf-
•ögðu ekki löstur á yfirmanni.
B£n slíku er oft samfara, að hinir
yngri menn, sem ekki þekkja til
bátta fyrri ára, verða oft seinir
að átta sig á, og viðurkenna þau
•annindi, sem voru samfara liðn
um tíma.
Guðmundur átti sér ýmis á-
hugamál, hann myndaði sér á-
kveðnar skoðanir á mönnum og
málefnum. Guðmundur var sann
mc trúmaður. Hann var ætíð
heill en ekki hálfur, þegar rætt
var um hin ýmsu málefni, hvort
þau voru félagslegs eða stjórn-
málalegs eðlis, eða eitthvað ann-
•ð. Því sem hann taldi rétt, var
•kki hægt að hagga hjá Guð-
mundi. Oft ræddum við ýmis
málefni, en þrátt fyrir að skoð-
anir okkar væru mjög ólíkar,
var langt frá að til fjandskapar
drægi okkar milli, langt í frá.
Skák- og bridgemaður var
hann ágætur.
Þessar línur, sem hugsaðar
voru sem kveðjuorð frá okkur
skipsfélögum hans, tel ég ekki
rétt að hafa öllu lengri. Við
skipsfélagar hans á ms. Esju,
þökkum honum samstarfið og
sýnda vináttu og tryggð. Við
vottum börnum hans, systkinum
og öðrum ættingjum okkar inni-
legustu samúð við fráfall hins
mikla sjómanns.
Persónulega vil ég nota þetta
tækifæri, og þakka hinum látna
fyrir kunningsskapinn gegnum
aldarfjórðungs skeið, að leiðir
okkar lágu fyrst saman á es. Súð-
inni. Ég árna honum allra farar-
heilla yfir þau landamæri, sem
mér er fuli ljóst, að hann efað-
ist ekki um, að við ættum öll
eftir að fara.
Eftir stendur minningin um
góðan dreng, sem aldrei gerði
annað, en það sem hann vissi
sannast og réttast. Slíkra manna
er ljúft að minnast. Meigi hann
hvíla í friði.
Böðvar Steinþórsson.
LIÐIN eru um það bil fimm ár
síðan Jassklúbbur Reykjavíkup
byrjaði hin vinsælu mánudags-
jasskvöld sin í Reykjavík. Þar
sem klúbburinn hafði engan
samastað fyrstu árin voru jass-
kvöldin haldin óreglulega fyrst
í stað, þar til fyrir rúmu ári
eða í fyrravor að klúbburinn
fékk inni í hinum vistlegu húsa-
kynnum Tjarnarbúðar, þar sem
jasskvöldin hafa verið haldin
reglulega á mánudagskvöldum
síðan, við ágæta aðsókn og vin-
sældir.
Jassleikarar á íslandi eru ekki
margir en kannske eðlilega marg
ir miðað við fólksfjölda á land-
inu. En þessir fáu jassleikarar
HIEH-FIDEL.IT Y
fyrir unga fólkið.
BELLA MUSICA1015
þrír hraðar. Afburða tónn.
i >:r rrrjv
AIR PRINCE 1013
Langdrægt með bátabylgju.
RADIOBÚÐIN
Klapparstíg 26. Sími 19800
sem við eigum eru uppistaðan
í jasslífinu í Reykjavík og eru
þeir sumir hverjir mjög góðir
þrátt fyrir £á tækifæri til jass-
iðkunar.
Síðan hinn reglulegi rekstur
jasskvöidana hófst í fyrravor
hefur klúbbnum tekizt að fá
þekkta jassleikara í heimsókn
erlendis frá, og var fyrsti gestur-
inn hinn kunni íslenzki gítar-
leikari Jón Páll, sem dvalið hef-
ur erlendis nú um tveggja ára
skeið, en Jón lék fyrir Jassklúbb
Reykjavíkur mánud. 5. maí í
fyrra og má geta þess að aldrei
hefur verið fleira fólk saman-
komið á jasskvöldi í Tjarnarbúð
en einmitt það kvöld iþrátt fyrir
góða aðsókn yfirleitt.
Um áramótin síðustu kom
bandaríski flugelhorn- og tromp-
etleikarinn Art Farmer í heim-
sókn og skömmu síðar landi hans
og kollegi Donald Byrd.
Enn er von á erlendum jass-
leikurum í heimsókn en, ekkert
er hægt að segja ákveðið um það
eins og er, þó er líklegt að danski
trommuleikarinn Alex Reel komi
hér við á leið sinni heim til Dan-
merkur frá Bandaríkjunum í
júnímánuði næstkomandi. En
eins og mörgum er kunnugt var
Alex kosinn bezti jassleikari
Dana 1965.
Sennilega verður jassklúbbn-
um lokið um einhvern tíma í
sumar en endanleg ákvörðun
hefur ekki verið tekin um það
enn.
Næsta jasskvöld verður lialdið
á mánudagskvöld eins og venju-
lega og rnun þá leika nokkrii
af okkar beztu jassleikurum.
Biireiðastjóri
Óskum eftir traustum manni vönum stórum bif-
reiðum, til afleysinga vegna sumarfría, við akstur
sérleyfisbifreiða. Upplýsingar er greini fyrri störf
sendist til afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir næst-
komandi mánudagskvöld merkt: „Traustur — 9742".
Rakoll — Trélím
1 kíló — 5 kíló — 50 kíló pakkningar.
Mjög hagstætt verð.
Heildsala — Smásala.
Hansabúðin
Símar 21800 og 11616.
Síldarstúlkur
Síldin er komin á miðin og söltun hefst væntanlega
með fyrra móti. Okkur vantar nokkrar góðar síld-
arstúlkur til Raufarhafnar og Seyðisfjarðar. Ágætis
húsnæði og vinnuskilyrði. Fríar ferðir, kauptrygg-
ing. Mötuneyti á staðnum. Nánari upplýsingar veita
Valtýr Þorsteinsson, sími 20055, Reykjavík og
Hreiðar Valtýsson, sími 11439, Akureyri.
KVIKSJÁ
-K—- Fröðleiksmolar til gagns og gamans
Amundsen réði sig á belgískt
könnunarskip sem 1. stýrimað-
ur árið 1897. Skipið hét Belgica
og átti að fara í leiðangur til
Suðurskautsins og finna Suður-
pólinn. Við Grahamsland lok-
aðist skipið inni í is og var fast
í 13 mánuði. Tveir hásetar urðu
vitskertir og allir þjáðust þeir
af skyrbjúg. Skipslæknirinn
hét dr. Cook og með honum
fór Amundsen á selveiðar til að
útvega skipsmönnum eina
meðalið sem var til: ferskt sel-
kjöt. Könnunarstjórinn gat
sjálfur ekki borðað selkjöt og
fyrirbauð mönnum sínum að
neyta þess. Loks voru allir fár-
veikir og könnunarstjórinn lagð
ist fyrir og byrjaði að skrifa
erfðaskrá. Þá fengu dr. Cook og
Amundsen leyfi til að koma
með hina skotnu seli og eftir
viku voru aliir á batavegi. —
Skipið var siðan losað úr ísnum
með dýnamiti og Belgica sigldi
af stað til Evrópu og kom þang
að tveim árum eftir brottför-
ina. Næsta ár tók Amundsen
skipstjóraprófið.
Tryggjum 'AFRAM ófluga uppbyggingu