Morgunblaðið - 15.07.1966, Page 16
16
MORGU N BLAÐIÐ
Föstudagur 15. júlí 1966
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjörnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti S. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 105.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 5.00 eintakið.
ALDREI MEIRI
VEGARÆTUR
Cíðan hin nýju vegalög voru
sett árið 1963 og vegaáætl-
un gerð til fjögurra ára, hefur
verið unnið skipulegar og af
meiri stórhug að vegabótum á
íslandi en nokkru sinni fyrr.
Aukins fjármagns hefur verið
aflað til vegagerðar og af-
kastameiri vélakostur tryggð-
ur, þannig að tæknin verði
sem bezt hagnýtt í þágu fram
kvæmdanna. Jafnframt hefur
verið hafizt handa um að gera
vegi úr varanlegu efni og
stefnan mörkuð gagnvart
framtíðinni.
Vitanlega verður að stefna
að því hér á landi eins og
annars staðar að gera alla
vegi úr varanlegu efni. Fyrr
en það hefur verið gert, verð-
ur ekki sagt að viðunandi á-
stand hafi skapazt í vegamál-
um okkar. En það sætir hins-
vegar engri furðu þótt þessi
litla þjóð hafi orðið að byggja
malarvegi á meðan hún var
að vinna brautryðjendastarf-
ið í samgöngumálum sínum.
Enda þótt íslenzkir vegir séu
flestir lélegir, verður sú stað-
reynd þó ekki sniðgengin, að
í vegamálum okkar hefur á
örfáum áratugum verið lyft
undraverðu Grettistaki.
Uridir forystu núverandi
ríkisstjórnar hafa stærri
skref verið stigin í vega-
málunum en okkru sinni
fyrr. í því sambandi má
minna á það, að framlög til
vegamála voru á árinu 1958,
síðasta valdaár vinstri stjórn-
arinnar, 81,7 milljónir króna.
Á árinu 1965 var hins veg-
ar unnið fyrir nær 300 millj.
kr., þegar miðað er bæði við
framlög vegasjóðs og heim-
ildir vegaáætlunar til ann-
arrar fjárútvegunar.
Það er hiklaust stefna
Sjálfstæðismanna að skapa
traust og öruggt akvegasam-
band milli allra landshluta og
innan allra landshluta. Hald-
ið verður áfram að stein-
steypa vegi og hagnýta tækn-
ina eftir því sem frekast er
hægt til þess að gera vegina
góða og greiðfæra. Leggja
verður áherzlu á að fylgjast
með hvers konar nýjungum á
sviði vegagerðar og þær hag-
nýttar eftir fremsta megni.
Það er skoðun Sjálfstæðis-
manna, að góðir og full-
komnir vegir og greiðar sam-
göngur, séu eitt af frumskil-
yrðum blómlegs atvinnu-, fé-
lags- og menningariífs vítt og
breitt um byggðir landsins.
HÁTÍÐAHÖLD
ÍSFIRÐINGA
T dag hefjast víðtæk hátíða-
höld vestur á ísafirði í til-
efni af 100 ára afmæli kaup-
------------------------
staðarins. Mun fjöldi ísfirð-
inga víðs vegar að af landinu
sækja þessi hátíðahöld og
nota þannig tækifæri til þess
að koma heim á æskuslóðir.
Einn merkilegasti þáttur-
inn í afmælishátíðahöldum ís-
firðinga er tvímælalaust sögu
sýningin, sem Sögufélag ís-
firðinga gengst fyrir undir
forystu hins ágæta fræði-
manns Jóhanns Gunnars Ól-
afssonar bæjarfógeta. Þar er
reynt að bregða upp myndum
úr þróunarsögu kaupstaðar-
ins, og er óhætt að fullyrða,
að margvíslegur fróðleikur sé
þar dreginn fram í dagsljósið.
Þar er rakin saga kaupstaðar-
ins frá því hann var örfámenn
og skipulagslaus byggð, þar
til í dag að hann er myndar-
legur og þróttmikill nútíma-
kaupstaður.
ísafjarðarkaupstaður hefur
á liðnum tíma fyrst og fremst
byggzt á sjósókn og sjávarút-
vegi. Mun svo enn verða um
langt skeið. Skilyrði til sjó-
sóknar og fjölbreytilegs fisk-
iðnaðar eru ágæt í bænum, en
jafnhliða er þar nú tekinn að
vaxa upp ýmis konar annar
iðnaður, sem veitir vaxandi
fjölda fólks atvinnu. Á ísa-
firði eru einnig margir mynd-
arlegir skólar, og á næstunni
mun rísa þar heimavistar-
menntaskóli, sem verður nauð
synleg viðbót í skólakerfi
Vestfirðinga og þjóðarinnar í
heild.
Morgunblaðið óskar ísfirð-
ingum allra heilla á þessum
merku tímamótum í sögu
kaupstaðar þeirra, um leið og
það lætur þá von í ljós, að
bærinn „í faðmi fjalla blárra“
megi halda áfram að eflast og
dafna til blessunar íbúum sín-
um og vestfirzkri byggð.
FRÁLEITT
VERKFALL
17'erkfallið í veitingahúsun-
" um, deilan um stimpil-
kassana, er furðuleg og frá-
leit deila. Hér hefur verið
unnið að því af ötulleik, bæði
af hálfu veitingahúsaeigenda
og þjónustuliðs að byggja upp
myndarlegan, nýtízku gisti-
húsarekstur. Hið opinbera hef
ur veitt verulegu fjármagni
til stuðnings við umbætur á
þessu sviði og miklar vonir
eru tengdar við auknar gjald-
eyristekjur af heimsóknum
erlendra ferðamanna. Eru
góðar horfur á að það íakist.
Ferðamannastraumurinn hef-
ur stóraukizt með bættum
gistihúsakosti.
Jfc- A
wmm
UTAN ÖR HEIMI
Svona auðvelt er
það vinur minn ...
Steinbeck svarar Vevtushenko
• F\RIR nokkru birtist í
bókmenntablaði í Moskvu
ljóð eftir hið vinsæla so-
vézka skáld, Yevgeni Yevtus-
henko, þar sem hann ávítaði
bandarískra Nóbelsskáldið,
John Steinbeck, fyrir að hafa
þegið bunnu hljóði um styrj-
öldina i Vietnam — og skor-
aði á hann að mótmæla
sprengjvártísunum á Norður-
Vietnam. Steinbeck hefur
svarað ljóði þessu með opnu
bréfi til Yevtushenkos, þar
sem m.a. segir, að byss-
urnar myndu þagna og synir
bandarísku þjóðarinnar snúa
heim á ný, ef Sovétstjórnin
gæti talið stjórnina í N-Viet-
nam á að ganga til friðar-
samninga.
Bréí Steinbecks birtist I
bandaríska dagblaðinu „News
day“, sem birt hefur vikuleg-
an þátt eftir Steinbeck og hef
ur einkarétt á efni hans. Rit-
höfundurinn fór þess hins
vegar á leit við ritstjóra
blaðsins og útgefanda, Harry
G. Guggenheim, að hann
leyfði ölium blöðum og frétta
stofum að birta bréfið. Varð
Guggenheini við þeim til-
mælum, m. a. á þeirri for-
sendu, að sonur Steinbecks,
tvítugur að aldri, er nú her-
maður í Vietnam.
í svarbréfinu til Yevtus-
henkos sagði Steinbeck m. a.
„Þér ei vel kunnugt hverja
andstyggð ég hef á öllum
styrjöldum — og á þessari
styrjöld (í Vietnam) hef ég
alveg sérstaka andstyggð. Ég
er andvígur þessari styrjöld,
sem runnin er undan rifjum
Kínverja og ég þekki engan
Bandarikjamann, sem mælir
henni bát. En.....þú skor-
ar á mig að fordæma eina
hlið styrjaidarinnar, okkar
hlið. Ég mæiist hinsvegar til
þess að þú gangir í lið með
mér og fordæmir styrjöldina
alla“.
Þú trúir því þó ekki í raun
og veru, að flugmennirnir
okkar fijúgi til þess að varpa
sprengjum á börn? Að við
sendum sprengjur og þunga-
vopn gegn saklausum borg-
urum? Það sem er að gerast
í Vietnsm, er ekki það sama
og gerðist í Austur Berlín
1953, Púdapest árið 1956 né
Tíbet árið .1959“.
„Þú veizt eins vel og ég,
Ghenya, að við vörpum
sprengjum á olíubirðastöðv-
ar, flutningatæki og þung og
stórvirk vopn sem þau flytja
til S-Vietnarn í þeim tilgangi
að drepa syr.j okkar og þessi
vopn koma .......“
„Ég vona líka, að þú vitir,
að væri ekki vegna þessara
vopnasendir.ga, værum við
alls ekki í Vietnam. . . . “
„Þessi styrjöld er árangur
verka leiðtogans Mao, —
hann hefur lagt þar á ráðin
og stjórnar henni úr fjar-
lægð. Pekingstjórnin hefur
stuðlað að styrjöldinni og
séð hexmi fyrir vopnum. Við
skulum líka fordæma það,
Steinbeck
vinur r.n.inn. — og það sem
meira er um vert, við skul-
um taixa saman höndum um
að géra eitthvað sem áhrifa-
meira er en fordæming.
„Ég bið þig að beita þeim
áhrifurn, sem þú hefur á
stjórn þína og þjóð — og þá,
sem leita aðstoðar Sovét-
Yevtushenko
stjórnarinnar, að þeir hætti
að senda morðtæki gegnum
N-Vietnam til notkunar í S-
Vietnam".
„Ég fyrir mitt leyti er
reiðubúinn að gera allt, sem
í mínu valdi stendur, til þess
að fá stiórn okkar til að kalla
heim herlið sitt og vopn frá
Suður-Vietnam og skilja þar
einungis eftir peninga til
þess að auðvelda og aðstoða
við uppbyggingu og 'endur-
reisn efnahagslífs landsins.
Og veiztu, Ghenya, — ef þér
tækist að lcysa þetta verk-
efni þitt, mundi mitt leysast
jafnskjótt, alveg sjálfkrafa.
Ef þú gætir talið stjórn N-
Vietnam á að fallast á frið-
arviðræður með góðum hug,
mundu lofárásirnar stöðvað-
ar þegar í stað. Byssurnar
mundu þagna og synir okkar,
sem við elskum, gætu komið
heim. Svona er það auðvelt,
vinur minn — það get ég full-
vissað þig um, — svona sára
auðvelt.
I
Mwambutsa neitar
að láta af völdum
En allt í einu dynja þau
ósköp yfir að um hásumar
þegar mest er að gera hjá
veitinga- og gistihúsum hefst
verkfall!
Veitingastöðunum er lokað,
hvorki ferðafólk né aðrir fá
vott né þurrt. Milljónatjón
vofir yfir, og sóma lands og
þjóðar er stefnt í voða.
Hér skal ekki kveðinn upp
neinn dómur um kjör og kröf-
ur. En engum dylst að deil-
an um stimpilkassana er
hneyksli. Það sjá allir heil-
vita menn af eðli hennar.
Þessvegna verður að vænta
að þessu fráleita verkfalli
ljúki tafarlaust, áður en það
veldur landsmönnum meira
tjóni og álitshnekki út á við.
Genf. júlí — NTB.
MWAMBUTSA konungur IV í
Burundi birti yfirlýsingu í Genf
í gær, sunnudag, þar sem hann
kvaffst alls ekki mundu láta af
völdum. Kvaðst hann enn hinn
eini sanni konungur landsins og
sagffi, að sourinn, hinn tvitugi
Charles krónprins, hefði gerzt
handbendi öfgamanna, er hann
tók völdin í sínar hendur í sl.
viku.
í yfirlýsingunni segir
Mwamibutsa konungur einnig, að
hann muni fyrirgefa syni sínum
jafns'kjótt og hann láti útvarpa
boðskap, er hann hafi sent heim
frá Genf. Þar segir Mwambutsa,
að hann sé enrnþá konungur í
landinu og völdin í hahs höndum
en ekki krónprinsins. Mwamb-
utsa staðhæfir, að hann muni
áfram líta á Charles sem krón-
prins.
Charles tók, sem kunnugt er,
völd af föður sínum í síðustu
viku, rak ríkisstjórnina frá völd-
um, nam úr gildi stjórnarskrána
og kunngjörði fyrirætlanir sínar
um ýmiss konar róttækar endur-
bætur í landinu. Á laugardag til-
Framhald á bls. 21.