Morgunblaðið - 15.07.1966, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 15.07.1966, Blaðsíða 19
Föstudagur 15. júlí 1968 19 MORGUNBLAÐIÐ UTAN AF LANDÍ - Á HÉRAÐSMÓTUM SJÁLFSTÆÐISMANNA - '-■■. :.í. aldrei gott vor núorðið, að heit ið geti. Það kemur ekki gróður fyrr en komið er fram í end- aðan maí eða í júní. Það eru orðin mörg ár síðan við höfum fengið reglulega gott vor. í mínu ungdaemi þá voru vorin svo, að maður sleppti fé kannske um sumarmál eða vlku af sumri, en nú þekkist það ekki. Þessar innistöður núorðið eru ákaflega kostnaðarsamar fyrir bændur í fóðri og fóður- bæti. Þetta er engum að kenna nema tíðarfarnu, það er ekki hægt að kenna neinni stjórn um það. Það vekur athygli á héraðs- mótinu í Sævangi, hversu margir menn úr Árneshreppi eru þar samankomnir. Nyrzti ihreppurinn á Ströndum hefur jafnframt orðið að búa við ein- hverja mestu einangrun á ís- landi, þar til vegur var rudctur þangað sl. haust. Við náðum tali af Ingólfi Guðjónssyni frá Eyri í Ingólfsfirði og höfum orð á því, að margr séu hér stadd- ir úr Árneshreppi. — Já, við erum komnir í vegasamband og eigum nú greiða leið hingað. Þetta teljum við mikla framför, því að við Ihöfum átt að búa við mjög erf- iðar samgöngur, en nú er veg- urinn orðinn fær svo að segja öllum bílum. Vegurinn var ruddur í fyrra frá Veiðileysu að Djúpavík við mjög erfiðar aðstæður, því að ekki var byr.i- að fyrr en eftip að rigningartíð var komin, sem er oft þarna síðla sumars. Fyrir tæpum tveim ur vikum var svo byrjað að lag færa veginn á kaflanum írá Djúpavík til Veiðileysufjarðar- Eftir er að brúa tvær ár og verður önnur þeirra brúuð núna, en Reykjafjarðaráin ekki, sem er vatnsmesta áin og nokk- uð mikið mannvirki að brúa hana. — Það eru geysilega mikil viðbrigði fyrir okkur að fá veg. Til okkar hafa eingöngu verið ferðir með Skjaldbreið og svó flóabátur, sem gengið hefur á sumrin, en nú virðast allir vera fleygir og færir. Ég tel að þessi vegagerð hafi haft mjög goð á- hrif á byggðina í Árneshreppi, því að áður leit helzt út fyrir að allir væru að fara, en ég held að þetta verði heldur til Þess að festa og tryggja að byggðin fari ekki í eyði. — Með tilkomu vegarins rná segja að við höfum fengið ferða frelsi og getum ráðið því sjálf- ir hvenær við förum og komum heim aftur. Stærsti kosturinn er að þurfa ekki að vera háður ferðalögum á sjó. Ég got Sagt þér í því sambandi, að á miðri jólaföstu í fyrra báðu nokkrar konur mig að aka sér í kaup- 6taðarferð til Hólmavíkur tii að gera jólainnkaup. Þá var veg- urinn sæmilega vel fær. Kom- ust færri en vildu í þessr forð og gekk hún ágætlega. Ef veg- urinn hefði ekki verið, hefði engin húsmóðir lagt í ierðalag á sjó til slíkra jólainnkaupa, enda mjög ylgjusamt oft og tíðum fyrir Strandir. —■ Vegurinn mun tvímæla- laust festa fólkið í byggð, því enginn lætur nú til dags bjóða sér algjöra einangrun. Vegagerð in veldur straumlhvörfum i iífi okkar. Við erum búin að þrá þennan veg lengi. í fyrnvar virtist vera mikil upplausn í fóikinu, og þá var einróma á- hugi hjá mönnum um að skora á ríkisvaldið að útvega fé til þessarar vegagerðar svo að við gætum komizt í samband, og það var líka gert, og gekk greiðlega fyrir sig. — Þó að aflaleysi sé rikjandi enn hjá okkur, eins og re.yndar hér við alian Húnaflóa, finnst mér vera bjart yfir Árnashreppi eftir að vegurinn kom. Vegagerð var það sterkasta, sem hægt var að gera fyrir okkur, sem vilj- um búa þarna áfram. Mestur hluti fólksins vill vera áfram, en manni mislíkar það, að marg ir þeirra, sem eru farnir, eru eins og Ameríkuagentarmr, sem foru til Vesturheims, og reyndu að fá landa sína til að flytja til Vesturheims. Þetta fólk gyllir fyrir heimamönnum krónutöluna, sem fæst, þar sem eftirspurnin eftir vinnuaflinu er sem mest fyrir sunnan, og vill fá heimamenn suður. Þetta er nokkuð lokkandi fyrir fólkið, sem er héima þegar það heyrir krónutöluna, en það er ekki allt fengið með krónutölunni. Fólk- inu líður þarna vel og hefur rækt til sinnar jarðar og flest- ir vilja vera þarna áfram. Með vegagerðinni hefur birt mikið yf ir og lífvænlegra er en áður að búa í Árneshreppi. * SUNNUDAGURINN er heitasti dagur sumarsins og við höfum ekið alla leiðina frá Hólmavík til Patreksfjarðar í steikjandi sól- sfkini og yndisfögru veðri. Fegurð og tign Breiðafjarðar hef ur sjaldan verið meiri og haf- flöturinn er spegilsléttur svo langt sem augað eygir. Snæfehs jökull skartar sínu fegursta í suðvestri. Sólin hellir geislaflóði sínu yfir víkur og voga og freist andi væri að stöðva rásina og njóta náttúrufegurðarinnar og veðurblíðunnar, en til Patreks- fjarðar er förinni heitið á héraðs mótið. Það er mikil biðröð við hið gamla samkomuhús Sjálfstæðis- manna, Skjaldborg, og strax og húsið er opnað, fyllist hvert sæti og margir standa og innan stundar komast ekki fleiri fyrir. Mest er .þarna um Patreksfirð- inga, en sumir eru komnir lang; að, frá Bíldudal, Tálknafirði, úr Rauðasandshreppi og af Barða- strönd og margir kunnir Vesíor Barðstrendingar eru meðal móts gesta. Ásberg Sigurðsson sýslu- maður setur mótið og stjornar því. Ræðumenn á mótinu voru Þor- valdur Garðar Kristjánsson, al- þingismaður, Eyjólfur Þorkels- son, sveitarstjóri á Bíldudal og forsætisráðherra, dr. Bjarni Benediktsson. Skemmtiatriði eru með sama sniði og í Sævangri og fólkið skemmti sér frábærlega vel. Fólkið var mjög ánægt með mót ið, en einhver deyfð var í upp- hafi dansleiksins, en Magnús og hljómsveit hans ásamt söhgvur- unum komu fólkinu af stað og ekki leið ó löngu þar til dansinn var stiginn af miklum .móði, gömlu dansarnir, nýju dansarnir, hringdans og hvað þetta heitir nú allt saman. I spurningakeppninni kepptu af Patreksfirðinga hálfu Eggert Haraldsson, Jón Ásbergsson ifg Bjarni Þorsteinsson, en úr sýsl- unni Sveinn Þórðarson í Innri- Múla á Barðaströnd, Kristján Þ. Ólafsson á Bíldudal og Unnar Böðvarsson. Sigruðu heimamenn eftir harða keppni. Á héraðsmótinu hittum við að máli Þórð Jónsson hrepp- Þórður Jónsson bóndi, Látrum stjóra, á Látrum, sem er þjóð- kunnur maður fyrir störf að slysavarnamálum og félagsmál- um. Við spyrjum hvað sé efst á baugi í Rauðasandshreppi. — Mest aðkallandi málið í svipinn er bygging skóla, sem við erum langt komnir með. Þetta er reyndar heimavist í Örlygshöfn, en ætlunin er að kenna í Félagsheimilinu. Þing- menn okkar Vestfirðinga hafa verið ákaflega liðlegir að útvega okkur fé í þetta og sömuleiðis aðrir aðilar, sem hlut eiga að máli, svo sem menntamálaráð- herra og fræðslumálastjórnin. Hafa þeir lagt okkur lið við að koma þessu áleiðis, og vonir standa til að við getum tekið þetta í notkun í haust, enda mikil nauðsyn á að fá þítta. Verður þetta mikið og vandað hús. Við erum að reyna að koma upp mjólkurstöð á Patreksfirði. Þangað hefur verið mjólkursala úr Rauðasandshreppi til fjölda ára, en raunverulega ekki nægi- lega góð aðstaða til þess að selja mjólkina á Patreksfirði, þannig lagað, að ekki hefur verið hægt að gerilsneyða hana eða selja í hentugum umbúðum, flöskum hyrnum eða slíku. Nú á að kippa þessu í lag og hafa þarna á boð- stólum frambærilega mjólk og fó nýja pökkunarvél, eins og far- ið er að reyna hérlendis. Verður keypt ný vél til þess að pakka mjólkinni í plast, en annars er- um við búnir að festa kaup á vélunum úr Mjólkurbúi Akra- ness, sem var lagt niður. Það var mjög hagstætt fyrir okkur að fá þær, því að það bæði spar- ar gjaldeyri til kaupa á nýjum vélum, og ég held að þetta séu á allan hátt mjög frambærilegar vélar, og ég tel ao við höfum fengið þær á ágætu verði, og það gerir okkur í rauninni kleift að halda,áfram með þetta. — Húsið fyrir mjólkurstöðina er búið að steypa upp hér á Pat- reksfirði og þetta er komið ágæt- lega vel á veg. Hrepsnefndin og Patreksfirðingar hafa tekið þessu máli ákaflega vel og veitt okkur mikinn stuðning. Ætlunin er, að geta útvegað vaxandi Patreks- firði, Tálknafirði og jafnvel Bíldudal frambærilega mjólk og aðrar' landbúnaðarvörur. Við reiknum ekki með að þurfa að bæta við smjörfjallið, þvi að mjólkin, sem við höfum hér á boðstólum mun ekki gera meira en að nægja og sjálfsagt ekki nægja fyrst um sinn. — Mjólkurstöðin á að fá mjólk frá Barðastrandarhreppi, Patr- ekshreppi, að vísu ekki nema eitt bú þar, Rauðasandshreppi og Tálknafjarðarhreppi og sam- tökin heita Mjólkursamleg Vest- ur-Barðastrandarsýslu. í rekstraráætlun, sem var gerð fyrir þessa stöð, var talið að hún þyrfti að hafa allt að 600 þús. lítra á ári til þess að geta borið sig. Það ætti hún að geta borið sig vel með, því að við höf- um þá sérstöðu, að semsagt öll mjólk, sem að við fáum, getur farið í neyzlu. — Það er vitað mál, að ef við gerum ekkert í þessu, komum ekki upp þessari gerilsneyðingar stöð og þessari fyrirgreiðslu með mjólkina, þá er þessi markaður horfinn úr höndum okkar bænd- anna hér á þessu svæði, og okk- ur finnst það öfugþróun, mitt í Vestfjarðaáætluninni og upp- byggingu Vestfjarða, ef við eigum að fara að fá landbúnaðr- vörur fyrir þessi sjávarþorp norðan frá Akureyri eða af Suð- urlandsundirlendinu, eins og nú á sér stað að nokkru leyti. — Heilbrigðislega er ekki hægt að una við það lengur, að neyt- andinn geti ekki fengið geril- sneydda mjólk í frambærilegum umbúðum. — Annað mál, sem mér liggur mjög á hjarta, er rafmagnsmálið. Við erum þannig í sveit settir, að menn frá Raforkumálaskrif- stofunni segja okkur, að við kom um ekki til þess, helzt aldrei, að fá rafmagn frá samveitum. Við unum þessu ákaflega illa. Nú hafa hreppsnefndir Rauðasands- og Barðastrandarhreps látið gera áætlun um dreifingu raf- orkunnar og foringi okkar í þ^ss um málum hefur verið frá upp- hafi Hafsteinn Davíðsson raf- veitustjóri hér á Patreksfirði. Hann hefur unnið að þessum málum með ágætum og notið liðsinnis sérfróðra manna í Reykjavík og má segja að frá- gangur allur á þessari ætlun sé mjög góður. — Þetta er nákvæm áætiun um það, hvað kosta myndi að dreifa raforku um Rauðasan !s- og Barðastrandahrepp, t.d. héf an frá Patreksfirði eða frá Mjólk r- virkjun. Þessi áætlun liggur nú alveg fyrir, og það merkilega við hana er, að ráðandi menn í þessum málum trúa því ek ;i, hvað þetta kostar lítið. Það skal játað, að þarna er miðað við ið nota alla þá nútimatækni, sem fyrir hendi er, bæði við dretf- ingu á raforkunni og við aiia vinnu í sambandi við það. — Hjá okkur er ekki það þétt- býli, að við gætum komizt inn á aðal raforkuáætlunina nú þegar, því að þar er miðað við, hve langt er á milli býla, en annað er okkur meðmælandi í þessu máli, og það eru nokkrar opinberar stofnanir á svæðinu, sem æpa á rafmagn. Flugvöllurinn í Sauð- lauksdaisoddanum var gerður hér í fyrra og er alveg ómetan- leg samgöngubót, en hann verð- ur aldrei hafður til lengdar raf- magnslaus. Við höfum þarna skóla, sem er verið að byggja, og hann þarf líka rafmagn. Ríkið rekur vistheimili í Breiðuvík, sem kallar líka á rafmagn og í okkar hreppi eru þrír vitar, þar af einn radíóviti, sem sjálfsagt verða allir raflýsth með tíman- um. Það er þegar búið að kaupa tvær vélar í Bjargtangavitann og hann er orðinn mjög þýðing- armikill fyrir flugið sem radíó- viti. — Spurningin er: Er það þjóðhagslega hagkvæmt að kaupa og reka dieselvélar fynr alla þessa staði, þegar hægt er að fá raforku á næstu grösum fyrir minni stofnkostnað? — Enn hefur ekki verið frá því gengið, hvort þessi áætlun yrði framkvæmd af Rafmagns- veitum ríkisins eða hvort þetta yrði sérveita, eða þá hlutafélag, eða héraðsveita, sem Rauða- sandshreppur ætti, því að síðar hefur komið til, að Barða- strandarhreppur hefur komið inn á raforkuáætiun, sem á að framkvæmast eftir tvö ár. Þá stöndum við hér í Rauðasands- hreppi einir uppi og ég held að mér sé óhætt að fullyrða, að það sér almennur vilji íbúanna í Rauðasandshreppi að vinna að þessu máli og leiti til allra, sem stuðnings er að vænta frá, og linna ekki fyrr en við höfum fengið þetta mál í framkvæmd. Þórður á Látrum er mikill áhugamaður um sjávarútveg og hefur oftsinnis ritað athyglis- verðar greinar um fiskveiðar og verndun fiskstofnsins. Talinu víkjum við að þeim máium og Þórður segir: — Velmegun þjóðarinnar hef- ur aldrei verið meiri en hún er nú. En getum við haldið þessari Framhald á bls. 21 Frá hinu gcysifjölmenna móti Sjálfstæðismanna á Patreksfirði sJ. laugardagskvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.