Morgunblaðið - 15.07.1966, Qupperneq 31
Föstudagur 15. júlí 196C
MORGUNBLAÐIÐ
31
Manni á Hjalteyri
dæmdar slysabætur
FYRIH nokkru var kveSinn upp
í Hæstarétti dómur í máli, sem
Jóhannes Björnsson, Hjalteyri
höfðaði gegn Kveldúlfi h.f., þar
sem hann gerði þær kröfur, að
sér yrðu dæmdar bætur að upp-
hæð kr. 316.365.0* auk vaxta og
málskostnaðar vegna slyss, sem
hann varð fyrir, er hann var að
vinna í þágu Kveldúlfs h.f.
Málavextir eru sem hér grejn-
ir:
Vorið 1961 hófu nokkrir menn
á Hjalteyri viðgerð á bryggju,
eign Kveldúlfs h.f. Hafði stefn-
andi, Jóhannes Björnsson, verk-
stjórn á hendi. Vjð þetta starf
slasaðist hann 9. júní. Gólf
bryggjunnar hafði verið rifið
upp á svæði sökum þess, að
ramma átti niður staura. Við
Xijðurrömmun þeirra var notuð
vélknúin vinda, 500—700 kg. að
þyngd. Eftir einum armi fall-
hamarsgrindarinnar, fallbrautar
Stólpanum, rennur fallhamarinn
upp og niður lóðrétt og skellur
á staurinn, sem verjð er að
ramma niður. Maðurinn, sem
stjórnar vindunni, snýr að fall-
brautarstólpanum og þarf að hafa
vakandi auga með manninum,
sem stjórnar verkinu, því að
hann getur hvenær sem er gefið
merkj um að stöðva fallhamar-
■jnn, eða eftir atvikum setja hann
ef stað. Vindumaðurinn hefur
allgott útsýni frá vindunni, stoð-
irnar í fallhamarsgrindjnni rýra
það ekki að neinu ráði. Auk þess
þarf vindumaður að renna aug-
um upp eftir stólpanum, þegar
'lóðið nálgast þá fallhæð, sem
nota á, og fylgja hamrinum með
eugunum, er hann fellur, til þess
að vjnda hann upp aftur á rétt-
um tíma. Ennfremur þarf hann
eð fylgjast með kefli vindunnar.
Utan um fallbrautarstólpann og
etaurinn er brugðið kaðli, sem
er með lykkju á öðrum enda, og
er hinum endanum stungið gegn
um lykkjuna og hert að, síðan
settir einn eða tveir vafnjngar
eð auki utanum staurinn og stólp
ann. Maður heldur í kaðalend-
ann og stendur í 1—2 metra fjar-
lægð frá staurnum.
Vindumaður hét Guðni Sig-
urðsson, en sá sem í kaðalinn
hélt, hét Jón Ólafsson. Slysið
áttj sér stað, er verið var að
ramma niður fyrsta staurinn.
— Glæpur
Framhald af bls. 1
hafi heimtað fé, þvi að hann
þyrfti að komast til New
Orleans, en hefði hins vegar
sagt, að hann hefði ek'ki í
hyggju að gera neinum mein.
Lögregla, sem grandskoðað
hefur öll verksuimimerki, segir,
að stúlka sú, sem sögð er hafa
komið til dyra hafi verið
kyrkt en síðan hafi morðing-
inn haldið upp á efri hæð
hússins, bundið fiman sbúlkur
á höndum og fótum, og síðan
gengið að þeim dauðum; ann-
að hvort kyrkt þær eða stung-
ið til bana með hníf. I>ar að
auki hafi hann orðið tveimux
öðrum stúlkum að bana.
í dag var maður einn hand-
tekinn á flugvellinum við
Chicago, og var hanm klædd-
ur skyrtu, sem blóðblettir
voru á, og mun hann svara
til lýsingar þeirrar, er stúlk-
an, sem fyrr um getur, gaf.
Rannsókn málsins heldur enn
áfram, en frekari fregnir eru
mjög óljósar.
Stefnandi, Jóhannes Björnsson,
skýrði svo frá, að hann hefði
ætlað að lagfæra kaðalinn um
staurinn og stólpann og því gef-
ið vindumanni merkj um að
stöðva fallhamarinn. Hann hafi
verið með plankabút í höndum
og athugað um kaðalinn og eins
hvort staurinn væri farjnn að
festast. Hann hafði hrasað lítils
háttar og slengt hægri hendi út
frá sér og ofan á staurinn, sem
verið var að'ramma niður og var
i um 1 meters hæð upp úr bryggj
unni, en samtímis féll fallham-
arinn á höndina og lemstraði
hana. Hlaut hann við þetta mik-
il meiðsli á hendinni.
Nokkur vitni voru leidd, sem
voru viðstödd atburð þennan og
m.a. vindumaðurinn, sem kann-
aðist ekki við að hafa orðið þess
var, að hann ætti að stöðva ham
arinn og ekkert annað vitni
kvaðst minnast þess, að slík fyrir
skipun hefði verið gefin.
Stefnandi byggði kröfur sínar
á því, að slysið hefði orðið með
þeim hætti, að stefnandi hefði
gefið vindumanni merki um að
stöðva ásláttinn meðan hann
sjálfur athugaði kaðaðalinn á
staumum, og aðgætti hvort staur
inn væri farinn að ná festu eða
skekkjast. Vindumaður hafi stöð
vað hamarinn uppi, en í stað
þess að bíða menkis, hafi hann
látið hamarinn falla, meðan stefn
andi sinnti áðurgreindum athug-
unum, án þess að gefa gaum að
stefnanda, þar sem hann var við
verk sitt hjá staumum. Kveld-
úlfi h.f. bæri því að bæta tjónið
fullum fébótum sem ábyrgum
aðila fyrir starfsemi þeirri, sem
þama fór fram.
Kveldúlfur h.f. krafðist sýknu
í málinu og byggði þá kröfu sína
á því, að slysið hefði eingöngu
stafað af stórkostlegu gáleysi
stefnanda sjálfs með því að láta
ekki stöðva fallhamarinn og setja
öryggisjárn undir hann, eins og
auðvelt var að gera, áður hann
hóf lagfæringu á staurnum. Stefn
andi hefði sjálfur haft verkstjórn
á hendi við bryggjugerðina og
átti því að hafa eftirlit með
vinnuframkvæmdtim. Mótmælti
stefnandi því sem ósönnuðu, að
stefnandi hefðj verið búinn að
gefa vindumanni merki um að
stöðva.
Héraðsdómurinn og Hæstirétt
ur komust að sömu niðurstöðu
og segir svo í forsendum að
hérðasdómnum, sem staðfestur
var í Hæstarétti:
,,Eins og að framan er rakið
er stefnandi einn um þá frásögn
að hann hafi gefið vindumanni
merki um að stöðva ásláttinn og
vindumaður hafi samkvæmt því
stöðvað hamarinn. Vindumaður-
inn kveðst ekki hafa orðið þess
merkis var og því hafi hann
ekki gert hlé á áslættinum. Önn-
ur vitni, sem nærstödd voru,
segjast ekki muna, eða ekki
■minnast þess að hlé hafi orðið.
Hér brestur því sönnun fyrir
því, að orsakir slyssins verði
raktar til mistaka vindumanns-
ins.
í>ar sem telja veður, að hér
hafi hvorki verið um að ræða
vanbúnað tækja þeirra, sem not-
uð voru, né handvömm starfs-
manna stefnanda og réttarreglur
annars leiða eigi til fébóta-
ábyrgðar stefnda á tjóni stefn-
anda, ber að sýkna stefnda af
kröfum stefnanda í málinu. Eft-
ir atvikum þykir þá rétt að máls
kostnaður falli niður.“
Aíengi fyrii
219 milljónir
á 6 mánnðnm
ÁFENGISSALAN fyrstu
sex mánuði þessa árs nam
alls 219.2 milljónum króna,
en nam 162,8 milljónum króna
sömu mánuði 1965. Pess ber
þó að geta, að allmikil verð-
hækkun varð á áfengi á sL
hausti.
Ársfjórðunginn 1. apríl til
30. júní sl. nam heildarsala
áfengis 124.2 milljónum króna
en nam 92.2 milljónum króna
á sama tímabili 1965.
Salan í og frá Reykjavík
nam þennan ársfjórðung (í
sviganum samsvarandi tölur
1965) alls kr. 105.228.068.00
(kr. 76.990.705.00), Akureyri
kr. 10.646.365.00 (kr.
8.162.030,00), ísafirði kr.
1.602.280.00) og Seyðisfirði
3.289.095.00 (kr. 2.705.975.00),
Siglufirði kr. 1.901.735.00 (kr.
kr. 3.110.760.00 (kr.
1 2.773.920.00).
I Söluaukningin frá áramót-
ium til júniloka nemur 34,6%.
11 sjúkraliðar
brautskráðir
ÞANN 15. júní brautskráðust frá
Kleppsspítulanum 11 sjúkralið-
ar.
Námskeiðið hófst 15. október
1965 og stóð í 8 mánuði. Kennd-
ar voru bóklegar og verklegar
greinar, um 200 kennslustundir.
Bóklegar grtinar voru: Geðsjúk
dómar, geðhjúkrun, sálarfræði,
líkamsfræði og almennir sjúk-
dómar, heilsufræði oghjálp í við
lögum. Verklegir tímar voru í
hjúkrun og njálp í viðlögum. —
Einnig voru sýndar fræðslukvik
myndir og farnar kynnisferðir á
aðrar stofr.anir. Kennslu önn-
uðust læknar og hjúkrunarkon-
ur er stavfa við sjúkrahúsið.
Þeir se.n útskrifuðust eru:
Ásta Hermannsdóttir, Bera Krist
jánsdóttir, Bogi Sigurðsson,
Gestur Björnsson, Guðjón Guð
mundsson, Guðrún Sigurðardótt
ir, Gunnar Árnason, Helga Jó-
hannesdóttir, Sigríður Kjerúlf,
Sæmundur Elímundarson, Þór-
hallur Bjarnason.
Ráðgert er að næsta námskeið
hefjist 15. október nk. Væntan-
legir umsækjendur eru beðnir
að snúa sér til forstöðukonunn-
ar hið fyrsta því að æskilegt þyk
ir að þeir hafi starfað við sjúkra
húsið um 2ja mánaða skeið, áð-
ur en nárr.skeið hefst.
— Hátiðarhöld
Framh. af bls. 1
Ragnarsdóttir, stjórnandi Ragnar
H. Ragnar.
Kl. 15.10 Ávörp gesta: forsætis
ráðherra dr. Bjarni Benedikts-
son, fulltrúar vinabæja á Norð-
urlöndum, fulltrúi ísfirðingafé-
lagsins í Reykjavík.
Kl. 16.10 Einsöngur: Guðmund
ur Jónsson og Svala Nielsen,
óperusöngvarar. Undirleikur:
Ragnar H. Ragnar.
Kl. 16.20 Sýning á þjóðbúning
um — Kvenfélagið Hlíf. Stjórn-
andi Ragnhildur Helgadóttir.
Kl. 16.35 Þjóðsöngurinn.
Kl. 18.00 Opnuð málverkasýn-
ing í gagnfræðaskólanum, fyrir
boðsgesti. Forseti bæjarstjórnar,
Björgvin Sighvatsson og Björn
Th. Björnsson lýsir sýningunni.
Kl. 20.00 Sýningin opnuð al-
menningi.
Kl. 20.00 Sjóíþróttir á Pollinum
(kappróður á kajak. sjóskíða-
íþróttir o.fl.).
. Kl. 22.00 Dansleikur úti, fyrir
framan Landsbankann. — H.T.
-----------------------U
Sjá grein ujn sögusýninguna á
bls. 10
n--------------------------□
500 börn í Vinnuskó!-
anum, 650 í skólagörðum
Á FUNDI borgarstjórnar í gær
upplýsti borgarstjóri Geir Hall-
grímsson, að 500 börn á aldrin-
um 13—15 ára starfa nú á veg-
um Vinnuskóla Reykjavíkur og
Reikningur
borgarinnar
samþykktur
Á fundi borgarstjórnar í gær
var Reikningur Reykjavíkur-
borgar 1965 til 2. umræðu og var
hann samþykktur með sam-
hljóða atkv. Umræðna verður
getið á morgun.
22 skip með
var unnt að fullnægja eftirspurn.
í Skólagörðunum starfa nú ná-
lægt 650 börn á aldrinum 9—13
ára og eru það 150 fleiri en 1965.
Ekki var hægt að sinna umsókn-
um 100 barna. Auk þess fengu
20 vistheimilabörn í Reykjahlíð
aðgang að Skólagörðunum á
þessu ári. Upplýsingar þessar
komu fram vegna fyrirspurnar
borgarfulltrúa Alþýðuflokksins.
— Þjónadeilan
Framhald af bls. 32.
Að því er SVG tjáði Mbl. 1
gær eru litlar horfur á, að verk
fallið leystist næstu daga. Á
fundi sem veitingamenn héldu
síðdegis í gær var samþykkt að
öllum veítinga- og matsölustöð-
um verði áfram lokað í Reykja-
vík, eins og var í gær.
3.090 tonn
BRÆLA VAR á síldarmiffun-
um í gærdag og í tilkynningu frá
Landssambandi ísl, útvegsmanna
sagffi, að engin veiði hefði ver-
ið frá því síðdegis á miðvikudag
og þar til í gærmorgun. Samtals
tilkynntu 22 skip veiffi og höfðu
þau 3.090 tonn. Skrá um þau fer
hér á eftir;
Raufarhöfn
tonn
Hólmanes SU 190
Guðbjörg OF 110
Runólfur SH 50
Ögri RE 100
Ólafur Magnússon EA 110
Ólafur Sigurðsson AK 170
Jörundur II RE 170
Jörundur III RE 80
Fákur GK 130
Gjafar VE 220
Elliði GK 100
Dalatangi
Guðrún Guðleifsdóttir IS 240
Oddgeir ÞH 50
Gullver NS 220
Ingvar Guðjónsson GK 200
Ásþór RE 160
Hoffell SU 80
Pétur Sigurðsson RE 100
Keflvíkingur KE 230
Fagriklettur GK 90
Jón á Stapa SH 90
Þórður Jónasson EA 200
— Popovic
Framh. af bls. 1
París, þar sem hann reyndi að
gerast ljóðskáld. i933, er hann
var 25 ára, gekk hann í komm-
únistaflokk lands síns, og tók
síðar þátt í spænsku borgara-
styrjöldinni.
ao auglýsing
í útbreiddasta blaffinu
borgar sig bezt.
jföorguttklaHb
Hótelum borgarinnar verður
einnig lokað að öðru leyti en því,
að fastagestir fá nauðsynlegustu
þjónustu. Vegna þessarar lokun-
ar mún ekki verða hægt að veita
skemmtiferðaskipum neina fyr-
irgreiðslu á veitingastöðum í
Reykjavík og sama gildir um
fundi, ráðstefnur og hóf, sem á-
kveðin hafa verið í borginni. .
Mun þetta ástand ríkja þar til
þjónaverkfallið leysist.
Að sögn SVG eru stimpilkass-
arnir einu fulltrúar neytenda í
vínveitingahúsunum og telji
veitingamenn m.a af þeim sök
um að ekki komi til greina að
þeir verði fjarlægðir.
— Segulband
Framhald af bls. 32.
bleytu. ■*
Litlu síðar kom Guðmundur
Jónasson frá Múla á stórum
bíl sunnan heiðina og festist
í sama svaði. Þótti Einari nú
óvænlega horfa með grenja-
vinnsluna, þar sem mann-
fjöldi og mákill vélagnýr var
næstum fast við grenið.
Eftir nokkurra blukkubima
strit og stríð tókst að losa
báða bílana. Var þá ekið
norður að Sandá, sem er lítið
eitt norður og í hvarfi frá
greninu og gist þar það sem
eftir var nætur.
Um morguninn fóru þeir
félagar að fást við rebíba.
Gekk þeim greiðlega að ná
yrðlingunum, en fullorðnu
dýrin komu ekki að. Þá settu
þeir segulbandið í gamg. Bæði
dýrin runnu á hljóðið. Annað
silapp mikið lamað af skoti,
en hitt féll.
Hitt grenið alunnu þeir á
þrem klukkustumdum, Einnig
þar runnu bæði fullorðnu
dýrin á hljóðið frá segullband-
inu og komu í dauðafæri við
skytturnar.
Einar annast minkavinnslu
í 6 hreppum A-Húnavatns-
sýslu og auk þess í Víðidal.
í vor hefur hann unnið 66
minka, þar atf 11 hvolpa-
læður og 4 gelddýr. Er það
svipaður fjöldi og umdanfarin
ár. Fyrir skörnmu vann harm
27 minka á einum degi og er
það met hér í sýslu. Þessir 27
minkar vöru allir sveitungar
og áttu heima í Þingi. Á þeim
slóðum virðist áll vera kjör-
fæða minkanna, því að hann
fannst í mörgum grenjum.
Einnig var þar silurugur, en
hvergi fugl. — Björn.
■t,
Sonur okkar,
CUÐMUNDUR PÉTURSSON
lézt af slysförum þann 13. júlí sl.
Steúumn H. Ólafsdóttir,
Pétur Guðmundssun,
Skeiðarvrogi 41.