Morgunblaðið - 17.08.1966, Side 1
24 síður
lutniuu ciuavvui Vdiu l
Melbourne í Ástralíu sl. laug-
ardag. Biðu 29 manns bana og
tugir særðust, og er þeta með
mestu eldsvoðum í sögu Ástra
líu. Myndin er tekinn, er
verið var að veita aðstoð þeim
er sködduðust.
London, 16. ágúst. — NTB.
• Scotland Yard hefur lýst eftir
tveimur mönnum, nafngreindum,
vegna morðsins á lögreglumönn-
unum þnemur sJ. föstudag.
Þriðji maðurinn, atvinnuleysingi
að nafni John Edward Whitney,
hefur verið úrskurðaður í sjö
daga gæzluvarðhald, meðan rann
sókn málsins fer fram. Whitney
hefur verið ákærður fyrir morð-
ið á lögreglumönnunum.
Danir sent
fyrst í EBE
— segir stjórn
landbúnaðar-
ráðsins
Kaupmannahöfn, 16 ág. NTB.
Stjórn danska landbúnaðar
ráðsins hefur hvatt til þess ein
dregið, að sem fyrst verði kann-
aðir möguleikar þess, að Dan-
mörk geti gerzt aðili að Efna-
hagsbandalagi Evrópu.
Að loknum fundi ráðsins í dag
var frá því skýrt, að með sam-
komulagi Efnahagsbandalags-
ríkjanna um landbúnaðarmálin
sé ástandið orðið illþolandi fyrir
Dani og því verði að vinda að
því bráðan bug, að þeir gerist
Framhald á bls. 23.
Átök milli ísraels og Sýrlands:
Sýrland kveðst taka upp
sóknarstefnu í stað varnar
* 9 9
— Israelsstjórn kærir fyrir Oryggisráðinu
— Odd Bull hvetur til friðar
Jerúsalem, 16. ágúst NTB.
0 TIL átaka hefur komið enn
á ný á landamærum Israels og
Sýrlands. Sakar hvor aðilinn
hinn um að eiga upptökin en
yfirmaður herráðs gæzlusveita
Sameinuðu þjóðanna, Odd Bull,
hefur skorað á ríkin að virða
vopnahléssamning þeirra og var-
ast endurtekin átök.
• Israelsstjórn lýsir Sýrlend-
inga ábyrga fyrir átökunum og
kveðst munu svara af hörku
hverri árás. Hefur mótmælaorð-
sending verið send Öryggisráð-
inu.
0 Stjórn Sýrlands segir á
hinn bóginn, að hún muni nú
hætta að beina máli sínu til Sam-
einuðu þjóðanna eða annarra al-
þjóðasamtaka og þess í stað
svara sérhverri árás Israels-
manna af fyllstu hörku.
Átökin urðu á og yfir Genes-
aretvatni í gærmorgun og stað-
hæfir landvarnaráðherra Sýr-
lands, að 50—100 ísraelsmenn
hafi fallið í viðureigninni og
hafnarmannvirki fsraelsmanna
sunnan við vatnið hafi verið
eyðilögð.
ísraelsstjórn ræddi mál þetta
á tveggja klukkustunda ráðu-
neytisfundi í dag. Að fundinum
loknum var gefin út yfirlýsing
þar sem sagði, að Sýrlendingar
væru ábyrgir fyrir því, sem
gerzt hefði og skyldu varast að
Framihald á bls. - 23.
Yard hefur lýst eftir, eru Harry
Framhald á bls. 23
Douðndómur
lyrir fjúrsvik
íUSSR
Moskvu, 16. ágúst NTB.
0 Gyðingur einn M. Rabin
ovitsj að nafni hefur verið
dæmdur til dauða fyrir að
stjórna fjársvikum mikl-
um — hinum mestu í sögu
Sovétríkjanna. Var hann á-
samt nokkrum aðstoðarmönn-
um fundinn sekur um að hafa
selt stolnar vefnaðarvörur og
tilbúinn fatnað fyrir um það
hil 18 milljónir íslenzkra
króna.
Réttarhöldin í máli Rabino-
visj og félaga hans hafa staðið
yfir í marga mánuði í Moskvu.
Ekki er vitað hversu margir
eiga þarna hlut að máli, en 911-
ir nánustu samstarfsmenn Rab-
Framihald á bls. 23.
A eigin kjarnorkukaf-
bát yfir Atlantshaf?
Brest, 16. ágúst — NTB
• Lögreglan 1 Brest er nú að
rannsaka staðhæfingar
Kanadamanns nokkurs, sem
fæddur er í Ungverjalandi.
Kveðst hann hafa siglt yfir
Atlantsliafið frá Kanada í
kjarnorkuknúnum kafbáti,
er hann hafi sjálfur smiðað.
Báturinn hafi hinsvegar far-
izt og hann neyðzt til að fara
Framhald á bls. 23
Rúmensk yfirvóld neita að
skýra frá slysinu
Vínarhorg, 16. ágúst NTB.
0 BORIZT hafa um það
áreiðanlegar fregnir til Vínar
borgar, að a.m.k. 24 manns
hafi farizt í flugslysi í Rú-
meníu fyrir fimm dögum.
Hafði flugvél af gerðinni II-
jushin 14 hrapað til jarðar í
þrumuveðri, er hún var á leið
frá Brasov til baðstrandarinn-
ar Mamaia. Meðal þeirra, sem
fórust, voru hjón ein frá Vín-
arborg. Fregninni fylgir, að
enginn hafi komizt lífs af,
þeirra er í vélinni voru, en
rúmensk yfirvöld hafa ekki
fengizt til að segja neitt um
slys þetta.
Lýst eftir tveimur
afbrotamönnum...
í sambandi við morð brezku lög-
regtumannanna. John E. Whitney
úrskurðaður í sjö daga gæzlu
24 fórust í flugslysi í
Rúmeníu fyrir 5 dögum