Morgunblaðið - 17.08.1966, Page 15
MiðvikUdagur 17. águst 1966
MORGUNBLAÐIÐ
15
Andrés fofstjóri
Ságlufirði 75 ára
f DAG er einn mætasti borgari
Sigluf jarðarkaupstaðar, Andrés
Hafliðason, forstjóri, 75 ára. —
Hann þarf ekki að kynna fyrir
Siglfirðingum svo mjög sem
hann hefur komið við sögu bæj-
arins, bæði fyrr og síðar, enda
borinn og barnfæddur hér, og
hefur alið allan sinn aldur í
„Þormóðs ramma fagra firði“.
Hann er sonur þeirra merkis-
hjóna, Sigríðar Pálsdóttur og
Hafliða Guðmundssonar, hrepp-
stjóra hér í Siglufir'ði og næst
yngstur sinna systkina, sem öll
voru merkir þegnar síns byggð-
arlags. Kru þau nú öll látin, að
undanteknum Andrési og yngri
systur hans, frú Ólöfu Blöndal,
nú búsettri í Reykjavík.
Hafliði hreppstjóri var stór-
merkur maður og einstakur að
fjölhæfni og kom mikið við sögu
Siglufjarðar á tveim fyrstu tug-
um þessarar aldar. Var hann
(hreppstjóri hér frá 1856 til dauða
dags 1917. Hreppstjórinn var þá
að langmestu leyti yfirvald með
•líku starfssviði og sýslumenn nú
á tímum að fráskildu dóms-
valdi. Þá var mikið um að vera
á Siglufirði, enda bærinn að
'breytast frá smáþorpi í miðstöð
síldvei'ða hér við land með öllu
•því athafnaiífi, sem því fylgdi.
Eigi var heiglum hent að halda
reglu og ró á öllum þeim mis-
lita lýð, innlendum sem erlend-
um, er hingað barst á sumrin.
Sakir mannkosta sinna tókst
Hafliða hreppstjóra þetta með
mestu prýði. Heimili þeirra
hjóna, Hafliða og Sigríðar, var
annálað fyrir gestrisni og mynd-
arbrag í hvívetna. Þótti öllum
þangað gott að koma, enda gesta
nauð mikil. í slíkum anda og
kringumstæðum ólst Andrés upp.
Hann hefur alla tíð síðan haft
yndi af fólki í nærveru sinni,
enda maður með öllu ófeiminn
og frjáls í allri framkomu, og
heimili hans og hinnar ágætu
konu, Ingibjargar Jónsdóttur,
var spegilmynd af foreldraheim-
ili hans sjálfs, opið öllum, er að
Gar'ði bar, enda öllum tveim
höndum tekið.
glæsileg, en laus við allan hroka.
Ekki verður hjá því komizt að
minnast á hin opinberu störf
Andrésar, þótt í stuttri afmælis-
grein sé. Andrés hefur ávallt
haft fastmótaðar skoðanir, en
aldrei hefur hann flokksþræll
verið. Sá, er línur þessar ritar,
hefur um fjölda ára verið heima
gangur á heimili hans og þykist
því gjörla þekkja hann. Oftast
höfum við haft ólíkar skoðanir
á hinum pólitísku dægurmálum,
en ekki hefur slíkt skyggt á vin-
áttuna. Það er og mála sannast,
að Andrés er einn þeirra fáu
mánna, sem hafa tekið virkan
þátt í hinni persónubundnu
stjórnmálabaráttu vorri, án þess
að eignast einn einasta óvin inn-
an raða andstæðinganna. Er slíkt
í sjálfu sér hin bezta persónulýs-
ing. Tvisvar hefur hann verið
kjorinn í bæjarstjórn Siglufjarð-
ar og oft setið fundi sem vara-
fulltrúi. — Hefur hann stutt mjög
nytjamál bæjarins af alhug, án
þess að spyrja um pólitískt fað-
erni þeirra, og átt frumkvæði
sumra. —
Enn er Andrés ern í bezta lagi,
grannur og beinn í baki og létt-
ur í hreyfingum þrátt fyrir 75 ár-
in. Að vísu hafa vangahárin grán
að nokkuð hin síðari ár, en það
er hið eina, söm ber vott um,
að glíman við kerlingu Elli sé haf
in. Andrés dvelst nú hjá syni
sínum Hinriki og hans ágætu
konu Margréti á afmælisdaginn.
Ég veit að margir verða til að
senda honum kveðju og gleðja
hann með hlýjum handtökum á
þessum tímamótum. En vík skil-
ur vini. Ég á þá ósk bezta, þér
til tianda, gamli vinur, að þú, sem
hingað til, látir hug þinn aldrei
eldast eða hjartað um ólifu'ð ár.
St. Sk.
Námskeii fyrir
„meinatækna"
I ráði er að halda námskeið á vegum heilbrigðis-
-.tofnana og Tækniskóla íslands fyrir íólk, er hyggst
’eggja stund á tæknileg aðstoðarstörí í rannsókna-
stofum heilbrigðisstofnana. Námskeiðið verður í
tveim hlutum er taka samtals um 8 mánuði, og er
ætlað sem undirbúningur fyrir áfrarnhaldandi sér-
nám í meinatækni (medicinsk laboratorieteknek)
er fer fram í rannsóknarstofunum sjálfum.
Námstími allur verður 2 ár.
Andrés Hafliðason hefur verið
gæfumaður. Ungur að árum
kvæntist hann heitmey sinni,
Ingibjörgu Jónsdóttur, Jónssonar
utanibúðarmanns við Höfners-
verzlun á Akureyri. Heimili
þeirra Ingibjargar og Andrésar
þekkja flestir Siglfirðingar af
eigin raun. Ingibjörg var með af-
brigðum fríð og fönguleg kona,
glaðlynd og stórgjöful, vinur
alls er bágt átti, og áttu margir
fátækir á kreppuárunum þar
hauk í horni, og kunna Siglfirð-
dngar næsta ótrúlegar sögur um
gjafmildi Ingibjargar, bæði fyrr
og síðar. Hjónaband þeirra var
imeð miklum ágætum, enda þau
bæði samhent mjög og lík á
inargan hátt, ekki aðeins í skap-
gerð, heldur og í allri afstöðu til
flestra mála hins daglega lífs.
Frú Ingibjörg andaðist 1961, og
syrgði Andrés konu sína mjög.
Afmælisbarnið hefur lagt
gjörva hönd á marga hluti um
ævina. Allt frá stofnun Olíuverzl
unar fslands 1928 hefur hann
verið forstjóri fyrir útibú þess
hér í Siglufirði og farizt að allra
dómi vel úr hendi. Koma þar til
einstök reglusemi og áreiðan-
leiki. Eru þeir ófáir viðskipta-
vinirnir, innlendir sem erlendir.
sem erindi hafa átt í Aðalgötú 19
á þessum tæpum 40 árum, og
engan veit ég, er borið hefur
Andrési illa söguna. Þá hefur
bindindishreyfingin í Siglufirði
átt góðan liðsmann í Andrési,
enda hefur hann starfað í Stúk-
únni Framsókn um áratuga
skeið og ávallt í frenistu fylk-
ingu. í sóknarnefnd og með-
hjálpari í Siglufjarðarkirkju var
hann til fjölda ára. Engan veit
ég tigulegri í meðhjálparastarf-
inu en hann. Mér fannit á stund
um sem ungum dreng, hann
„stela sériunni" af prestinum.
Framkoman öll óþvingúð og
Inntökuskilyrði:
a) Umsækjandi skal vera íullra 18. ára.
b) — skal sýna heilbiigðisvottorð, og
c) — skal hafa lokið sfúdentsprófi
eða hafi aðra næga undirbuningsmenntun.
Nánari upplýsingar um námskeiðið og umsókn-
areyðublöð fást á SKrifstofu Tækraskóla íslands,
Sjómannaskólanum, mánudaga, miðvikudaga og
föstudaga kl. 17 —*19.
Umsóknarfrestur er til 15. september.
SKÓLASTJÓRI.
Skrifstofustarf
Skrifstofumaður óskast nú þegar. Þarf að geta
annast bókhald, launaútreikninga og fl. venjuleg
skrifstofustörf. — Upplýsingar veitir
Bjarni Bjarnason. lögg. cndurskoðandi
Austurstiæti 7 milli kl. 9—12.
Sktifslofum Alþýðu-
*
s mbðnds IsSands
verður lokað eftir hádegi í dag vegna útfarar
Ottós N. Þorlákssonar.
: ALÞÝÐUSAMBAND ÍSLANDS.
SVEINN KRISTINSSON SICRIFAR UM
KVIKMYNDIR
Háskólabíó:
HF.TJURNAR FRÁ ÞELAMÖRK
Brezk kvikmynd, byggð á sögu-
legum heimildum.
Framleiðandi: S. Benjamin Fisz.
Leikstjóri: Anthony Mann.
Höfuðleikendur: Kirk Douglas,
Richard Harris og 'Ulla Jacobs-
son.
Ekki ber heimildum saman
um, hve langt Þjóðverjar voru
komnir í kjarnorkurannsóknum
í heimsstyrjöldinni síðari. Það
háði þeim mjög við þær ran.ii-
sóknir, að ýmsir helztu vísinda-
menn þeirra voru landflótta,
þeirra fremstur Albert Einstein,
sem Hitler gerði landrækan eft-
ir valdatöku sína, vegna þess að
hann var af Gyðingaættum. En
vitað er, að nazistum var
snemma mikið í mun að eingn-
ast kjarnorkusprengjur og unnu
eitthvað að kjarnorkurannsókn-
um á stríðárunum. — Hitler
hafði -þó jafnan takmarkaðan
áhuga á kjarnorkumálum, og
mun þar hafa valdið um van-
þekking hans á málefninu, svo
og bjartsýni hans um skjótan
sigur framan af stríðinu.
Þegar svo var komið fyrir
Þjóðverjum, að þeir tóku að
hraða smíði leynivopna af ör-
væntingarástæðum, þá höfðu
þeir ekki lengur efnahags-
legan mátt til að smíða
kjarnorkusprengjur, þótt aðrar
torfærur hefðu ekki verið í
vegi. Fyrir árslok 1944 hafði
leyniþjónusta Bandamanna feng
ið örugga vitneskju um, að Þjóð
verjar mundu ekki eignast kjarn
orkuvopn í styrjöldinni. Var það
þeim mikill Jéttir, enda hefðu
nokkrar kjarnorkusprengjur i
höndum Þjóðverja eflaust getað
snúið stríðinu við allt fram und-
ir lok þess.
Við bæinn Rjukan á Þelamörk
í Suður-Noregi höfðu Norð-
menn alllöngu fyrir stríð reist
efnaversmiðjur miklar, sem
gegndu einkum því hlutverki að
vinna áburð úr andrúmsloftinu.
Fyrir styrjöldina hafði félag
það, sem verksmiðjurnar átti
„Norsk Hydro“ allnáið samband
við I.G. Farben efnaverksmiðj-
urnar þýzku.
Ofangreind kvikmynd á að
gerast í Noregi á árunum 1942-
1943. Þjóðverjar hafa þá hatið
vinnslu „þungs vatns“ í verk-
smiðju við Rjukan, en þungt
vatn var talið heppilegt til kjarn
orkurannsóknar, þar sem það
inniheldur meira vetni en venju
legt vatn. Nokkrir norskir and-
spyrnumenn í nágrenni bæ.iar-
ins, sem eru raunar sumir starfs
menn I verksmiðjunni sjáifri.
komast á snoðir um þetta, og
einn úr þeirra hópi, fyrrverandi
prófessor í eðlisfræði við Oslóar
háskóla, dr. Rolf Pedersen að
nafni (Kirk Douglas), bregður
sér til London á ævitýralegan
hátt og kemur vitneskju sinni
áleiðis til æðstu ráðamanna
Bandamanna. Þeir verða flemtri
slegnir. Gat það hugsast, að Þjóð
verjar væru á undan þeim í
kj arnorkukapphlaupinu?
Finnst þeim nú mikið við
liggja að reyna að eyðileggja
verksmiðjuna. Fyrst kemur
þeim í hug að gera loftárás á
hana, en hafna síðan þeirri hug-
mynd vegna þess manntjóns á
óbreyttum borgurum í Rjukan,
sem slík árás hlyti óhjákvæmi-
lega að hafa í för með sér. Þá
er ekki um annað að ræða en
reyna að lauma þangað her-
flokk, og leggja 50 brezkir ner-
iftenn af stað í svifflugvélum til
Noregs í þeim tilgangi.
Áður hefur doktor Pedersen
og félagi hans Knut Strand,
ásamt 7 öðrum norskum fööur-
landsvinum, haldið til Noregs
og undirbúið lendingu svifflug-
vélanna. En svo hörmulega tekst"
til, að brezku hermennirnir far-
ast allir með tölu í lendingunni.
Það veróa bví 9 norskir föð-
urlandsviiiir i stað 50 brezkra
hermanna. sc-m taka að sér það
verkefni að reyna að sprengja
þungavatnsveiksmiðjuna í loft
upp. Þessi glæfraför heppnast
að sumu 'leyti furðanlega vel.
Þremur nv nnum tekst að laum-
ast inn í verksmiðjuna og koma
sprengjum fyrir á haganlegum
stöðum. Slenpa þeir síðan naum
lega út, en miklar sprengingar
kveða við i verksmiðjunni. Einn
Norðniar.c.nnna lætur lífið í
skothríð Þjóðverja og annar, dr.
Pedersen er handtekinn, en
tekst að sleppa nokkuð særðum.
En það bkast er, að Þjóðverj-
um tekst að gera við skemmd-
irnar á verksmiðjunni á hálf- '
um mánoði, svo að lítið sem
ekkert hefur unnizt með þessari
fífldjörfu árás.
Er Bandamenn fá þær fré'tir,
reyna þeiv loks loftárás á verk-
smiðjuna, en valda litlu tjóni.
Hins vegar verða þeir 67 óbreytt
um borgurum í Rjukan að bana.
Loftárásin verður þc til þess. að
Þjóðverjar ákveða að flytja
sem fyrst þungavatnsbirðir sín-
ar í Rjukan til Þýzkalands. Síð-
asta hálmstrá skæruliðanna verð
ur því bað að gera tilraun til
að granda skipi því, er flytja
á vatnsbú ðirnar til Þýzkalands.
Mynd' þessi er talin styðiast
að verulegu leyti við sannsögu-
lega atburði Hún er geysispenn
andi, vel sv’ðsett og leikur yfir-
leitt góður.
Ulla Jacobsson leikur fyrrver-
andi eigiriconu doktors Peder-
sens og er einnig framarlega 1
leynihrevfingunni. Á stund
hættunnar sameinast þau á ný í
heitum adotum — Mjög fagrar
landslagssemn sjást í myndinni,
hvíthærð fjöll Noregs rétta tigu-
lega kol!a sina upp millum lit-
skrúðugrv. skýja ^
Því verður ekki neitað, að at-
burðalýsmgar margar eru ekki
gizka sanníerðugar né heldur
hinu, að maður kennir varla
þess alvöi’jþunga. sem atburð-
ir eins og þessir hljóta jafnan
að hafa í för með sér. Sú gam-
ansemi, se-n þarna er komið á
framfæri er auk þess oft óeðli-
leg í sjáUri sér og gerir af þeim
sökum sit+ til að draga úr senni-
leik einsta'cra atburða. Æðru-
laus kalJhæðni er sú tegund
húmors, sem helzt fær þróazt í
návist siöðugrar lífshættu. En
hér verður húmorinn tíðum of
léttur til að mynda trúverðugt
bræðralag við svo örlagaríka at-
burði, sein um er fjallað.
Áðurneíndir kostir myndar-
innar vega þó miklu þyngra, og
má því hiklaust mæla með
mynd þessrri. Hún mun verða
okkur fsiendingum hugstæðari
vegna þess, að hún fjallar um
hetjubaráitu frændþjóðar okk-
ar, Norðn anna, en þeir áttu tví-
mælalaust most samúð okkar af
öllum kúguðum þjóðum á striðs
árunum.
fslenzkur texti er með mynd-
inni.
Skrifstofustúlka
Skrifstofustúlka óskast á skriístoíu í miðhænum
frá. 1. okti Vélritunarkunnátta natiðsynleg. Mjög
góð vinnúskilýrði. Tilbóð ásarnt upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist Mbi. fyrir 24. ágúst,
merkt: „4636“.