Morgunblaðið - 21.08.1966, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.08.1966, Blaðsíða 1
28 síðtir og Lesbók 53 árgangur 189. tbl. — Sunnudagur 21. ágúst 1966 Prentsmiðja Morgunblaðsim »- Þessl mynd er tekln „út vIS grænan Austur roll“, í sólskininu í gær. Enn stendur þar allt í blóma og sumarblær yfir öllu. Senn líður að ágústlokum og sumarið fer að taka á sig haust- blæ, næturnar eru ekki lengur bjartar, en síðsumarmyrkrið grúfir yfir landinu fram undir morg un. Enn er þó nokkuð eftir af sumrinu, einkum ef veðrið verður gott og sól skín í heiði, eins og var í gær. (Ljósm. Mbl.: Ólafur K. Mag.). Stúdentaóeirðir í Tyrklandi: Biöja um að nöfnum sé haldið leyndum — Osk bandarískra flugmanna í Vietnam Saigon 20. ágúst AP-NTB. ÁSTRALSKIR herflokkar unnu í dag mikinn sigur yfir skæru- liðum Viet Cong á hernaðarsvæði SA af Saigon. Felldu áströlsku herflokkarnir hátt á þriðja hundr að skæruliða í átökunum West- moreland hershöfðingi, yfirmað ur alls herafla Bandaríkjamanna í Vietnam sagði sigur þennan mjög mikilvægan og óskaði Ástra líumönnum til hamingju með hann. Annars staðar í Vietnam var lítið um bardaga á landi. Þrumu veður og miklar rigningar drógu úr lofthernaði. Bandarískar sprengjuflugvélar flugu 113 árásar ferðir yfir Vietnam á föstudag, en sökum veðurs var ekki hægt að gera árásir á Hanoi eða Rauðárdalinn. Segjast banda rísku flugmennirnir hafa gert árásir á 8 olíubn ^“.astöðvar og mikill eldur hafi verið í að minnsta kosti 6 þeirra. Einnig gerðu flugmennirnir árásir á brýr, birgðastöðvar og neðanjarðarbyrgi Viet Cong víðs vegar um landið. Risaþotur af gerðinni B-52 gerðu í fjórða skiptið í vikunni árásir á óvinastöðvar 100 km. NA af Saigon. Frá því var skýrt í Saigon í dag að margir bandarískir flug- menn í Vietnam biðji nú um að nöfn þeirra verði ekki gefin upp í sambandi við árásarferðir í Vietnam. Óttast þeir að ættingj- ar þeirra í Bandaríkjunum verði fyrir glósum af hálfu samtaka sem berjast gegn stríðinu í Víet- nam. Einnig er sagt að hótun N-Víetnamstjórnar um að draga bandaríska flugmenn fyrir rétt sem stríðsglæpamenn eigi sinn þátt í þessari beiðni flugmann- anna. Skæruliðaherfloklkur klædd- ur einkennis búningi S-Vietnam- hers gerði í dag árásir á tvo s-vietnamíska herflokka og \ lldi marga hermenn. Einn skæruliði féll en margir særðust. Næi 20 fornst i snjoflodi gegn Sukarno STÚDENTAR efndu til fjölda- fundar í Djakarta í dag að gagn- rýna Sukarno forseta, einkum fyrir yfirlýsingar hans um stefnu Indónesíu gagnvart Malaysiu og afstöðuna til Sabalh og Sara- wak. Um 3.000 manns sótti fund þennan og varð þar nokkur há- reysti og ryskingar en lögreglu- menn voru til varnar alvarleg- um óeirðum. Hlauzt þó af eitt mannslát er lögreglumenn gripu til skotvopna að verja aðalskrif- stofu stúdentasamtakanna fyrir ásókn stuðningsmanna Sukarnos. Óvíst er hvort skotið er felldi piltinn kom úr byssu lögreglu- manns eða eins úr hópi Sukarno- sinna, en margir hlutu skotsár í viðureigninni. A annaö þtís. manns taldir hafa farizt í jarðskjálftunum Ankara og Istanbul, 20. ágúst, AP, NTB. TALIÐ er að nokkuð á annað þúsund manns hafi týnt lífi í jarðskjálftunum sem urðu í Austur-Tyrklandi í gær, en óttazt er að þegar öll kurl komi til grafar muni tala lát- Loftleiðir með RR-400 hálffullar til K-hafnar Einkaskeyti til Mbl. frá frétta- ritaritara þess i Kaupmannahöfn Loftleiðamálið verður ef til vill til lykta leitt á fundi utan- ríkisráðherra Norðurlanda í næstu viku. Nefnd embættis- manna utanríkisráðuneyta og samgöngumálaráðuneyta land- anna hefur fjallað um málið undanfarið og lagt fram skýrslu um störf sín. Er nefndin sögð einróma í afstöðu sinni til máls- ins en þess og getið að niður- stöður hennar bindi ekki hendur ráðherranna á neinn máta. Tilmæli Loftleiða um að fá að fljúga hinum stóru RR-400 vélum sínum til Norðurlanda verða að því er talið er, rædd á fundi utanríkisráðherra Norðurlanda sem hefst í Álaborg í næstu viku og mun Emil Jónsson flytja mál Loftleiða. Það er mál margra á Norður löndum að rétt sé að leyfa Loft leiðum að fljúga RR-400 til Kaup mannahafnar en takmarka beri farþegafjölda með vélunum þannig að þær fljúgi auðum sætum að vissu marki. Tillaga þessi mun eiga sér einhverja stoð í alþjóðasamningum um flugmáL Rytgaard. — inna hálfu hærri, því enn nær talan aðeins til þeirra sem fundizt hafa látnir í stærri bæjum á jarðskjálftasvæð- inu. Byggð er þar strjál og samgöngur erfiðar enda há- lendi mikið og segja flug- menn sem flogið hafa þar yfir í könnunarferðir að * í sumum þorpunum sé vart lífs mark að sjá og hús nær öll hrunin til grunna og vitað er um nokkur þorp sem gjör- eyddust í jarðskjálftunum. Jarðskjálftarnir stóðu yfir í nær heilan sólarhring, snarpir kippir og hlé á milli og ekki full víst að þeim sé með öllu lokið. Opinber tala fallinna var er síð ast fréttist 1.116 og særðir sagð- ir skipta þúsundum en eins og áður sagði ná tölurnar aðeins til stærri bæja á jarðskjálftasvæð- inu. Harðast léku jarðskjálftarnir bæinn Varto, 3.000 manna bæ, sem þeir gjöreyddu á skammri stund. „Það má með sanni segja að í Varto standi ekki steinn yf- ir steini“ sagði einn björgunar- liðsmanna, er á stað inn kom, og fjöldi þorpa þar í grend þurrk- uðust út að sögn. Unnið er af kappi að björgunarstörfum pví margt manna er enn með lífi í rústum hruninna húsanna. Lienz og Vín, 20. ágúst: AP — NTB: FLÓÐ OG jarðrask af þeirra völdum í þremur Alpahéruðum Austurríkis hafa orðið að bana 19 eða 20 manns að því er síðustu fregnir þaðan herma, bæði Aust urríkismanna og erlendra ferða- manna. í gær tókst fyrst að ná sam- bandi við ýmsa bæi og þorp, sem urðu sambandslaus í flóðum þess um. Verst hefur orðið úti héraðið Eins og áður sagði urðu snarp- Austur-Tíról. en mörg þorp í astir kippirnir í fjórum austur- I Kárnten og Salzburg hafa einnig Framhald á bls. 17. I einangrazt af völdum flóðanna. Flugvirkjar í USA: Verkfalliö kostaöi 17.500 milljónir króna Washington, 20. ágúst (AP). LENGSTA og dýrasta verkfalli í sögu bandarískra flugvéla lauk endanlega á föstudagskvöld er samtök flugvirkja samþykktu með yfirgnæfandi meirihluta at- kvæða að ganga að siðasta kaup- tilboði vinnuveitenda. Verkfallið hófst hinn 8. júlí s.l., og náði til 35.400 flugvirkja hjá fimm flugfélögum. Formaður flug*virkjasamtakanna, Roy Siemiller, sagði fréttamönnum í dag að 68% flugvirkja hafi sam- þykkt samningana. Ef samnings tilboðið hefði verið fellt lá fyrir þinginu frumvarp um að banna verkfallið, og skylda flugvirkja til að hefja vinnu á ný, hefði það frumvarp verið algjört eins- dæmi, ef það hefði komizt í fram kvæmd. Enda höfðu hörð mót- mæli borizt frá verkalýðssam- tökunum. Nýi samningurinn feíur í sér um 15% kauphækkun á næstu þremur árum auk ýmissa hlunn- inda og vísitöluhækkunar. Er hann því brot á þeirri stefnu, sem sett hefur verið í Hvíta húsinu, að takmarka beri kauphækkanir við 3,2% á ári. Eftir nýju samn- ingunum fá flugvirkjar í efsta flokki 4,08 dollara á tímann inn- an þriggja ára, en höfðu $ 3,52. Talið er að flugfélögin fimm, sem verkfallið náði til, hafi tap- að um 340 milljónum dollara. En starfsmenn flugfélaganna hafa tapað um 67 milljónum dollara í launagreiðslum. Alls hefur því verkfallið kostað rúmlega 17AOO milljónir króna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.