Morgunblaðið - 21.08.1966, Page 27
Sunnudagur 21. agúst 196®
MORGUNBLAÐIÐ
27
komnir til aö gera Nifiungasögu
Þýzka kvikmyndafolkið kemur til Reykjavikur.
Ungfrú Tékkóslóvakía
Stúlkan á myndinni er hin ný-
kjörna fegurðardrottning Tékkó-
6lóvakíu, Dagmar Silvinova. Hún
er 19 ára og ólofuð og var valin
úr hópi 1000 stúlkna. Silvinova
tók stúdentspróf í fyrra og
hyggst nú hefja nám við tízku-
skóla. Aðaláihugamál hennar
eru tungumál og dans.
Af myndinni að dæma tók Sil-
vinova á móti fagnaðarlátum
fólksins íklædd drottningarlegri
skrúða en tíðkazt meðal hinna
vestrænu kynsystra hennar.
HINGAÐ kom í gær 36 manna
hópur þýzkra leikara og kvik-
myndatökumanna til þess að
mynda hluta kvikmyndarinnar
Sigurður Fáfnisbani. Fara leik-
ararnir í dag til Skógaskóla und-
ir Eyjafjöllum, þar sem þeir
munu dveljast meðan me'ðan á
kvikmyndatökunni stendur á
Eyjasandi. Framleiðandi mynd-
arinnar, sem er dýrasta kvik-
úyum u i-.iv tt i,
BJARNI
Heiðarvegi 26, Vestmannaeyjum,
lézt í .Landsspítalanum 19. ágúst sl.
Kristín Einarsdótti:
Bjarni Bjarnason.
Útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
MATTHÍASAR EYJÓLFSSONAR
sem lézt að Hrafnistu 15. þ.m. fer fram frá Fossvogs-
kirkju þriðjudaginn 23. ágúst kl. 10,30 f.h. —
Útvarpað verður frá útförinni.
Guðrún Magnúsdóttir,
Nói Matthíasson, Matthildur Björg Matthíasdóttir,
Guðrún Matthíasdóttir, Maria Matthíasdóttir,
Sallbjörg Matthíasdóttir,
Ragnheiður Steina Matthíasdóttir,
hörn, tengdabörn og barnabörn.
Magnús J. Magnússon ssgir frá núverandi
startsaðsföðu námskeiðanna
Nú um þessar mundir
standa yfir flutningar á véla
| kosti og kennslutækjum Vél
stjóranámskeiðanna, sem til
þessa hafa verið háð í húsi
Fiskifélagsins, en flytjast nú
í húsnæði Vélskólans í Sjó-
mannaskólanum. Verða nám
skeiðin og Vélskólin sameinað
samkvæmt lögum frá 28. apríl
! í ár. Vélstjóranámskeiðin hafa
verið háð í Fiskifélagshúsinu
við Skúlagötu 2 í rúmlega
hálfa öld.
Samkvæmt hinum nýju lög
j um um menntun vélstjóra
j heitir Vélskólinn í Reykjavík
Vélskóli íslands. Við þessi
tímamót hafði blaðið tal af
Magnúsi J. Magnússyni vél-
stjóra, sem veitt hefur nám-
skeiðunum forstöðu í 5 ár, en
hefur starfað sem kennari við
j Þau um 14 ára skeið. Magnús
rifjáðí upp í stórum dráttum
sögu námskeiðanna og nú-
verandi starfsaðstöðu þeirra,
og fórust m.a. orð á þessa
leið:
Frá árinu 1915, er vélstjóra
námskeiðin hófust og til ársins
1966 hafa samtals 3235 menn
lokið hinu minna mótorvél-
stjóraprófi Fiskifélagsins á
149 námskeiðum. 280 menn
hafa lokið hinu meira mótor
vélstjóraprófi á 28 námskeið-
um. Auk þess hafa 46 menn
lokið prófi á þremur viðauka
námskeiðum við hið meira
námskeið. Hafa þá 326 menn
lokið hinu meira prófi á 31
námskeiði.
Til þessa hefur Fiskifélagið
útskrifað samtals 3561 mann
með mótorvélstjóraprófi á
180 námskeiðum, þ.e. um 70
menn að meðaltali á átri í
51 ár.
Frá árinu 1936 hafa nám-
skeiðin verið kostuð af ríkinu
en voru áður á kostnað Fiski
félagsins, og að þess frum-
kvæði. Það hefur lengi verið
í deiglunni að breyta þessu
fyrirkomulagi, enda orðið
þröngt um kennsluna í hús-
næði Fiskifélagsins. Þó mun
Vélskólinn fá afnot af véla-
sal Fiskifélagsins í vetur.
Með nýju lögunum opnuð-
ust nýjar leiðir fyrir vélstjóra
til að afla sér menntunar.
Kennslan fer nú fram í fjór-
um stigum og hvert stig veitir
ákveðin atvinnuréttindi.
Ég vil geta þess sérstaklega
að Fiskifélagið hefur unnið
mikilsvert starf á þessum vett
vangi í rúmlega hálfa öld. Við
gerum okkur vonir um, að
með Vélfræðimenntun í fyrir
huguðu formi reynist hag-
kvæm og árangursrík.
Skólastjóri Vélskólans er
Gunnar Bjarnason.
mynd, sem Þjóðverjar hafa fram
leitt ,er hr. Korytowski. Leik-
stjóri er dr. Reindl, en aðalleik-
endur eru Uwe Beyer, Evrópu-
meistari í sleggjukasti, Karin
Dor, Rolf Heminger og Sigfried
Wischnewski. Leikurunum fannst
æði kalt á íslandi, er þeir komu
með flugvél Flugfélagsins frá
London í gær, enda var svalt
úti. Annars vildu þeir lítið segja,
en komast sem fyrst á Hótal
Sögu, þar sem þeir bjuggu sið-
astliðna nótt. Fréttamaður blaðs-
ins náði tali af Korytowski fram
leiðanda, á Hótel Sögu í gær-
kvöldi, og sagði hann að Sigurð-
ur Fáfnisbani yrði dýrasta mynd
sem Þjóðverjar hafa hingað til
framleitt. Flest inniatri'ði mynd-
arinnar eru tekin í Berlín, en
útiatriðin eru tekin í Júgóslavíu
og á íslandi. Sagði Kyrotowski
að beðið væri með mikilli eftir-
væntingu í Þýzkalandi eftir út-
komu myndarinnar, ekki sízt
þeirra hluta hennar, sem teknir
verða á íslandi. Karin Dor, sem
fer með aðalhlutverkið í mynd-
inni lék nýlega aðalkvenhlut-
verkið í James Bond myndinni
„You Never Die Twice“ á móti
Sean Connery. Uwe Beyer leikur
Sigurð Fáfnisbana. Leikflokkur-
inn gerir ráð fyrir 20 daga dvöl
hér á landi.
Eift atriði myndarinnar, tekið
hér á landi, verður eldgós. Hafa
komið fram tillögur um að taka
þáð atriði í grennd við Vík í Mýr
dal, þar sem fjalllent er, og hella
2000 lítrum af benzíni og 2000
lítrum af olíu á fjallstopp og
kveikja síðan í.
Myndin verður frumsýnd í
Berlín 9. nóvember.
Uwe Beyer, Evrópumeistari i
sleggjukasti, Sigurður Fáfnis-
bani.
Maðurinn minn,
EIRÍKUR Þ. STEFÁNSSON
fyrrverandi sóknarprestur
verður jarðsunginn frá Torfastaðakirkju miðvikudag-
inn 24. ágúst nk. kl. 2 e.h.
Sigurlaug Erlendsdóttir.
Flutningar á kennslutækjum vélstjóranámskeiðsins ur Fiskifélagshúsinu. Lengst til vinstri er
Magnús J. Magnússon vélstjóri og Gunnar Bjarnason Skólastjóri Vélskólans.
36 kvikmyndageröagerðarmenn
Vélstjóranámskeiðin
flytja í Vélskólann