Morgunblaðið - 08.09.1966, Síða 10
10
MORGUNBLAQIÐ
r
f’lmmtuðaeur 8. sept. 1966
Gunnar Kr. Björnsson, efnaverkfr.:
Plastvöruiðnaöur á íslandi
HÉR á eftir verður leitazt við
að gera stutta grein fyrir plast-
vöruiðnaði á íslandi í dag, hvar
hann er á vegi staddur og hverj
ar séu framtíðarhorfur hans.
Orðið plastvöruiðnaður er hér
notað til aðgreiningar frá orð-
inu plastfðnaður, sem á íslenzku
máli gæti þýtt jafnhliða fram-
»eiðsla plasthráefna sem fram-
leiðsla vara úr plastefnum. Með
plastvöruiðnaði er hér einvörð-
ungu átt við vörur, sem eru að
mestu eða öllu leyti unnar úr
plasti, en hitt undanskilið, sem
að minnihluta er gert úr plasti,
svo sem málningarvörur o. fl.
Hefi ég að mestu stuðst við
flokkun Hagstofunnar á plast-
vörUm. Ekki er það heldur inn-
an ramma þessarar greinar að
flokka og greina frá öllum þeim
fjölda efna, sem ganga undir
samheitinu plast eða plastefni.
Það má fullyi'ða að íslenzkur
plastvöruiðnaður hafi þegar unn
ið sér fastan og öruggan sess í
atvinnulífi þjóðarinnar og hefir
þýðing hans vaxið ár frá ári.
í samanburði við rótgrónar er-
lendar iðnaðarþjóðir er hann þó
enn næsta fábreyttur og lítill
að vöxtum, en fjölbreytni hans
vex ár frá ári og má hiklaust
gera ráð fyrir áframhaldi þeirr
ar þróunar. Vörugæði framleiðsl
unnar eru yfirleitt mjög góð og
sambærilega við erlenda fram-
leiðslu. Ýmiss rök mætti færa
fyrir því, að íslenzkur plast-
vöruiðnaður muni standast vel
erlenda samkeppni, þó tollvernd
hverfi, og raunar bendir allt til
þess, að fjölbreyttur iðnaður í
plasti muni þróast hér á kom-
andi árum. Sú hefir og orðið
reynzla annarra þjóða, sem
lengra eru komnar. Mun síðar
verða vikið nánar að þessu.
IDNlSÝNINGIN
w
Plastvöruiðnaðurinn gegmr
tveimur þýðingarmiklum hlut-
verkum. í fyrsta lagi framleið-
ir hann tilbúna vöru til neyzlu
og má benda á einangrun, vatns
rör, búsáhöld, leikföng, netaflot
og margt fleira. f öðru lagi er
þjónustuhlutverk hans við ann-
an iðnað, þar sem framleiðsla
hans er nauðsynlegur hluti eða
grundvöllur annarrar fram-
leiðslu. Má einkum benda á um-
foúðaframleiðslu í þessu sam-
bandi.
Blómlegur iðnaður þarfnast
fyrst og fremst fjölbreyttra hrá
efna á stöðugu samkeppnishæfu
verði. í öðru lagi verður mark-
aður fyrir framleiðsluvörur hans
lað vera nægilega stór, og í
þriðja lagi þarfnast hann góðra
fagmanna og nægs fjármagns.
Ef fyrsta atriðið er athugað,
kemur í ljós, að engin plasthrá-
efni eru unnin hérlendis og því
öll hráefni þessa iðnaðar að-
flutt. Mikilvægustu hráefnin eru
framleidd af fjölmörgum stórum
erlendum fyrirtækjum, sem eru
í mikilli innbyrðis samkeppni
um heimsmarkaðinn. Er oftast
hægt að fá hráefnin á hagstæðu
verði, þó markaður hér sé ekki
ýkja stór. Hafa hráefnaverð jafn
vel farið lækkandi síðari árin.
Einnig má segja, að við sitjum
við sama borð og Danir, Norð-
menn og fjöldinn allur af smá-
ríkjum, sem framleiða engin eða
örfá plasthráefni.
Annað atriðið, sem ég nefndi,
er stærð þess markaðar, sem völ
væri á. Ef athuguð er þróun
íslenzka plastvöruiðnaðarins,
sést, að markaðurinn innanlands
hefur ráðið mestu um vöxt hans
og fjölbreytni, því ekki hefir ver
ið um neinn teljandi útflutning
á plastvörum að ræða. Augljóst
má vera, að markaður vöru þarf
að vera nægilega stór til þess
að framleiðsla geti hafizt. Hefir
smæð íslenzka markaðarins orð-
ið sá þröskuldur, sem flestir
þeirra hafa hnotið um, er athug
að hafa möguleika til fram-
leiðslu hér. Þrátt fyrir þetta hafa
íslendingar verið furðu fljótir
að grípa tækifærin sem boðizt
hafa, og þó oft hafi gætt mikk-
illar bjartsýni í upphafi, má
segja, að flestum hafi farnast
mjög vel. Hefur ört vaxandi
markaður átt þátt sinn í því,
ásamt aukinni tiltrú til fram-
leiðsluvaranna.
Góðir fagmenn og nægt fjár-
magn er þriðja forsenda sam-
keppnishæfs i'ðnaðar. Þessi tvó
atriði eru talin hér saman, þó
óskyld séu. því raunar eru þau
nátengd hvort öðru í plastvöru-
iðnaði. Flest plastvörufram-
leiðsla gerir óvenjulegar kröfur
til fullkominna, oft sjálfvirkra
véla og móta, sem kosta mikið
fé. Er því augljóst, að sérmennt
aða og vel þjálfaða fagmenn
þarf við framleiðsluna, og að
mikið fjármagn þarf til kaupa
á þessum dýru vélum. Þá er og
fjölþætt þekking á plasthráefn-
um nauðsynleg, bæði hvað snert
ir eiginleika þeirra í framleiðslu
verksmiðjum. Getur það þó eigi
orðið fyrr en byggingar og bygg
ingarhlutir verða staðlaðir. Sem
dæmi um slíka framleiðslu er-
lendis mætti nefna:
1. Framleiðsla á tilbúnum
veggjum og vegghlutum.
2. Framleiðsla á gólfflísum og
gólfdúkum.
3. Framleiðsla á frárennslis-
rörum og tengistykkjum þeirra.
4. Framleiðsla á tilbúnum þak
plötum.
5. Framleiðsla á innréttingum
í eldhús og hlutum til þeirra.
í allt það, sem hér hefir verið
nefnt, er plast notað að meira
eða minna leyti, enda hefur
þróun þessa iðnaðar erlendis ver
ið nátengd þróunarsögu plastsins.
Skemmtilegt dæmi um háþróaða
framleiðsluhætti erléndis, er um
fyrirtækið, sem framleiddi eitt
þúsund baðherbergi fyrir spit-
ala. Baðherfoergin voru gerð í
verksmiðju og flutt tilfoúin í einu
lagi á byggingastað, en þar
þurftu þau a'ðeins að tengjast
en einnig á- hæfni þeirra til að
leysa það hlutverk af hendi,
sem þeim er ætla'ð. Óhætt er að
fullyrða, að íslendingar hafi þeg
ar sannað hæfni sína í þessu til-
liti.
Eins og áður var drepið á, er
það heimsmarkaðurinn, sem
sníður þessum iðnaði stakk eft-
ir vexti. Er þá næst að athuga,
hvað hann hefir plastvöruiðn-
aði að bjóða.
Stærsti og um leið mikilvæg-
asti markaðurinn fyrir plastvör
ur er nú hjá byggingaiðnaöin-
um. Nægir að benda á einangr-
un, vatnsrör. einangrunarrör og
gólflista sem dæmi um vörur,
er framleiddar eru úr plasti, aux
fjölmargra annarra. Ástæða er
til að ætla, að þessi markað'ir
gefi svigrúm miklu fjölbreyttari
framleiðslu úr plasti en nú er,
einkum ef fjöldaframleiðsla hæí
ist á húsum og húshlutum i
vatni, rafmagni, frárennslislögn
og loftræstilögn og stóðu þá til-
búin. Dæmi um þróun þessara
mála hér, sem blasa við hverj-
um Reykvíkingí í dag, eru hin-
ar nýtízkulegu framhliðar ým-
issa nýrra stórhýsa hér, en mjóg
góð einangrunarefni hafa helst
orðið til að gera þessa fram-
ieiðslu mögulega.
Annar þýðingarmesti markað-
urinn fyrir plastvörur eru um-
foúðir. Framþróun þessa iðnaðar
hefir á fáum árum orðið mjög
KAUPUM ÍSLENZKA IDNADARVÖRU
Ýs