Morgunblaðið - 08.09.1966, Síða 21
Fimmtudagur 8. sept. 1966
MORGU N BLAÐIÐ
2!
— Hundgá
Framhald af bls. 17
kemst, sem ólíklegt má teljast,
þar sem ritfrelsi er teppt, má
ætíð segja, að hér hafi verið um
prentvillu að ræða.
Nefni ég eitt dæmi til skýring-
ar. Sovézkum sjómönnum, er
sigla á íslandsmið, er afhent lítil
handbók um ísland, samþjapp-
að efni um þetta litla land. Þar
stendur að bílar séu algengir á
íslandi. Nú mun pési þessi vera
tekinn saman nokkru eftir að
bifreiðaeign íslendinga fór yfir
20.000 farartæki. Þess vegna
stendur í handbókinni, að bif-
reiðir á Islandi séu nánar tiltek-
ið um 2.000 talsins. Munu sov-
ézkir sjómenn undrast, að svo
fámenn þjóð skuli eiga svo
marga bíla.
Þar sem minnst var á handbók
þessa, má einnig geta þess, að
í henni stendur, að fiskiskipa-
stóll íslendinga sé að mestu
byggður í Austur-Þýzkalandi og
fyrir rússneskt lánsfé. Einnig að
viðurværi íslenzkra sjómanna á
fiskveiðiskipunum sé lélegt.
Naumast þarf að taka fram hið
sanna um fæðið á íslenzka fisk-
veiðiflotanum. Það mun vera
með því bezta, sem gerizt í þjim
efnum, enda engin ofrausn af
neinna hálfu, þar sem íslenzkir
ejómenn, fengsælustu sjómenn
jarðar, greiða það sjálfir. Því
miður svarar lýsingin hins veg-
ar til fæðis sjómanna á rússnesk-
um fiskveiðiskipum, sem deilt er
af rikinu, eins og ég hefi sann-
færzt um, sem túlkur á rússn-
eskum skipum.
Vönduð blekking.
Það er einkum hin stórfellda,
dýra og vandaða blekking fjöl-
miðlunartækjanna, ásamt sér-
Stökum sýningaraðferðum við
erlenda ferðahópa, sem blindað
hafa suma vel gefna íbúa Vest-
landa. íslendingar, sem frá fornu
hafa tröllatrú á bókum, og
faættir mörgum til að lesa þær
hráar, enda vanir vönduðum
skrifum á Vesturlöndum, hafa
sumir fallið í þá gryfju, að
gleypa heilar bækur af harð-
soðnum áróðri, sem ekki hefir
*tt meiri stoð í veruleikanum,
*n nýju fötin keisarans. Hefir
menn þess þá ekki skort annað
en naerveru á ritstaðnum til þess
•ð sjá i gegnum flíkurnar.
Þessi oftrú á prentuðu máli,
ásamt einangrun landsins, munu
vera tvær af meginorsökum
tíðni kommúnistabakteríu á ís-
landi. Eru það ekki einungis
svokallaðar einfaldar sálir, sem
orðið hafa blekkingunni að
bráð, heldur einnig margir vel
gefnir og sæmilega menntaðir
menn, sem flestir eiga það sam-
merkt, að safna bókum án mikils
tillits til innihalds og lesa þær
án nægilegrar gagnrýni.
Þegar fórnarlamb hefir einu
sinni blindazt af áróðri komm-
únista, reynist því oftast erfitt að
losna úr viðjum kerfisins, sem
tekur á sig mynd eins konar
trúar. Flest, sem mælir á móti
trúnni er þá dæmt fals eða lygi,
svo lengi sem nokkur leið er að
vona slíkt. Ekki er hér rúm til
*ð ræða innanlandsáróður
kommúnista á íslandi, sem
byggður er á heimsblekking-
unni og mismunandi ósvífnum
vinnubrögðum, en gott dæmi
eru viSbrögð þeirra við grein
minni Sannleikurinn og Tarsis,
sem fólk mun hafa heyrt um.
Móttökurnar voru greinar i
Þjóðviljanum, samsafn af útúr-
snúingum, dylgjum og óhróðri,
sem spannaði 10 dálka.
Óhróður.
Útúrsnúningarnir voru aum-
legri fyrir það, að ekkert atriði
í grein minni var hrakið. Ef það
er fangamark sannleiksunnandi
manna, sem vilja hafa það er
sannara reynizt, að teljast ein-
faldar sálir, þá uni ég því nafni
vel með Ara fróða.
Hið eina atriðið i öllum ó-
hróðri kerfismanna um grein
mina, sem í reynd þarfnast um-
ræðu, og jafnframt er eina hugs-
anlega afsökun kommúnista fyr-
kc langvarandi árásarstyrjöld
Hér sjást verksummerki eftir hyðjuverk kommúnista er þeir sprengdu nálægt sendiráði
Bandaríkjanna í Saigon. 160 manns létu lífið eða særðust m.a. margir vegfarendur. Kommún-
istar hlífa engum.
þeirra og morðum í Víet Nam,
er dráttur á kosningum þar í
landi, sem ég hafði vikið óbeint
að í grein minni. Atriði þetta
verður eitt af því efni, sem tek-
ið verður til meðferðar í sér-
stakri grein, sem ég mun rita
um styrjöldina í Víet Nam síðar.
Grein mín átti að sögn Þjóð-
viljans áð vera fylgiskjal með
umsókn minni að stöðu bæjar-
stjóra á Siglufirði. Hið sanna er,
að ég hafði þegar ritað greinina
hinn 30. júní, þegar ég var í sím-
tali fyrst hvattur til að sækja
um embættið, sem ekki hafði
hvarflað að mér sjálfum. Lét ég
þá greinina bíða birtingar, unz
Alþýðuflokkurinn hafði fellt alla
umsækjendur og vitað var, að
ég þyrfti ekki að hafa áhyggjur
af Siglufjarðarkaupstáð næsta
fjögur árin. Var mér hafnað á
fundi Alþýðuflokksins, eftir að
kveðið hafði verið uppúr um, að
ég væri að sögn mesti fram-
sóknarmaður á Siglufirði.
Ég þakka vinsamlegan rit-
dóm Hlöðvers skólastjóra. Rang-
færslum hans gleymi ég vegna
hólsins. Margir fá styttri dóm
um heila bók. Einnig Hlöðver
minnist á bæjarstjórastarfið 1
sambandi við greinina, en er of
skynsamur til að telja umsókn-
ina tilefni greinarinnar. Hins
vegar fatast þeim fróða manni
nokkuð, þegar hann telur mig
hafa leita’ð stuðnings hjá full-
trúa Alþýðubandalagsins í sam-
bandi við umsókn mína. Hið
sanna er, að í símtali við um-
ræddan fulltrúa Alþýðubanda-
lagsins, sem ég á skipti við í við-
skiptalífinu, barst talið að hugs-
anlegri bæjarstjórn með stuðn-
ingi allra flokka og þeim til-
raunum, sem gerðar höfðu verið
í þeim efnum. í símtali þessu
tók ég fram, að ég væri á móti
kommúnistum, en hlynntur
verkamönnum, sem gert var af
þeim sökum, að þetta er í eina
skiptið, sem ég hef rætt stjórn-
mál við þann fyrrverandi Gar’ða-
ríkisbúa.
tlppljóstrun
Hvað fær kerfismenn til að
halda, að ég hafi þagað í átta ár
yfir þeim upplýsingum um und-
irfaúning að dulbúinni innrás í
Suður Víet Nam, sem fram
komu í grein minni Sannleikur-
inn og Tarsis og Þjóðviljinn rétti
lega telur stórmerkar? Gæti
ekki verið, að ég hafi komið
þeim áleiðis til Atlantshafsbanda
lagsins, sem ísland er meðlimur
í, svo nefnt sé dæmi um aðila,
sem væntanlega telur sér meiri
feng í þeim en Þjóðviljinn?
Ef Þjóðviljanum er það mikið
kappsmál, að upplýsingum þess-
um sé komi'ð betur á framfæri
með hans vitund og viíl standa
straum að kostnaði, skal ég ferð
ast til nærliggjandi landa og
halda fyrirlestra um þetta efni
og fleira. Upplýsa atferli heims
kommúnismans og vinna að efl-
ingu vestræns samstarfs og frið-
ar í heiminum.
Haunar get ég bætt því við, að
ég hef hvorki þagað yfir þessu
við landa mína né aðra kunn-
ingja. Einn af þeim mönnum,
inu, var bandarískur rithöfuni-
ur, starfsmaður hjá Atlantshafs-
bandalaginu, sem ég kynntist
eitt sinn í Þingvallaferð. Þar
sem okkur hafa einungis farið
milli jólakort síðan, er mér ó-
kunnugt um, hvað hann hefur
gert við upplýsingar mínar.
Hann kann að hafa gleymt þeim,
en einnig má vera, að hann hafi
fært þær í letur, og þær hafi bor
ið fyrir augu annarra embættis-
manna bandalagsins eða Johnson
forseta, svo nefnd séu dæmi um
hugsanlega útbreiðslu þeirra.
Þjóðviljinn hneykslast á, að ég
skuli fyrst fara að rita um opin-
ber má*lefni sjö árum eftir heim-
komu mína frá Sovétríkjunum.
Leitt er að þurfa að endurtaka,
að ég hafði verið það bjartsýnn,
að ætla mér það vandasama verK
efni, að skrifa sannsögulega
skáldsögu, sem fullnægði þeim
erfiðu skilyrðum, að hafa birt-
ingarhæfni beggja vegna járn-
tjalds, en leggði þó eitthvað af
mörkum á sviði heimspeki og
friðarmála. Alkunna er, að sum-
ir frístundahöfundar þurfa tíu
ár til að ljúka bók, sem þeir
vilja vanda. Framtíðin mun
skera úr um, hvort nokkuð birt-
ist af verki mínu, en þarna lá
blek mitt, unz ég fékk ekki leng-
ur orða bundizt, um blekkingar
kommúnista í málum Tarsis og
kúgun þeirra á sovézkri alþýðu.
Austrænn húsbóndi
Meðal annarra útúrsnúninga
um grein mína er sá, að ég hafi
í henni birt ævisögu mína.
Fylgja svo dylgjur um, að eitt-
hvað muni ég líklega hafa dreg-
ið undan! Kerfismenn reyna víð-
ar að gera skrif mín tortryggileg,
með því að gefa óbeint í skyn,
að ég hafi verið kommúnisti sjálf
ur. Hlálegri skrif getur varla.
Vitanlega kom ég aðeins fyrir
nokkrum orðum um ævi mína t
umræddri grein, eins og ég orð-
aði það í henni. Ekkert væri
mér ljúfara, en að birta blind-
ingjum þessum ævisögu mína
alla. Kynni það að opna augu
þeirra, að öðlast hlutdeild í kynn
um mínum af Sovétríkjunum og
fleiri rrkjum húsbændanna í
austri.
Kunnugt er, að þegar ég dvald
ist í Rússlandi, voru þar ekki ein
ungis kommúnistar við nám frá
fjörutiu löndum, heldur einnig
hlutlausir námsmenn frá Indó-
hluta hins frjálsa heims til
urn námið eftir opinberum leið
um. Síðara námsár mitt voru
þar einnig sextán bandarískir
námsmenn og einn Dani, sem
voru í Sovétríkjunum vegna op-
inberra námsskipta og deildu oft
í minni áheyrn um stjórnmál við
Rússa. Hlutleysi mitt var viður-
kennt á þann hátt. að oftast þeg-
ar námsfélagar mínir í rúss-
nesku, kommúnistar frá Ítalíu,
Hollandi og Kýpur, fengu stjórn
málagrein í Pravda til endur-
sagnar og útleggingar, fékk ég
íþróttagrein eða áðra hlutlausa
grein í staðinn. Mér var hins veg
ar sagt, framtíðarinnar vegna,
að þeir sem ekki væru með
flokknum, væru á móti honum.
Uppljóstrun sú af hálfu ein»
áttu sér stað áður en umræddir
sautján námsmenn komu til
tandsins. Má vera, að varlegar
hafi verið talað eftir það. Er þeir
komu, var ég fluttur í deild með
einum þeirra. Námstímar okkar
tveggja saman í rússnesku síð-
ara ár mitt í Rússlandi, voru að
sórum hluta pólitískar kapp
ræður milli Danans og kennar-
ans, sem greinilega hafði verið
vel valinn. Hinn síðarnefndi
vai'ði hraustlega árásir Rússa
Finnland, Ungverja og fleiri
þjóðir. í hans augum hafði
aldrei fallið neinn skuggi á flokk
inn.
Þótt íslenzkir kerfismenn vilji
gjarnan klína á mig eigia
skömm, verður það ekki auðvelí
verkefni.
Það er níð Þjóðviljans, að ég
hafi lofað fjöldamorð í Indónes-
íu. Fagna ber, að Malasía skuii
nú loks fá að lifa í friði fyrir
innrásum, morðum og hryðju-
verkum Indónesa undir stjórn
Sukarnos. Ennfremur, að hinir
síðarnefndu hafa almennt tekið
upp heilbrigðari stefnu í utan-
ríkismálum með fyrirhugaðri
þátttöku í Sameinuðu þjóðun-
um. Hins vegar ber að harma
þær aðfarir, fjöldamorð komm-
únista og fleira, sem stefnubreyt
ing þessi hafði í för með sér.
Svipuðum árangri hefði mátt ná
með friðsamlegri aðgerðum. Af-
setningu Sukarnos og ýmsum hóf
legum hliðarráðstöfunum.
A’ð lokum er hér ábending til
Hlöðvers skólastjóra:
Barnið og hinn ófróði hafa
ýmist óljósar skoðanir eða sam-
úð með þeim stríðsaðila, sem
halloka fer hverju sinni. Þrosk-
aður maður hefur hins vegar
samúð með þeim aðila, sem upp-
haflega varð fyrir árás, og rétt-
lætir varnaraðgerðir og jafnvel
vissar sóknaraðgerðir gegn árás-
ara'ðilanum, svo lengi sem hann
ekki vill friðmælast.
Þessi síðasta málsgrein lýsir
raunar afstöðu minni og meiri-
hluta hins frjálsa heims il
styrjaldarinnar í Víet Nam.
Þar sem íslenzkir kommúnist-
ar hafa hafið persónulegar árás-
ir á mig, og íslendingar búa nú
við mikinn og víða laumulegan
áróður af þeirra hálfu, mun ég
síðar gefa almenningi kost á að
kynnast nánar húsbændum
þeirra í austri. Hirði svo ekki
um gelt hundsins í Austurkoti.
sem ég skýrði ítarlega frá mál-kennara míns, sem áður getur.
SAAB-eigendur
Mikið úrval af ALTIKA-LUX SÆTA-
ÁKLÆÐUNUM nýkomið.
Einnig MOTTUR úr teppaefnum.
Margir litir.
Pantanir óskast sóttar sem fyrst.
Altika umboðið
Hverfisgötu 64, Reykjavik.
IMovie Corder Stereo
segulband
með sound on sound upptöku til sýnis
og sölu.
Radiover
Skólavörðustíg 8.
Stúlka
til a f g r eið s 1 u s t a r f a .
G. Ölafsson & Sandholt
Opinber stofnun óskar að ráða vana vélritunar-
stúlku til starfa strax. Tilboð, ásamt upplýsingum
um aldur og menntun óskast send Mbl. fyrir 14.
september n.k., merkt: „Haefileikar — 4212“.
Vön skrifstofustúlka
óskast nú þegar. Tilboð með upplýsin.gum um aldur
og fyrri störf sendist Mbl. sem fyrst merkt: „Skrif-
stofustúlka hátt kaup — 4678“.