Morgunblaðið - 08.09.1966, Side 31
Fimmtudagur 8. sepl. 1966
MORCUNBLAÐIÐ
31
— Sjónvarpið
Framhald af bls. 32.
sjónvarpsstöðvar ná til. Mér hef
ur verið tilkynnt, að nokkrir af
framleiðendum sjónvarpsefnis
okkar líti á tilkomu íslenzks
sjónvarps sem samkeppni, og
hafa gert ráðstafanir, er mundu
koma í veg fyrir valfrelsi sjón-
varpsefnis, sem sjónvarpsstöð
varnarliðsins hefur áður notið,
ef ekki verði gerðar ráðstafanir
til þess að draga úr fjölda ann-
arra áhorfenda en varnarliðs-
manna.
Mér er ljóst, að margir íslend-
ingar hafa keypt sjónvarpstæki
og horfa á AFRTS sjónvarps-
þætti. Þótt hér sé um fólk að
ræða sem að eigin frumkvæði
hefur gerzt áhorfendur, þá hef- (
ur það fylgzt svo lengi með sjón-
varpsþáttunum, að skapazt hefur
áhugi hjá því, sem taka verður
tillit til vegna góðrar sambúðar,
og er ég þeirrar skoðunar, að
þér munuð vera mér sammála
um, að þessir áhorfendur eigi
rétt á skýringu á sérhverfi breyt
ingu, sem snerti þá. í samræmi
við þetta óska ég að taka fram,
að varnarliðið verður að gera
ráðstafanir, er draga muni úr
fjölda annarra áhorfenda en
varnarliðsmanna, þannig að
hægt verði að varðveita hinar
ódýru útsendingar og fjöl-
breytni varnarliðssjónvarpsins,
sem byggjast á, að ekki var
áður um að ræða samkeppni af
hálfu annarra sjónvarpsstöðva.
>ess vegna er lagt til, að sjón-
varpsútsendingum verði breytt
þannig, að venjuleg sjónvarps-
móttaka á heimilum verði tak-
mörkuð að svo miklu leyti sem
hægt er, við næsta nágrenni
Keflavíkurflugvallar, þár sém
varnarliðið dvelur. Þetta mundi
verða framkvæmt á þeim tíma,
sem ríkisstjórn íslands álítur
heppilegastan, væntanlega þegar
íslenzka sjónvarpið hefur út-
sendingar sinar, til þess að valda
íslenzkum áhorfendum AFRTS
sjónvarpsins sem minnstum
óþægindum.
Ég er þess fullviss, að þér
munuð skilja nauðsyn þessara
aðgerða og ég vænti samþykkis
yðar og ráðs um það, hvenær
þessar aðgerðir skuli koma til
framkvæmda.
, Sign. Ralph Weymouth.
• Utanríkisrá'ðuneytið.
Hinn 7. september 1966.
Herra aðmíráll,
í bréfi yðar dags. í gær skýr-
ið þér frá vandamálum í sam-
toandi við rekstur sjónvarpsstöðv
ar yðar í Keflavik, og þeirri ósk
yðar að breyta núverandi sjón-
varpsaðstæðum.
Með tilliti til þess ástands,
sem þér lýsið, mun ríkisstjórn
íslands ekki vera mótfallin til-
lögu yðar um að draga úr sjón-
varpssendingum yðar, þannig að
þær verði takmarkaðar við
venjulega sjónvarpsmóttöku á
heimilum í næsta nágrenni
Keflavíkur.
>ar sem mörg sjónvarpstæki
og loftnet, sem nú eru í notkun
munu þurfa breytinga vi'ð, til
þess að hægt sé að nota þau
til móttöku á íslenzku sjónvarpi,
er þess óskað, að breytingarnar
á Keflavíkur AFRTS útsending-
unum verði samræmdar tilkomu
íslenzka sjónvarpsins.
Sign. Emil Jónsson.
Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 7. september 1966
— Möðruvallamál
Framhald af bls. 32.
þeim forsendum, að hann hefði
komið 2 mönnum á kjörskrá í
Möðruvallaprestakalli, sem ekki
voru á kjörskránni. Sagði sr.
Ágiíst, að þessi tvö atkvæði
hefðu ekki verið tekin gild við
talningu.
— Leki
Framhald af bis. 2
veður hafi verið óskaplega
slæmt — og ljótt að sjá um-
hverfis slysstaðinn, 10—15 metra
bylgjur hafi gengið yfir skipið.
Um kl. 2 kom fyrsta þyrlan með
skipsbrotsmenn og um kl. 17
hafði öllum verið bjargað í skip
eða flugvélar — eða svo var að
minnsta kosti talið.
Annar sjónarvottur, farþegi
að nafni Lise Svanholm, kveðst
hafa setið inni í reykingasaln-
um með mágkonu sinni, er allir
voru kallaðir upp á bátadekkið.
— „Við gerðum okkur þá þegar
ljóst að eitthvað var að, því að
skipið valt svo undarlega. >egar
er við höfðum fest á okkur
björgunarbeltin, köstuðum við
okkur f sjóinn. Nokkru síðar
kom að gúmmífleki og tók okk-
ur upp og síðan komu þyrlunar.
Rómaði frú Svanholm æðru-
leysi allra, er þarna áttu hlut að
máli, bæði farþega og áhafnar.
Meðal dönsku skólanemend
anna voru margir ósyndir, en
eftir þvi sem bezt er vitað, björg
uðust þeir allir. Hinsvegar
kveðst messaguttinn, Carl Dal
finn, sextán ára, hafa misst tak
af manni einum, er hann reyndi
að bjarga upp í björgunarbát
og ekki hafa séð hann síðan. Er
ekki ljóst, hvort sá maður hefur
farizt eða bjargazt með öðrum
hætti.
— Forvitnilegt
Framhald af bls. 1
hugsanlegt sé að stolnu gulH,
silfri og skartgripum sé
smyglað í stórum stíl frá
Svíþjóð yfir til nágranna-
landanna.
Að því er lögreglan í Svf-
þjóð upplýsir, er hugsanlegt,
að allt að hundrað kg. guils
hafi verið smyglað yfir landa
mærin til Finnlands. Vitað er
að mikið magn gulls, silfurs
og annarra dýrmætra muna
sem stolið hefur verið í Sví-
þjóð hafa aldrei komið fram
á markaði og hafa þannig
horfið verðmæti, er nema
hundruðum þúsunda króna.
Að sögn lögreglunnar hafði
finnski lögfræðingurinn tek-
ið við gullinu í Helsingfors
af sænskum ferðamanni. 1
Stokkhólmi eru einnig í haldi
nokkrir menn, sem grunur
leikur á, að séu við málið
riðnir og fjöldi sænskra
lögreglumanna eru í Helsing-
fors við rannsókn málsins.
— Per Borten
Framhald af bls. 1
þaðan verður ekið að Bessastöð
um, þar sem snæddur verður há
degisverður í boði forseta íslands
Síðdegis verður svo ekið um
Reykjavík og farið að Mógilsá
á Kjalarnesi. En í kvöld sitja
norsku forsætisráðherrahjónin
kvöldverðarboð íslenzku ríkis
stjórnarinnar á Hótel Sögu.
Á föstudag fer ráðherrann upp
í Borgarfjörð, að Reykholti og á
laugardag norður í Eyjafjörð og
að Mývatni. En á mánudag verð
ur ekið að >ingvöllum og aust-
ur fyrir fjall.
— Kinverjar
Framh. af bls. 1
að skaða starfsemina og draga
úr framleiðslunni.
Blaðið hvetur Rauðu varðlið-
anna og nemendurna þess í stað
til þess að fara út í sveítirnar
og taka þátt í starfinu, er þar
sé unnið — vinna m. a. að því
að skipuleggja að koma upp-
skerunni í hús.
Fréttamenn benda hins vegar
á, að til þessa hafa Rauðu varð-
liðarnir alls ekki skipt sér svo
mjög af þessum aðilum, sem
blað Alþýðunnar nefnir. >eir
hafa þvert á móti fyrst og
fremst vaðið uppi í verzlunum
og þjónustufyrirtækjum, fyrir
utan árásir á einstöku minni-
hlutahópa, svokallaða „þjóðern-
iskapitalista“ trúarflokka og út-
lendinga. Verksmiðjur og bú-
garða hafa þeir yfirleitt látið
afskiptalausa.
Blöð í Peking skýra frá því,
að kínverskir hermenn hafi hald
ið fundi viðsvegar um landið og
rætt framgöngu Rauðu varðlið-
anna. Hafi hvarvetna komið
fram mikil ánægja yfir þeim ár-
angri, er þeir hafi náð.
Tass fréttastofan skýrir svo
frá í dag, að Rauðu varðliðarnir
hafi krafizt þess, að allir sem
beri „borgaraleg" nöfn skuli
koma til skráningar á lögreglu-
stöðvum og skipta um nöfn.
Hafa varðliðarnir sett upp
spjöld með þessari kröfu víðs-
vegar um Peking. Ennfremur
hafa þeir lýst stríði á hendur
þeim gamla og góða sið að fara
í heimsókn til ættingja og kaupa
ávexti eða komfekt til að færa
þeim að gjöf.
Tass staðhæfir einnig að mið-
stjórn kínversku æskulýðshreyf
ingarinnar hafi verið endur
skipulögð, stöðvuð hafi verið út-
gófa dagblaðs hennar „Chung
Kuo Ching Pao“ og sömuleiðis
dagblað Ungherjanna. >á segir
fráttastofan, að varðliðarnir
hafi krafizt þess, að á öllum
nýjum bifreiðum, hjólum, járn-
brautarlestum og flugvélum
skuli vera áletranir úr verkum
Mao Tse-tungs. Ennfremur að
upp verði settir hátalarar á götu
hornum og skemmtigörðum það
an, sem heyra megi lesið úr
verkum Maos og fregnir af við-
burðum og ástandi heima og er-
lendis.
pí. K. sunnuðag hefjast aftur sýningar í >jóðleikhúsinu.
Þann dag hefjast aftur sýningar á leikritinu „Ó, þetta er indælt stríð“, en leikritið var sem
kunnugt er sýnt 6 sinnum á s. 1. leikári og var húsfylli á öllum sýningum.
Leikurinn hlaut mjög lofsamlega dóma, bæði hjá gagnrýnendum og leikhúsgestum. Sérstaka
athygli vakti leikstjórn Kevin Palmers, en hann hefir nú verið fastráðinn sem leikstjóri hjá >jóð-
leikhúsina.
Una Collins gerði leikmyndir og teiknaði mjög sérstæða ng skemmtilega búninga fyrir þessa sýn
ingu og mun hún einnig starfa hjá Þjóðleikhusinu í vetur. Leikendur eru alls 17, en hljómsveit
arstjóri er Magnús Blöndal Jóhannsson.
Um þessar mundir minnist Félag íslenzkra ieikara 25 ára afmælis síns og verður leikritið „Ó,
þetta er indælt stríð", sýnt n. k. sunnudag í tilefni af 25 ára afmæli Félags íslenzkra leikara.
Myndin er af Bessa Bjarnasyni Gunnari Eyjólfssyni Flosa Ólafssyni Sverri Guömundssyni og
Gísla Alfreðssyni.
I MYNDIN er tekin er togar- ;
■ inn Kobert Hewett kom til ■
: Vestmannaeyja kL 18 sl. Z
■ þriðjudag. Hafði togarinn, ;
: eins og skýrt vai frá í Mbl.:
■ í gær feugið á sig brotsjó 62 ;
j mílur S \ af Vestmannaeyj- !
; um og eldur komið upp í raf- ;
: magnstöflu i vélarrúmi skips !
; ins, vélar þess stöðvast og öll ■
| Ijós slokknað. Rak togarann !
; stjórnlaust fyrir veðri er Maí ■
: bar að. Fnginn af áhöfninni!
; varð fyrir meiðslum við ó-;
| happið. — Myndin i horninu !
; er af skipst jóra brezka togar;
| ans Harry Ferrar.
; (Ljósm.- Óskar Björgvinsson) ;
U. Thant ræðir
við hlaðamenn
19. september
New York, 7. september, NTB.
• Tilkynnt var í aðalstöðvum
Sameinuðu þjóðanna í dag, að
U Thant, framkvæmdastjóri,
muni halda fund með blaða-
mönnum 19. september næst-
komandi. Mun hann þá svara
spurningum varðandi lausnar-
beiðni sína og segja tU nm það,
hvort hann mundi tilleiðanlegur
að halda starfinu áfram með ein
hverjum skilyrðum. Fyrr mun
hann ekkert um málið segja.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum, að U Thant hafi orð-
að yfirlýsingu sína á dögunum
um að hann gæfi ekki kost á
sér, mjög nákvæmlega með það
fyrir augum að geta brugðizt
jákvætt við, ef Öryggisráðið
skoraði eindregið á hann að
halda áfram starfi og ekki feng-
izt neinn annar til þess. Segir
samkvæmt öðrum heimildum,
að persónulegar ástæður U
Thants til afsagnar — svo sem
veikindi konu hans, sem hann
hefur borið fyrir sig — séu ekki
lengur jafn þungar á metunum
og áður.
SYIMDIÐ
200 metrana
VINDUR var enn norðan- lands og vestan. Svalt var i
stæður í gær, en orðinn hæg- í veðri og snjóaði á Hvera-
ur. Dálítil rigning var á Vest- völlum enda var hitinn þar á
fjörðum og Norðausturlandi, núlli.
en víðast bjart veður sunnan