Morgunblaðið - 09.09.1966, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.09.1966, Blaðsíða 3
Föstudagur 9. sefJt. 1966 MORCUNBLAÐIÐ 3 Samkór Vestmannaeyja ferðast um Vestmannaeyjum 8. sept. SAMKÓR Vestmannaeyja undir býr nú ferðalag í nærsveitirn- ar. Verður farið um helgina. Kór inn hefur áformað að syngja í Aratungu n. k. laugardag kl. 5 síðdegis og á sunnudaginn verð ur komið við í Skálholtskirkju, þar sem sungnir verða tveir eða þrír sálmar. Stjórnandi kórsins er Martin Hunger. l>etta er ekki söngför í eigin- wegum skilningi, heldur skemmti ferð og upplyfting áður en tek- ið veröur til æfinga og væntan- legra samsöngva að vetri. Fréttaritari. — Leiðrétting i FRÁSÖGN með meðfylgjandi mynd, sem birt var í Mbl. í gær, var skýrt fiá {.ví, að gafl húss- ins Grettisgata 2, sem sýndur var á myndinni hefði hrunið af völdum sprengingar, sem talið var að framkvæmd hefði verið el. þriðjudagskvöld vegna fram- kvæmda við væntanlegt hús Sparisjóðs Rej kjavíkur og ná- grennis að Skólavörðustíg 11. Verktakarnir, sem annast spreng ingar fyrir húsi Sparisjóðsins hafa óskað eftir að skýrt verði frá því, að gaflinn hafi ekki hrunið af greindri ástæðu, enda hafi þeir ckki framkvæmt nein ar sprengingar þetta kvöld. Hin rétta ástæða fyrir hruni gaflsins oiun vera sú, að starfsmenn Reykjavíkurborgar unnu sl. þriðjudag að því að fjarlægja húsið. Unnið að malbikun Víkurbrautar í Keflavík. — (Ljósm.: Heimir Stigsson) llnnið að malbikun gatna í Keflavík Malbikabir verðo rúmlega 2.2 km. - allt miklar umferðargötur MALfclKUN gatna í Keflavík stendur nú vfir og verður að þessu sinni lagðir rúmlega FERÐA TRYGGINGAR SJOUATBYGGT ERUELTRYGGT SIM111700 SJOVATRYGGINBARFELAG tSLANDS HL 2200 metrar af 7—9 metra breiðum götum, sem allt eru miklar umferðagötur. þessa malbikun hefur verið mikil þvi skipta hefur þurft um jarðveg allstaðar, taka moldina öurtu og fylla upp aft ur með grófmulningi úr Stapa felli. Það verk hefur að mestu verið unnið í surnar af starfs- liði bæjarms. Nú er svo kom Undirbúningsvinna fyrir ið að þetta undirbúningsverk er unnið jafnóðum eða áðu* en byggingar hefjast við nýj ar götur, svo þær eru tilbún ar undir varanlegt slitlag hvenær sem er. Þá hefur í sumar verið lagðir mörg hundruo metrar af gangstétt um, svo bærinn breytir nú óð um um svip ril hins betra og ber vott um góða og framsýna stjórn. Malbikunina annast íslenzk ir aðalverktakar, sem hafa góð um og miklum vélakosti á að skipa og vönu og góðu starfs- liði. Malbikunin hófst í gær (7. sept.) og verður lokið að fullu á þrem dögum og eru það sérstakiega mikil og góð afköst sem aðems vanir menn og góð tæki geta innt af hönd um. Þegar þessum 2200 metra áfanga er lokið þá eru alls malbikaðir 6,5 kílómetrar af götum í Kefiavík, sem munu láta nærri að sé y4 af öllu gatnakerfinu. Nú þegar er far ið að vinna að áætlun um mal bikun og lagningu olíumalar á næsta ári. — h s j llla horfir með kartöflur og ber nyrðra Húsavík, 8. september. í VOR, eftir harðan vetur, áttu menn hér von á góðu sumri, en slíkar vonir hafa allar brugðizt, því sumarið má kalla ieiðinlegt, þótt ekki hafi verið oft stórviðra- samt. Kartöfluuppskera virðist ætla að bregðast, svo ekki mun verða reynt að taka upp úr mörgum görðum, nema haustið reyndist sérstakiega hlýtt og góðviðra- samt. Um tíma í sumar leit út fyrir góða berjasprettu, en það hefur brugðizt sem annað og ber eru hér mjög lítil og vanþroska. Erfiðlega hefur gengið með heyskap og mun hann ekki verða í meðaliagi og er það mjög slæmt eftir gjafafrekan vetur. —■ Fréttaritari. Ök á hest við Sandskeið SEINX í gærkvöldi kom mað- ur á lögreglustöðina í Reykja- vik og tilkynnti, að nokkru áð- ur hefði hann ekið á hest rétt fyrir neðan Sandskeið. Hesturinn drapst þegar við áreksturinn og bíllinn skemmd- ist allmikið. Þetta var 2—3 vetra hryssa, jörpskjótt, sokkótt á öllum löpp um. Markið er bitið aftan hægra. Eigandi er bíðinn að hafa sam band við iögregluna. 70 vinning- ar i dag á Iðnsýningunni TIL ÞESS að vekja athygli al mennings á framleiðsluvör- um sínum, hafa iðnfyrirtæki innan matvælaiðnaðar ákveð- ið að efna tit skyndihappdrætt is á degi matvælaiðnaðarins á Iðnsýningunni, föstudaginn 9. september nk. Verður gestum Iðnsýningarinnar þann dag afhentir happdrættismiðar með hverjum aðgöngumiða. Verða miðar þessii ókeypis og verða aíhentir við innganga á sýninguno. Vinningar verða um 70 talsins að heildarverð- mæti ca. kr. 25 000,00 á heild söluverði. Verða vinningar ein göngu framleiðsluvörur verk smiðja þeirre er að þessu standa. Má þar til nefna sæl- gæti hverskonar, gosdrykki, niðursuðuvörur o. fl. Verða vinningarnir hafðir til sýn- is á sýningarsvæðinu allan föstudaginn. Dráttur í happ- drættinu fer fram á sýning- unni kl. 22,30 að kvöldi föstu dags og verður framkvæmdur af borgarfógeta. Vinningaskrá verður síðar rækiiega auglýst1 í blöðum. STAKSTEiNAR íslenzk sk'nn Á iðnsýningunni, sem nú stend ur yfir sýnir Sláturfélag Suður- lands sérverkuð íslenzk lamba- skinn, sem sauma má úr glæsi- legar loðkápur og nota til ann- ars, svo sem í húsgagnaiðnaði. í * viðtali, sem Mbl. birti i gær við fulltrúa Sláturfélags Suðurlands, skýrðu þeir frá því, að fjölmarg- ar þjóðir hefðu á undanförnum árum keypt saltaðar gærur og unnið úr þeim á líkan hátt og sútunarverksmiðja Sláturfélags Suðurlands gerir nú. Jafnframt skýrðu þeir frá því, að á þessu ári hefðu sýnishorn af hinum sér verkuðu gærum verið send til Bandaríkjanna, og í kjölfar þeirra hefðu komið tvær stórar skinnapantanir. Fullvinnsla íslenzkra hráefna Hér er um hið merkasta mál að ræða. Enginn vafi er á því, að úr framleiðsluvörum hinna tveggja ísienzku undirstöðuat- vinnuvega, sjávarútvegi og land- búnaði, er hægt að framleiða dýrmætari og verðmætari vörur, en nú er gert, til sölu bæði innan lands og utan. Á það bæði við um afurðir landbúnaðarins og ekki siður við sjávarafurðir, sem enn eru fluttar út óunnar að miklu leyti. Sýningardeild Sláturfélags Suðurlands á iðn- sýningunni sýnir glögglega hvaða árangri hægt er að ná með sam- vizkusömu rannsóknarstarfi og hugmyndaauðgi, við að vinna verðmætar og eftirsóttar vörur úr alíslenzkum hráefnum. Vafalaust er hægt að auka mjög verðmæti þeirra landbún- aðarafurða sem við nú flvtjum út með aukinni vinnslu þeirra. Þannig mæla t. d. engin skyn- samleg rök gegn því að íslend- ingar framleiði fjölbreyttari •’ ostategundlr en nú er og standa raunar vonir til að ostagerð sú, sem mun taka til starfa innan skamms í Hveragerði verði upp- hafið að fjölbreyttari og verð- mætari framleiðslu á þessu sviði en nú er. Þá hlýtur það einnig að koma mjög til greina að vinna meir það kjöt sem við flytjum nú út og pakka því í fallegar neyt- endaumbúðir alveg á sama hátt og gert hefur verið við frystar fiskafurðir okkar. Iðnaður úr landbúnaðarafurðum hlýtur að eiga verulega framtíð fyrir sér hér á landi ekki siður en ann- ars staðar og þess vegna er ánægjulegt að sjá svo fallegar framleiðsluvörur úr íslenzkri ull.r sem á iðnsýningunni nú. Iðnaðarþjóð Auðvitað eigum við að leggja vaxandi áherzlu á það í framtíð- inni að auka vinnslu á þeim hrá- efnum, sem við öflum af land- inu og í sjónum Með því móti aukum við verðmæti vörunnar áður en nún er flutt til útlanda, og er talið. að það geti numíð ótrúlegum upphæðum, ef vel er að verki staðið. Innlendur iðnað- ur á mikla framtið fyrir sér, + ekki sízt, ef hann leggur áherzlu á að vinna úr ísienzkum hráefn- um. Á þeim grundvelli hlýtur iðnvæðing íslands fyrst og fremst að byggjast. Full ástæða er til að veita öflugan stuðning starfsemi sem þeirri, er hér hef- ur verið rætt um, og fagna fram- taki þeirra manna, sem fyrir slíku standa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.