Morgunblaðið - 09.09.1966, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 09.09.1966, Blaðsíða 30
30 MORGU N BLAÐIÐ Fostudagur 9. sept. 1966 Fjármagn vantar um allt land til íþróttastarfsins Xr ÍSÍ fékk 2.6 miElj. >f Skuldir íþrottasjóðs á mannvirkjagerð af vind lingasölu eru dragbítur A frRÓTTAÞINGINU á ísafirði var mikið rætt um fjármál iþróttahrey fingarinnar. Fjár- magn hreyfinga rinnar hefur mikið aukizt á undanförnum ár- um, ekki sízt vegna styrksins er íþróttahreyfingin fær af sölu vindlinga, en á þeim lið fékk íþróttahreyfingin 2.6 millj. kr. árið 1965. Var þeim peningum varið til uppbyggingar íþrótta- starfsins og til f járfestingar vegna mannvirkja. Hrekkur hann þó skammt og um allt land starfa íþróttafélög sem eru Norðmnður bezti stökkmoður heims NORÐMAÐURINN Björn Wir- kola er efstur á lista júgóslavn- eska talnafræðingsins Rozman um hverjir séu beztu skíðastökk menn heimsins. Iástinn er þann- ig: 1. Björn Wirkola, 2. Dieter Neuendorf A Þýzkaland, 3. Raska Tékkóslóvakíu, t. Veikko Kank onen Finnlandi, 5. Lukkariniemi Finnland, 6. Lesser A-Þýzkal., 7. Queck A-Þýzkal., 8. Halonen Finnlandi, 9. Sjöberg Svíþjóð og 10. Bachle Austurríki. átakanlega heft í starfi sínu vegna fjárskorts. Alvarlegra er þó ástandið vegna mannvirkjagerðar á hin- um ýmsu stöðum á landinu, en víða standa hálfkláruð íþrotta- mannvirki vegna skulda íþrótta sjóðs við þau. Því var samþykkt eftirfarandi tillaga á þinginu: „fþróttaþing ÍSÍ 1966 skorar eindregið á hið háa Alþingi, að hækka verulega fjárveitingar til íþróttasjóðs, svo hann geti greitt skuld sína við íþróttamannvirki, sem eru í smíðum eða lokið við, og hækka styrk til íþróttasam- takanna vegna kennslukostnað- ar“. Greinargerð: í íþróttalögum sem samþykkt voru af Alþingi árið 1940, var stofnaður íþróttasjóður, sem Evrópumet í 800 yardu hloupi VESTUR-Þjóðverjinn Josef Kemper setti Evrópumet í 880 yarda hlaupi á móti í Köin á miðvikudag Hann hljóp á 1:47,3. Kemper á einnig Evrópumetið í 800 m hlaupi en það er 1:44,9 Rússar og Pólverjar greiöa 136 þús. dali i skaðabæfur fyrir að mæta ekki NÚ horfir svo að Bandaríkin og Sovétríkin taki upp fyrri sam- vinnu sina og samskipti á íþrótta- aviðinu, að sögn formanns banda- riska frjálsíþróttasambandsins. Hljóp snuðra á þessi samskipti í sumar er sovézk og einnig póisk Oscar-styttan svonefnda sem árlega er veitt þeim skautahlaupara er mest skar ar framúr á stórmótum í Noregi eða alþjóðlegum mót um. Heimsmeistarinn Cees Verkerk frá Hollandi hlaut styttuna en á heimsmeistara- mótinu sigraði hann í þrem greinum af fjórum og vann með yfirburðum. yfirvöld skyndilega aflýstu þátt- töku í umsaminni landskeppni og báru fyrir sig að þau væru að mótmæla „stríðinu í Víetnam“. Formaðurinn, Donald Hull, lét þessi ummæli falla við blaða- menn á flugvellinum í Frank- furt á leið frá Búdapest til London. í Búdapest var haldið þing alþjóða frjálsíþróttasam- bandsins. Þar náðist samkomulag milii Bandaríkjamanna annars vegar og Sovétmanna og Pólverja hins vegar um skaðabætur hinna síðarnefndu fyrir að falla frá keppni landsliðanna á síðustu stundu. Vildi hann ekki ræða um samkomulagið í smáatriðum en sagði að Sovétríkin myndu greiða 125 þúsund dali í skaðabætur og Pólverjar 11 þúsund dali. 200 m. Sy n dd 200 metrunu 200 m. verið sú að æ minna munar um styrki úr sjóðnum, veldur þvi það, að framlög frá Alþingi standa nærri í stað ár frá ári á sama tíma, sem byggingakostn- aður hefur margfaldazt og kennslukostnaður stóraukizt. f skýrslu þeirri, sem íþrótta- nefnd ríkisins gaf út árið 1965, á tuttugu og fimm ára afmæii íþróUalaganna segir svo m.a.: „Á þessum 25 árum hafa runn ið í íþróttasjóð frá Alþingi 31.023.054.35 kr. Á vegum bæja- og sveitarfélaga, ungmenna- og íþróttafélaga hefur samtímis verið unnið að 151 íþróttamann- virki“ ........ veitti styrki til íþróttamann- íhr’óttaslóð'f^ virkja og íþróttakennslu. íþrótta^ ’ nefnd ríkisins annaðist síðan út- hlutun úr sjóðnum. Var þetta stórkostleg framför frá því sem áður var, þegar öll opinber aðstoð til íþróttamála var óskipulögð og undir atvik- um komið hverjir hlytu styrki, enn með íþróttalögum var þetta sett í fast kerfi. Fyrstu ár íþróttasjóðs munaði mjög mikið um framlög úr hon- um og voru styrkir íþróttasjóðs til að lyfta mjög undir byggingu íþróttamannvirkja og verulegur stuðningur við íþróttakennslu hinnar frjálsu íþróttastarfsemi. En því miður hefur þróunin áætluð vegna þátttaka þessara mannvirkja, nam í ár 26,4 millj. kr.“ ........ „Verði fjárgeta íþróttasjóðs hin næstu ár, óbreytt, munar lítið um fjárhagsaðstoð íþrótta- sjóðs — við þessi frjálsu æsku- lýðsstörf, sem hafa verið í stöð- ugum vexti frá því á sl. öld og eru hin öflugustu og víðtækuslu hér á landi“............ Af því sem hér er fram talið, sem þó er langt frá því að vera tæmandi, má ljóst vera, að fram lög til íþróttasjóðs eru allt of lág og fjárskortur hindrar hann í því að gegna því hlutverki sem honum var í upphafi ætlað. Er því full ástæða til þess að hækka verulega framlög til íþróttasjóðs, svo sem lagt er til í tillögu þessari. Steinhauer Varpar — G uðmundur horfir á. Kúlan flaug 19,30 á Melavellinum BANDARÍSKI kúluvarpar- inn Neal Sreinhauer kom til landsins í fyrrinótt og var kominn á æfingu á Meiavell- inum í gærdag. Það þótti mörgum forvitnilegt og ný- stárlegt að sjá hann varpa kúlunni, því hún flaug á- reynslulaust langt yfir ísl. metið — sem reyndar er eins og drengja- eða kvennamet í samanburði við afrek Stein- hauers, sem á bezt 20,44 m, sem er annað hezta afrek heims í kúluvarpi. Steinhaaer varpaði nokkr- um sinmim og lengsta kast hans mældist 19,30 m. Hann var að segja okkar kúluvörp urum tíl, aðallega Guðmundi Hermannssvni. Steinhauer mun dveljast hér nokkra daga á leið sinni vestur. Hann hefur verið á Norðurlöndunum. Þar sagði hann m.a sænska methafan- um til með þeim árangri að hann bætti sænska metið tví- vegis og er það nú 18,69. Þá sagði hann norska methafan- um B. Andersen til er þeir hittust á móti í Gautaborg og með þeim árangri að Ander- sen setti norsl-t met 18,30 m. Vonandi tekst honum vel upp í tilsögn sinni hér svo árangur okkar manna batni. Það er kommn tími til að af komendur Grettis sterka geti varpað kúlunni sómasamlega vegalengd. Hvernig á að skipa landslið? Verðlaunagetraun Hlbl. um skipan landsliðsins gegn Frökkum EFTIR rúma viku fer fram lands leikur í knattspyrnu milli ís- lendinga og Fiakka (áhuga- manna). Sjaldan eða aldrei hef- ur verið eins erfitt að setjast nið ur og velja landslið. Koma þar til misjafnir leikir knattspyrnu manna okkar og nú síðast sæmi- leg frammistaða Vals gegn Stand ard Liége liér heima og liðs KR- inga gegn meistaraliði franskra atvinnumanna. Mörg sjónarmið ráða landsliðs vali. Á að taka uppistöðu úr einu liði? Uppistöðu úr tveim liðum? Á að velja einstaklinga í þeirri von að þeir falli vel saman í úrslitaleik? Og hvaða lið er þá bezt til uppistöðu Eða hvaða ein staklingar? Til gamans höfum vði ákveð- ið að efna til skoðanakönnunar lesenda um það, hvernig skipa beri landsliðið. Væntum við að knattspyrnuunnendur hafi gam an af að velta þessu fyrir sér og skipa landslið. Nú er erfitt að skipa dómara, sem upp getur kveðið réttlátan dóm um það. hvað sé bezta lands liðið. En einhvfcin mælikvarða verður að hafa og það er val blessaðrar landsltðsnefndarinnar. Hún hefur endanlegt vald um lið ið og þess vegna verður getraun in öðrum þræði um það, hvernig verður lanasliðið skipað. En að sjálfsögðu útilokar það ekki fólk í því að velia „eigið“ landslið og ætti slik skoðanakönnun um vilja lesenda að geta gefið vís- bendingu um almenningsálitið í þessum efnum. Verðlaun hlýtur sá (happ- drætti ef margir geta rétt til) er sendir inn „kjörseðil" með nöfnum, sem landliðsnefnd vel- ur. Verðlaunin eru 2 stúkumiðar á landsleikinn 18. september nk, Skilafrestur i getrauninni er til þriðjudagskvöld og sendist til Mbl., merkt. „Íþróttasíða Mbl.“. Og hér -tx svo „kjörseðill". Landsliðið verður- þannig skipa ð: v. útherji miðherji h. útherji v. innherji h. innherji v. framvörður miðv örður h. framvörour v. bakvörður h. bakvörður markv örður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.