Morgunblaðið - 09.09.1966, Blaðsíða 11
FiÉtudagur 9. sept. X)68
MORCU N BLAÐIÐ
11
KAUPUM ÍSLENZKA IÐNAÐARVÖRU
i
i
I
I
I
mundir bók með 38 uppskriftum
að kökum og brauði og fæst hún
í matvöruverzlunum og kostar
15 krónur.
Frónkexið hefir átt í harðri
•amkeppni síðan kex var gefið
frjálst. Mest selzt af matarkexi
og kremkexi og sagði forsvars-
maður fyrirtækisins að grófa
kexið væri það sem verksmiðjan
lifði á. Nokkurt magn er flutt
utan, einkum til Færeyja. Inn-
flutningurinn kom illa við fyrir-
tækið fyrst í stað, en hefir nú
mun minni áhrif. Fyrirtækið er
um þessar mundir 40 ára og þar
vinna 40 manns.
Ó. Johnsen og Kaaber- kaffið
bunar stöðugt úr kaffikönnu á
sýningunni. Fyrirtækið lofar nýj-
um kaffitegundum, er það hefir
reist nýja verksmiðju, sem nú er
í smíðum. í>á mun kaffið einnig
koma I lofttæmdum umbúðum
svo það geymist betur og lengur.
Breytingarnar eru ráðgerðar um
næstu áramót.
Móna h.f. er súkkulaðifyrir-
tæki til heimilis í Hafarfircii og
sýnir þarna áberandi skraut-
varning úr súkkulaði, svo sem
jólasveina og annað sem bæði
er til sælgætis og skrauts. Fyrir-
tækið er ungt að árum, en þar
vinna 11 manns, en erfitt er um
vélakost fyrir fyrirtæki af
þeirri stærð.
Linda frá Akureyri sýnir 50
tegundir af sælgæti. Athygli
vekja útflutningsumbúðirnar,
enda hefir fyrirtækið talsvert
gert að útflutningi, sendi m.a. i
fyrradag vörur á söslusýningu í
Kanada, sem er skandinavísk
sýning. Forsvarsmaður sagði
okkur að erfiðleikar væru í
samkeppni sérstaklega vegna
þess hve íslenzka framleiðsluvar
an, svo sem mjólkurduftið væri
miklu dýrara hér en á erlendum
markaði. Væri það nálægt fjór-
um sinnum dýrara hér.
Nói og Síríus sýna saman vör-
ur sínar enda hafa þessi fyrir-
tæki sameiginlegt dreifingar-
kerfi. Erfiðleikar fyrirtækisins
felast í því hve óhægt er að fá
hentugar vélar til framleiðslunn
ar af hæfilegri stærð. Mikil
áherzla er lögð á framleiðslu
á karamellum. Forsvarsmaður
fyrirtækjanna sagði að vonlaust
væri fyrir íslenzk fyrirtæki að
standast samkeppni við erlenda
framleiðendur á sælgæti, nema
tollum og verðlagi í íslenzkri
hávöru verði breytt, en hann
taldi líklegt að allt sælgæti yrði
frjálst innan skamms tíma.
Efnagerðin Valur sýnir okkur
saftir og safa og hverskonar
efnagerðarvörur. Sérstaklega
bendir fyrirtækið á alíslenzka
tómatsósu, sem stöðugt vinnur
á á markaði hér, enda nokkru
ódýrari en innflutt og þykir
einkar bragðgóð, minna krydd-
uð en sú innflutta. Efnið er allt
íslenzkt nema kryddið, sem not-
að er í sósuna. Nýjung hjá fyrir
tækinu er framleiðsla og blönd-
un á svonefndu mixuðu kryddi.
Niðursuðuverksmiðja K. Jóns-
sonar og Co h.f. á Akureyri sýn-
ir okkur ýmiskonar niðursoðnar
og niðurlagðar vörur, bæði fisk-
vörur og kjötvörur. Fyrirtækið
hefir á hendi mikinn útflutning
á vörum sínum. Á yfirstandandi
ári hefir fyrirtækið flutt út 2
milljónir dósa af gaffalbitum til
Rússlands og 500 þús. dósir af
smjörsíld samtals fyrir um 17
milljónir króna. Til Rúmeníu og
fleiri landa seldi fyrirtækið fyr-
ir 3 milljónir og hefir því flutt
út á þessu ári fyrir um 20 millj-
ónir. Fyrirtækið hefir flutt út til
Bandaríkjanna, Tékkóslóvakíu,
og Austur-Þýzkalands og er
unnið að því að viðhalda þeim
viðskiptum.
Loks skoðum við sýningar-
deild Sláturfélags Suðurlands
þ.e. þann hlutann, er sýnir kjöt
og kjörvarning. Framleiðslu-
varan þar er mjög fjölbreytt og
sumt af því, sem þar er sýnt, er
ekki að staðaldri til í verzlunum
fyrirtækisins, en sýningin er
gott dæmi um hve fjölbreytileg
kjötiðnaðarvara okkar getur
verið. Sérstaka athygli vekur
vara sú er sett er í lofttæmdar
umbúðir, en hún hefir mjög mik
ið geymsluþol og umbúðirnar
eru miklum mun sterkari en
venjulegt umbúðaplast. For-
nokkuð skorta á að fólki væri
leiðbeint um meðferð á ýmsum
kjötvörum, t.d. af verzlunar-
fólki og á annan hátt. Leiðbein-
ingar eru þó komnar á meðferð
á pylsum, og eru þær á pökkun^
um. Hinar lofttæmdu umbúðir
tryggja mjög alla geymslu á
kjöti og á það sérstaklega við
um svínakjöt, sem hvorki þolir
birtu, né geymslu ópakkað í
frosti. Umræðurnar berast síð-
ast að svínakjötinu og hinni
óeðlilegu fitu þess og sagði for-
svarsmaður fyrirtækisins að svo
virtist sem greinleg úrkynjun
væri komin í íslenzka svína-
stofninn, því kjötið væri alltof
feitt. Meðferð á nautakjöti og
nauðsyn þess að það væri látið
moðna vel barst og í taL
w