Morgunblaðið - 09.09.1966, Síða 21
PBstudagur 9. sept. 1999
MORCUNBLAÐIÐ
Erlend tíði ndi Erlend tiðindi
og hófu þá sósíaldemókratar
nýjar árásir á Erhard. Tveir
aðrir hershöfðingjar sögðu upp
starfi sínu í deilunni við von
Hassel, en sósíaldemókratar
gátu naumast fundið nokkuð
athugavert við það.
Hershöfðingjarnir sögðu upp
í mótmaelaskyni við þá stefnu
von Hassels, að herinn skyldi
lúta borgaralegu eftirliti, — en
sósíaldemókratar hafa lengi
stutt þá stefnu.
Hinn ákveðni stuðningur Er-
hards við varnarmálaráðherr-
ann kom í veg fyrir að hann
hrökklaðist úr emibætti, en lík-
legt er tali'ð, að honum verði
falið annað ráðuneyti, er Er-
hard „stokkar upp“ ríkisstjórn
sína í haust.
Hitt er svo annað mál, að
undangengnar deilur hafa
mjög skaðað það orðspor, sem
Erhard hefur verið að reyna að
afla sér. Hann hefur reynt að
koma fram sem föðurleg per-
sóna, hafin yfir stjórnmáladeil-
ur, sem á rólegan og einbeittan
hátt ynni að því að vernda hags
muni V-í>ýzkalands. Hann hef-
ur einnig viljað sýnast stað-
ráðinn í því, a'ð koma í veg fyr-
ir, að velgegni sú, sem hann
skapaði, myndi verða til þess
að hleypa lausri verðbólgunni.
sem nánast útrýmdi millistétt-
unum eftir heimsstyrjöldina
fyrri.
i
i
I
)
^ Ludwig Erhard.
landi, og báðir bíða þeir nú
svars um þetta frá Erhard.
I Þýzki kanzlarinn ráðgerir að
fara í heimsókn til Washington
25. sept. nk.
| Þangað til, að dagur þeirrar
heimsóknar rennur upp, verð-
ur Erhard að glíma við ýmis
alvarleg vandamál heima fyrir.
4 Sú staðreynd, að tveir af
æðstu mönnum þýzku herj-
anna hafa sagt af sér, og báðir
ráðist á stefnu varnarmálaráðu
neytisins, hefur skaðað Erhard
verulega. Það hefur verðbólgan
einnig gert, og raunar hefur
hún skyggt mjög á orðstír Er-
hards sem skapara „efnahags-
undursins“.
Þá hafði stjórn Erhards áður
beðfð álitshnekki er kristilegir
demókratar töpuðu kosningum
í Rhein — Westphalen í júní
sl. Þau héruð byggir þriðji
.hluti íbúa V-Þýzkalands.
Það eru ekki aðeins sósíal-
demókratar, heldur einnig ýms-
ir leiðtogar kristilegra demó-
krata, sem túlka þennan kosn-
ingaósigur á þann veg, að hér
séu fyrstu sporin stigin í þá átt,
að sósíaldemókratar komizt til
valda í V-Þýzkalandi við þing-
kosningarnar 1969, þ.e. verði
Erhard áfram formaður flokks
síns.
Fyrir sósíademókrata, sem
raunar voru í vígahug fyrir,
voru árekstrarnir milli Kai
Uwe von Hassel, varnarmála-
ráðherra, og ýmissa æðstu
manna hersins, sem sending af
Kai Uwe von Hassel, hinn umdeildi varnarmálaráðherra V-Þýzkalands, afhendir hér Johannes
Steinhoff, hershöfðingja, skipunarbréf hans sem æðsta yfirmanns flughers V-Þýzkalands. Fyr-
irrennari Steinhoffs var vikið úr embætti.
SVO virtist, sem vandræðin
innan varnarmálaráðuneytis V-
Þýzkalands væru á enda í sl.
viku, en þá brá svo við að nýtt
vandamál varðandi her V-
Þýzkalands ásótti Ludwig Er-
hard, er hann var í opinberri
heimsókn til Skandinavíu.
Hér var um að ræða þá kröfu
bandariska öldungadeildarþing
mannsins Mike Mansfields og
nokkurra annarra öldunga-
deildarþingmanna um að fækk-
að yrði verulega í herliði
Bandaríkjanna í V-Evrópu. í
Vestur-Þýzkalandi eru 250.000
Bandaríkjahermenn undir yfir
stjórn NATO.
Bonn hefur opinberlega tek-
lð þá afstöðu, áð kröfugerð
Mansfields sé ekki hin opin-
bera stefna stjórnar Johnsons
forseta, en öll spurningin um
bandaríska herliðið í Evrópu
er viðkvæm, og Erhard hlýtur
að standa andspænis henni fyrr
eða síðar. Bæði Johnson for-
seti og Harold Wilson, forsætis-
ráðherra Bretlands, hafa orðið
sammála um að efna til þrí-
veldaviðræðna við V-Þýzka-
iand um stöðu herjanna þar í
VANDRÆDI
ERHARDS
himnum ofan. Sósíaldemókrat-
ar hafa nú í meira en eitt ár
talið eitt bezta vopn sitt í áróðr
inum gegn kristilegum demó-
krötum, að 61 Starfighter-orr-
ustuflugvél af 700, sem keyptar
hafa verið af Bandaríkjunum,
hafa farizt á innan við fimm
árum.
Yfirmaður v-þýzka flughers-
ins, Erner Panitzki, hershöfð-
ingi, var rekinn af von Hassel,
„Hættið þessu!“ — Deilur Erhards kanzlara við v-þýzka hershöfðingja hafa vakið ugg hjá
sumum um að hershöfðingjarnir æski þess, að í hernum riki svipaður agi og hernaðarandi og
var á tímum Hitlers.
5' - •• •• v x*
Málnfngarvertcsmiðjan Harpa liefur þá ánægju aö tilkynna viðskiptavinum sínum, aö
lomnir eru á markaðinn alveg framúrskarandi fallegir litir til innanhússmálnignar
Hrimlivítt - Ljómaguit - Hörgult - Hunangsgult - Sefgrant * Dökkgrænt • Gultokkur • Dökkgrátt
J-íazpo'^