Morgunblaðið - 09.09.1966, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 09.09.1966, Qupperneq 25
/ Föstudagur 9. sept. 1968 MORGU N BLADIÐ 25 — Fundur Framhald af bls. 2 málaráðsins og í Alþjóðaleikara- sambandinu. Félagið var stofnað 22. septem- ber 1941 og voru stofnendur þess 34. Af þeim eru 17 á lífi. Fyrsti formaður félagsins var Þorsteinn Ö Stephensen og með honum í stjórn Lárus Pálsson og Harald- ur Pálsson. Nú eru meðlimir fé- lagsins 80, þar af nokkrir úti á landi. Fyrir nokkru var lögum félagsins breytt á þá lund, að viðurkenndum óperusöngvurum var gert kleift að ganga í það. Eru 8 slíkir í félaginu nú. Núverandi formaður félagsins er Brynjólfur Bjarnason, svo sem fyrr var frá greint, en með hon- um eru í stjórn Guðbjörg í>or- bjarnardóttir varaform., Bessi Bjarnason og Klemenz Jónsson. Brynjólfur gat þess á blaða- mannafundinum, að þann 25. sept. n.k. hæfist í Ábo 9. leikhús- málaráðstefnan, sem stendur yf- ir í fjóra daga. Hana sækja af hálfu íslendinga Brynjólfur Bjarnason, Guðlaugur Rósin- kranz og Sveinn Einarsson. Skandinavísku fundargestirn- ir koma til íslands með Flugfé- lagsvél í kvöld og verður þeim þá haldið hóf að Hótel Sögu. Héðan halda þeir 14. september " - S'ild Framhald af bls. 12. Eins og áður er aflaskýrsla bátanna miðuð við sama tíma og síldveiðar hófust fyrir aust- urlandi, til þess, að betri sam- anburður fáist. A þessu tíma- bili hafa 73 skip fengið einhvern afla, þar af 63 skip 50 lestir og meira. Fer hér á eftir skrá yfir þau skip. Iestir Andvari, Keflavík 800 Arnkell, Hellissandi 721 Arsæll Sigurðsson, Hafnarf. 107 Bergur, Vestmannaeyjum 952 Bergvík, Keflavík 1.529 Dan, ísafirði 128 Einar Hálfdáns, Bolungavík 977 Engey, Reykjavík 1.952 EyfeUingur, Vestmannaeyj. 407 Fiskiskagi, Akranesi 959 Friðrik Sigurðsson, Þorláksh. 723 Geirfugl, Grindavík 791 Gísli lóðs, Hafnarfirði 286 Gjafar, Vestmannaeyjum 800 Glófaxi, Neskaupstað 108 Guðjón Sig. Vestmannaeyj. 802 Gullberg, Seyðisfirði 198 Gulborg, Vestmannaeyjum 2.219 Gulltoppur, Keflavik 306 Hafrún, Bolungavík 75 (Hafþór, Reykjavík 272 Hamravík, Keflavík 268 Haraldur, Akranesi 83 Hávarður, Súgandafirði 300 Heimaskagi, Akranesi 122 Helga, Reykjavík 427 Hilmir, Kefíavik 341 Hilmir H. Flateyri 930 Hrafn Sveinbj.s. II. Grindavík 1.577 Hrafn Sveinbj.s. III. Grindav. 150 Hrauney, Vestmannaeyjum 1.746 Hrungnir, Grindavík 1.050 Huginn, Vestmannaeyjum 345 Huginn II., Vestmannaeyjum 503 Húni II., Skagaströnd 99 ísleifur IV., Vestmannaeyj. 1.963 Jón Eiríksson, Hornafirði 460 Kap H., Vestmannaeyjum 1.357 Keflvíkingur, Keflavík 273 Kópur, Vestmannaeyjum. 1.202 Kristbjörg, Vestmannaeyj. 1.176 Manni, Keflavík 1.178 Meta, Vestmannaeyjum 394 Öfeigur II., Vestmannaeyj. 1.435 •Reykjaborg, Reykjavík 57 Reykjanes, Hafnarfirði 134 Reynir, Vestmannaeyjum 598 Sigfús Bergmann, Grindav. 1.338 Sigurður, Vestmannaeyjum 746 Sigurður Bjarni, Grindav. 1.826 Sigurfari, Akranesi 60 Sigurpáll, Sandgerði 226 Skagaröst, Keflavík 1.544 Skírnir, Akranesi 58 Svanur, Reykjavík 534 Sveinbjörn Jkabss. Ólafsvík 245 Sæhrímnir, Keflavík 64 Sæunn, Sandgerði 407 Valafell, Ólafsvík 738 Víðir H. Garði 583 Þorbjörn H., Grindavík 500 Þorkatla, Grindavík 1.667 Þorlákur, Þorlákshöfn 526 — Slldardækir Framhald af bla. 2. setningu á síldardælunum og aðra tæknilega þjónustu, sem því viðkemur. Má geta þess að Vélaverkstæði Sig Sveinbjörns- sonar hefur útvegað olíuvökva- drif fyrir síldardælurnar, sem má tengja beint inn á spilkerfi síldarskipanna, og eru þau þeg- ar komin í nokkra báta hérlend- is, ásamt Fairbanks Morse síld- ardælunum, og eru þeir Bjarni H., Haraldur Ak., Gullver, Ósk- ar Halldórsson, Reykjaborg og svo Sigurpáll. Fairbanks Morse sildardælan var fyrst sett í íslenzkan bát fyr- ir ári og var það Reykjaborg. Var ákveðið að reyna þessar síld ardælur þar um borð í samráði við eigendur Reykjaborgar þá Baldur Guðmundsson útgerðar- mann og Harald Ágústsson skip- stjóra. Að sögn Péturs hefur síldardælan uppfyllt allar kröf- ur sem gerðar hafa verið af ís- lenzkum skipstjórum að þess- um reynslutíma loknum. Eru helztu kostir síldardælunnar þeir, að síldarskipin eru fljótari að dæla upp úr nótinni, en að háfa, og geta þar af leiðandi fyllt sig á skemmri tíma og komizt fyrr til löndunnar. Síld- arskipin geta athafnað sig í verri veðrum við veiðar. Mögu- leikar eru á því að byrja strax að dæla upp úr nótinni, þegar um stór köst er að ræða og koma í veg fyrir að síldin sprengi nótina. Síldardælan á að minnka slit á nótinni, sérstak- lega á pokanum sem talinn er dýrasti hluti nótarinnar. Hægt er að dæla síld til allrar vinnslu, þar á meðal til söltunar án þess að skadda hana. Afköst Fair- banks Morse síldardælunnar eru um 400 tonn á klst. ef um síld er að ræða, er lítið eitt minni ef síldin á að fara til söltunar eða frystingar. Þessir sömu tveir aðilar sem hér voru nefndir á undan, hafi einnig hafið samvinnu um sölu og uppsetningu á löndunar- kerfum fyrir síldarverksmiðjur til að landa bæði síld og loðnu beint úr veiðiskipum upp í þró, og vigtast aflinn samtímis. Löndunarkerfi þessi eru byggð eftir bandarískum fyrirmyndum, sem hafa verið þar í notkun sl. 20 ár með mjög góðum árangn. Má geta þess í þessu sambandi, að sl. vetur var loðnu dælt beint frá skipi og upp í þró Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunnar á Akranesi, og leiddi það í ljós að hægt var að landa fullfermi á 2 klst. Þessi síldardæla sem hér greinir frá hefur nú verið pöntuð í 38 íslenzk síldveiðiskip. Merki fyrir „Varúð á vegumw FYRIR nokkru efndu Landssam- tökin Varúð á vegum til hug- myndasamkeppni um merki fyr- ir samtökin. Alls bárust á annað hundrað hugmyndir frá 26 höfundum, ýmist undir fullu nafni, eða dul- nefni, og voru margar þeirra mjög abhyglisverðar. Stjórn VÁV ákvað að lokum að verðlauna hugmynd merkta: „Ökumaður", sem var útfærð á tvo vegu. „TiIIaga nr. 1. Félagsmerkið, þrír rauðir þríhyrningar, gulur grunnut, svartir stafir V.Á.V. Umferðarmerkin A-10 VARÚÐ, önnur hætta, og A-4 BIÐ- SKYLDA, höfð til grundvallar". „Tillaga nr. 2. Félagsmerkið á bréfsefni Landssamtakanna. Til- íaga nr. 1 felld inn á „Eylandið hvíta“ á bláum hringfleti". „Ökumaður" reyr dist vera Hannes Þ. Hafstein, Skeiðarvogi 113, Reykjavik, og hlaut hann verðlaunin, sem he ið var, 10 þúsund krónur. (Frá Varúð á veg um). Úrslit í flgúst- móti T.R. SÍBVSTA umferð Ágústsmóts Taflfélags Reykjavikur var tefld i gær. Baráttunni um efstu sætin lauk sem hér segir: Efstur varð Magnús Sólmund- arson með 714 vinnig. Annað og þriðja sæti skipuðu þeir Ólafur Kristjánsson og Bragi Björnsson með 7 vinninga hvor, Björgvin Víglundsson varð 4. með 6*4 vinning og Björn Þorsteinsson 5. með 5V4 vinning. — /dnjb/ng Framhald af bls. 22 fyrir íslenzkan iðnað. Ég er full- viss um, að í framtíðinni verður stofnun Iðntrygginga talin með stóru málunum í afrekasögu Landssambandsins. Sameiginlega ætti Iðnaðarbankinn, Iðntrygg- ingar, Lífeyrissjóður og erind- rekar iðnaðarins að geta aukið að miklum mun þjónustuna við iðnaðarmenn og iðnfyrirtæki um land aUt“. Iðnsýningin merki um að blóma- skeið sé framundan. í lok ræðu sinnar drap Vigfús á Iðnsýninguna, sem nú stendur yfir, og sagði: „Þar er margrætt mál að iðn- sýningar þyrftu að vera oftar en raun ber vitni um, svo oftar gefist kostur á að sýna lands- fólkinu hvar iðnaðurinn stend- ur, hvaða • iðnaðarvörur eru framleiddar í landinu og hvernig þær eru að gæðum. Húsnæðis- skortur hefur löngum ráðið mestu um að, ekki hefur verið hægt að halda iðnsýningar, en þó hefur jafnan verið gripið tæki færið, þegar stórbyggingar hafa verið í byggingu, svo var t.d. 1952, þegar Iðnskólinn í Reykjavík var í byggingu, þá var haldin þar iðnsýning. Nú hefur þannig skipazt, að til fram tíðar er það mál leyst, þar sem samvinna tókst milli forráða- manna Reykjavíkurborgar og Sýningarsamtaka atvinnuveg- anna um byggingu og nýtingu á íþróttahöllinni í Laugardal. Sýn ingarsamtökin hafa afnotarétt af þessu glæsilega húsi 5 mán- uði yfir sumartímann á hverju ári. Fyrir nokkuð löngu var ákveðið að halda iðnsýningu í þessu húsi eins fljótt og aðstæð- ur frekast leyfðu. Þessi ákvörð- un hefur nú orðið að veruleika. f>ar sem Iðnsýningin stendur nú yfir og var opnuð af Iðnaðar- málaráðherra 30. ágúst sl. Sýning þessi ber vissulega vott um snilldarhandbragð iðnaðarmanns ins og smekklegt útlit og gæði fjölmargra iðnaðarvara, sem þar eru. Mun það ekki ofsagt, að mest af þeirri vöru, sem þar er sýnd, standi fyllilega jafnfætis því bezta erlendis. Ef við lítum á sýninguna í heild ætti að óhætt að álíta, að framundan sé blómaskeið i íslenzkum iðnaði. í trausti þess að svo verði vil ég, um leið og ég segi þetta 28. Iðn- þing íslendinga sett, lýsa þeirri ósk minni, að þetta Iðnþing eigi eftir að marka spor í sögu Landssambandsins og baráttu iðn aðarmanna í heild fyrir bættari kjörum iðnaðarins". Hagræðingarlán til iðnaðarins þegar í haust Þegar forseti sambandsins hafði lokið máli sínu, tók til máls Jóhann Hafstein,' iðnaðarmála- ráðherra. í upphafi ræðu sinnar sagði hann að íslenzkur iðnaður stæði nú á tímamótum, og væri um þessar mundir mjög í deigl- unni í sambandi við Iðnsýning- una, sem stæði nú yfir. Hann drap á örðugleika iðnaðarins, og sagði að ríkisstjórnin hefði aldrei dregið dul á þá, en að úr myndi rætast með styrk og framsýni. Hann drap ennfremur á Iðn- fræðslulögin nýju, sem hann taldi að myndu marka tímamót í sögu iðnaðarins. Iðnaðarmálaráðherra kvaðst vilja leiðrétta þann mis- skilning sem fram hefði komið i sambandi við Tækniskólann, þ.e. að skólastjóri hans hefði hrakizt frá skólanum. Hið rétta væri, að skólastjórinn væri í árs orlofi, og kæmi aftur til starfa við skólann að ári. Loks sagði iðnaðarmálaráS- herra, að lánamálum iðnaðarins hefði skilað allvel áleiðis, og væri þar raunar um stökkbreyt- ingu að ræða. Gat hann þess að hann hefði um morguninn setið á fundi Seðlabankans með fjár- málaráðherra varðandi hagræð- ingarlán til iðnaðarins. Árangur þessara viðræðna væri, að Iðn- lánasjóður mundi í samráði við ríkisstjórnina og Seðlabankann bjóða út lántökur til iðnfyrir- tækja, og kæmi þetta til fram- kvæmda þegar í haust. Að lokinni ræðu iðnaðarmála- ráðherra var kosið í kjörbréfa- nefnd en síðan var matarhlé. Fundur hófst aftur kl. 2 síðdegis í gær í Iðnskólanum. Fyrst var gengið til kosninga forseta þings- ings- og tollamálum Þórir Jóns- húsasmíðameistari, kosinn for- seti. Þessu næst flutt Otto Schopka, framkv.stjóri skýrslu stjórnar Landssambandsins fyrir síðasta starfstímabil og las upp reikninga frá síðasta ári. Loks voru framsögur í einstökum málum. í lánamálum iðnaðarins hafði framsögu Ingvars Jóhanns- son, í iðnfræðslumálum Jón E. Ágústsson, í tryggingarmálum Grímur Bjarnason og í innflutn- ings- og tollamálum Þórir Jóns- son. í dag kl. 9—11 á. d. skoða þingfulltrúar Iðnsýninguna, en síðan flytur Arne Haar skrif- stofustjóri norska iðnaðarmála- ráðuneytisins erindi á þinginu. JAMES BOND ->f- — >f— ~>f Eítii IAN FLEMING Er ég var skyndilega gripinn aftan fra sá ég að stálkrókur læsti sig um handlegg n-.inn. Eg snéri mér við og sló til mannsins, sem tók um vinstri hnefa minn — og hló. Felix Leiter. Hvern fjárann meinaður, að leika fífl í þessum hita. — Eg skal segja þér nokkuð, James. Samvizka þín er svo slæm, að þú vissir ekki hvort ég var lögregluþjónn eða af- brotamaður. Var það? Júmbo og skipstjóranum hefur nú tek- izt að komast að því, hvernig á að opna steinhliðið. Beinagrind skepnunnar er að dráttaraflið, allt gengur eftir áformunum, þegar . . . skyndilega allt stöðvast. Pólarnir tveir, hiiðið á aðra hönd og rísaskepnan á hina vega salt. Það þarf að bæta á öðru megin og svo gott er jafnvægið að Júmbó einn getur úr þessu bætt. JÚM B Ö Sf-ZS Teiknari: J. M O R A Skipstjórinn ðansar af gleði. Nú geng- ur það. Bansett vofan færir löppina tit hliðar. Og ég sem hélt að það væri af því það vantaði smurningu á liðina. Syndið 200 metrana

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.