Morgunblaðið - 09.09.1966, Blaðsíða 32
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Langstærsta og
íjölbreyttasta
blað landsins
Per Borten við minnisvarða norskra hermanna í Fossvogskirkjugarði.
Heimsókninni til
borgarstjórnar
K-hafnar lokið
Einkaskeyti frá fréttaritara Mbl.
í DAG lauk hér velheppnaðri
heimsókn nokkurra fulltrúa borg
arstjórnar Reykjavíkur, sem hing
að komu í boði borgarstjórnar
Kaupmannahafnar.
í gærkvöldi var gestunum
haldin veizla í hátíðasal ráð-
húss Kaupmannahafnarborgar og
hafði forseti borgarstjórnar Kaup
mannahafnarborgar Henry Stjern
quist, veg og vanda af fagnaðin-
um. Meðal gesta voru Gunnar
Thoroddsen, sendiherra, Urban
Hansen, yfirborgarstjóri og full-
trúar íslendinga búsettra í Kaup-
mannahöfn.
Henry Stjernquist flutti ræðu
í veizlunni og hyllti Reykjavík.
Geir Hallgrímsson borgarstjóri
svaraði og sagði að í engri borg
utan íslands þættust íslendingar
eins miklir heimamenn eins og
Kaupmannahöfn. Geir borgar-
stjóri bauð einnig við þetta tæki-
færi fulltrúum borgarstjórnar
Kaupmannahafnar til íslands og
afhenti í ræðulok bronsafsteypu
styttu Ingólfs Arnarsonar.
I blaðaviðtali segir Geir borg-
arstjóri að heimsóknin hafi verið
hin fróðlegasta. „Það vakti öðru
fremur athygli okkar að heyra
hversu íbúatala Kaupmannahafn-
ar sjálfrar fer sílækkandi svo að
nú eru þar 80 þús. færri íbúar
en fyrir 10 árum. Vandamél þau
sem slíkt hefur í för með sér eru
mörg og um margt sérstæð eins
og t. d. það að fjöldi þeirra sem
vel eru settir fjárhagslega flytja
út fyrir bæinn.
„Við höfum kynnt okkur skipu
lag borga og bæja og við höfum
heimsótt nýja amtssjúkrahúsið í
Glostrup sem tekur 300 sjúklinga
og þar vorum við við uppskurð.
Einnig hefur okkur verið það
lærdómsríkt að sjá og skoða
hvað hér er gert fyrir gamla
fólkið og öll hefur heimsóknin
verið hin ánægjulegasta“, sagði
Geir Hallgrímsson borgarstjóri
að lokum. — Rytgárd.
Þyrla flutti hraknings-
mennina úr Surtsey
EINS og skýrt var frá í Mbl í
gær lenti Árni Johnsen gæzlu-
maður í Surtsey í hrakningum
við Surtsey sl. þriðjudag, er hann
var að ferja menn úr Surtsey
yfir í Vestmannalóðsinn, sem
beið skammt frá eynni. Hávaða
rok ríkti þá á þessum slóðum.
Staða yfirlæknis
á Vífilsstöðum
STAÐA yfirlæknis við Heilsu-
hælið á Vífilsstöðum hefur verið
auglýst laus til umsóknar. Eiga
umsækjendur að vera viður-
kenndir sérfræðingar í lyflækn-
ingum, berklalækningum eða
lungnasjúkdómum. Er umsóknar
frestur til 1. nóvember og stað-
an á að veitast frá 1 janúar.
8 ára drengur
fyrir bíl
KUUKKAN 18.22 í gærdag var
tilkynnt til lögreglunnar um
slys á Kaplaskjólsvegi á móts við
húsið nr. 27.
Þar hafði 9 ára drengur orðið
fyrir bíl. Meiddist hann mikið á
höfði og var fluttur í slysavarð-
stofuna, en síðar í sjúkrahús.
Lýst eftir
vitnum
EKIÐ VAR á Volkswagenbif-
reiðina Ö 36V, bar sem hún stóð
í Austurstræti gegnt Hressingar
skálanum, einhverntíma milli kl.
13—14 hinn 5. sept. sl. Eru þeir
sem gætu geiið einhverjar upp
lýsingar um atburð þennan beðn
ir um að snúar sér til rannsókn-
arlögreglunnar.
ísland fagnaði norska for-
sætisrá&herranum
- með fegursta veðri fyrsla dag
heimsóknarinnor
ÍSLAND fagnaði norska for- ( aðarvörum
sætisráðherranum Per Bort-
en og frú hans með sínu feg-
ursta veðri fyrsta dag hinn-
ar opinberu heimsóknar.
Haustið hafði í fyrsta sinn
í ár hrímað hvíta Skarðsheið
ina, eins og til að draga bet-
ur fram blámann í Esjunni
og sundunum, sem glóðu í
sólskininu. Þetta setti sinn
svip á dagskrána, hvort sem
ekið var að Bessastöðum til
hádegisverðar hjá forseta ís-
lands, upp að Esjunni í til-
raunastöð Skógræktarinnar,
eða hinn kyrrláta FossvogS'
kirkjugarð, til að minnast
fallinna Norðmanna. Enda
létu bæði hjónin mjög í ljós
ánægju sína með heim-
sóknina. Einnig sýndu þau
mikinn áhuga íslenzkum iðn
á Iðnsýningunni.
Fyrsti dagur heimsóknar
norska forsætisráðherrans
hófst með því að Per Borten
heimsótti dr. Bjarna Bene-
diktsson, forsætisráðherra i
skrifstofu hans kl. 10,30 og
ræddi við hann langa stund.
Síðan heimsótti hann utan-
ríkisráðherra Emil Jónsson
skrifstofu hans, og var klukk
an að verða 12 er norski ráð-
herrann fór úr Stjórnarráð-
inu eftir viðræðurnar við ís-
lenzku ráðherrana. Segir
norska fréttastofan NTB, sem
hefur mann hér i tilefni heim
sóknarinnar, að skipzt hafi
verið á upplýsingum um inn
anríkismál beggja landanna,
rædd markaðsmál Evrópu og
Framhald á bls. 5
Skemmtisamhoma Sjólfstæðis-
manna í V-Barð.
NÆSTKOMANDI laugardags-
kvöld halda Sjálfstæðisfélag
Arnarfjarðar á Bíldudal og
„Neisti“, félag ungra Sjálfstæðis
manna í Vestur-Barðastranda-
sýslu sameiginlega skemmtisam
komu á Bíldudal. Hefst húh kl.
9 síðdegis.
Á samkomunni mun Sigurður
Bjarnason alþingismaður frá
Vigur flytja ræðu, þá verður
Bingóspil, söngur og að lokum
dans.
„Neisti, Félag ungra Sjálfstæð-
ismanna í Vestur-Barðastranda-
sýslu hefur undanfarið haldið
uppi þróttmikilli starfsemi. Hef
ur margt nýrra félaga gengið í
félagið og mikils áhuga gætir
meðal Sjálfstæðismanna í Vest-
ur-Barðastrandasýslu um að
efla starfsemi sína. Má því gera
ráð fyrir að skemmtisamkoman
á Bíldudal annað kvöld verði fjöl
sóÞ
Er Árni sneri aftur til eyjar-
innar hvolfdi gúmbát hans, en
honum tókst þó að bjarga sér yfir
í Lóðsinn, sem hélt með hann til
Vestmannaeyja. 6 manns urðu
eftir í eynni og var ekki viðlit
að ná þeim þaðan vegna roksins.
í gær dag eftir hádegi sótti þyrla
þessa menn og fór með þá til
Vestmannaeyja og létu allir vel
yfir dvölinni utan einn, sem
brennzt hafði lítilsháttar í hraun-
inu. Nokkurt gos var í eynni og
mikið hraunrennsli. Franskir og
b r e z k i r kvikmyndatökumenn
dvelja nú í eynni við heimilda-
kvikmyndun.
Skruppu J
■ sund-
laugina
ÁÐUR en hin opinbera dag-,
skrá norsku forsætisráðherra
i hjónanna hófs,t í gær, brugðu 1
hjónin sér í sundlaug Vestur-
bæjar. Þó þau hafi ekki kom-
ið til landsins fyrr en um eitt
leytið um nóttina og vafa-
laust ekki verið komin i
svefn fyrr en mjög seint,
voru þau farin að synda kl
8,30. 1
—• Við erum svo miklir
morgunhanar, sagði frúin og
hló við er fréttamaður Mbl.
minntist á þetta við hana. Við
erum komin á fætur fyrir all
ar aldir. Og við syndum mik-
ið. — En við höfum ekki I
svona notalega laug alltaf |
bætti hún við.