Morgunblaðið - 21.09.1966, Side 5

Morgunblaðið - 21.09.1966, Side 5
1 MiðviVudagnr 21. sept. 1966 MOPrifNff f AÐfÐ 5 Þarna voru einnig mættir Jón Árndal, formaður Slysa- varnadeildar karla, Siglufirði, og Þórður Þór’ðarson, formað- ur björgunardeildar, svo og fleiri meðlimir deildarinnar. Áður en sól var gengin undir að fullu var skýlið fuil- reist og frágengið að öðru leyti en eftir var að ganga frá smávegis innandyra og mála. Þegar haldið var heim til Siglufjarðar seint um kvöldið voru það þreyttir en ánægðir drengir sem yfirgáfu fjörðinn. — S. K. í LOK ágústmánaðar sl. lagði ms. Sigurður SI 90 út frá Siglufirði. Það var snemma morguns, rétt í þann mund er fyrstu sólargeislarnir sjást í austri. Ferðinni var heitið til Hé'ðinsfjarðar, austan Siglu- fjarðar, en Héðinsfjörður er einn af hinum mörgu eyði- fjörf um, sem skerast inn i SkyliS fulismíðað Skipbrotsmannaskýli reist á einum degi Veður var fagurt þennan dag, sólskin og hiti, og gekk verkið vel, enda ekki við öðru að búast, því ekki aðeins að vera duglegir. þá var stjórnandinn ekki af verri endanum, en það var Skúli Jónasson, byggingarmeistar , sem stjórnaði verkinu. okkar hrjóstuga land. Áður voru þar blómlegar og vei ræktaðar jarðir og bóndabýli, en nú er þar allt í eyði. Oft kemui fyrir að sjó- menn og fleiri hrekjast inn á þennan fjörð, undan veðrum og sjóum, og sú var ástæðan að ms. Sigurður lagði í þessa för austur á Héðinsfjörð að þessu sinni. Ekki var þó um neina sjóhrakninga áð ræða. því veður var gott, heldur voru innanþorðs 3 smiðir, 1 múrári, 1 málari. skrifstofu- stjórn, 2 síldarsaltendur, sjo- menn o. fl.. sem hugðust fara til sjálfboðavinnu á vegum Siglufjarðardeildar Slysa- varnafélags íslands, og átti að reisa 20 fermetra slysa- varnaskýli. VinnuflokKurinn fyrir framan slysavarnaskýlið, talið frá vinstri (fullorðnir): Jón Arndai, sKrifstofustjóri og formaður slysa- varnadeildar karla, Siglufirði, Þórður Þórðarson, síldarsaltandi og formaður björgunardeildar, Njörður Jóhannsson, múrari, Björn Sigurðsson, skipstjórt, Skúli Jónasson, byggingarmeistari, Jónsteinn Jónsson, smiður, Birgir Guðlaugsson, sntiður Gisii Antonsson, sjómaður, Bjarni Þorgeirsson, málari, og Guðlaugur Henreksen, síldarsaltandi. Á myndina vantar þrjá smiði, bá Einar Björnsson, Jón Björnsson og Sigurð Konráðsson, en þeir voru í útilegu þarna í firðinum með konum sínum og voru farn- ir til þeirra, áður en myndin var tekin. á Sprengisandi — vlð afmarkaðan tandincgar- flugvöll STJÓRN Slysavarnafélags ís- lan^s samþykkti á fundi sínum nylega að reisa björgunarskýli upp i óbyggðum á Sprengisands- le’ið. Var það samkvæmt ósk Slysavarnadeildanna á Rangár- vöilum, en þarna er afréttarland Rangvellinga, og einnig sam- kvæmt ósk flugmanna sem þarna eiga leið um á flugleiðum til norður og austurlandsins. T. d. hefur þyrla Slysavarnafélagsins og Landhelgisgæzlunnar oft þurft að fljúga þarna um. Björn Jónsson, þyrluflugmað- ur er sæti á í stjórn Slysavarna- félagsins var þess einnig mjög hvetjandi að þarna yrði byggt björgunarskýli. Búið er að af- marka þarna gríðarmikinn lend- ingarflugvöll fyrir flugvélar, og er flugvöllur þessi sjálfgerður af náttúrunnar völdum á rennislétt um upphækkuðum mel á austur bökkum Þjórsár, nokkuð norð- an við Arnarfell hið mikla, miili Eyvindarvers og Eyvindar hreys- 1 is. | Um síðustu helgi fór skrifstofu stjóri Slysavarnafélagsins ásamt' nokkrum röskum Slysavarna- mönnum úr Rvík og Kópav. upp að Sprengisandi tiJ að reisa skýl- ið. Voru j eir 9 saman á þremur | jeppum. Slysavarnafélagið sá um j flutning á skýlisefninu upp að I RARIK, raforkumálavinnubúðun um við Tungnaá þar sem unnið er að vatnsvirkjanarannsóknum en Rangvellingar sáu um flutn- ing á efninu á 10 hjóla bifreið yfir Tungnaá og fram í óbyggðir. Fylgdust jepparnir með trukk- unum, og kom það sér vel því einn jeppinn sökk í sandbleytu og hefði ekki náðst nema með aðstoð trukksins. Þetta björgunar skýli er sennilegast þyngsta hlassið sem flutt hefur verið á einni bifreið um þessar slóðir. Var ekki komið fram að þeim stað þar sem reisa 4 skýlið fyrr en að áliðnum laugardegi 17. þ.m. og var þegar hafizt handa því flest voru þetta menn er þurftu að komast til vinnu sinn- ar á mánudagsmorgni og allt voru þetta sjálfboðaliðar í þessu starfi. Skýlið er byggt á tjöru soðnum staurum er þurftu að komast 150 sm. í jörð niður. Voru grafnar 8 holur og var ekki nema 5 mínútur að komast 80 sm. niður, en þá tók við 30 sm. klakalag sem verið var 4 klst. að berjast við með þeim verkfærum sem fyrir hendi voru. Mun hér vera um eilífðar- klaka að ræða, sem aldrei þiðn- ar. Um miðpættið var búið að reisa skýlið og þekja en þó ekki pappaklæða eða járna þakið, og þarna inni urðu leiðangursmenn að hafast við, og þótti þeim það skjólbetra en ekkert þó ekki fyndist á þeim þurr þráður um morguninn, því um nóttina brast á stormur með úrhellisrigningu, þótti leiðangursmönnum það nokkur trygging fyrir traustleika skýlisins að það skyldi ekki fjúka um, um nóttina eins og það var hálffrágengið, en mikið reyndi þó á það í verstu kvið- unum. Daginn eftir á sunnudaginn var svo lokið við að ganga frá skýlinu utan og innan, setja upp Slysavarnatalstöð með 9 metra loftnetamastri. Var bæði talstöð in og kyndingartækin reynd með góðum árangri áður en Björgunarskýlið var yfirgefið. Leiðangursmenn komu svo heim aðfaranótt mánudagsins heilu og höldnu og má með sanni segja að þeir hafi skilað góðu dagsverki. Þetta nýja björgunarskýli Slysavarnafélagsins stendur á árbakkanum við Hreis’iskvísl beint á móti flugvellinum og fast við Sprengisandsveginn þeg- ar komið er að skýlinu þá ber það í Arnarfell hið mikla. Þarna er nú orðin mikil um- ferð á sumrum og í lofti jafnt á sumri sem vetri. Þarna er jafn- langt til byggða sunnanlands og norðan. Slysavarnafélaginu var áhuga mál að koma skýlinu upp fyrir göngur og réttir og riú hefur það tekizt. Skýlið mun verða í umsjá Slysavarnadeildanna á Rangár- völlum. Það er opið og velkomið öllum þeim er þangað þurfa að leita í nauðum sinum. (Frá Slysavarnafélaginu). Próf. IVfagnús forstjóri Raunvísindastofnunar í LÖGBIP.l’INGI er tilkynnt að Háskólaráð hafi kjórið Magnús Magnússon, professor, til að gegna starfi forstjóra Raunvis- indastofnunar Iiáskólans til 5 ára. Þá hefur menntamálaráðuneyt ið skipað lorstöðumenn rannsokn arstofa Raunvísindastofunar Há- skólans frá 12. juií, sem hér seg ir: Dr. Leif Asgeirsson, prófessor, forstöóumann i annsóknarstofu í stærðfræði frá 12. júlí 1966, unz öðruvísi kann að verða ákveðrð. Dr. Stemgrím Baldursson, pró íessor, forsiöðumann rannsóknar stofu í efnafræði til fjögurra ára. Dr. Þoi stein Sæmundsson, stjarnfræðirtg. forstöðumann rannsóknarstofu i jarðeðlisfræði til eins árs. Þorbjörr. Sigurgeirsson, pró- fessor, forstóðurnann rannsóknar stofu í eðiioiræði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.