Morgunblaðið - 24.09.1966, Blaðsíða 1
32 síður
Björgunarsveitarmenn atS grafa upp brakið af bandarísku P2W flugvélinni á Grænlandsjökli, en þar var 60 sm. snjólag.
I»yrla flutti menn og farangur milli skips og jökuls. Sjá nánar frétt á baksíðu. Ljósm. Sig. Waage.
Mihajlov dæmdur í 1 árs fangeisi
hefði aldrei starfað í verksmiðju
og séð, hvernig hið júgóslav-
neska lýðraeði kæmi fram fyrir
tilstilli verkalýðsfélaganna. í
stað þess liti hann á Júgóslavíu,
sem einræðisríki og líkti landinu
við Þýzkaland Hitlers, Ítalíu
Mussolinis og Spán eins og það
ríki væri nú.
Sjá nánar grein um Mihajlov
á bls. 31.
Látiun maður
kaus í sænsku
kosningunum
Stokkhólmi 23. sept. NTB
DÁINN maður greiddi at-
kvæði í sænsku sveitastjórn-
arkosningunum á sunnudag-
inn var. Skýringin á þessu
er sú, að í Svíþjóð getur gam
alt fólk og sjúkt greitt at-
kvæði með aðstoð einhvers
ættingja og umboðið, sem til
þess þarf, er hægt að láta
í té, ásamt atkvæðaseðlinum
nokkrum dögum fyrir kjör-
dag. -Gamall maður, sem var
sjúkur, hafði nokkrum dög-
um fyrir kjördag, gefið syni
sínum slíkt umboð og látið
hann hafa umslag með kjör-
seðlinum, en dagin eftir dó
gamli maðurinn.
Sonurinn hringdi í kosninga
skrifstofu eins stjórnmála-
flokkanna og spurðist fyrir
um, hvort hann mætti leggja
inn atkvæðaseðil föður sins,
þrátt fyrir það að hann væri
látinn og flokksstarfsmaður-
inn svaraði því til, að það
mætti hann gera. Þar með
kaus hinn dáni.
Singapore, 23. sept. AP.
LEA Kuan Yew, forsætis^áð-
herra Singapore er ftýkominn
heim úr ferðalagi og hafði með
ferðis tvær öskjur, sem höfðu
áð geyma mannsaugu, er for-
sætisráðherra Ceylons, Dudley
Senanayake hafði fært honum
að gjöf. Hafði Lee verið gestur
ríkisstjórnar Ceylons í tvo daga
á leið sinni heim frá ráðstefnu
forsætisráðherra brezka sam-
veldisins í London. Augun, sem
getið var, á að nota til þess
að gefa tveimur blindum Singa
pooremönnum sjónina aftur.
fekur fundinn um að hafa dreift röngum
upplýsingum um Júgóslavíu
Telja, crð Kennedy
Zadar, Júgóslavíu, 23 sept.
NXB-AP.
MIHAJL Mihajlov, hinn ungi
júgóslavneski rithöfundur, sem
siorkað hefur kommúnistastjórn
lands síns með því að gera til-
raun til þess að mynda stjórnar-
andstöðuhóp, var í dag dæmdur
í eins árs fangelsi í borginni
Zadar í Júgóslaviu. Rétturinn
komst að þeirri niðurstöðu, að
hann væri sekur um að hafa
dreift röngum upplýsingum um
Júgóslavíu erlendis.
Rétturinn taldi, að Mihajlov
hefði framið refsiverðan verkn-
að með því að lýsa Júgóslavíu
sem einræðisriki í greinum, sem
birzt hefðu í Bandaríkjunum og
Vestur-Evrópu. Nokkrir úr hópi
hinna útvöldu áheyrenda, en
þeir voru 100 og fengu aðgang
að réttarsalnum með því að
sýna sérstök skilríki, hrópuðu:
„Burt með hann frá Zadar“ og
„Sendið hann til útlanda", er
dómurinn var lesinn upp.
Mihajlov var hinsvegar saklaus
fundinn af ákæru um, að hann
hefði látið birta grein erlendis,
eftir að hún hefði verið bönnuð
í Júgóslavíu.
Rétturinn gerði upptækar
2000 dinara af tekjum Mihajlovs,
Viet-Nam-deilan á t>ingi SÞ:
Gromyko vísaði tEISögum
Bandaríkfamanna á bug
New York, 23. sept. - NTB, AP.
ANDREJ Gromyko, utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna vísaði í dag
á bug síðasta tilboði Bandaríkja-
manna um samningaviðræður
varðandi frið í Víetnam. Sagði
Gormyko, að tilboðið hefði ekki
neitt nýtt að geyma og ítrekaði
hann stuðning sovétstjórnarinn-
ar við NorðurVíetnam.
I aðalræðu sinni í stjórnmála-
umræðum Allsherjarþingsins
gerði Gromyko það ljóst, að til-
lögur bandarísku stjórnarinnar,
sem lagðar voru fram á fimmtu-
dag, hefðu engin áhrif haft á
sovézku stórnina. Bandaríski full
trúinn, Arthur Goldberg hafði
lagt til, að Allsherjarþingið
Framhald á bls. 31
um 7000 kr. ísl. og bannaði hon-
um að birta neitt fyrsta árið
eftir að hann yrði látinn laus
úr fangelsinu.
Mihajlov, sem var foringi fyr-
ir hóp manna, sem hafði á prjón
unum að gefa út lýðræðislegt
sósíalístiskt tímarit, sagði við
blaðamenn, eftir að dómurinn
hafði verið kveðinn upp, að
hann myndi halda kyrru fyrir í
Zadar, unz hæstiréttur landsins
hefur kveðið upp sinn dóm, en
Mihajlov ætlar að áfrýja dómi
undirréttarins.
Dómarinn, Sime Fabhlic, sem
kvað dóminn upp eftir tveggja
daga réttarhöld, sagði að Mihaj-
lov hefði sýnt, að hann væri
andvígur hinni sósíalístisku bjóð
félagsskipan Júgóslavíu og að
hann vildi koma henni fyrir
kattarnef með öllum tiltækileg-
um ráðum. Með því að kaiia
Júgóslavíu ranglega einræðis-
ríki, yfirsæist honum hið beina
lýðræði landsins, sem fælist í
eigin forystu verkamannanna,
þjóðfélagskerfi, sem veitti sér-
hverjum borgara rétt til þess
að tjá sig frjálst.
Dómarinn sagði enn fremur,
að tengsl Mihaljovs við júgóslav
neska útflytjendur sýndu, að
hann væri andvígur hinu sósíal-
ístiska þjóðfélagskerfi. Hann
hefði tekizt betur
varbandi Vietnam
New York, 23. sept. NTB
NÆR heimingur bandarískra
kjósenda er þeirrar skoðunar, að
Kennedy forseta myndi hafa tek
izt betur til við lausn Vietnam-
deiiunnar, en Johnson hefur
gert. Kemur þetta fram í skoð-
anakönnun, sem skýrt var frá
í dag.
Samkv. skoðanakönnuninni
eru 43% kjósenda þeirrar skoð-
unar, að Kennedy myndi hafa
tekizt betur að leysa deiluna en
Belgrad, 23. sept. NTB.
Forsætisráðherra* Tékkóslóvakíu
Josef Lenart hefur verið í heim
sókn í Peking og fór í dag áleið-
is til Hanoi, að því er júgóslav-
nesk fréttastofa skýrði frá í dag.
Ekki skýrði fréttastofan frá til-
gangi heimsóknar Lenarts til
höfuðborgar N-Vietnam. Tékkó
slóvakía hefur verið á meðal
þeirra kommúnistaríkja, sem
mest magn af vopnum hefur ver
ið flutt frá til N-Vietnam,
Johnson, en 2% álíta, að hinum
fyrrnefnda myndi hafa tekizt
ver. 26% telja að báðir forset-
arnir rnyndu hafa fari'ð eins að
og 29% vissu ekki, hverju skyldi
svara spurningunni.
Hins vegar eru 52% sammála
Johnson forseta, þar sem hann
hafnar kröfu Wayne Morses öld-
ungardeil Jarþingmanns um, að
Bandaríkin eigi að hverfa burt
með lið sitt frá Vietnam. 14%
eru fylgjandi kröfu Morses, en
34% vissu ekki, hverju þeir áttu
að svara.
í dag hefur Johnson verið for
seta í 1037 daga, en það er jafn-
lengi og fyrirrennari hans, Jonn
Kennedy. Hefur það komið í
ljós einnig í skoðanakcnnun. að
vinsældir Johnsons eru minni
nú, en þær hafa verið nokkru
sinni áður. Önnur skoðanakönn-
un gefur til kynna, að demokrat-
ar tapi nú fylgi og megi búast
við talsverðu tapi í þingkosning
unum, sem fram eiga að fara í
nóvember.