Morgunblaðið - 24.09.1966, Síða 3

Morgunblaðið - 24.09.1966, Síða 3
MORCU NBLAÐIÐ 3 Laugardagur 24. sept. 1966 Komið var upp búðum inni á jöklinum, skammt frá braki flugvélarinnar og þar gistu björgunarsveitarmenn í eina nótt. A Grænlandi Framhald af bls. 32 í jökulinn. Hún hefur splundrazt og kviknað í henni. Stærstu bút- arnir úr brakinu eru upp úr snjónum, því þegar jökullinn bráðnar á sumrin, einangra þeir og sólin bræðir ekki snjóinn undir. Annars var allt á kafi í 60 sm nýföllnum snjó. Og hann m o k u ð u björgunarsveitirnar tvær, sú bandaríska og íslenzka upp á öllu svæðinu. Var það mikið og erfitt verk. Bandaríkja- menn rannsökuðu svo hvern hlut sem fannst, tóku myndir og sprengdu svo allt upp áður en þeir fóru, vafalaust svo það villti ekki fyrir í annarri leit úr lofti. Atka kom til Grænlands eftir um sólarhrings ferð frá íslandi. Nær ekkert ísrek var á leiðinni og gott í sjóinn. í»ó sögðu pilt- arnir úr Flugbjörgunarsveitinni að skipið hefði oltið eins og tunna. I>að lagðist í Ravn-víkina, rétt við Wiedemannsfjörð, en þaðan var stytzt fluglína að brak inu. Strax um morguninn fann þyrla skipsins flakið og um há- degi var farið að selflytja björg- unarsveitarmennina, 8 Tslendinga undir forustu Sigurðar Waage, og 7 Bandaríkjamenn af Keflavíkur- flugvelli undir forustu Cole kap- teins. Hafa þessir flugbjörgunar- flokkar áður verið saman á æf- ingum á jökli á íslandi. Sagði Cole kapteinn okkur, að ís- lenzku flugbjörgunarsveitarmenn irnir væru beztu menn, sem hann aJ" ■/ ■+} .. * :S! Brakið hafði dreifzt um jökul inn. Hér sést m. a. eitt hjólið af flugvélinni. hefði unnið með. Þeir séu vel þjálfaðir, þeir vinni vel og þeir séu samvinnuþýðir. Leiðangursmenn fluttu með sér mikinn útbúnað, og settu upp búðir. Því þó þarna væri ein- dæma gott veður, var aldrei að vita nema það versnaði og þá hefðu þeir þurft að brjótast nið- ur með sleða. En veðrið hélzt bjart allan tímann. Var 1—2 stiga frost á daginn og 10—12 stiga frost um nóttina. Kepptust allir við að moka frá hádegi á mið- vikudag og fram í myrkur, sem var um kl. 8.30, og frá birtingu daginn eftir fram til kl. 4. Á síð- asta klukkutímanum fundust 4 lík manna, sem hafa verið fremst í flugvélinni. Var þá búið að moka allt svæðið, um 50 m á annan veginn og 20 á hinn. Og byrjuðu þyrlurnar þá að selflytja menn og farangur um borð í Atka. Og var síðan siglt til Reykjavíkur. Líkin sem fundust voru í gær- kvöldi um borð í Atka og höfðu ekki borizt fyrirmæli um hvert eða hvernig þau yrðu flutt áfram. Nokkra af mönnunum má e.t.v. þekka, t. d. einn af málmspjaldi er hann hefur haft um hálsinn. Á hafnarbakkanum í Reykja- vík var mikill mannfjöldi er björgunarsveitarmenn komu að landi í innrásarpramma frá skip- inu. Voru þar komnar fjölskyldur piltanna og félagar úr Flugbjörg unarsveitinni. Á alþjóðaþingi lögreglumaima ÞING alþjóðafélagsskapar lög reglumanna, I.P.A. verður hald- ið í Toronto í Kanada dagana 26. sept. til 1. okt. Þingin eru haldin árlega í einhverju aðild- arlandanna. Þá er þriðja hvert ár haldið alþjóðaráðstefna lög- reglumanna og verður sú næsta í Hollandi 1967. Einn fulltrúi frá íslandi verð- ur á þingi þessu, Sigurður Þor- steinsson, formaður íslandsdeild- ar I.P.A. Lögreglumenn þeir frá hinum Norðurlöndunum, sem þátt taka í þinginu, koma við á Keflavík- urflugvelli á sunnudagskvöldið með leiguflugvél frá Loftleiðum. Þeir hafa þar um klukkutíma viðdvöl, og munu þá íslenzkir Innrásarprammi frá ísbrjótnum Atka flutti piltana úr íslenzku FlugbjörgunarsveiUnni ©g starfsbræður þeirra fjölmenna hjörgunarsveitinni á Keflavíkurflugvelli í land í Reykjavík. þar. x ST AKSTEIMAR Framsókn og hags- munir bænda Framsóknarmenn hafa lengi litið á sjálfa sig sem réttkjörna málsvara bænda og talið sig hafa meira vit á landbúnaðarmálum en aðrir, og um áatuga skeið höfðu þeir allt að því einkarétt á stjórn landbúnaðarmála. En þegar atliuguð eru verk og við- skilnaður Framsóknarmanna í landbúnaðarmálum kemur ann- að í ljós en að þeir hafi haft hags muni bænda sérstaklega fyrir augum. Frægt dæmi um það er, þegar fultrúar bænda gengu á fund fjármálaráðherra, Eysteins Jónssonar, og fóru fram á út- flutningsuppbætur vegna land- búnaðarvara. Þeir fengu það svar, að engir peningar væru tíl í ríkissjóði til þess að greiða út- flutningsuppbætur á Iandbúnað- arvörur og urðu sjálfir að ber» hallann af útflutningi framleiðsl uvara sinna. ToUamál og búnaðarsjóðir Þegar Framsóknarmenn voru við völd urðu bændur að greiða 35% toll af landbúnaðarvélum, en ríkisstjórnin undir forustu núverandi landbúnaðarráðherra hefur lækkað þann toll í 10%. Þegar Framsóknarmenn létu af stjórn landbúnaðarmála höfðu þeir gengið þannig frá lánasjóð- um landbúnaðarins, að þeir voru algerlega gjaldþrota og siðara ár vinstri stjórnarinnarinnar gat veðdeild Búnaðarbankans aðeins lánað 600 þúsund krónur. Öllum er kunnugt að núverandi ríkis- stjórn hefur beitt sér fyrir mynd arlegri uppbyggingu lánasjóða landbúnaðarins, sem þegar hef- ur orðið bændum til mikilla haga bóta. Þegar Framsóknarmen* voru við stjórn landbúnaðar- mála voru engin lán veitt ttí vinnslustöðva og sláturhúsa. Þess vegna er meira en helming- ur sláturhúsa í því ástandi að þau verður að endurbyggja, og sama máli gegnir um mjólkur- og kjötvinnslustöðvar, að upp- bygging þeirra hefur dregizt of lengi eftir áratugastjórn Fram- sóknarmanna á landbúnaðarmál- um. F ramsóknarflokkui- inn gegm hags- munum bænda Af þessari upptalningu verð- ur ljóst, að þvi fer fjarri að Framsóknárflokkurinn hafi með áratuga stjórn á málefnum land- búnaðarins tryggt hagsmuni bænda, heldur var viðskilnaður þeirra slíkur að núverandi rikis- stjórn þurfti að gera alveg sér- stakar ráðstafanir til þess að endurreisa lánasjóði landbúnaðar ins, og jafnframt þurfti að gera sérstakar ráðstafanir til þess að bændur gætu í almennum lifskjör um unnið upp það forskot, sem aðrar stéttir höfðu náð fram yf- ir þá í stjórnartið Framsóknar- manna. Framsóknarflokkurinu hefur því vissulega ekki barizt af neinni einurð fyrir hagsmun- um bænda, þvert á móti, hanu hefur í stjórnartið sinni setið sva á hag bænda, að núverandi rikis stjórn undir forustu landbúnaðar ráðherra hefur þurft að gera stórt átak á öllum sviðum land- búnaðarmála tíl þess að rétta landbúnaðinn við eftir meðferð Framsóknarmanna á honum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.