Morgunblaðið - 24.09.1966, Qupperneq 15
fcaugardagur 24. sept. 1989
MORGU N BLAÐIÐ
15
Stórkostleg skemmti- gjafa- og kynningarsýning
verður að Hótel Sögu sunnudaginn 25. sept. kl. 8V2. Kynnt verður nýjasta nýtt í snyrtivöru og alls konar gjafavöru.
Margar og fjölbreyttar gjafir fyrir gestina, bæði í snyrtivörunni FLOR-I-IVIAR og gjafavöru.
GÓÐ SKEMMTIATRIÐI: NÝR ÓVENJU EFNILEGUR SÖNGVARI OG JO SÖNGFÉLAGAR SKEMMTA. UNDIRLEIK ANNAST SIG-
URÐUR ÍSÓLFSSON OG CARL BILLICH. —AÐGÖNGUMIÐASALA AÐ IIÓTEL SÖGU LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 4—7.
DANSAÐ TIL KL. 1. — GÓÐA SKEMMTUN.
— Nokkur orb
Framhald af bls. 17.
J>ær. Nú eru tízkustefnur ekkert
nýtt fyrirbrigði. Þær fara yfir
löndin eins og logi yfir akur, og
þótt ekkert mætti annað um þær
segja gott, þá verður því þó ekKi
aieitað, að þær eiu stundum
skemmtileg tilbreyting í andlega
daufu þjóðfélagi, auk þess sem
þær verða til þess að afhjúna
ýmsa kynlega kvisti, svo sem sái-
könnunin hér fyrrum. Mest áber-
andi tízkustefna auk bítlatízk-
unnar, eru hinir svonefndu „reiðu
ungu menn“ bókmenntanna, sem
getið hefur verið um í blöðum og
tímaritum. Flest eru þetta rit-
höfundar. Þeir ná ekki upp í nef
ið á sér fyrir ofsareiði. Og reiði
þeirra er þeirrar undarlegu nátt-
úru, að hún beinist einna heizt
að þeim aðilum, sem þeir eiga
mest gott upp að unna. En samt
skyldi enginn kippa sér upp við
slíkt, eða vera með smáborgara-
lega vandlætingu yfir skorti á
goðu uppeldi, og vanþakklæti.
Sahnleikurinn er nefnilega sá,
að þessi ofsareiði er ekkert ann-
að en gervivonzka, uppgerð.
Væri hér um að ræða þjóðfélags-
legan umbótaáhuga, myndi ádeil
an í verkum þeirra vera allt ann
ars eðlis. Eftir skáldskap margra
þeirra að dæma, vi'ðurkenna þeir
trauðlega þjóðfélagið umhveríis
sig. Það, sem þeir túlka oftasc.
er mjög persónulegt og kemur
eiginlega ekki öðrum við. Það er
orsök þess, að flest hin stórkost-
lega auglýstu „ádeiluverk", sem
íslenzkum lesendum hafa verið
boðin undanfarin ár, hafa orðið
gersamlega áhrifalaus. Hin
þrönga eigingirni og hemjula'jst
sjálfsálit hentar aldrei í góðum
skáldverkum. Og það, sem fyrst
og fremst skortir í verkum þess-
ara skálda, ei kímnin. En að
sjálfsögðu á ofsareiður maður
aetíð erfitt með að skynja svo
mannlegt viðhorf!
Hér hefur nú verið fjallað um
þá tvo gagnrýnendur, sem mest
hafa látið að sér kveða í blöðun
um. Vera má að mönnum finnist
full hart tekið á ávirðingum
þeirra og kostirnir fremur látnir
liggja í láginni. Ég myndi held-
ur ekki hafa setzt niður við að
pára þessar línur, ef spámenn
hins nýja tíma hefðu ekki fundið
upp á því að álpast út fyrir land-
steina með hið alkunna mat sitt
á íslenzkum rithöfundum. Hér
heima er hamagangur þeirra að-
eins broslegur og enginn firttst
við barnalegar fullyrðingar
þeirra, en útlendinga, sem ekkert
þekkja til, er hægara að blekkja
enda leikurinn til þess gerður
íslenzkir lesendur hafa víst ekKi
ennþá öðlazt þann þroska að
skynja, að þeir Ó. J. og S. A. M.
væru þeim nauðsynlegir leið-
beinendur og forsjón í bók-
menntaefnum. En svo kemur
annað til. Allur þorri íslendinga
er nefnilega þrjóskulega frjáls-
lyndur og er fremur tregur t.i!
fylgis við afturhald, hverju
nafni sem það nefnist, en stefnur
þær, sem nefndir gagnrýnendur
a'ðhyllast aðallega, eru i rauninni
eitthvert rammasta afturhaid,
sem fram hefur komið hér á
landi um langt skeið. Óhófleg
dýrkun forms eða formleysis á
kostnað efnis. hvort heldur er í
skáldritun eða öðrum listgrem-
um, hlýtur ævinlega að enda í
dogmatík og óhjákvæmilegri
fastheldni við klíkubundnar
kennisetningar.
Eins og lesendur greinarkorns
þessa munu hafa séð, þá hefur
aðeins verið fjallað um bók-
menntaskrtf og gagnrýni þeirra
Ó. J. og S. A. M., enda ekki ann-
að til umræðu á þessum vett-
vangi. En þess skal að lokum
getið, að þeir hafa báðir fengizt
vi'ð skáldskap — einnig Ólafur
Jónsson, þótt það sé ef til vúl
ekki mjög kunnugt almenningi.
Ég hika ekki við að staðhæfa, að
þeir hefðu skilað „bitastæðum“
skáldritum ,ef þeir hefðu lagt
áherzlu á að skapa sjálfir, í stað
þess að elta uppi ritverk ann-
arra. Þeir hafa báðir sýnt hæfi-
leika, og er leiðinlegt að þeir
hafa látið undir höfuð leggjas*
að leggja eitthvað af mörkum á
því sviði. En kannske á það eftir
að koma í IjóS, þegar þeim er
runnin „reiðin“.
Að endingu þetta:
Mér finnst engan veginn órétt-
látt að ætlast til þess af hinum
afkastamiklu bókmenntafræðing
um, að þeir geti skilið svo ein-
faldan hlut sem þann, að rithoí-
undakynslóðin á undan þeim —
þótt seinþreytt sé til vandræði
— láti ekki leiða sig mótmæla-
laust sem lamb til slátrunar á er
lendum vettvangi eða vera sviv-
irt í riti, sem áreiðanlega er æd-
að áð flytja óhlutdræga fræðsiu
um þá hluti, sem hér hafa gerzt
Til þess að vekja athygli á pví
eru þessar línur ritaðar. Vonar
'höf. að aðstandendur Nordisft
Tidsskrift fylgist betur með því
sem ritið flytur aLþessu tagi i
framtíðinni. En hvað snertir bók
menntafræðingana tvo, hefur
ekkert verið sagt annað en það
sem allir vita, að dómaraskikk)-
an fer þeim illa, og það er eng-
inn löstur á manni, þótt hæím
til svo virðulegs embættis sé ekki
fyrir hendi í fari hans. Á pað
hefur áðeins verið bent hér
vegna illrar nauðsynjar og að
gefnu tilefni.
Jón Björnsson.
ATHUGIB
Þegar miðað er við útbreiðslu.
er langtum ódýrara að auglysa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
Hús í Hveragerði
Til sölu er einbýlishús í Hveragerði.
Uppl. í síma 122 Hveragerði eftir kl. 8,30 á kvöldin.
Photokina — Köln
íslendingum sem staddir eru á Photokinu í Köln
dagana 1.—9. okt. næstk. er boðið að skoða Agfa-
Gevaert verksmiðjurnar mánudaginn 3. okt. Til
verksmiðjann er aðeins 20 mín. keyrsla frá sýn-
ingarsvæðinu. Mætt verður á Agfa-sýningarsvæð-
inu kl. 11.45 f.h. Sameiginlegur hádegisverður á
Reihn-Terrassen i boði Agfa-Ge vaert.
Nánari upplýsingar.
Lönd & Leiðir
Aðalstræti 8 — Símar 20800 og 24313.
A PRODUCT OF^THE parker PEN COMPANY-MAKERS of the world s most wanted pens
PARKER „45“ skólapenninn er sterkur penni, sem
þolir álag ungra eigenda. PARKER er ávallt
fremstur, gerir skrift yðar hreinlegri og áferðar-
fallegri. PARKER „45“ skólapenmnn er traustur
fylginautur í skólanum.
PARKER „45“ skólapenninn er sérstaklega smðmn
fyrir skólafólkið. Hann er mjög hreinlegur í notkun
— Þér skiptið aðeins um blekhylki og hann er reiöu-
búinn til að skrifa næstu 10000 orðin. Blekhylkin
fást í uppáhalds bleklit yðar. PARKER „45“ gerir
skriftina ánægjulega fyrir skólafólk á öllum aiari.
PARKER „45“ Student kr. 160.00
PARKER „45“ Junior kr. 218.00
PARKER „45“ Standard kr. 331.00
I SKOLANN MEÐ
Parker 45