Morgunblaðið - 05.10.1966, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.10.1966, Blaðsíða 2
2 NORCU N BLAÐIÐ Miðvlkudagur 5. október 1966 Belgred: Æðsta flokksstjórnin endurskipulögð Eelgrsd, 4. okt. - NTB-AP: HELZTU foringjar júgóslav- neska kommúnistaflokksins, sam þykktu í dag a fundi margvís- legar áætlanir um endurskipu- lagningu á æðslu stjórn flokks- ins. Tilgangurinn með skipulagn- ingunni er að aðskilja stjórn flokksins og nkisins, og ryðja þannig brautina fyrir auknu lýð- ræði innan flokksins. Miðstjórn flokksins samþykkti að leggja niður embætti aðai- ritara, sem Tító forseti hefur skipað. Vai- í stað þess komið á stofn æðstaráði, en formaður þess verður eiíinig foringi flokksins og fær sömu völd og aðalritarinn hafði. Völd framkvæmdanefndar flokksins verða mikið skert, og eru m.a. felld niðui öll ritara- embætti htnnar, sem voru þrjú að tölu. Haía nokkrir flokksleið toganna látið í ljós áhyggjur um að æðstaráðið muni alveg yfir- taka völd framkvæmdanefndar- innar. Framkvæmdanefndin á hér eft ir að sjá um flokksstjórniila og vera í beinni ábyrgð gagnvart æðstaráðinu, en meðlimir þess munu verða nokkru fleiri en nefndarinnar. Æðstaráðið á að fjalla um stjórnmál og þjóðfélagsmál, svo og vandamál i sambandi við stefnu og þróun fiokksins. Meðlimir framkvæmdanefndar innar, geta ekki haldið embætt- um innan stjórnarinnar, en það geta aftur á mótí meðlimir æðsta ráðsins. Myndin var tekin í gær á Hótel Sögu, en þar stendur nú yfir 24. þing Banðalags starfsmanna ríkis og bæja. Sitja þingið 123 fulltrúar frá 27 bandalagsfélögu m. t gær voru lógð fram nefnd- arálit og þau rædd og í dag lýkur þinginu. Útsvör hækka um 9% í Stykkishólmi Stykkishólmi, 4. október: — NIHURJÖFNUÐ útsvör í Stykk- ishólmi á þessu ári eru samtals Leiðrétting Sjónvarpið í Ecvöld MIÐVIKUDAGUK 5. OKTÓBER Hinn kunni franski leikari, Jean Gabin, fer mrð aðalhlutverkið í kvikmynd kvóldsins „French Can-can“, sem snillingurinn Renoir hefur gert. 1 Á BAKSÍÐU Mol í gær er sagt frá því höi iiulega slysi, er skip- verji á togaranum Agli Skalla- grímssyni féll fyrir borð og drukknaði. í niðurlagi fréttarinnar er sagt, að er hvarf mannsins vitnaðist hafi verið of langt um liðið og of seint að snúa við og leita hans. Hið rétta í máliiiu er hins vegar, að skipið snen við, en leitin að manninum bar engan árangur. i Eru hlutaðeigendur beðnir afsök J unar á þessu ranghermi. e—--------------------------- 20:00 „Frá liðinni viku“ Fréttakvikmyndir utan úr heimi, teknar í síðustu viku. 20:20 „Steinaldarmennirnir“ „Flintstone-þyrlan“ — Þýðandi Guðni Guðmundsson. Teiknimynd gerð af Hanna og Barbera. 20:50 „Við erum ung“ Skemmtiþáttur fyrir ungt fólk. 21:45 „French Cancan“ Frönsk kvikmynd gerð árið 1954. Handrit og leik- stjórn — Jean Renoir. í aðalhlutverkum: Jean Gabin — Francoise Arnoul — Maria Felix — Philippe Clay. 23:25 Dagskrárlok. Steinaldarmennirnir láta frá sér heyra í fyrsta sinn í kvóld, en þessar „fígúrur“ njóta fádæma vinsælda erlendis. 4.844.000.00. Aðstöðugjöid sam- tals 767.000,00. Helztu útgjalda- liðir f járhagsáætlunar eru. — Til verklegra framkvæmda 3,3 milljónir, þar af til félagsheimil is 1 milljon og dráttarbrautar í Skipavík 800 þús.. til almanna trygginga 1.075 millj. og til menntamála 1 milljón. Hæstu útsvör einstaklinga bera Sigurður Ágústsson alþingismað- ur 83.900 kr. og Guðmundur Þórðarson læknir 74 þús. Myndin sýnir valtarann og bifreiðina, sein hann lenti á. Valtrari rann niður brekku — en börn voru að leik beggja vegjia göfumiar Útsvör félaga: Skipavík 127 þús. og Trt.smiðjan Ösp 103 þús. Hæstu aðstöðugjöld: Sigurður Ágústsson 400 þus. og Kaupfélag Stykkighólms 366 þús. Við álagningu var notaður lög boðinn út.svarsstigi. Ekki var lagt á bætur almannatrygginga, nema fjölskyldubætur. Sjómanna frádráttur var tekinn til greina að hálfu, útsvör aldraðra voru lækkuð sem hér segir: 67—69 ára fengu 30% og 70 ára og eldri fengu 50%. Útsvör, sem ekki náðu 1000 krónum voru felld nið ur. Síðan voru 011 útsvör hækk uð um 9%. í fyrra var veittur 10% afslátt ur af útsvörum, sem greidd voru fyrir 1. október, en nú hefur sá afsláttur ví'rið lækkaður í 5%, nema til þeirra, sem greitt höfðu helming útsvarsins fyrir mitt ár, þeir fá 10% afslátt. Sá galli var þó á gjöf Njarðar, að þessi ákvörð un var eitki tilkvnnt fyrr en í september og vissu því engir um hana fyrir mitt árið. — Árni. í GÆRDAG Iá i'ið stórslysi á Spítalastíg, er þungur valtari rann laus niður stíginn á móts við reiðhjólaverkstæðið Örninn. Valtarinn var á leið upp Spít- alastíginn, er vélhemlar á valtar anum biluðu skyndilega. Valtar- inn rann aflur á bak niður stíg- inn, en stjórnanda hans tókst að stýra honum utan í bifreið, sem stóð þar skammt frá með þeim afleiðingun, að bjfreiðín kastað- ist upp á gangst.éttina. Hefði stjórnandanum ekki tek izt þetta er óvíst hvernig hefði farið, því að börn voru að leik beggja vegna götunnar. Bifreið- in, sem valtsrinn lenti á skemmd ist talsvert við áreksturinn. Áiekstur á Beykjonesbiaiút Keflavík, 4. október. IIARÐUR árkstur varð á Reykja nesbraut kl. 11:25 í gærmorgun, er sendiferðabifreiðin Ö-444, ók aftan á bifreið frá varnarliðinu. Átti slysið sér stað 4 km. innan við flugvallarhliðið. Ökumaður Ö-444 slasaðist mikið en encin slys urðu á fólki í varnarliðs- bifreiðinni. Nánari málavextir eru þeir, að bifreiðarnar voru báðar á leið til Keflavíkur. Svo virðist sem varnarliðsbifreiðin hafi stanzað snögglega og ók Ö-444 aftan á hana. Rannsókn málsins er ekki að fullu lokið, því ökumaður Keflavíkurbílsins fótbrotnaði illa og hlaut önnur meiðsli og var fluttur á sjúkrahúsið í Kefla vík. Keflavíkurbifreiðin er mjog skemmd, en hin mun minna. — SL. NÓTT kom til átaka milli a-þýzkra og v-þýzkra landamæra varða við Berlínarmúrinn. Höfðu a-þýzkir landamæraverðir skotið tveim aðvörunarskotum að V- Þjóðverja, sem gerði tilraun til að klifra yfir múrinn að vestan- verðu. Maðuiinn, sem var undir áhrifum áfengis, féll til jarðar við skotin, en var ósærður. D Á HÁDEGI var N-kaldi um norðanvert landið með élja- gangi og víðast 1 til 3ja stiga frosti. Sunnanlands var létt- skýjað og orðið fr'ostlaust. Var hlýjast 4 stig á Fagur- hólsmýri í Öræfum. Um nóttina var talsvert frost víða um land, kaldast 12 stig á Hveravöllum, 9 á Þingvöll- um og 8 á Hólsfjöllum. Djúpa lægðin á kortinu hreyfist hægt austur, svo að í dag má búast við austlægri átt við suðurströndina og minnkandi frosti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.