Morgunblaðið - 05.10.1966, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 05.10.1966, Blaðsíða 27
Miðvikudagur 5. óktob'er 1966 MORGUNBLADID 27 Dodge Dart tyrir 100 kr. NÚ ER ekki nema liðlega mán-flokksins. Aidrei hefur Sjálf- uður þar til dregið verður ístæðisflokkurinn efnt til glæsi- Landshappdrætti Sjálfstæðis- legra happdrættis. Vinningar eru Mörg nýmæli verða rædd á kirkjuþinginu iHikill samdráttur í gull- og gfaldeyrisforða Breta KIRKJUÞING hélt áfram í gær- morgun, og voru tvö mál á dag- Bkrá, þ. e. skipun prestakalla og prófastdæma, og Kristnisjóður, sem rætt verður um á þinginu með tilliti til frumvarps til laga um þau efni. Framsögu um þessi mái í gær hafði herra Sigurbjörn Einarsson, biskup. Rakti hann þessi mál í stórum dráttum, og drap á ályktanir kirkjuráðs um þessi efni og meðferð Presta- stefnu íslands 1966 á frumvarp- Inu. í frumvarpi prestakallanefnd- ar til laga um skipun prestakalla og prófastdæma er gert ráð fyr- ir, að prófastdæmunum fækki úr 21 í 13. Embætti sóknarpresta eru nú í landinu 126 að tölu, en tala prestakalla er nú 120, en þar af eru 6 köll með tveimur prest- um, 4 í Reykjavík, 1 á Akureyri og 1 í Vestmannaeyjum. Nefndin leggur til að embætti sóknar- presta verði 105, en tala presta- kalla 98. Á hinn bóginn leggur nefndin til á öðrum stað í frum- varpinu, að lögfest verði 5 ný prestsembætti, sem ekki eru bundin við prestaköll eða sókn- ir. í tillögum nefndarinnar er m.a. lagt til að annar sóknar- presturinn af tveimur í Skál- holtsprestakalli skuli skipaður af ráðherra að fenginni um- sögn biskups, án undangenginn- ar kosningar. Þá er og lagt til að biskupi sé heimilað að ráða tvo aðstoðaræskulýðsfulltrúa til þess að starfa með æskulýðsfulltrúa Þjóðkirkjunnar, og að biskupi verði heimilað að ráða "þrest- vigðan mann til sérstakrar sjúkrahúsþjónustu í Reykjavík, en biskup skal setja honum er- indisbréf. Ennfremur er lagt fil að kirkjustjórninni verði heim- ilað að ráða til þriggja ára í senn prestvígðan mann til kirkjulegra starfa meðal íslendinga í Kaup- mannahöfn, svo og annars staðar á Norðurlöndum eftir því sem við verður komið. Ráðherra setur honum erindisbréf. Loks er biskupi heimilað að ráða prest- vígðan mann til þess að annast og skipuleggja kristilegt starf meðal ísl. sjómanna og ann- arra þeirra, sem dvelja lang- tímum saman frá heimilum sín- um á vertíðum. í ályktun kirkjuráðs varðandi skipun prestakalla og Kristni sjóðs er það nýmæli að lagt er til, að guðfræðingi sé eigi heim- ilt að sækja um sóknarprests- embætti í þjóðkirkjunni, nema hann hafi þjónað sem settur prestur eða aðstoðaprestur í eitt ár. Þá er einnig í ályktuninni löng grein um Kristnisjóð, og segir þar að stofnaður skuli sjóður er nefnist Kristnisjóður. Stofnfé sjóðsins sé Kirkjujarðar- sjóður, sem skuli lagður niður og renna í Kristnisjóð, og andvirði kirkjujarða, annarra en prest- setursjarða, sem seldar verða eftir gildistöku laga þessara. Tekjur þessa sjöðs skulu vera vextir af stofnfé Kristnisjóðs, árlegt framlag úr ríkissjóði, sem samsvari opinberum kostnaði af þeim prestaköllum, sem lögð eru niður samkvæmt hinum nýjy lögum og við síðari breytingar á prestakallaskipun landsins. Skal þar miða við full prestslaun, eins og þau eru á hverjum tíma, svo og við áætlaðan opinberan kostnað af prestssetri. í þriðja lagi: önnur framlög, sem ákveð- in kunna að vera með lögum, og að ^iðustu frjáls framlög safnaða, einstaklinga og fyrir- tækja. Hlutverk Kristnisjóðs á að verá í fyrsta lagi að launa að- stoðarþjónustu presta eða kandi- data í víðlendum og fjölmennum prestaköllum. Skulu kandidatar í guðfræði vera aðstoðarmenn í slíkum prestaköllúm all,t að einu ári, áður en þeir hljóta prest- vígslu. í öðru lagi að launa starfsmenn, sem ráðnir eru til sérstakra verkefna í þágu þjóð- kirkjunnar í heild samkvæmt ávörðun Kirkjuþings. Til þess að styrkja söfnuði, er ráða vilja djákna, diakonissur eða aðra starfsmenn til starfa á sínum vegum á sviði æskulýðsmála, líknarmála eða að öðrum mikil- vægum verkefnum. Til þess að veita fátækum söfnuðum starfs- styrki, einkum á þeim stöðum sem prestaköll hafa verið sam- einuð og kirkjuleg þjónusta er sérstökum erfiðleikum háð. Til þess að veita lón til bifreiða- kaupa prestum sem eru að hefja prestsþjónustu í dreifbýli, og skuldbinda sig til þriggja ára þjónustu hið minnsta. Til þess að kosta búferlaflutning guðfræð- inga, sem settir eru til prests- þjónustu. Til þess að styrkja námsmenn til undirbúnings und- ir prestsstarf eða önnur kirkju- leg störf, og að síðustu til þess að styrðja hvers konar starfsemi kirkjunni til eflingar kristinni trú og siðgæði með þjóðinni, svo sem með útgáfu á hjálpargögnum í safnaðarstarfi og kristilegu fræðsluefni. þrír, allt handarískar fólksbif- reiðir, árgerð 1967, og er saman- lagt verðmæti þeirra á aðra milljón króna. Vinningarnir eru Rambler American, Dodge Dart og Plymouth Valiant. Verð happ- drættismiðans er aðeins 100 krónur. Unnið er nú að því að senda happdrættismiða til stuðnings- manna Sjálfstæðisflokksins um land allt. Er þeim tilmælum beint til þeirra, sem þegar hafa fengið miða, að gera skil sem allra fyrst. Skrifstofa Lands- happdrættisins er í Sjálfstæðis- húsinu við Austurvöll, sími 17100. Skrifstofan er opin frá kl. 9 til 19 daglega. Myndin hér að ofan sýnir einn vinninganna, Dodge Dart 1967. EFTIR þriggja sóiarhringa iand legu héidu síldarskipin á Aust- fjarðahöfnum út á miðin síðdeg is í gær. Að því er síldarleitin á Dalatanga tjáði blaðinu í gær- kvöld fór veður versnandi 30 sjó mílur frá landi og dýpra. Engar fréttir höfðu þá borizt um afla. FIMMTA þing Sjómannasam- bands íslands var haldið í Reykjavík dagana 1. og 2. okt. sl. Á þinginu voru mættir 28 fulltrúar frá sex aðildarfélögum sambandsins. Aðallagabreyting sem gerð var á lögum sambandsins á þing inu var sú, að þegar aðildarfélög sambandsins kjósa fulltrúa á Sjómannasambandsþing skulu þau um leið og á sama hátt kjósa fulltrúa sína á sameiginlegan lista Sjómannasambands ís- lands til Alþýðusambandsþings. Forseti sambandsins til næstu tveggja ára var einróma endur- kjörinn Jón Sigurðsson, Reykja- vík, en auk hans eiga sæti í London, 4. október — AP - NTB r GULL- og gjaldeyrisvara- forði Breta jókst um þrjár' milljónir sterlingspunda í september, að því er skýrt hefur verið frá í London. Er þetta í fyrsta skipti síð- an í febrúar, að ekki hefur gengið á varaforða þjóðarinn ar. Varaforðinn nam í sept- ember 1129 milljónum punda, en var 1126 millj. í ágústlok. Hins vegar er tekið fram í fréttum, að aukningin í september, 3 miííj. punda, sé næsta lítil, þegar haft sé í huga, að gull- og gjald eyrisvaraforðinn minnkaði — Snjóföl Framhald af bls. 28. haust, sérstaklega í fyrstu göng- um. Þó brá svo við nú um helg- ina, er verið var að ljúka þriðju göngum að veður spilltist, varð éljagangur og frost allt fró heið- um og til sjávar. Margir Húsvík- ingar eiga enn kartöflur í jörðu, en spretta hefur verið léleg mjög í sumar og biðu menn þess í lengstu lög að taka upp. í Húnavatnssýslu hafði gránað í fjöll og var veður fremur kalt. Sl. sunnudag, er leitað var fjár úr flugvél sást varla snjór inni á hálendinu, en í gær voru fjöll öll orðin grá. í Borgarfirði eystra var undir- lendi allt grátt og fjöll alhvít og í gær var þar leiðindaveður, en var þó að birta upp í gærkvöldi. Gekk á með éljum. Á Síðu var í gær sólskin og stjórn sambandsins eftirtaldir menn: Magnús Guðmundsson, Felli, Gar,ðahreppi. Guðlaugur Þórðarsson, Kefla- vik. Hilmar Jónsson, Reykjavík. Sigríkur Sigríksson Akranesi. Kristján Jónsson, Hafnarfirði. Pétur Sigurðsson, Reykjavík. Til þess að kynna starfsemi sambandsins var allmörgum samböndum og sjómannafélög- um boðið að senda áheyrnarfull- trúa á þingið og voru þar mættir auk sjávarútvegsmálaráðherra, sem sérstaklega var boðinn, Eð- varð Sigurðsson varaforseti Al- þýðusambands íslands, Guðmund því marz þar til í ágúst- lok. Ýmsir sérfræðingar hafa þó gert ráð fyrir, að þær tölur, sem birtar hafa verið opinberlega á undanförnum mánuðum séu of lágar, og hafi aðstaða Breta versnað mun meir en þær gefi til kynna. Hafi ekki komið fram, hve miklar lántökur erlendis hafi veri'ð. Miklu máli er þetta þó talið skipta, að erlendir bankar hafa nú fallizt á að veita brezku stjórninni lán, þegar sérstaklega illa stendur á, og trú manna á sterlingspundið veiktist skyndi- lega. Meðal þeirra erlendu banka, sem boðizt hafa til að hlaupa undir bagga með Bret- um, eru bandarískir. blíða, en mikið frost, en austur í Breiðdal gekk á með éljaveðri og var jörð orðin alhvít niður að sjávarmáli. Bifreiðum gekk erf- iðlega að komast yfir Breiðdals- heiði og þurftu þeir að nota keðjur. Á Siglufirði var í gær ágætt veður, en snjór yfir allt. Siglu- fjarðarskarð lokaðist í gærmorg- un, og á að reyna að moka það í dag, ef veður ekki spillist. Áætlað er að um sólarhrings- mokstur sé að ræða. Á Snæfellsnesi var í fyrrinótt um tveggja stiga frost en vestur í Hnífsdal var í gær norðan leið- indaveður og hafði snjóað á Breiðadalsheiði og tepptist hún tímabili, en opnaðist brátt aftur. Á Egilsstöðum var alhvítt og gekk á með éljum. Möðrudals- fjallgarðar voru tepptir, en þar var hefill að störfum og átti hann í nokkrum erfiðleikum vegna skafrennings. ur H. Oddsson forseti Farmanna- og fiskimannasambands íslands, Björgvin Sighvatsson forseti Al- þýðusamb. Vestfjarða, Tryggvi Helgason forseti Alþýðusambands Norðurlands og formaður Sjó- mannafélag Akureyrar, Bjarni Hansson frá Sjómannafélagi ísa- fjarðar, Sigurður Sigurjónsson frá Vélstjórafélagi Vestmanna- eyja og Erlingur Viggósson, Stykkishó.’.mi, sem fulltrúi verka lýðsfélaganna á Snæfellsnesi. Þar sem skýrsla þingsins barst Mbl. ekki fyrr en seint í gær- kvöldi, er ekki unnt að birta hana í dag. Morgunblaðið mun birta hana ásamt samþykktum I þingsins í heild á næstunni. Myndin er tekin á laugardaginn við setningu Sjómannasam bandsþingsius. t ræðustól er Jón Sigurðsson, formaður sambandsi ns. í forgrunni sjást þingmenn, en lengst til vinstri sjást nokkrir gestir þingsins, þ.á.m. Eggert G. Þorsteinsson sjávarútvegsmálar áðherra og Guðmundur H. Odds son forinaður Farmanna og fiskimannasambands íslands. Fimmta þingi Sjómannasambandsins lokið um 177 millj. punda fra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.