Morgunblaðið - 05.10.1966, Síða 28
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
227. tbl. — Miðvikudagur 5. október 1966
jjcuiystöersia oy
fjölbreyttasta
blað landsins
UNNK) ÁFRAM SAMKVÆMT
BRADAHRGOASAMNIHGUM
Á fyrsta fundi Verkamanna-
sambands lslands annars vegar
og Vinnuveitendasambands Is-
lands og Vinnumálasambands
Samvinnufélaganna hins vegar,
er haldinn var í gær, var ákveð
ið að fyrst um sinn verði unnið
samkvæmt bráðabirgðasamning-
um frá því í júní á sl. sumri,
en þeir samningar gengu úr gildi
um síðustu mánaðamót. Viðræð-
urnar á fundinu voru í beinu
framhaldi af þeim umræðum,
sem í sumar leiddu til bráða-
birgðasamkomulagsins.
Fundinn i gær sat framkvæmda
stjórn Verkamannasambandsins,
en 1 henni eiga sæti: Eðvarð Sig-
urðsson, formaður; Þórir Daní-
elsson, framkvæmdastjóri sam-
bandsins; Jónína M. Guðjónsdótt
ir, Hermann G’iðmundsson og
Ragnar Guðleilsson.
Fulltrúar Vinnuveitendasam-
bandsins voru: Kjartan Thors,
Benedikt Gröndal, Óttar Möller,
Jón H. Bergs, Björgvin Sigurðs | Júlíus Valdemarsson og Harry
son og Barði Friðriksson. — Af Fredriksen.
hálfu Vinnumálasambands Sam-1 Næsti fundur þessara aðila hef
vinnuféíaganna satu fundinn þeir I ur ekki verið ákveðinn.
Vinnustöðun ■ Sement-
verksmiðjunni frestað
EKKI HEFVR enn náðzt sam-
komulag í kjaradeilu starfs-
manna Sementsverksmiðjunnar
og Vinn'iveitendasambandsins,
að því er Björgvin Sigurðsson,
formaður Vinnuveitendasam-
bands tsiauds tjáði blaðinu í
gær.
Hins vegar var vinnustöðvun
frestað um þrja sólarhringa, og
kemur hún því til framkvæmda
á miðnætti á fimmtudag, hafi
samningar ekki tekizt.
Annar sáttafundur hefur enn
Sæmilegar horfur á
góöu rjúpnaári
SAMKVÆMT spám fróðra
manna ætti rjúpnastofninn að
komast í hámark þetta ár. Mbl.
spurðist fyrir um það hjá frétta-
riturum sínum víðs vegar um
land, hvort mikið væri af
rjúpu, og fékk blaðið mjög mis-
jöfn svör. Virtist mest um rjúpu
austanlands og einnig er mikið
af henni á Snæfellsnesi.
Samkvæmt upplýsingum frétta
ritarans á Húsavík bar mikið á
rjúpu í vor og virtist ætla að
verða mikið um hana. Nú í haust
virðist hins vegar ekki vera mik-
ið af rjúpu og kenna menn helzt
um júlíhretinu, er gerði þar
eystra. Telja menn að ungarnir
hafi ekki þolað það hret.
Ragnar Gunnarsson á Fossvöll-
um í Jökulsárhlíð sagði, að mikið
hefði verið um rjúpu í sumar, en
nú virtist hún vera mjög drejfð
enn sem komið er. Sagði hann
að gangnamenn hefðu séð tölu-
vert á heiðum uppi.
í Breiðdal virtist rjúpa vera
meira móti í sumar samkvæmt
upplýsingum Páls Guðmundsson-
ar á Gilsárstekk, en í Borgarfirði
eystra sagði Ingvar Ingvarsson
á Desjamýri, að lítið væri um
rjúpu, en þó taldi hann að hún
gæti komið hvenær sem er. Hún
héldi sig líklega upp til heiða.
Siggeir Björnsson, Holti á
Síðu sagði, að lítið væri um
rjúpu þar um slóðir og hefðu
gangnamenn lítið orðið varir við
hana í göngum inn af Síðu-
mannaafrétti.
Steinþór Eiríksson á Egilsstöð-
um tjáði blaðinu, að lítið væri
af rjúpu á Héraði, en í sumar, er
, hann hefði átt leið um þingeyjar-
sýslur hefði hann séð mikið af
henni.
í Hnífsdal er lítið um rjúpu
að sögn Sigurðar Guðmundsson-
ar fréttaritara, en samkvæmt
upplýsingum Árna Helgasonar í
Stykkishólmi er mikið um rjúpu
alveg niður í byggð. Segist Árni
hafa séð mikið af henni, er hann
brá sér út fyrir þorpið sl. sunnu-
dag.
Ágúst Jónsson á Hofi í Vatns-
dal sagði, að mikið væri um
rjúpu á heiðum uppi einkum við
Stórasand.
ekki verid boðaður, og kvaðst
Björgvin ails oviss um, hvenær
hann yrði haldinn.
Björgvin tjáði blaðinu einnig,
að fyrsta fundi Verkamanna-
sambandshis væri nýlokið, og
væri hann framhald á viðræð-
um þessara aðila er íram fóru í
sumar. Heiðu umræðurnar verið
vinsarnlegar og yrði þeim áfram
haidið á næstunni.
^ v> ‘ *
Helsingfors
Húsavík
Önnur þessara mynda er frá
Húsavík á íslandi, hin er frá
Helsingfors í Finnlandi. Barn
ið íslen7ka fagnar fyrsta snjón
um; Finninn snýr bakinu í
snjókornin og lætur sér fátt
um finnist. Á Húsavík þenn
an dag er barnið hló á móti
snjóbirtunni var 24. vika sum
ars; í Finnlandi viku fyrr. —
Bændum fyrir norðan þykir
snjórino svna sig fullsnemma;
eflaust eru íbúar Helsingfors
þeim sammála. En hvort sem
snjór er böl eða blíða, þá er
hinn hjartnæmi boðskapur
þessa texta sá, að lítið barn
fyrir norðan hló við snjónum
viku eftir að Finninn í Hels
ingfors sá hann falla í kring-
um sig.
Hlaut 300.000 kr. sekt
fyrir landhelgisbrot
Skipstjóri brezka togarans rauk i
fússi úr réttarsal á ísafirði
ísafirði. 4. október.
RÉTTARHÖLDUM yfir Andreas
Jensen skipstjóra á Grimsbytog-
aranum Oratava lauk í dag fyrir
sakadómi ísafjarðar. Var skip-
stjóri dæmdur í 300.000 kr. sekt,
afli og veiðarfæri gerð upptæk
og einnig var skipstjóra gert að
greiða 10.000 kr. sóknarlaun til
ríkissjóðs og 10.000 kr. málsvarn
arlaun til verjanda síns Ragnars
er 28 síöur í dag og verður út þessa viku vegna yfir-
vinnubanns Hins íslenzka prentarafélags.
Aðalsteinssonar hdl. Dóminn
kvað upp Jóh. Gunnar Ólafsson
bæjarstjóri, en meðdómendur
voru Guðmundur Guðmundsson
skipstjóri og Símon Helga.son
skipaeftirlitsmaður.
Dómurinn yfir skipstjóranum
var kveðinn upp kl. 17:30 í
kvöld og brást skipstjóri illa við.
Jafnskjótt og dómsorð höfðu ver
ið lesin yfir honum stóð hann
upp og rauk út í fússi. Taldi
Andreas Jensen skipstjóri, að
hann hefði verið dæmdur • sak-
laus, en forsendur dómsins byggj-
ast fyrst og fremst á því áliti
hinna sérfróðu meðdómenda, að
ekki hefði verið framkvæman-
legt, eins og skipstjóri hélt fram,
að kasta vörpunni við landhelgis
línuna og hafa getað togað og
fengið þær 45 kröfur, sem reynd
ust vera í vörpunni, þegar .lún
var dregin upp, á þeim 10—15
mínútum, sem þetta á að hafa
gerst á.
Dómnum yfir skipstjóranum
var áfrýjað og liggur togarinn
enn hér í höfn, því eftir er að
meta afla og veiðarfæri og reikna
sakarkostnað. Má búast við, að
því verði ekki lokið fyrr enn
einhverntíma á morgun.
Einning er eftir, að setj*
tryggingu fyrir sektarfé og kostn
aði. — H.T.
Enn unnið að
þéttingu
í GÆR var onn verið að vinna að
þéttingu s rifunni sem kom á
Herðubreið, er hún steytti á
skeri við Djúpavog. Og var ekki
vitað hvenær þeirri bráðabirgða-
viðgerð væri lokið og hægt verði
Víöa snjóföl í byggð
noröanlands og austan
MBL. hafði í gær samband við
fréttaritara sína víða um land og
spurðist fyrir um tíðarfar og
veðráttu. Samkvæmt upplýsing-
um þeirra hefur viða snjóað allt
niður i byggð og sums staðar hef-
ur gránað í fjöll. Alls staðar var
fremur kalt
í Jökulsárhlíð hefur verið
vond tíð að undanförnu og í gær
var þar alhvítt. Fjallvegir höfðu
þá teppzt þar um slóðir í Norður-
Múlasýslu.
Gangnamenn í Þingeyjarsýslu
hafa yfirleitt fengið góð veður í
Frapihald á bls. 27