Morgunblaðið - 19.10.1966, Blaðsíða 2
2
MORGUNBUkBID
1 Miðvikudagiir 19. okt. 1966
2 þyrlur til björgunar-
og heilbrigðisþjónustu
Tiilaga þingmanna
Sjáifstæðisfiokksins
í GÆR var lögð fram á Alþingi
þingsálykt anartillag frá 6 þing-
mönnum Sjálfstseðisflokksins
þess efnis að ríkisstjórnin beiti
sér fyrir því, að Landhelgisgæzl
an fái hið fyrsta tvær nýjar þyrl
ur og verði þær notaðar til strand
gæzlu, björgunar- og heilbrigðis
þjónustu við Breiðafjörð, á Vest-
fjörðum og við Húnaflóa, en hin
á Norðausturlandi og Austfjörð-
um. Verði.stefnt að því, að þær
verði jafnan staðsettar í þessum
landshlutum.
Flutningsmenn eru: Sigurður
Bjarnason. Sigurður Ágústsson,
Jónas Pétursson, Þorvaldur Garð
ar Kristjánsson, Matthías Bjarna
son og Jónas G. Rafnar.
í greinargerð segir að þyrla
Landhelgisgæzlunnar hafi reynzt
mjög vel og að það sé skoðun for
stöðumanna Landheigisgæzlunn-
ar að þyrlur muni í framtíðinni
gegna þýðingarmiklu hlutverki
við strandgæzlu og björgunar-
störf. Þær geti bætt úr þeim
vanda, sem læknaskortur í
strjálbýlum héruðum skapar. —
Ennfremur ré hægt að nota þær
til margvíslegra flutninga t.d.
þegar snjóþyngsli hafa lokað sam
gönguleiðum á landi.
Skattarannsóknar-
nefnd með 142 mál
f FJÁRLAG ARÆÐU sinni í gær
kvöld skýrði f jármálaráðherra,
Magnús JónssoH frá störfum
12 slökkviliðsmenn
fórust í bruna í N.Y.
New York 18. okt. AP-NTB.
STÓRBRUNI varð í New
York í dag, og er óttast að 12
slökkviliðsmenn hafi farizt í
eldinum, sem geisaði í þrem
verzlunarbyggingum á Manhatt-
an. Tveir fórust, er veggur féll
yfir þá, en óttast er að hinir
10 hafi farizt er sprenging varð
í efnageymslu í einni bygging-
unni og kastaði þrýstingurinn
þeim inn í eldhafið.
200 hundruð slökkviliðsmenn
tóku þátt í slökkvistarfinu, svo
og 8 læknar og margar hjúkrun-
arkonur.
Slys þetta er hið mesta sem
slökkvilið New Yorkborgar hef-
ur orðið fyrir, síðan það var
stofnað fyrir 101 ári.
UM nónbilið var NA-átt um lendi, við frostmark á Kili.
allt land, léttskýjað sunnan Lægðin fyrir norðaustan
lands, en skýjað fyrir norðan Nýfundnaland er á austurleið
og sums staðar súld á Aust- og var ekki gert ráð fyrir
fjörðum. í Grímsey var verulegum áhrifum frá henni
snjóél. Hiti var 2-8 stig á lág- á veður hérlendis.
Sjónvarpið
Miðvikudagur 19. okt.
20:00 „Frá liðinni viku“
Fréttakvikmyndir utan úr
heimi, sem teknar voru í
síðustu viku.
20:20 ,,Steinaldarmennirnir‘'
Teiknimynd gerð af Hanna
og Barbera. Þessi þáttur
nefnist: „Sundlaugin". ís-
lenzkan texta gerði Pétur
H. Snæland.
Elizabeth
Arden lálin
New York, 18. október
AP-NTB.
HIN heimsfrægi bandaríski
snyrtivöruframleiðandi Elizabeth
Arden lézt í sjúkrahúsi í New
York í dag. Hún var 84 ára að
aldri. Hún var einkaeigandi
fyrirtækisins sem bar nafn henn
ar og eru snyrtivöruverksmiðjur
þess dreifðar um öll Bandaríkin
S-Ameríku, Evrópu og mörg
önnur lönd.
skattarannsóknarnefndar. Sagði
hann að frá því að nefndin hóf
starfsemi sína hefði hún skilað
til meðferðar hjá rikisskatta-
nefnd alls 142 málum. Af þessum
málum hefðu 84 verið rannsókn-
armál, en 58 hefðu verið svoköll
uð hliðarmál þeirra, m.ö.o. hefðu
leitt til skattbreytinga hjá 58 að
ilum, vegna upplýsinga, sem
fram hefðu kornið við rannsókn
hjá öðrum, og væri þá yfirleitt
um launþega að ræða.
Þar að auki hefði deildin svo
haft til rannsóknar 31 mál, þar
sem ekki hefði þótt ástæða til
skattbreytinga, og nú væru til
viðbótar 20 —30 rannsóknarmál
er yrðu til afgreiðslu hjá ríkis-
skattanefnd á næstunni.
Ríkisskattanefnd hefði lokið á-
kvörðun skatta í þeim 152 mál-
um er fyrir hana hefðu komið
og hefðu þær leitt til hækkunar
tekjuskatts hjá 136 gjaldendum
samtals að upphæð 9,6 millj. kr.,
eignaskatts hjá 43 gjaldendum,
samtals 4,3 millj. kr., dráttar-
vaxta af scluskatti hjá sömu
gjaldendum. samtals 1,6 millj. kr.
og aðstöðugialdi hjá 75 gjaldend
um samtals rúmlega 1 millj. kr.
Þá hefði skattsektanefnd kveð
ið upp úrskurð í 80 málum og
hefðu úrskurðir hennar leitt til
sektarákvö’-ðunar hjá 56 gjald-
endum, að heildarupphæð rúm-
lega 5,3 millj. kr.
í GÆRDAG varð maður fyrir
vörulyftara í Tollvörugeymsl-
unni, og mun hann hafa fótbrotn
að. Var hann fluttur í Slysavarð
stofuna og þaðan í sjúkrahús.
LAUST EFTIR kl. 12 í gær
varð minniháttar slys á gatna
mótum Laugavegar og Lauga
nesvegar. Þar var bifreið ekið
eftir Laugaveginum, þegar að
bar slökkviliðsbifreið með sír
enu á. Beygði slökkviliðsbif-
reiðin öfugu megin niður
Laugarnesveg, en ökumaður-
inn á hmni bifreiðinni taldi að
hún ætlaði fram úr sér. Leit
hann því við, en bifreiðin rann
þá skáhalt nður Laugarnesveg
inn vestanverðan og lenti þar
á símastaur. Við það fékk mað
urinn höfuðhögg, og var hann
fluttur í slyzavarðstofuna. —
Bifreiðin skemmdist nokkuð.
Jarðskjáifti í Perú
Lima, Perú, 18. október.
AP - NTP.
SNARPUR jarðskjálfti varð í
Perú síðdegis á mánudag. Er
jarðskjálftinn sagður sá versti
sem um getur í Perú og hafa að
minnsta kosti 100 manns látið líf-
ið og 1000 særzt af völdum hans.
Höfuðborgin Lima varð illa
úti, en upptök jarðskjálftans voru
í um 150 km fjarlægð frá borg-
inni. Verst urðu úti þorp og
borgir um 100 km frá Lima, en
allt samband þangað rofnaði.
Pan Ameríkan þjóðvegurinn eyði
lagðist gersamlega á nokkurra
km svæði, þar sem hann bugð- I
aðist meðfram sjónum. 35 manns I
biðu bana er kirkjuþak hrundi í
miðri guðsþjónustu.
Ríkisstjórnin í Perú hefur
heitið íbúum héraðanna, sem
verst urðu úti, allri hugsanlegri
aðstoð. Björgunar og sjúkralið
vinna nú dag og nótt að björg-
unarstörfum, en samgönguleysi
háir björgunarmönnum.
Óttast er að dánartalan eigi
eftir að hækka mikið, og er áætl-
að að tjónið af völdum jarð-
skjálftans nemi um 3% milljarði
ísl. króna.
London.—
Ding-dong-ding og síðan heyrð
ist ekki meira í Big Ben. Er
viðgerðarmenn komu á staðinn
kom í ljós, að róf hafði brotnað
í klukkuverkinu. Viðgerðin tók
tvær stundir.
FLÖTTAMANNAHJÁLP
JLASIDSiB.llNiaíISIANDS^SEpiíABaWKIM'M^
*£ KRONUyv
•fr LÖOUM NR.*í.*f J<jlH it*T
24.0KT
1966
SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA
20:50 „Æskan spyr“:
Reynir Karlsson, fram-
kvæmdastjóri Æskulýðs-
ráðs Reykjavíkur, svarar
spurningum. Spyrjendur
Anna Kristjánsdóttir, Ólaf
ur Proppé og Ólafur
Tynes.
Umræðum stjórnar Bald-
ur Guðlaugsson.
21:25 „Helena og karlmennirn-
ir“: Frönsk kvikmynd frá
árinu 1956. Handrit og
leikstjórn: Jean Renoir.
Leikendur: Ingrid Berg-
man, Mel Ferrer, Jean
Marais, Juliette Greco o.fl.
íslenzkan texta gerði
Dóra Hafsteinsdóttir.
23:00 Dagskrárlok.
Haag.
Júlíana Hollandsdrottning fól
í dag W. K. N. Schmelzer for-
ingja Kaþólska flokksins að gera
Schmelzer, sem talinn er ábyrgur
' fyrir falli stjórnarinnar í síðustu
1 viku, bað um frest til að kanna
I málið.
„Verð örugglega með kompás
og betur búin í næstu ferð“
Rætt við Valgeir Guðmundsson rjúpnaskyttuna sem
villtist skammt frá Kópaskeri
MBL. átti í gær símtal við Val
geir Guðmundsson á Húsavík,
rjúpnaskyttuna, sem villtist
sl. sunnudag skammt frá Kópa
skeri, og bað hann lýsa þessu
ævintýri sínu.
— Það var síðari hluta dags
á sunnudag, sagði Valgeir, að
ég kom auga á góðan rjúpna-
hóp. Hailð’ ég elt hópinn
nokkra stund, þegar hríðar-
hraglandi skal) á, sem olli því
að ég tapaði áttunum.
— Ég tók þa það til bragðs
að ganga í þá átt, sem ég
taldi vera hina réttu, niður að
bænum. Het ég sennilega geng
ið í sjö tíma. Var þá komið
myrkur, svo að ég sá að til-
gangslaust var að halda ferð
inni áfram lengur. Fann ég
hellisskú+a, þar sem ég lagðist
fyrir og sofnaði nokkra stund.
Ekki svaf ég þó mikið, því að
kulda setti að mér, enda var
ég illa búinn.
— Strax við birtingu á
mánudag lagði ég aftur af
stað og hélt ferðinni áfram í
sömu átt, þar til ég eiginlega
gekk fram á einn leitarflokk-
inn ski’mmu fyrir hádegið. Ég
hafði fyvr um morguninn ver
ið tekinn að þreytast á göng
unni, enda þá búinn að ganga
milli 20 og 30 kílómetra,
svo að ég settist að í hellis-
skúta, sem er undir rafstrengn
um milli Raufarhafnar og
Kópaskeis og er í Blakalóns-
dal á Sléttuheiði. Þar sofnaði
ég nokkra stund, en á meðan
ók leitarflokkurinn þar fram
hjá á leið austur. Sá ég svo til
til þeirra þegar þeir komu aft
ur til baka, og gat gert þeim
viðvart.
— Nei, ég hafði engan komp
ás með mér, en hann verður
áreiðanlega með næst þegar
ég fer á rjúpnaveiðar. Þá er
ég líka ákveðm í að vera bet
ur klæddur heidur en ég var
núna, sagði Valgeir að lok-
um.