Morgunblaðið - 19.10.1966, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.10.1966, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLADIÐ Miðvikudagur 19. okt. 1968 Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Sjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðrnundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6 Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Siini 22480. Askriftargjald kr. 105.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 7.00 eintakið. VELGENGNI OG VANDI í" merkri ræðu, sem Bjarni Benediktsson, forsætisráð- herra, flutti á Varðarfundi í fyrrakvöld, gerði hann glögga grein fyrir þeim mikla ár- angri, sem náðst hefur í ís- lenskum atvinnu og efnahags málum síðustu árin. Hann rifjaði það upp, að atvinnu- vegirnir hafa síðan vinstri stjórnin gafst upp 1958 eign- ~ azt 50% meira af atvinnutækj um en þeir áttu í upphafi tímabalisins, og er þá reikn- að í raunhæfum verðmætum. En samhliða því sem at- vinnuvegirnir hafa þannig styrkt stöðu sína hefur tekizt að treysta hag þjóðarinnar út á við — og jafnframt hafa lífskjör alls almennings batn- að stórlega. Einkum er þó á- nægjulegt að hin síðustu ár hefur tekizt að láta þá verst stæðu fá fyllilega sinn hlut í vaxandi velmegun þjóðarinn- ar. Á árunum 1960-—65 hafa þjóðartekjurnar vaxið um 32%, en hinar fjölmennu launastéttir fengu á sama tíma í sinn hlut 33—40%. Sýna þessar tölur óumdeilan- lega, að hinir verst stæðu . hafa fengið betri hlut en áð- ur, og sést það raunar líka af því, að kaupmáttur launa lægstlaunuðu Dagsbrúnar- manna hefur aukizt um 15— 20% á síðastliðnum tveimur árum. En nú er okkur nokkur vandi á höndum, þótt hann sé síður en svo óyfirstíganlegur. Hin mikla auðlegð, sem sköp- uð hefur verið, og batnandi lífskjör, hafa að nokkru leyti byggzt á hagstæðum við- skiptakjörum íslenzku þjóð- arinnar. Nú hefur hinsvegar syrt í álinn um sinn, og ýms- „ ar af mikilvægustu útflutn- ingsafurðum okkar hafa lækk að í verði á heimsmarkaði. Forsætisráðherra benti á, að undir slíkum kringumstæð um yrði almenningur, sem fyllilega hefur fengið sinn hlut af stórauknum þjóðar- tekjum, að taka tillit til breyttra aðstæðna í kröfugerð sinni. Þetta skilja menn og þess vegna er líka mikill óg vaxandi stuðningur við verð- stöðvunarstefnu ríkisstjórnar innar, Bjarni Benediktsson lagði á það áherzlu á Varðarfundin- um, að við þyrftum að kunna fótum okkar forráð. Tími hinnar öru framsóknar kynni að vera liðinn í bili, og við yrðum að fara varlega og verða að stöðva tekjuaukn- ingu til handa hverjum og einum. í þeirri vitund óskaði ríkisstjórnin eftir því við all- ar stéttir, að þær féllust á verðstöðvun, helzt um eins árs skeið. Hann gat þess að ríkissjóður væri þess megn- ugur að greiða niður þær verð hækkanir, sem orðið hafa síð- an 1. ágúst sl. En það krefðist þess, að hver og einn segði ekki við nágrannann: „Þú skalt verða við þessum ósk- um“, heldur að hver og einn segi við sjálfan sig: „Það er mér fyrir beztu að ég fallist á þessar óskir, að ég kunni hóf mínum kröfum þennan tíma“. Og það er þjóðinni í heild fyr- ir beztu og henni til farsæld- ar. VANDAMÁL FRYSTIHÚSANNA Ihrystihúsin eiga nú í veru- ■*■ legum erfiðleikum, og byggjast þeir fyrst og fremst á hráefnaskorti, sem t.d. í Reykjavík er svo alvarlegur, að fyrri hluta ársins var afli sá, sem landað var til frysti- húsanna, fjórðungi minni en á sama tíma næstu ár á und- an. Auk þess hefur orðið verð fall á frystum fiski erlendis, og ef það verður varanlegt, skapar það aukna erfiðleika. Vandi frystihúsanna verður ekki leystur nema unnt reyn- ist að fá þeim meiri verkefni en að undanförnu. Þess vegna verður að leggja kapp á að auka bolfiskveiðar til að afla hráefnis fyrir frystihúsin. Það mun hinsvegar naumast tak- ast svo að gagni verði, nema endurskoðaðar verði heimild- ir til botnvörpuveiða innan fiskveiðitakmarkanna. Ríkis- stjórnin hefur boðað að það mál verði lagt fyrir Alþingi, og fæst þá úr því skorið, hvort ofan á verður álit fiskifræð- inga um, að skaðlaust sé að heimila takmarkaðar botn- vörpuveiðar, eða hvort önnur sjónarmið fái ráðið,- Á tímum mennta og vísinda eiga menn að sjálfsögðu fyrst og fremst að hafa hliðsjón af sjónarmiðum þeirra manna, sem sérmenntað hafa sig á hverju sviði fyrir sig, og þess vegna hljóta skoðanir fiski- fræðinga að verða þungar á metunum. í sjávarútveginum hefur það raunar ætíð verið svo, að sumar greinar hafa gengið betur en aðrar, og sjaldan hefur svo vel árað, að engin grein úívegsins ætti í veruleg urn erfiðleikum. Ástæðulaust er þess vegna að örvænta, þótt rekstur frystihúsa gangi nú erfiðlega. En hins vegar er auðvitað sjálfsagt að rann- saka niður í kjölinn, hvað unnt sé að gera til úrbóta, og • <* # 'I28#244 » '2 -3 'SUN ■/ m -8 • 57 »134 * • 252 • 137 , 5 2200176 #44 #138 #1O70U3 0 70 #1J9 »1 0 240 # 20 * #71 * 075 •l29®112 0SB «135 15 •U7 #’l *2«>#39 • 130 0 34 : » • « • 77 •!«» 9 #185 0166 05 • 131 0 0„ 0 167 0 1231*230 •228 227’-32 • 232»,83 .159 237 •234í"97 ‘160 •233 * j4o: 84 #81 * »»92 • 21 *2 • 231 »214 -1<* 2 • 28 «83 *93 • H4» 67 • 36 *2* •’4. so* 22*9%» • 382 #2.4 =.62 • 164 .223 ,89 :.186 .*r « #226a9) • 110 .242 4 í>190 • 40 #120 131 0 149 ►'67 0218O2S ©101 • n?m 243 • 162 ^155®199 ®48 #108 199 0119 01” EARTH 5193 (026 -’i 9g 5122 - — 0U • »176 _ *>46 1 m ,,, • 17 0154 •'* *-09 ,*4‘33*172 15 «73 •>24 * 0 201 •„ 50 #»i99 9202 Síw* #20f £239 0123 032 » OB6 0 24 • 132 0 26? 0211 • 209 »174 .224 • V) • 31 U 205 .116 ♦ 145 • 118 • 225 r/ • 13 25 í ^ 177 s .13 'W »122 0199 *2°2 0126 *l660im •20f 9 2 0 4, • *30*169 »171 0123 032...... 086 :.-:V... 0153 ! ^219 •‘7° ,l2 4#216 033 088, •208 7 *'216 015, ■ »8/ • i 099 «OON 0*** 0 150 fj215 w . 0203 042 . 054 f152 jí ' •106 • 212 . ♦13 1 U.S.S.8. Q fftANCEj 0 CANADA Q U.5.A./UH. Um þessar mundir eru 1158 gervihnettir af ýmsum gerðum á braut umhverfis jörðu og aðrar plánetur. Á myndinni er staðsetning þeirra sýnd. Árekstur í himinngeimnum Líkurnar voru 1:1000000 Á 17. alþjóðlegu geimrann- sóknarráðstefnu, sem haldin var í Madrid á Spáni í fyrri viku, kom það m.a. fram, að fyrir einu og hálfu ári síðan rákust tveir mannlausir bandarískir gervihnettir á í himingeimnum. Eftir því sem bezt er vitað er þetta fyrsti og eini árekst- urinn í geimnum. Gervihnettir þessir voru fjarskiptahnettir á vegum rannsóknastöðvar bandaríska sjóhersins. Voru þeir smíðaðir af bandaríska fyrirtækinu General Electric og skotið á loft samtímis í febrúarmánuði 1965. Gervihnettirnir voru á svip aðri braut í um 400 km. jarð- firð, en hefðu átt að vera í um 100 km. fjarlægð frá hvor öðrum. Þeir voru útbúnir einskonar löngum bómulaga stöngum og í aprílmánuði sama ár rákust þeir á og flæktu saman stöngunum. Þeir losnuðu þó brátt sundur og héldu áfram á braut sinni óskaddaðir. Líkindin fyrir slíkum árekstri höfðu verið talin um 1 á móti 1000000. Talsmaður General Electric staðfesti að báðir hnettirnir störfuðu eðlilega. Ástæðuna fyrir því að ekki hefur áður verið frá atburðinum skýrt, sagði hann vera þá sömu og er eiginkona hikar við að skýra manni sínum frá því að hún hafi beyglað „stuðarann“ á bílnum. „Áreksturinn var smávægilegur en kom heldur á óvart.“ að því máli vék forsætisráð- herra einmitt á Varðarfund- inum í fyrrakvöld. Margir fleiri ræða þau mál nú, og er hollt að bera saman mismun- andi sjónarmið, þótt sumir þeirra, sem hagsmuna hafa að gæta, hljóti að taka nokkuð stórt upp í sig. Aðalatriðið er, að öll sjónarmið séu vegin og metin, og reynt að finna hina heilbrigðustu lausn. SAMI GRAUTUR 17" ommúnistar eru um þess- ^■*- ar mundir að stofna svo- kölluð Alþýðubandalagsfé- lög, og hafa þeir ráðið Lúð- vík Jósepsson til að vera for- ustumaður um mörkun stefnu fyrir hið nýmálaða en gamla fley, sem verið er að hrinda á flot. Athyglisvert er, að þessum manni skuli falið að marka stefnuna. Hann hefur einmitt lýst því yfir í heyranda hljóði, að hann sé kommúnisti og hafi ætíð verið. Hann neitaði því í Ríkisútvarpinu, að hann væri sósíalisti en ekki komm- únisti, og kvaðst hallast á sveif með hinum síðarnefndu. Erfitt verður því fyrir hina nytsömu sakleysingja, sem kommúnistar ætla að hafa með sér í Alþýðubandalag- inu, að sannfæra nokkurn mann um það, að þar sé ann- að á ferðinni en ný nafngift á kommúnistaflokknum. Hér er um að ræða sama grautinn í sömu skálino1 Ottawa, október, AP Kanada mun hefja nýjar við- ræður við Bandaríkin 24. okl ...±1 nk. um 12 milna landhelgi. Skýrði Paul Martin utanríkibiuö- herra frá þessu í dag. Kanada hefur tekið upr 2 mílna landhelgi, en á enn í samningaviðræðum í því ni að fá hana viðurkennda ai ii..j- um, sem árum saman hafa stui .- að þar fiskveiðar upp að 3 tnui.a morkunum. París, október, AP Charles de Gaulle Frakklan 's- forseti mun halda blaðamanna- fund 28. október nk., að þvi er talsmaður hans skýrði frá í dag. De Gaulle heldur venjulega tvo blaðamannafundi á ári.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.