Morgunblaðið - 19.10.1966, Síða 5
Miðvikudagur 19. oM. 1966
MORCUNBLAÐIÐ
5
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
Nú er unnið að fullum
krafti að geið Sundahafnar
og er gert ráð fyrir, að fyrsta
áfanga þessara miklu fram-
kvæmda Ijúki 28. júlí 1968,
eftir tæp tvö ár. Svo sem
kunnugt er af blaðafregnum
Stdrframkvæmdir hafnar
við gerð Sundahafnar
var tilboði Skaanska Cements
gjuteriet í gerð Sundahafnar
tekið og starfa með þessum
fyrirtækjum tvö íslenzk að
fyrsta áfanganum, Loftorka
hf. og Malbikun hf.
Tilboð í gerð Sundahafnar
voru opnuð 19. maí sl. og
bárust 6 tilboð, hið sjöunda
var dregið til baka, áður en
tilboðin voru opnuð. Tilboði
Skaanska Cementsgjuteriet og
Malbikun hf. nam miðað við
útboðsskilmála 102.250.000 kr.
Þessi fyrirtæki sendu einnig
frávikstilboð að upphæð 81.
700.000.
Forstjóri Innkaupastofnun
ar Reykjavíkurborgar Valgarð
Briem skýrði frá því við opn
un tilboðanna að samkvæmt
kostnaðaráætlun hafnarstjórn
ar myndi bygging fyrsta á-
fanga Sundahafnar kosta 98
millj. króna.
Samkvæmt útboðsskilmál-
um á að byggja 379 metra
langan hafnarbakka með
tveimur álmum í Vatnagörð-
um, vinna að dýpkun þar og
sprengja djúpsker út af Páls-
flaki. Mun hafnarbakkinn
verða gerður úr steyptum
kerum.
Við vesturhöfnina vinna
tæknifróðir menn nú að því
myrkranna á milli, að setja
saman vélarnar, sem nota á
við gerð Sundahafnarinnar.
Er fréttamenn blaðsins bar
þar að í gærdag var unnið
að logsuðu á feiknarmiklum
vélarhluta sem vélamennirnir
kölluðu ,,kött“ en það er arm
ur sem bera mun uppi dælu-
munnstykkið, þegar farið
verður að dýpka Sundahöfn.
Vfirlitsmynd yfir Vesturhöfnina og tæki þau og vélar, sem nota á við gerð Sundaliafnar.
Gamla grafvélin i Vesturhöfninni.
Við hittum þarna einn
„maskínistann“ sænskan mann
að nafni Nyholm og kallaði sig
verkmeistara. Hann tjáði tíð-
indarmanni blaðsins að 10 sér
fróðir Svíar hefðu komið til
landsins um sl. mánaðarmót
frá Skaanska Cementsgjuter-
Við dýpkun verður notað
dýpkunar- og sanddæluskipið
Grettir og gömul grafvél í
eigu hafnarinnar. Gengur hún
fyrir gufuvél, sem að sögn
fróðra manna er enn þann
dag í dag hrein og spegil-
fögur eftir fjölda ára notkun.
Nyholm verkstjóri.
iet, í þeim erindargerðum, að
setja saman hinar ýmsu vélar
og vélahluti, sem þarf við
hafnargerðina. Nú hafa Sví-
arnir unnið að þessum starfa
í u.þ.b. tvær vikur og hafa
brátt lokið verki sínu. Sagði
Nyholm, að hinn sænski hóp
ur héldi að öllum likindum
utan í næstu viku, ef verk-
áætlun'stenzt.
Auk Svíanna vinna 10 ís-
lendingar við hafnargerðina.
Stórvirkjum vinnutækjum
hefur verið komið upp í Vatn
agörðum og skýli reist fyrir
verkamennina. Yfirumsjón
verksins í Vatnagörðum hefur
Svíinn Fossberg frá Skaanska
Cementsg j uteriet.
Frá Vatnagörðum þar sem byrjunarframkvæmdir 1. áfanga eru nú hafnar.
Færeyskur Castro
Einkaskeyti til Mbl.
Kaupmannahöfn 15. október.
FÆREYSKI jafnaðarmaðurinn
séra Johan Nielsen, sem nú sit-
ur í danska þinginu sem stað-
gengill Peter Mohr Dam flutti
í dag ræðu við fyrstu umræðu
lagafrumvarps, sem mun veita
Færeyingum sömu félagsmála-
réttindi og Dönum.
Mexico City, 11. október.
NTB.
Hvirfilvindurinn „Inez“ gekk
1 nótt yfir hafnarborgina Tam-
pico í Mexico, og sex þorp þar
í nágrenninu. í morgun hafði of-
veðrið valdið slíkum skaða, að
algerlega var sambandslaust við
hafnarborgiria og þorpin sex.
Tugir þúsunda flýðu heimili sín
á þessu svæði, er kunnugt varð
um, að „Inez“ væri á leiðinni.
Nielsen sagði m.a. í ræðu
sinni. „Ég flyt þakkir frá Fær-
eyjum, en stend ekki með hatt-
inn í höndunum. Það er rétt að
Færeyingar greiða ekki ríkis-
skatt, en nær allur okkar inn-
flutningur kemur frá Danmörku
og fjórði hluti allra yfirmanna í
danska kaupskipaflotanum er frá
Færeyum, þrátt fyrir að það sé
engum erfiðleikum bundið með
að fá atvinnu í Færeyjum.
Færeyjar urðu á sínum tíma
ATHUGIÐ!
Þegar miðað er við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
Séra Johan Nielsen
sambandsríki af efnahagsástæð-
um, en nú horfir .öðruvísi við,
því að við erum ekki lengur háð
ir Dönum efnahagslega.
Fyrir 30 árum vildi enginn
kaupa hinar gullnu klettaeyjar,
en i’ dag er það víst, að mörg
stórveldi myndu fúslega greiða I Færeyinga vildi slita samband-
þjóðfélagsútgjöld Færeyja gegn
því að fá þar flotahöfn.
Væri ég haldinn metnaðargirni
gæti ég auðveldlega gerzt nýr
Fidel Castro. Ég hef skeggið, en
ekki metnaðargirnina.
Böndin sem binda okkur Dön-
um eru sterk, en ef meirihluti
inu, væri það hægt. En hjartað
hefur sínar ástæður, sem skyn-
semin ekki skilur.
Johan Nielsen var prestur í
Klakksvík fram til ársins 1964,
en nú er hann þjónandi prestur
í Kaupmannahöfn.
— Rytgaard.
Ijinheimía — Sendiferðir
Piltur eða stúlka óskast nú þegar haifan
eða allan daginn.
r 1
r... ludvig STORR i
L Á
Laugavegi 15.