Morgunblaðið - 19.10.1966, Síða 20

Morgunblaðið - 19.10.1966, Síða 20
r MORCU N BLAÐIÐ MiðvIJuidagur 19. okt. 1968 20 — Ræða Magnúsar Framhald af bls. 19 Nú mun um helmingi matsins lokið í kaupstöðum og um 80% í sveitum og kauptúnum, en mat inu mun naumast verða lokið íyrr en á árinu 1968. Stóraukinn kostnaður við ríkis- sjúkrahús. Kostnaður við ríkissjúkrahús- in hefur vaxið geysilega, eða sem svarar 62% frá fjárlögum þessa árs. Er þó gert ráð fyrir, að 100 kr. hækkun verði á daggjöldum sjúkrahúsanna frá næstu ára- mótum að telja. Langmest er hspkkunin á Landsspítalanum, sem starfar af mjög mikilli aukn ingu starfsliðs vegna nýrra deilda, er teknar verða í notkun í nýbyggingu spítalans. Mjög «rfitt er fyrir ráðuneytin að gera sér grein fyrir nauðsyn þess arar starfsmannafjölgunar og hefur því orðið að byggja al- gjörlega á áætlunum stjórnar- nefndar ríkisspítalanna. Það er enginn efi, að brýn þörf var umbóta á sjúkrahúsamálum og tiikoma nýrra sjúkradeilda nauð tynleg, en ég efast um, að menn geri sér til hlítar grein fyrir hin um gífurlega reksturskostnaði sjúkrahúsa, miðað við nútíma- kröfur um búnað og starfslið. Gert er ráð fyrir sérstakri 4 millj. kr. fjárveitingu til Lands- spítalans til tækjakaupa. En brýna nauðsyn ber til, að þetta aðalsjúkrahús landsins sé sem bezt búið tækjum. Hlutfallsleg kostnaðarhækkun er mest hjá Geðveikrahælinu að Kleppi eða rúmlega 85%. Gert er ráð fyrir ▼erulegri starfsmannafjölgun, sérstökum kostnaði við eftir- meðferð sjúklinga, er útskrifast hafa, og verulegum kostnaði við viðhald og endurbætur á sjúkra deildum, sem ekki má lengur dragast. í heimildagrein fjárlaga frumvarpsins er lagt til, að veitt sé heimild til kaupa á starfs- mannahúsi, ef hagkvæmt hús er fáanlegt, en gera má að öðru leyti ráð fyrir, að vandamál geð ejúklinga verði það næsta, er leysa þurfi, eftir að lokið er þeím stórframkvæmdum Lands- spítalans, sem nú er unnið að, og vonandi sést fyrir endann á að tveimur eða þremur árum liðn um. Rétt er að skýra frá því í þessu sambandi, að fallizt hefur verið á ósk Geðverndarfélags ís- lands um að félagið fái til sinna þarfa tekjur af auglýsingum, er ■ettar verði á eldspýtnabréf, er Afiengis- og tóbaksverzlun ríkis- Ins mun senn hefja sölu á. Er aetlunin að nota tekjurnar, t.f þess að koma upp sérstöku dvalarheimili fyrir geðveila, sem Þ6 eiga ekki heima á geðveikra- bselL Kostnaður við önnur ríkis ■júkrahús hækkar verulega, en Þó mismunandi mikið. Lagt er tfl að hækka fjárveitingu til byggingar sjúkrahúsa og sjúkra ■kýla um 4 millj. kr. og er þá hægt að fullnægja skyldufram- lögum í samræmi við gildandi 16g. Byggingaframlög til ríkis- ■pítalanna hækka um 10 millj. kr. og verður þó enn að gera ráð fyrir lántökum. Sjúkrahúsin eru svo dýrar ■tofnanir, að nauðsynlegt er að leita allra úrræða til að leysa þessar þarfir á sem hagkvæm- astan hátt. Þarf sérstaklega að gæta þess, að ekki séu fleiri að- llar að leysa sömu verkefnin og þarf af þeim sökum að vera sem nánust samvinna milli allra þeirra aðila, er að þessum þýð- ingarmiklu málum starfa. Vinn- ■r dómsmálaráðuneytið og hag- •ýslustofnun fjármálaráðuneyt- isins nú að ýmsum athugunum á þessu sviði. Ekki verður hjá því komizt að nefna hér samninga þá við lækna á rikisspítölunum, sem gerðir voru á þessu ári og talið er að muni valda ríkisspítölunum út- gjaldaaukningu á næsta ári, sem nemi um 14,5 millj. kr. Því mið- wr verður að segja þá sögu, eins og hún er, að læknar neyttu hér þeirrar aðstöðu sinnar að hafa í bókstaflegri merkingu líf fjölda fóiks í sinni hendi og brutust ilTTkm’l Seoul 31 OCT-2 NOV j Banakok fSUMMIT f Honolulu 17-18 OCT WiH* / C0NFERENCE Manua Vy \23-27 OCl Kuala ð A mmpur V Wm 30-31 0CIm^. ► Pago Pago {Samoai 18 OCT ^ —^.Srweiimgion ✓ 19-20 OCT Myndin sýnir leið Johnsons forseta um Asíu, viðkomustaði og dvalartíma. Hiö nýja Asíufyrir- komulag Johnsons Verður SEATO vikið, en tvíhliða bandalög efld? JOHNSON Bandaríkjaforseti er nú lagður upp í hinu miklu Asíuför sína. Áður en forset- inn lagði af stað, hafði hann rætt um þörf á bættri sambúð austurs og vesturs í Evrópu, en þessari fyrstu umfangs- miklu utanlandsför í forseta- embætti ver Johnson hins- vegar til þess að ræða við vini og bandamenn i Asíu. Ljóst er, að val hans hefur markast af þeirri staðreynd, að í þingkosningunum í Bandaríkjunum, sem fyrir dyrum standa, verður Viet- nam eitt helzta umræðuefnið, en þetta gefur einnig til kynna hvar sé að leita þunga- miðju bandarískra utanríkis- mála eins og nú er komið. Evrópa er vissulega enn- þá mikilvæg, en Asía er hins- vegar í sviðsljósinu. í Washington gætir nú auk innar bjartsýni í þeim efn- um, að straumar stjórnmál- anna í Asíu séu að breytast Bandaríkjunum í viL Vera má, að bjartsýni þessi eigi sér ekki stoð í raunveruleikanum, en hún er hinsvegar ekki grundvölluð á horfum á skjót um friði í Vietnam, heldur fremur ákveðinna breytinga á stjórnmálastrat»mum á breiðum grundvelli. í því sambandi má nefna breytt viðhorf I Indónesíu, ákvörðun Sovétríkjanna um að hefja aftur afskipti af málefnum Asíu, hið stóraukna traust, sem vera fjölmenns banda- ríks herliðs í Vietnam hefur vakið þar í landi og úrslit nýafstaðinna kosninga þar. Síðast en ekki sízt er talið, að atburðir síðustu mánaða I Kína hafi orðið til þess að stjórnir margra Asíulanda telji sér stoð í nærveru Banda ríkjanna. Margt bendir til þess, að Johnson forseti og ráðgjafar hans virðist nú leita að eins- konar „heildarskipulagi" um málefni Asíu og Kyrrahafs. Þetta felst einkum í fjórum atriðum: 1. Endurskipulagningu og eflingu bandalaga Bandaríkj- anna við Kyrrahaf. 2. Tilkomu beltis hlutlausra ríkja, „hlutlausra en ekki af- skiptalausra" í SA-Asiu. Meðal þessara ríkja yrði e.t.v. S-Vietnam og jafnvel Thai- land. 3. Samkomulag við Sovét- stjórnina um framtíðarskipu- lag Asíu og áhrifasvæði stór- veldanna þar. 4. Sveigjanlegri afstaða gagnvart Kina. Eins og nú háttar málum eru allir varnarsamningar Bandaríkjanna við Kyrrahafs ríkin tvíhliða (bilateral), og má þar nefna samninga við Japan, Formósu og S-Kóreu. Einnig hafa Bandaríkjamenn takmarkaða svæðissamninga við Ástralíu og Nýja-Sjáland. Þá ber að nefna SA-Asíu- bandalagið (SEATO), sem stofnað var með Manilasamn- ingnum 1954. SEATO hefuT raunar verið fátt annað en ákveðin vernd Bandaríkjanna. Augljóst virð ist nú, að Waghington mun hafa í hyggju að láta SEATO víkja fyrir hinum bandalög- unum sem yrðu hernaðar- kjarni hins nýja Asíuskipu- lags. Ekki er líklegt að reynt verði að stofna umfangsmikið, formlegt bandalag á borð við NATO, heldur yrði aðal- áherzlan lögð á „Asíu fyrir Asíumenn“. Bandamenn Bandaríkjanna við Kyrrahaf yrðu hvattir til að hafa frum- kvæðið í málefnum Asíu, en herveldi Bandaríkjanna myndu þeir hafa að bakhjarli. Rússar hafa nú snúið við blaðinu frá því á dögum Krúsjeffs, sem lagði áherzlu á minnkuð afskipti af Asíu. >etta hefur nú orðið til þess að áhrif Rússa hafa aukizt aft ur verulega í N-Vietnam og N-Kóreu. í Washington er svo litið á, að hér sé ekki aðeins um að ræða lið í bar- áttu Moskvu fyrir hásætinu f heimi kommúnismans, heldur sé hér einnig um að ræða „svæðisbundið raunsæi" af þeirra hálfu. Sovétríkin reyna nú að treysta böndin við öll þau ríki á landamærum Kína, sem þau geta. A.m.k. virðast þau vilja forðast eins og heit- an eldinn, að Kína dragi þau inn í styrjöld eða deilu, sem Sovétríkin gætu ekki haft tögl og hagldir L En enda þótt Sovétríkin eigi sameiginlegra hagsmuna að gæta við Bandaríkin varð- andi að draga úr deilum og vopnaviðskiptum á hinum óstöðugu svæðum SA-Asíu, er ekki þar með sagt að þau muni ganga svo langt að tryggja formlega hlutlaust belti með Bandaríkjunum. í Washington er talið, að niður staða Vietnam-styrjaldarinn- ar verði skipting landsins á svipaðan hátt og Þýzkalands, þar sem friður ríkir, en hins- vegar pólitískt ósamkomulag. Það er m.a. með þessi mál i huga að Johnson forseti held- ur til Manila á Filippseyjum til þess að ræða við leiðtoga bandalagsþjóða Bandaríkj anna, þá Kittikachorn, for' sætisráðherra Thailands, Ky, forsætisráðherra S-Vietnam, Holt, forsætisráðherra Ástra- líu, Marcos, forseta Filipps- eyja, Park, forseta S-Kóreu, Holyoake, forsætisráð'herra Nýja-Sjálands og Abdul Rahman, forsætisráðherra Malasíu. Ráðstefnan í Man- ila mun standa dagana 23. til 27. október. i undan launakerfi ríkisins. Lækn- ar eiga vissulega allt gott skilið fyrir sín mikilvægu og erfiðu störf, en þeir gengu hér mun lengra en sæmilegt má teljast og er hér um al- gera nauðungarsamninga að ræða. Vafalaust munu ýmsir liggja ríkisstjórninni á hálsi fyrir það, að hafa ekki tekið á þessu máli með hörku, en ég hygg, að flestir muni þó við nánari athug- un sannfærast um það, að hér var ekki með góðu móti auðið að koma við þvingunaraðgerðum, enda eru kjarakröfur lækna að verða stórt vandamál í mörgum löndum og vaíasamt, að læknar hér hafi sýnt meiri óbilgirni en starfsbræður þeirra í ýmsum öðrum löndum. En þótt rétt sé að launa þessa mikilvægu stétt svo vel sem verða má, þá verður hún að eiga þá þegnhollustu við sitt litla þjóðfélag að beita það ekki fantatökum í skjóli aðstöðu sinnar. Eg skal ekki rekja þessa raunasögu nánar, en niðurstaðan varð sú, að gerður var sérstakur verksamningur við þorra lækna ríkisspítalanna, þannig að þeir; eru ekki lengur fastir ríkisstarfs- menn, heldur er vinna þeirra greidd eftir ákveðnum töxtum, sem samið var um, og er um mjög skamman uppsagnarfrest að ræða. Læknar þessir njóta ekki lengur réttinda sem opinberir starfsmenn og allar umræddar læknastöður eru raunverulega lausar, en tilgangslaust hefur þótt að auglýsa þær að sinni. Þessi stórbýlting á kjörum lækna hér í þéttbýlinu, eykur að sjálfsögðu enn á vanda strjálbýlisins að fá viðhlítandi læknisþjónustu og gerir að litlu þær mikilvægu úr- bætur, sem Alþingi hefur áður gert, til þess að bæta úr lækna- skorti í strjálbýlinu. Þrátt fyrir það, sem nú hefur gerzt, verður að vænta þess af hinum ágætu mönnum, sem skipa íslenzka læknastétt, að þeir leggi sig fram um í samráði við heilbrigðis- stjórnina að finna viðhlítandi úr- lausn á læknaskipunarmálum þjóðarinnar í heild. Bæta þarf skipulag á rekstri Skipaútgerðar ríkisins Lagt er til að verja á næsta ári 29 millj. kr. til Skipaútgerðar ríkisins. Er jafnframt í heimilda- grein lagt til að heimila að verja andvirði seldra skipa útgerðar- innar til kaupa á nýjum skipum og jafnframt að verja úr ríkis- sjóði eða taka að láni allt að 19 millj. kr., til þess að endur- nýja skipakostinn og bæta vörugeymsluaðstöðu útgerðarinn ar hér í Reykjavík. í síðustu fjár- lagaræðu lagði ég áherzlu á óhjá- kvæmilega nauðsyn þess að taka allan rekstur Skipaútgerðar rík- isins til gaumgæfilegrar endur- skoðunar með það í huga að draga úr hinum gífurlega rekstr- arhalla, sem hefur tvö síðustu árin verið yfir 40 millj. kr. á ári, Á liðnum árum hefur margoft verið gerð víðtæk athugun á rekstri skipaútgerðarinnar, en ekki hefur tekizt að fá fram- kvæmdar þær endurskipulagn- ingar, sem lagt hefur verið til að gera og hefur í þess stað hallinn vaxið ár frá ári. Nefnd var skip- uð á sl. ári til að gera tillögur um framtíð skipaútgerðarinnar. Sýnt var að gera yrði þegar bráðabirgðaráðstafanir, ef hinn mikli rekstrarhalli ætti ekki að halda áfram. Voru því snemma á þessu ári tilnefndir tveir menn, annar frá fjármálaráðuneytinu og hinn frá samgöngumálaráðu- neytinu til þess að annast yfir- stjórn útgerðarinnar, ásamt for- stjóranum, og var svo fyrir mælt, að þegar skyldu undirbúa ráð- stafanir til þess að draga veru- lega úr greiðsluhallanum, án þess þó að skera að nokkru ráði þjón- ustu Skipaútgerðarinnar. Var stjórnarnefndinni heimilað að selja tvö skipanna, Esju og Skjaldbreið, og í haust var síðan tekið á leigu færeyskt skip, Blik- ur, sem er nýtt og hentar mjög vel til þessara siglinga. Hvort úr ráði verður að kaupa þetta skip verður ekki sagt á þessari stundu, en vel getur það komið til álita, því að það er miklu ódýrara í rekstri en Esja, en bæði Esja og Hekla eru óheyri- lega dýr í rekstri og fráleit til strandsiglinga við núverandi að- stæður, enda þörfin ekki meiri' en svo, að Hekla hefur verið undanfarin sumur höfð í skemmti siglingum. Kann énda svo að fará af ýmsum ástæðum að hentara þyki að selja Heklu en Esju. Aðstaða Skipaútgerðarinnar við Reykjavíkurhöfn er hih bágborn- asta, sem Ijóst verður af því, að um 7 millj. kr. halli er á vöru- afgreiðslu hennar. Verður að gera á þessu nauðsynlega lag- færingu og jafnhliða að taka allt mánnahald fyrirtækisins og vinnubrögð til heildarendurskoð- unar. Reynt hefur verið að gera ?að tortryggilegt, að þessi end- urskipulagning á starfsemi Skipa útgerðarinnar þýddi óeðlilega skerðingu á strandsiglingum, en hér er ekki um það að ræða. Ein- hverjar breytingar strandsiglinga kunna að vera nauðsynlegar en að því er stefnt að tryggja nauð-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.