Morgunblaðið - 28.10.1966, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 28.10.1966, Blaðsíða 17
FBstuiJagur 99. ofct. Í999 MORGU N BLAÐIÐ 17 Hvað segja þeir í fréttum? MGB skammdeginu fara menn gjarnan að huga að lestr arefni, til að sitja með á dimmum kvöldum, og spjalla saman um bækur. Það heyr- ist að Halldór Laxness hafi þýtt bókina hans Hemming- ways um Parísarárin, að Ör- ligur sé að gefa út aðra Pró- fíla og Pamfíla, að tvær vand- aðar bækur séu að koma út eftir konur um vefnað á ís- lenzkum heimilum og hýbýla kost á miðöldum, að í ár fá- um við endurminningabækur eftir merka íslendinga, stjórn málamenn, leikara, hljómlist- armenn, kaupmenn o. s. frv. Á þessum árstíma eru það semsagt gjarnan bókaútgefend urnir, sem hafa eitthvað að segja í fréttum. Við ætlum því að spjalla við tvo úr þeirra hópi og spyrja þá hvað þeir segi í fréttum. Bókaútgáfu ekki hætt vegna tilkomu sjónvarpsins Arnbjörn Kristinsson, prent smiðjustjóra og útgefanda hjá Setbergi hittum við í prent- smiðju hans við Freyjugötu. Andrúmsloftið er allt annað og miklu rólegra í þessari prentsmiðju en í asanum hjá okkur. Þarna er allt árið ver- ið að prenta bækur forlagsins sjálfs og -nokkrar fyrir aðra og svo vönduð tímarit eins og Iceland Review, Birting og Áfanga, sem ekki má flýta sér um of með og eru því í takt við bókaprentun. Fyrsta umræðuefnið verður sjónvarp ið og bókaútgáfa. Mun sjón- varpið draga úr bókalestri? __ Ég ræddi þetta við bóka útgefendur í Bandaríkjunum, svaraði Arnbjörn. Reynsla þeirra var sú, að það eru tíma ritin, sem fyrst yrðu fyrir barðinu á sjónvarpinu, þegar það kæmi til sögunnar. Bæði minnkaði upplag tímaritanna og jafnframt auglýsingarnar í þeim. Dýru auglýsingunum í 7. millj. eintaka blöðum, eins og Saturday Evening Post, fækkaði t.d. svo að blaðið hætti að bera sig. Aftur á móti er bókaútgáfu ekki svo hætt af þessum sökum. Sjón- varpið getur þvert á móti auk ið sölu á bókum. f sjónvarpi hlýtur að vera fjallað um bók menntir, listir leikhús og þess- háttar. Og um leið og fjallað ér um ákveðna bók og hún sýnd, hefur það gífurleg á- hrif á sölu hennar. Einkum á þetta við um barnabækur, sem gjarnan er lesið upp úr í barnatímum sjónvarpsins. Ég hefi.því trú á að sjónvarp geti aukið áhuga á bókum. — Hefur útgáfa bóka minnk að eða aukizt? — Að magni til hefur bóka- útgáfa staðið í stað í mörg ár, titlarnir að fjölda til verið álíka margir og dagar ársins. En upplög bóka hafa breytzt. Þau eru almennt minni en fyrir 6-7 árum. Þetta á við fjöldann, Aftur á móti hefur upplag þeirra 10-15 bóka, sem á ári hverju skera sig úr stækk að. Þær geta selzt í 3000 — 5000 eintökum, þar sem með- alupplag annarra bóka er um 1800 eintök. — í þeim flokki eru oft vin sælustu æfisögurnar, er það ekki? — Jú, oft skera sig úr góðar æfisögur. Það er ríkt í þjóð- inni að kaupa æfisögur ís- lenzkra manna. Þarna kemur til einhver sögutilfinning. Þetta er annálaritun. Sama gildir um bækur um kunnar erlendar persónur, ef íslend- ingur skrifar þær, eins og t.d. bækurnar um De Gaulle, Churchill ,Kennedy, Schweitz er o.fl., sem við höfum verið með. Ekki svo að skilja að þýdd æfisaga geti ekki verið góð, en fólki finnst það eitt- Framhald á bls. 21 Gunnar Einarsson í Leiftri Fólk vill lesa það sem skemmlir en góð bók selzt - á mörgum árum Næst hittum við gamal- reyndan útgefanda, sem allt- af er með þeim fyrstu með bækur sínar á markaðinn að haustinu. Það er Gunnar Arnbjörn Krlstinsson Einarsson í Leiftri. — Á und- anförnum árum hefi ég gefið út 20-30 bókartitla á ári, sagði Gunnar, er við vorum setzt í skrifstofu hans í hús Leift- urs við Höfðatún. — Sumt er rusl og dót, en góðar bækur innan um. Ef ekkert sérstakt kemur fyrir verða það 30 bæk ur í ár. 15 eru þegar koranar út og 6 koma til viðbótar þessa viku. Ég læt barnabæk urnar gjarnan koma snemma, strax í september, svo þær verði ekki fyrir þegar aðal- jólasalan byrjar. — Já, ég gef út mikið af barnabókum. Margar þeirra eru í bókaflokkum, koma ár eftir ár, ganga svo út og aðrir koma í staðinn. T.d. eru bæk urnar um þær Hönnu og Möttu Maju nú búnar, en í staðinn koma Nancy og Dóra. Svo er til sögupersónan Bob Moran, sem er nokkurs konar nýmóðins Tarsan með hugar- fari Hróa Hattar. 13 bækur eru komnar um hann. Önnur vinsæl persóna er Kim. Ann ars höfum við í þetta sinn dá- lítið sérstaka barnabók. Fyrir 15 árum komu út 3 æfintýra bækur, sem hétu „Einu sinni var“. Þær seldust upp á skömmum tíma. Nú prentaði ég þær á ný allar í einni bók með myndum og hefi þær í sterku bandi. Einnig gefum við út litla bók með vísutn handa börnum að syngja um jólin. Margrét Jónsdóttir sér um hana og Halldór Péturs- son myndskreytir. — Ekki hugsarðu nú bara um börnin, Gunnar. — Nei, nei, ýmislegt er fyrir fullorðna. Æfisagan hans Sigurbjarnar Þorkels- sonar er t.d. að byrja. Fyrsta bindið nær fram til 1907 og hann er búinn að skrifa fieiri bindi. Svo er önnur æfisaga, að vísu erlend, um svertingj- ann Corver frá Bandaríkj- unum, sem fæddist í ánauð en varð þó einn af velgerðar- mönnum mannkynsins. Merk- ast af störfum hans var efna- greining á jarðhnetunni, sem fram að þeim tíma var aðeins notuð til svínafóðurs. Þá er bók er nefnist „Fátækt" og er talin ein af beztu bókum sem skrifuð hefur verið um lífið í Nýja Englandi. Árni Arnalds þýðir hana. Og svo Ljós í myrkrinu“ eftir Michel del Castillo í þýðingu Sigríðar Einarsdóttur frá Munaðarnesi. — Bíddu við, Gunnar? Þú ert með íslenzka kvenrithöf unda á þinni könnu, bæði nýj ar skáldkonur og gamalreynd ari. Segðu okkur nú eitthvað um hvaða konur þetta eru. — Eftir næstu mánaðamót kemur t.d. bók Steinunnar S. . Briem, sem heitir „í svip- myndum“ og er viðtöl við alls 100 manns. Þau skiptast lík- lega á 2 bindi. Þá skrifar ung verkakona, Steinunn Eyjólfs dóttir, skáldsögur . úr um- hverfi sínu og störfum og nefnir „Hið gömlu kynm“, Steinunn býr einhvers stað ar nálægt Hafnarfirði. Það er ábyggilega neisti í þeirvi konu en ég efast um að hún hafi góðar aðstæður til að viana að skrifum. Það hafði Guðrún frá Lundi reyndar heldur ekki þegar hún byrjaði. Hún er nú 78 ára gömul, og búin að skrifa 18 bækur, eina a ári frá því fyrsta bókin var gcf- in út og handskrifar allt. í ár er það framhald af bókinni frá í fyrra „Sólskinsdögum í Sellandi", og heitir „Dregur ský fyrir sólu“. Ég veit ekki um marga, sem eins og hún skrifa allt frá eigin brjósti, án þess að styðjast við ann- ála eða einhvers konar brot. Hún tekur fólkið sem hún þekkir og spinnur utan um það. það getur að vísu ekki orðið mikil fjölbreytni í því, þar sem fólkið í hennar um- hverfi er svipað hvað öðru. Þó eru alltaf atvik, sem skera sig úr. Bækur Guðrúnar voru þær af okkar bókum sem prentaðar voru í stærstum upplögum fram eftir árum. Þá gerði hún tvö axarsköft í góð mennsku sinni. Nýtt kvenna- blað fékk að birta eina af sögum hennar. Og árið eftir féll upplag bókar hennar um helming. Það þykir ekki gam an að gefa bók, sem búin er að birtast í blaði. Fyrir 4 -5 árum var mikil ásókn í að fá útgáfuréttinn að bókum Guðrúnar. En hún vildi ekki af því hún vildi láta mig, sem tók fyrstu bækur hennar, njóta þess. Þá fékk vinur hennar og sálusorgari, Helgi Konráðsson, hana til að birta sögu í „Heima er bezt“. Á- skrift blaðsins jókst um 2000 eintök. En að sama skapi minnkaði hjá okkur Guðrúnu. Samt sem áður selzt vel hjá okkur, svo ég græt ekki. — Þú hefur gert dálítið að því að taka bækur aí fólki, sem ekki er þekkt? — Ég hffi viljað að út- gáfan sé ekki eingöngu miðuð við hagstæða útkomu, held- Framhald á bls. 21

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.