Morgunblaðið - 28.10.1966, Page 21
Föstudagur 28. okt. 1968
MORGUNBLADID
21
■ Bókaútgáfu ekki
Framhald af bls. 17
hvað nær persónunni ef ís-
lendingur skrifar um hana.
— Nei, ég er ekki með
neina æfisögu frægs erlends
manns núna. En aftur á móti
þrjár æfisögur þjóðkunnra ís
lenzkra manna. Stefán Jóhann
Stefánsson skrifar sjálfur
fyrra bindi af endurminning-
um sínum. Ingólfur Kristjáns
son skrifar æfisögu Þórarins
Guðmundssonar, fiðluleikara,
og Ólafur Jónsson skrifar æfi-
minningar Brynjólfs Jóhannes
sonar.
— Jú, þetta eru ólíkar bæk
lir, enda ólíkar persónur.
Tveir eru að vísu listamenn,
en Stefán Jóhann er á öðrum
stað í þjóðlífinu. Þeir sem
þekkja Þórarin Guðmunds-
son vita að hann er spaug-
samur og glettinn, eins og
hann á kyn til. Sr. Árni Þór-
arinsson var móðurbróðir
hans, og kímni þeirra er stund
um ekki ósvipuð. Þórarinn
segir ýmsar skrýtnar sögur
i bókinni. T.d. þegar hann
rarð ástfanginn af konu sinni.
Þann kafla kallar hann „4ð
eltast við stelpu". Eggert bróð
ir hans og hann voru þá ný-
komnir til landsins og ætl-
uðu að fara með hópi manna
ríðandi til Gullfoss og Geysis.
Þórarinn hafði þá nýlega
kynnzt önnu. Þegar komið
var til Þingvalla, var Þórarinn
orðinn æði órólegur, sá að
úr því hann var ekki kominn
jtengra eftir allan þennan
tíma, þá yrði bið á því að
hann kæmist aftur í bæinn.
Samdi hann því við Eggert
tim að þeir sneru við. En þeg
ar í bæinn kom, var Anna þar
ekki, hafði farið upp á Akra-
nes. Þá sagði Þórarinn: —
Eggert bróðir, við þurfum
að halda konsert á AkranesL
Þeir héldu svo upp á Akranes,
þar sem Þórarinn fór með sína
elskuðu upp í kirkjuturn og
þar trúlofuðust þau.
Bók Brynjólfs Jóhannes-
sonar heitir „Karlar eins og
ég“ og er titillinn dreginn af
öilum þessum körlum, sem
hann hefur skapað á sviðinu
og er frægur fyrir. Brynjólf
þekkja aliir á sviðinu, en
ekki hans persónusögu, sem
fram kemur í bókinni.
Þá berst talið að barna og
unglingabókum, en Setberg
gefur út um 10 slíkar á ári.
— Okkar reynsla er sú, að
annaðhvort sé að gefa út
barna- og unglingabækur í
einhverju magni eða gera það
ekki. Þessar bækur gefa lítið
af sér, en á móti kemur að
þær seljast yfir lengri tíma.
Barnabók er sígild í sölu, því
alltaf vaxa upp ný börn. Auk
þess þarf vissa æfingu í að
velja þessháttar bók og er
ekki siður vandasamt en að
velja fyrir fullorðna. Núna er
ég með nýja fjölfræðibók, sem
nefnist „Veröldin og við“, og
er sama eðlis og sú sem við
höfum áður gefið út þ.e. fræð
andi í texta og myndum en
þó öðru vísL Freysteinn Gunn
arsson vinnur hana og stað-
setur, eins og fjölmargar aðr-
ar af bókum okkar. Hann vel
ur með okkur barna og ungl-
ingabækur og þýðir margar.
Mér hefur þótt mjög gott að
hafa slíkan mann, sem þekkir
börnin vel, og hefur frábært
málfar. Rétt mál og hæfileik-
inn til að aðlaga sig nútíma
málfari, finnst mér vera hans
sterka hlið.
í þessu sambandi drepum
við á nýja bók, sem Setberg
er með. Það er „Djákninn í
Sandey“, eftir Martin A. Han-
sen, sem Sveinn Víkingur hef
ur þýtt. Og á aðra nýja bók
eftir Svein Sæmundsson
„Menn í sjávarháska", sem í
eru 15 þættir um efni, sem
felst í titlinum .— Bókin hans
í fyrra, „í • Brimgarðinum“,
kom okkur mjög á óvart með
Söiu, segir Arnbjörn. Hú* er
alveg uppseld. Sve nú gefum
við út aðra.
Út frá því minnumst við á
bókaflokka og framhaldsbæk
ur. Arnbjörn segir að útgef-
endur á hinum Norðurlöndun
tun hafi sagt sér, að þegar
bókaflokkur er gefinn út, þá
megi ganga út frá því sem
vísu, að framhaldsbók seljist
10—13% minna. Þetta stafar
af þrennu: 1) Viss hópur hef-
ur orðið fyrir vonbrigðum 2)
Lesendur deyja frá því síðasta
bók kom út 3) Nokkur hopur
hefur ekki hugmynd um að
bindin séu fleiri en eitt.
Kvaðst Arnbjörn hafa farið
eftir þessu og minnkað upp-
lög framhaldsbóka. Og þetta
gtandi heima.
Og íslenzk bókagerð?
Hér, sem á svo mörgum svið
um þjóðlífsins, háir fámenn-
ið okkur. Það leiðir eðlilega
af sér takmarkaðan bókamark
að, takmarkaða möguieika.
Með þjóðum eins og þjóðverj
um, Svisslendingum, Englend
ingum og Frökkum eru sölu-
möguleikar bókar ekki bundn
ir við 2000 eintök, heldur frem
ur 20 þúsund eða 200 þúsund
eintök. Enda standa þsssar
þjóðir í fremstu röð um bóka
gerð, og að mínu áliti í þeirri
röð, sem ég taldi þær upp.
Okkar eigin bókagerð hefur
farið stórlega fram á síðustu
árum. Þar kemur einkum til
heilbrigð samkeppni bókaút
gefanda, stórbættur vélakost
ur bókaiðnaðarins og aukin
kunnátta íslenzkra teiknara,
prentara og annarra bókagorð
armanna.
— Fólk vill lesa
Framhald af bls. 17
ur líka gerð skil á hverju ári
a.m.k. einhverjum, ungum
eða gömlum, sem eru að
byrja. Annars er óhjákvæmi-
lega talsverð fjölbreytni í
efni svo margra bóka. T.d.
gefum við út núna bók um 15
íslenzkar íþróttastjörnur, sem
voru á toppinum fyrir nokkr
um árum með myndum og
æfiágripum. Og við erum með
ferðasögu. Danski mannfræð
ingurinn og ferðamaðurinn
Jens Bjærre segir frá ann-
arri ferð sinni til Nýja Gu-
ineu, þar sem hann hitti
marga ættflokka, sem hvítur
maður hefur ekki komið til
fyrr, að því er hann telur. Ég
tek þátt í útgáfu þessarar bók
ar með útgáfum á Norður-
löndum, en texti er prentað-
ur hér. Þá má nefna safn af
spakmælum og vísdomskor.n-
um eftir Yogananda, sem
Ingibjörg Thorarensen þýddi,
en eftir hana hefur áður kom
ið út bókin „Hvað er bak við
myrkur lokaðra auga“. Og ég
er ekki aðeins með bækur eít
ir íslenzkar konur. Guðmund-
ur Jónsson hefur skrifað
skáldsöguna „Prestskonan“.
Guðmundur fór ungur frá ís
landi, gerðist garðyrkj umað-
ur. Hann kom svo fullorðinn
heim og fór að vinna á Sauð-
árkróki. Hann tók sér íyrir
hendur að ýmsum merkum
mönnum væru reistir bauta-
steinar, svo sem Bólu Hjálm-
arL Guðmundi Hannessyni
o.fl. Hann hefur líka skrifað
og þetta er þriðja bókin hans
— Þetta er nú að verða
nokkuð mikið upptalning.
Segðu mér að lokum, hvers
konar bækur kaupir tólk
mest?
— Það er sama tilhneiging
hjá fólki sem les og þegar
maður sér. í leikhúsum og
kvikmyndahúsum er mest
sótt það sem skemmtir. Það
þarf að toga fólkið til að sjá
eða lesa það sem þarf að
brjóta til mergjar. Þó get ég
sagt íslenzkum lesendum bað
til hróss, að góð bók selzt, þó
það taki mörg ár. Léttmetið
selzt kannski vel fyrst, en svo
dettur sala niður. Svo mikið
berst á markaðinn af því á
hverju ári, að það fullnægir
þeim sem vilja. En alltaf er
til smekkfólk, sem velur góða
bók, hvort sem hún hefur
komið út í ár eða fyrr.
— Minning
Framhald af bls. 12
Ég man eftir Erlingi Pálssyni
frá því ég var unglingur hér í
bæ, og kom hann mér þá fyrir
sjónir, sem sannur víkingur, svo
djarfur og frjáls í framkomu,
eins og hann átti eftir að sýna
með þátttöku sinni í Nýárs-
sundinu og fannst mér hann
vekja þar mesta athygli, þó allir
hafi verið þar hinir mestu
kappar, og svo síðar þegar hann
vakti á sér athygli í Drangeyjar-
sundinu fræga.
Eftir að ég átti því láni að
fagna að starfa með Erlingi og
undir hans stjórn, þá kom það
fram, að þar var drengur góður
og með honum var gott að starfa.
Á ég í mikilli þakkarskuld við
hann, því ég tel að ég eigi svo
mikið honum að þakka alla vel-
gengni mína í starfinu. En það
eru fleiri en ég, því eins og kunn
ugt er, hefir hann verið forustu-
maður félagsmála, innan lög-
reglunnar og' var formaður lög-
reglufélagsins um 25 ára skeið.
Hann var þar, eins og hvar
sem hann kom fram, djarfur og
ákveðinn í sínum málflutningi,
og svo fundvís á það sem gat
komið andstæðingum úr jafn-
vægi, en þó aldrei grófur. Hann
var ætíð hvetjandi í öllum góð-
um málum, og ég tel það hafa
verið fyrir mjög ákveðna hvatn-
ingu frá honum, þegar svo var
komið, að honum fannst menn
í lögreglukórnum orðnir hug-
deigir með að taka þátt í söng-
móti í Svíþjóð, sem lögreglu-
kórnum hafði verið boðið að
taka þátt í að við fórum á mótið
og svo síðar í Noregi 1961. f
framhaldi af því héldum við svo
okkar söngmót á sl. sumri, sem
tókst í alla staði vel, og var að
mínu áliti, okkur til sóma.
Það var gaman að vera með
Erlingi í samkvæmum, eða í af-
mælisfagnaði félaganna, því
hann var fróður og hafði þá frá
mörgu að segja, og var þá óspar
á ræðuhöld. því hann var mikill
ræðumaður, og gat hvar sem
var, staðið upp og talað, undir-
búningslaust.
Ég læt aðra um það að rekja
ættir Erlings Pálssonar, en ég vil
um leið og ég þakka honum allt,
sem hann hefir fyrir mig gert,
og um leið mjög ánægjulegt
samstarf í meir en 35 ár, óska
honum góðrar ferðar inn á hið
nýja tilverusvið, þar sem tekur
við framhald þessa lífs.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Konu hans, Sigríði Sigurðar-
dóttur, dætrum, barnabörnum,
bræðrum og öllum í hans fjöl-
skyldu votta ég innilega hlut-
tekningu mína.
—Alþingi
Framhald af bls. 8
ir á sektum. Þær eiga að vera
það miklar, að menn leggi ekki
í að veiða í landhelgi, en nú
er um óheyrilega ágengni að
ræða í landhelgina, og veiði-
þjófnaður bæði hjá erl. og innL
aðilum.
Þá þykir mér einnig ábóta-
vant, að mönnum er fært að fá
veiðarfærin strax gegn trygg-
ingu. Það verður til þess, að
margir geta fiskað upp í kostn-
að, strax og út er komið, og
því ekki svo hættulegt að verða
tekinn. Að mínu áliti á að vera
óheimilt, að afhenda veiðarfær-
og alls ekki á að gefa kost á
því að kaupa þau fyrr en eftir
mánuð. Hliðstæð ákvæði gilda
hjá öðrum þjóðum, og fyrir
skemmstu las ég það, að norsk-
ir bátar voru teknir í brezkri
landhelgi. Voru þeir sektaðir
nokkuð, en veiðarfæri gerð upp
tæk, og enginn kostur var að
fá þau aftur.
Breytingarnar eiga að verða
til þess, að það fæli menn frá
því að stela fiski íslendinga.
Jóhann Hafstein (S): Það er
auðvitað margt álitamál í þess-
um efnum, og sjálfsagt er að
athuga tillögur hv. þingm. Ég
vil benda honum á, að nú er
upptekið, að samhliða sekt megi
einnig beita upptöku í skipi eða
hluta þess, þannig, að í raun
og veru er um að ræða meiri
hækkun á sektum, en þær gefa
til kynna. Dómstólar munu nota
upptökuheimild, t.d. ef ástæða
Þá er það einnig nokkurt vanda
þykir til að refsa meir en sekt
leyfir.
Það kom til álita að taka upp
tillögu hv. þingm. varðandi hald
á veiðarfærum. En horfið var
frá því ráði, aðallega vegna
þeirrar umsagnar Saksóknara,
að vafasamt væri að hafa þann
hátt á, t.d. ef sakfelling yrði
í héraði en sýknað í Hæsta-
rétti. Vel má þó kanna betur
ákvæði laga annarra landa i
þessu sambandi.
Að lokinni umr. var málinu
vísað til annarrar umr. og liefnd
ar.
Þá var einnig atkvæðagreiðsla
um lögin um lausn þjónadeil-
unnar. Var samþykkt með 2«
atkv. gegn 3 að vísa málinu til
annarar umræðu, og samþykkt
einnig að vísa málinu til Alls-
herjarnefndar með 20 atkv. gegn
Matthías Sveinbjörnsson
varðstjórL
JAMES BOND
James Bond
IY IAN FLEMIN6
ORAWINS BY JOHN McLUSKY
Eftii IAN FLEMING
— Heyrðu, Bond, við erum eltir — og
meira en það, það er annar fyrir framan
okkur. Við erum á milli tveggja elda.
— Ef þú borgar fyrir tjón á bílnum, ef
eitthvað verður að, á ég þá að hrista þá
af mér?
Skyndilega steig Ernie Cureo i hemt-
ana og Jagúarinn á eftir okkur ók á annaV
brettið á bílnum okkar.
Teiknari-
M O R A
Hásetinn slær frá sér af krafti . . . en
ekki í höfuð skipstjórans. Hann gefur
bófaforingjanum Álfi þvilikt högg, að
hann dettur um meðvitundarlaus. — Þetta
hef ég iengi þráð! hrópar hásetinn.
Þriðji bófinn ræðst þá á hásetann. —
Ertu genginn af göflunum, maður! Að slá
foringjann!
En hásetinn ógnar eldsnöggt bófanum
með gömlum framhlaðning.
— Hættu! Við vorum einu sinni góðir
félagar . . . ég gef þér 10 sekúndur til a•
snáfa í burt! Ég hef fengið nóg af þessaii
skitnu vinnu og ekki fengið önnur laua
M spörk og dónaskap.