Morgunblaðið - 18.11.1966, Page 19
Föstudagur 19. nóv. 196ö
MORGb NBLAÐIÐ
19
y
Henrik W. Ágústsson
Minningnrorð
HENRIK W. Ágústsson var fædd
<ur í Rekjavík þann 19. marz
1905. Foreldrar hans voru þau
ihjónin Ágúst Sigurðsson prest-
smiðjustjóri og Ingileif Bartels,
eru ættir þeirra eldri Reykvík-
ingum kunnar. Henrik ólst upp
f ástríki á heimili foreldra sinna
ásamt bræðrunum Sigurði raf-
virkjameistara og Haraldi iðn-
skólakennara. Á yngri árum tóku
ellir bræðurnir mikinn þátt í
skátafélaginu. Ríkti þá oft mikið
íjör og glaðværð kringum heim-
llið. Mun Henrik ekki hafa átt
minstan þáttinn í því, vegna
gamansemi sinnar og hug-
kvæmni. Skátahreyfingin mun
snemma hafa heillað hann, enda
átti útilíf og ferðalög ávallt rik
ftök í honum, var hann og úr-
ræðagóður og skemmtilegur
ferðafélagi. í>egar Ágúst faðir
bans setti á stofn sína eigin
prentsmiðju árið 1922 hóf Henrik
þar nám, sem hann lauk árið
1926 og hafði því starfað óslitið
við prentiðn í 40 ár frá því hann
lauk námi. Prentsmiðjan var
fyrst til húsa í Pósthússtræti,
þar sem Hótel Borg stendur nú,
en fluttist þaðan í Austurstræti
3)2 í hús Júlíusar Björnssonar raf
Virkjameistara. Þegar verzlun
Júlíusar þurfti á auknu hús-
rými að halda árið 1951 flutti
prentsmiðjan öðru sinni og þá
S Mjóstræti 6. Ætla mátti að sú
breyting kynni að draga nokkuð
ár viðskiptunum, svo reyndist þó
ekki, þvert á móti varð þetta
mikið gæfuspor, bæði fyrir við-
gang prentsmiðjurnnar og Hen-
rik sjálfan, sem þá hafði tekið
við stjórn fyrirtækisins eftir
föður sinn. Húsráðendur í Mjó-
Btræti 6 reyndust Henrik frábær-
lega vel og mat hann það alla
tíð mikils. Þeir gerðu honum
iært að festa kaup á húsnæði
því, sem prentsmiðjan er í og
sköpuðu með því aukið öryggi
fyrir rekstri fyrirtækisins. Áreið
anleiki og orðheldni Henriks öfl
wðu fyrirtækinu traust og virð-
íngar. Ef hann lofaði einhverju
verki, var óhugsandi að því yrði
ekki lokið á réttum tíma, algeng
ara var, að verkið væri tilbúið
fyrir umsamdan tíma. Varla er
eð efa, að þessir góðu eiginleikar
munu fylgja sonum Henriks, sem
báðir starfa við prentsmiðjuna
Og taka nú við rekstri hennar að
föður sínum látnum.
| ■ Henrik var fyrir margra hluta
sakir óvenjulegur og sérstæður
maður. Af mörgum mun hann
hafa verið talinn sérvitur. Satt
er það, að í ýmsum efnum fór
hann sínar eigin götur og lét
sig þá engu skipta hvað aðrir
höfðu um það að segja. Ef hann
hafði tekið fasta ákvörðun fylgdi
hann sannfæringu sinni og gerði
það eitt, sem hann taldi rétt vera.
Skoðun sína setti hann fram hik-
laust og án allra umbúða við
hvern þann, sem hann átti skipti
við. Áberandi þáttur í lífi Hen-
riks var góðvilji og löngun til að
liðsinna og leiðbeina öðrum.
Benti hann þá oft á það, sem
hann taldi að betur mætti fara.
Ýmsir munu hafa misskilið þessa
framkomu hans og talið hana
óviðeigandi afskiptasemi.
Frændrækni hans var alveg
sérstök. Honum var það mikið
áhugamál að stuðla að því að
bönd frændseminnar rofnuðu
ekki. Sjálfur heimsótti hann
frændalið sitt oftar en nokkur
annar og sýndi skyldfólki sínu
sérstaka umhyggju. Nýverið
heimsótti hann heimili mitt
vegna þess, að langþráður draum
ur hafði orðið að veruleika. Fögn
uður hans af þessu tilefni var
svo barnslega einlægur og inni-
legur, að því var líkast að hon-
um sjálfum hefði fallið eitthvað
stórt í skaut. í þessu sambandi
fékk ég líka eins og svo oft
áður, að reyna frábæra hugsunar
semi og hugkvæmni hans. Mér
varð þá að orði við hann: Eng-
um ertu líkur Henrik Ágústsson,
það hygg ég að satt muni vera.
Fáa eða enga hefi ég þekkt,
sem heimsótt hafa sjúka og aldr-
aða eina og hann. Mörgum mun
hann hafa rétt hjálparhönd, án
þess að aðrir vissu. Sjaldan mun
Henrik hafa verið glaðari en þeg
ar hann lék við börn, las fyrir
þau og sagði þeim sögur. Þótti
mörgum þeirra því gott til hans
að leita. Henrik hafði yndi af
bókum og las töluvert. Kærust
bóka var honum Biblían og vildi
hann í einlægni tileinka sér boð-
skap hennar. Útbreiðsla hennar
og lestur var honum mikið áhuga
og alvörumál. Sjálfur átti hann
þátt í útgáfu smárita, sem hvöttu
til lesturs Orðsins. Sitt trúarsam
félag átti hann aðallega hjá
Hjálpræðishernum, þar sem hann
naut margra góðra stunda og
eignaðist þar vinL
Henrik kvæntist þann 9. maí
1936 eftirlifandi eiginkonu sinni
Gyðu Þórðardóttur Geirssonar,
lögregluþjóns. Eignuðust þau
hjón þrjú börn: Nönnu Guðrúnu,
Ný skósending
Fjölbreytt úrval.
SÓLVEIG, Hafnarstræti.
MENNEN SKIIM BRACER
I#
ÁVALLT EFTIR RAKSTURINN!
gifta Gísla Svanbergssyni; Ragn-
ar Jóhannes og Þórð Ágúst, sem
báðir hana numið prentiðn og
starfa við prentsmiðju þá, sem
Henrik svo lengi veitti forstöðu.
Sjö ára gömul kom til þeirra
hjónanna Guðrún Björgvinsdótt-
ir, bróðurdóttir frú Gyðu, og
gengu þau henni í foreldrastað.
Guðrún er gift Jóhannesi Eiríks-
syni.
Henrik var góður heimilsfaðir
og lét sér mjög annt um hagi
heimilisins, fóru barnabörnin
heldur ekki varhluta af því. —
Hann var og gestrisinn og góður
hjónin mjög samhent í þeim efn
heim að sækja, enda voru þau
um, sem flestum öðrum.
Henriks mun lengi verða
minnzt og hans saknað, ekki
aðeins sem sérstæðs og sjálf-
stæðs persónuleika, heldur sem
ættrækins frænda og góðs vin-
ar. Söknuður nánustu ástvinanna
mun að vonum verða sárastur
við hið sviplega fráfall hans, en
hann lézt í Borgarspítalanum
þann 11. þessa mánaðar. Efst í
huga þeirra mun þó fyrst og
fremst búa þakklæti, sem bezt
mun túlkað með þessum orðum
Ritningarinnar: Drottinn gaf og
Drottinn tók, lofað veri nafnið
Drottins. Frændi.
HENRIK frændi minn lézt hér í
bæ föstudaginn 11. þ.m. 61 árs
að aldri.
Henni frændi, eins og hann
var ávallt kallaður, var einkar
frændrækinn, og gætti þess vel
að muna afmælisdaga hinna
mörgu frændsystkina sinna;
hafði gaman af að hitta frænd-
fólk sitt, og fylgjast með því
í gleði og sorg. Mér er hann sér-
staklega minnisstæður fyrir
hina sérstaklega skemmtilegu
frásagnargáfu hans, sérstaklega
lét honum vel að endursegja
sögur, er hann hafði lesið á
yngri árum okkar, og man ég
nokkrar þeirra enn.
Henrik frændi var alla tíð
hinn góði drengur, sem í öllu
vildi rétt gera, stundum svolítið
barnalegur, og mun oft hafa
verið misskilinn vegna hrein-
skilni sinnar og ákveðni. Hann
hafði mjög gaman af ýmsu
föndri, safnaði ýmsu sem nú
máske er ekki talið til verald-
legra verðmæta, átti t.d. gott
safn ýmissa bifreiðalíkana og
þessháttar. Henrik starfaði í
mörg ár innan skátahreyfingar-
innar, og átti ég þar samleið
með honum og bræðrum haris
um tíma.
Snemma byrjaði Henrik að
vinna við prentiðnina hjá föður
sínum, Ágústi Sigurðssyni, sem
var með fyrstu prenturum hér í
bæ, hann eignaðist síðan prent-
smiðjuna, sem hann rak síðan til
dauðadags. Ég held að á engan
sé hallað ef ég staðhæfi að Hen-
rik hafi verið einhver allra
samvizkusamasti í þeirri iðn,
prentiðninni. Fór þar saman
vandvirkni, orðheldni og heið-
arleiki, og ekki hvað sízt reglu-
semi sem hvarvetna blasti við
er komið var í prentsmiðju
P.Á.S. Synir hans tveir Ragnar
Jóhannes og Þórður hafa nú 1
nokkur ár starfað í prentsmiðj-
unni, báðir útlærðir prentarar,
og hafa að því er bezt verður
séð, alla hina mörgu og góðu
kosti föðurins. -
Henrik giftist hinni ágætustu
konu, Gyðu Þórðardóttur, og
áttu þau auk sonanna eina dótt-
ur, Nönnu Guðrúnu, sem er út-
lærð hjúkrunarkona, gifta, settx
á tvö börn. Heimilislíf fjölskyld-
unnar var með slíkum ágætum,
að sjaldgæft mun vera, reglu-
semi í hvívetna, og ekki hefi ég
séð samhentari bræður en þá
Ragnar og Þórð, svo og alla fjöl-
skylduna. Eina fósturdóttur ólu
þau hjón upp, Guðrúnu, frænku
Gyðu.
Öllum ástvinum Henriks sendi
ég hlýjar samúðarkveðjur, eu
mlnningin um góðan og heil-
brigðan dreng mun lifa í hugum
margra, um leið og við kveðjum
hann í dag.
Vertu sæll frændi, hafðu þökh
fyrir samfylgdina.
Sigurður Jónsson.
yFarfuglinn4
Tíu árgangar
komnir út
Út er komið blað Bandalags
ísienzkra Farfugla, Farfuglinn 2.
tbl. 10. árg. Af efni blaðsins má
nefna: Myndatökur á þremur
fótum, Flórulisti úr Þórisdal, Ref
irnir á Hveravöllum, Keypti öku
leyfi fyrir tíu shillinga (viðtal
við Bjarna í Túni), Örnefna-
þáttur um Búrfell o. fl., Úr mal-
pokanum, skýrslur um alþjóða-
þing og Norðurlandamót Far-
fugla og skrá um ferðir Far-
fugla á síðastliðnu sumri.
Með þessu tbl. lýkur 10 árg.
Farfuglsins og fylgir ítarlegt
efnisyfirl.it yfir allt, sem birzt
hefur í blaðinu. Frágangur blaðs
ins er vandaður.
i> Asparagus
• Oxtail
• Mushroom
• Tomato
• Pea with Smoked Haxa
• Chicken Noodle
• Cream o£ Chickea
• Veal
• Egg Macaroni Shells
• 11 Vegetables
• 4 Seasons
• Spring Vegetable
Bragðið leynir sér ekki
MAGGI súpurnar frá Sviss
eru hreint afbragð
MAGGI súpurnar frá Svíss eru búnar til eftir upp-
skriftum frægra matreiðslumanna á meginlandinu,
og tilreiddar af beztu svissneskum kokkum. Það er
einfalt að búa þær til, og þær eru dásamaðar af
allri fjölskyldunni. Reynið strax í dag eina af hiniun
átján fáanlegu tegundum.
MAGGI
SÚPUR
FRÁ
SVISS