Morgunblaðið - 03.12.1966, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 3. des. 196«
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjórnason frá Vigur.
Matthías Joirannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
í lausasölu kr. á mánuði innanlands.
Áskriftargjald kr. 105.00 7.00 eintakið.
FJÁRHA GSÁÆTL UN
REYKJA VÍKUR-
BORGAR
F'járfiagsáætlun Reykjavík-
urborgar fyrir árið 1967
var lögð fram í borgarstjórn
Reykjavíkur sl. fimmtudag
til fyrstu umræðu. Það sem
einkum vekur athygli við
þessa fjárhagsáætlun er, að
'hækkanir tekju- og gjalda-
liða eru minni en verið hef-
ur miili ára nú um skeið.
Þannig er áætlað, að útsvars-
upphæðin hækki um 17,7%,
en á fjárhagsáætlun yfirstand
andi árs hækkaði hún um
23,8% frá árinu áður. Áætlað
er, að rekstrargjöld hækki
um 18.6% en hækkun rekstr-
argjalda 1966 frá fyrra ári
nam hins vegar um 25%. —
Gjöld á eignabreytingarreikn
ingi eru áætluð 9,3% hærri
en á yfirstandandi ári, en á
fjárhagsáætlun þessa árs
hækkuðu þau gjöld um 18%
frá fyrra ári Þessi þróun er
eðlileg afleiðing ríkjandi við-
horfs í efnahagsmálum þjóð-
arinnar og hefur borgarstjórn
Reykjavíkur ekki talið fært
að áætla tekju- og útgjalda-
aukningu jafnháa og undan-
farin ár af þeim sökum.
Borgarstjóri, Geir HaH-
grímsson, flutti ræðu við
fyrstu umræðu um fjárhags-
áætlun borgarinnar og gerði
hann í þeirri ræðu þrjá fyr-
irvara, sem ástæða er til að
undirstrika sérstaklega. í
fyrsta lagi gerði borgarstjóri
þann almenna fyrirvara, að
ef hin áætlaða upphæð út-
svara og aðstöðugjalda næð-
ist ekki að óbreyttum álagn-
ingarreglum útsvara og ó-
breyttri gjáldskrá aðstöðu-
gjalda, væri ekki annað fyrir
hendi en að taka fjárhagsá-
ætlunina upp til endurskoð-
unar á miðju ári og draga úr
fjárframlögum til gatna- og
Iholræsagerðar og framlögum
á eignabreytingarreinkingi,
er næmi mismuninum. í öðru
iagi vakti borgarstjóri at-
hygli á sívaxandi vandamál-
um Bæjarútgerðar Reykja-
vfkur, og sagði að ef frekari
skuldbindingar Bæjarútgerð-
arinnar féllu á borgarsjóð á
næsta ári, væri ekki önnur
leið fær til þess að standa
við þær skuldbindingar ,en
að draga úr fjárframlögum
ftil verklegra framkvæmda,
sem því næmi. í þriðja lagi.
sagði borgarstjóri, að ekki
væri unnt að hafa hraða
framkvæmda meiri en svo,
að það væri í samræmi við
greiðslufjárstöðu borgarinn-
ar, og benti í því sambandi
á þá staðreynd, að hinn 1.
des. sl. höfðu innheimzt 62,1
% af álögðum útsvörum og
aðstöðugjöldum, og mætti
segja, að hélmingur af tekj-
um borgarinnar kæmi inn
frá 1 .okt. til ársloka.
Borgarstjóri tók skýrt fram
að með þessu móti vildi
Reykjavíkurborg fyrir sitt
leyti stuðla að jákvæðum
árangri verðstöðvunarstefnu
ríkisstjórnarinnar, en ofan
greindir fyrirvarar væru því
skilyrði bundnir að kaupgjald
og verðlag breyttist ekki frá
því sem nú er.
í heild má því segja, að
mikil varúð vegna núverandi
viðhorfa í efnahagsmálum
þjóðarinnar einkenni f járhags
áætlun borgarstjórnarmeiri-
hlutans að þessu sinni, og er
vissulega ástæða til að fagna
þvL Verðstöðvunarfrumvarp
ríkisstjórnarinnar liggur fyrir
Alþingi og það liggur ljóst
fyrir, að takist samningar við
verkalýðsfélögin um festingu
kaupgjalds um skeið, er ekki
hægt að búast við eins mik-
ildi tekjuaukningu milli ára
og verið hefur undanfarið.
Það er þess vegna hyggileg
stefna hjá borgarstjórnar-
meirihlutanum að fara var-
lega í sakirnar að þessu sinni
og jafnframt eðlilegir þeir
fyrirvarar, sem borgarstjóri
gerði í sambandi við fjár-
hagsáætlunina.
Framkvæmdir á vegum
borgarinnar hafa verið mjög
miklar á undanförnum árum,
og umsvif hennar á ýmsum
sviðum aukast stöðugt. Starf-
semi borgarinnar hlýtur þó
að miðast mjög við gjaldgetu
borgarinnar, og meirihluti
sjálfstæðismanna í borgar-
stjórn hefur jafnan litið svo
á að halda yrði skattheimtu
á borgarana innan hóflegra
takmarka.
HÆSTU
GJALDALIÐIR
Athyglisvert er að kanna í
hverju hækkun á rekstr-
arútgjöldum Reykjavíkur-
borgar á fjárhagsárinu 1967
liggur fyrst og fremst. Rekstr
arútgjöld hækka um rúmlega
123 millj. eða 18.6% en mest-
ur hluti þeirrar hækkunar
eða 85,5% er vegna hækkun-
ar á fjórum gjaldabálkum.
Þessir gjaldabálkar eru, fé-
lagsmál, sem hækka um 33.8
James Bond banda-
rísku leyniþjónustunnar
Kafteinn James Harold Bond, fyrir framan auglýsingamynd
BOND var að fara að hátta.
Hann hafði eytt deginum í að
skjóta dúfur með Walther
skammbyssunni sinni, og nú
þegar breytan var að loka
augum hans skreið hann and-
varpandi undir sængina og
teygði úr sér.
—• Brrrring. Hávær og
frekjuleg símhringing vakti
hann. — Halló, kafteinn
James Bond talar, umlaði
hann.
— ó, halló elskan, sagði
hunangssæt kvenmannsrödd,
— mig langar svo óskaplega
til þess að sjá þig einhvern
tíma fljótlega.
Bond var undrandi. —
Væri yður sama þótt þér segð
uð til nafns.
— Þetta er Pussy Galor, ég
mælist 42—26—38. Heimilis-
fangið er 4122 Goethe Drive.
Hvenær fæ ég að sjá þig?
Ðond pressaði símtólið upp
að eyranu. Hann heyrði hlát-
ursskríkjur, og skildi þá óð-
ara hvað var á seyði.
— Það er fallegt af yður
að hringja, en nú skulum við
hætta þessari vitleysu, svo að
ég geti sofið í friði.
Þetta var etkki í fyrsta
skipti sem James H. Bond,
kafteinn í upplýsingaiþjón-
ustu hersins í Baltimore, varð
fyrir slíku ónæði. Og heldur
ekki síðasta.
Satt að segja var þetta
bara einn af mörgum furðu-
legum atburðum sem kaft-
einninn hafði upplifað síðan
hinn ómótstæðilegi njósnari
James (007) Bond, skaut upp
kollinum. Kaft. Bond, sem
býr með konu sinni Lorette
og fjórum börnum í Essex
fær að meðaltali tvær upp-
hringingar á viku, frá fólki
sem kynnir sig sem Dr. No,
Goldfinger, Kissy Suziki eða
Pussy Galore.
Það líður varla sú vikan
að ekki rekist einhver „fynd
inn“ náungi á nafmð hans
í símaskránni og hóti hon-
um sviplegum dauða eða ægi
legum pyntmgum. Og ekki
er það mikið betra í vinn*
unni. Félagar hans virðast
vera óþreytandi í því að
finna upp allskonar brand-
ara í sambandi við nafnið,
og ein vélritunarstúlkan sem
sýnilega er mikill Bond aðdá-
andi andvarpar alltaf „Ooooh
Ooooh Seven,‘ þegar hann
gengur framhjá. Og í /erzl-
unarferðum og bönkum er líf
ið líka eins og martröð. Ef
hann skrifar ávísun starir
fólkið á hann stórum augum
og segir: —■ Ertu að grínast?
—• Það er svo komið að ég
er farinn að skrifa mig James
Harold Bond, bara til þess að
af 007
komast hjá þessu, ssgir hinn
stuttklippti hermaður mæðu-
lega.
Kaft. James Bond er fljótt
á litið ekki ósvipaður hinni
milljón dollara persónu lan
Flemings. Báðir hcifa mikinn
áhuga fyrir skotvopnum. Auk
Walther skammbyssu sinnau:
á kafteinninn 22 cal.. riffil og
tvíhleypta haglabyssu. Mun-
urinn hinsvegar er sá að kaft
einninn veiðir dúfur, endur
og kanínur, meðan veiðileyfi
brezka leyniþjónustumanns-
ins gildir fyrir fólk. Báðir
stunda atvinnu sem er svo
leynileg að þeir mega ekki
einu sinni trúa sínum nán-
ustu fyrir neinu. í kafteins-
ins tilfelli er það konan hans,
en hjá 007 er það ástkvenna-
sægurinn.
Báðir hafa með hernaðar-
leyndarmál að gera. Hinn
ameríski kennir „styrjatdar-
njósnir" og að ráða framúr
ljósmyndum, en hinn brezki
stelur því sama. Báðir eru
oft á tíðum staðsettir þar
sem hættan er mest, og báðir
líða fyrir það. Kaft Bond var
til dæmis á hóteli í Saigon,
þegar Viet Cong skæruliðax
sprengdu 200 pund af diyna-
mýti undir því. Sprengingin
drap tvo menn. Og hvað segir
svo James Harold Bond um
007:
— Hann virðist vera karl-
menni að öðru leyti en því
að hann drekkur of mikið og
skortir sjálfsstjórn. í minni
fjölskyldu drekkum við ekki,
dönsum ekki og erum ekki
seint á ferli. Við krefjumst
hlýðni af börnum oikkar og
þau sýna okkur hlýðni. Kaft-
einninn dáist að tryggð 007,
við yfirboðara sína, en segir
hinsvegar ævintýri hans vera
nokkuð ýkt. Og nafnið
getur stundum komið sér vel.
T.d. ef hann er með hóp af
nýliðum þá þarf ekki nema
einn brandara um það, og ís-
inn er brotinn. Á hinn bóg-
inn eru svo þessar síma-
hrmgingar á nóttunnL
millj., en fé'lagsmálaliðurinn
er nú hæsti gjaldliður á fjár-
hagsáætlun Reykjavíkurborg
ar, nemur um 244 mil'lj., en
iþar af er framlag til almanna
trygginga 117,3 millj. Gatna-
og holræsagerð hækkar um
30,2 millj. en hei'ldarframlag
til gatna- og holræsagerðar
er 190,9 millj. Hreinlætis- og
heilbrigðismál hækka um
23,9 millj. en heildarframlög
til þess liðs er 104,6 mi'llj. —
Loks hækka svo fræðslumál
um 17,5 mi-llj.
Mikill hluti þeirra hækk-
ana ,sem verða á rekstrarút-
gjöldum borgarinnar á
hverju ári eru vegna lög-
bundinna hækkana, sem ekki
verður komist hjá, og aukinn-
ar og bættrar þjónustu á þess
um sviðum af hálfu borgar-
innar.
í STUTTU MÁLI
Moskva 2. des. — AP.
Georgi K. Zhukov, marskálkur
er sjötugur í dag. Hann er einn
kunnasti hermaður Sovétríkj-
anna í heimstyrjöldinni síðari. f
dag var honum veitt Leninorð
an. Krúsjeff setti Zhukov úr
embætti varnarmálaráðherra
1957, og töldu þá flestir, að hann
ætti sér ekki viðreisnar von.
Nýju valdhafarnir í Kreml hafa
nú veitt honum uppreisn.