Morgunblaðið - 18.12.1966, Síða 3

Morgunblaðið - 18.12.1966, Síða 3
Sunnudagur 18. des. 1966 MORCUNBLAÐIÐ Deilt um lögheimili vegna útsvarsskyldu 1». 11. nóvember sl. var kveð- tnn upp í Hæstarétti dómur í máli, er bæjarsjóður Sauðár- króks höfðaði gegn Jóni Bald- urssyni, nú til heimilis í Reykja vík, þar sem deilt var um út- Bvarsskyldu stefnanda. Málavextir eru þeir, að við útsvarsálagningu árið 1961, en þá var lagt á vegna teikna árið 1960, var lagt útsvar á Jón Bald- ursson á Sauðrárkróki að fjár- hæð kr. 5.900.00. Taldi bæjar- sjóður Sauárkróks, að útsvars- ekylda stefnda væri ótvíræð. Samkvæmt upplýsingum frá manntali hefði stefndi verið bú- eettur á Sauðárkrókí um ára- mótin 196O-’03. Hann hafði að vísu ekki sent inn skattframtal, en tekjur hans árið 1960 hefðu verið áætlaðar, enda hefði hann aflað mestan hluta þeirra á Sauð árkróki. Jón Baldursson krafðist sýknu í máli þessu og taldi, að er um- rædd útsvarsálagning hefði far- ið fram, hefði hann átt lögheim- ili í Reykjavík. Hann hefði flutzt frá Sauðárkróki til Reykja víkur 17. ágúst 1960 og hefði hann ti]k.ynn.t hlutaðeigandi yf- irvöldum um þann flutning sinn. Umrædd útsvarsálagning hefði því verið ólögmæt sam- kvæmt ákvæðum þágildandi út- svarsálaga nr. 66. 1946, 8. gx. Héraðsdómurinn segir um kröfur aðila sem hér greinir: „1 vottorði Hagstofu íslands, dags. 13. ágúst 1964, segir, að samkvæmt gögntun þjóðskrár- innar hafi stefndi flutzt til Sauð árkróks 21. desember 1959 og verið þar til 17. ágúst 1960, að hann flytur þaðan til Reykja- víkur. Þá liggur og fyrir mál- inu að stefnandi starfaði hjá K. Kristjánsson hf. í Rvík á tímabilinu 24. júlí til 31. des- ember 1960. Að þessu athuguðu þykir í ljós leitt, að stefndi hafi ekki átt heimilisfang á Sauðárkróki á þeim tíma, er hér skiptir máli, sbr. 8. gr. laga nr. 66/1945. Ber því að sýkna hann af kröfum stefnanda í málinu, en rétt þyk- ir að málskostnaður falli nið- ur.“ Eftir uppsögu héraðsdómsins var Hagstofan, að tilhlutan, bæjarsjóðs Sauðárkróks, beðin að gera nánari grein fyrir um- ræddu vottorði, þar sem bráða- birgðaíbúaskráin, sem Hagstofan samdi í desember 1960, taldi stefnanda til heimilis á Sauðár- króki. í bréfi Hagstofunnar kom fram, að aðseturstilkynning um flutning Jóns Baldurssonar frá Sauðárkróki til Reykjavíkur hefði verið gefin út og dagsett 15./2. 1961. Jafnframt kom fram að tilkynningin um lögheimilis- flutning hefði þurft að berast Hagstofunni fyrir 11. desember 1960 til þess að hún yrði tek- in til greina við gerð íbúa- skrár 1/12 1960. Hæstiréttur taldi í Ijós leitt, að tilkynning stefnanda um lög- heimilisflutning hefði borizt Manntalsskrifstofu Reykjavíkur borgar og Þjóðskránni áður en útsvarsálagning fór fram fyrir skattaárið 1960. Hæstiréttur staðfesti héraðs- dóminn og dæmdi Sauðárkróks- kaupstað til að greiða kr. 5.000.00 í málskostnað. Afgreiðslustúlku vantar í biðskýlið Björk í Hafnarfirði. M • - X Upplýsingar í síma 50828. Blómaverzlun Michelsen Jólastemningin byrjar með jólaskreytingum frá Blómaverzlun Mich. Jólastjömur, Alparósir, Hýjasentur og fjölbreytt úrval af gjafavörum. Blómaverzlun Michelsen Suðurlandsbraut 70. — Sími 3-10-99. SKREFI Á UNDAN . . . Reykurinn er hreinsaður en rétti ameríski tóbakskeimurinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.