Morgunblaðið - 18.12.1966, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.12.1966, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 18. des. 1966 UTGEFANDI: LANDSSAMBAND SJÁLFST ÆÐISKVENNA RITSTJÓRAR: ANNA BORG OG ANNA B JARNASON Fyrsta kvennadeild innan Rauða krossins stofnuð í Reykjavík Tlmamót í 40 ára sögu og auka starfið RKI til að efla SL. MÁNUDAGSKVÖLD var ltoðað til stofnfundar fyrstu kvennadeildar innan Rauða kross íslands, að undirlagi stjórn ar Reykjavíkurdeildar RKL Frú Ragnheiður Guðmundsdóttir læknir. Hafði undirbúningsnefnd skipuð þeim Geirþrúði Bernhöft, Björg Ellingsen, Sigríði Helgadóttur, Klöru Stephensen, Herdísi Biering, Sigríði Thoroddsen og Katrínu Hjaltested ásamt frú Ragnheiði Guðmundsdóttur lækni, sem er ritari Reykjavík- urdeildarinnar og var hún full- trúi stjórnarinnar í undirbún- ingsnefndinni, unnið mikið og gott starf að undirbúningi stofn- fundarins. Á tilskildum tíma voru hátt á annað hundrað konur mættar í Átthagasal Hótel Sögu og mátti af þvi marka góðan undirbún- ing fundarins og áhuga kvenna á málefninu. Frú Ragnheiður Guðmundsdótt ir bauð fundarkonur velkomnar og kvað Reykjavíkurdeild RKÍ nú freista þess að stofna til kvennadeildar, sem starfi innan Reykjavíkurdeildarinnar að frara gangi rauða kross mála. I>etta er nýlunda. Konur og karlar hafa unnið saman og átt góða samvinnu í deildunum og svo mun enn verða. En með stofnun kvennadeildarinnar er miðað að vissri verkaskiptingu á RK-starfi og vonandi einnig verulegri aukningu á þvL Síðan rakti frú Ragnheiður í stórum dráttum rúmlega 40 ára sögu RKÍ, sem stofnaður var 10. desember 1924 að tilstuðlan Sveins Björnssonar, sem síðar varð fyrsti forseti íslands, dr. Gunnlaugs Claessen, yfirlæknis ög Guðmundar Thoroddsen pró- fessors, en þeir skipuðu fyrstu stjórn og var Sveinn Björnsson formaður. Komst félagstalan 1 rúmlega eitt þúsund frá 10. des. til 4. febrúar næsta ár, en þá fékk RKÍ viðurkenningu alþjóða Rauða krossins. RK deilda úti í heimi, er „að veita sjúkum og særðum aðstoð, hjúkrun og hjálp, er slys, far- sóttir eða annan voða ber að höndum .... “ og „að vinna að auknum hollustuháttum og heilsuvernd" — svo vitnað sé orðrétt í 2. gr. laga RKÍ. ......og „vinna að hvers kon ar menningar — og líknarmál- um“, eins og segir í annari grein laga Reykjavíkurdeildar- innar. Rauði kross íslands hefur leit- azt við að vinna á þessum grund velli. Fyrsta verkefnið var að ráða hjúkrunarkonu og á liðn- Tilgangur RKÍ — svo sem allra Hin nýkjörna stjórn, ásamt varastjóm og endurskoðendum. Fremri röð frá vinstri: Katrín Hjaltested, Halla Bergs, Guðrún Marteinsson og Sigríður Thoroddsen. Aftari röð frá vinstii: Karítas Bjargmundsdóttir, Margrét Thoroddsen, Herdís Biering, Ida Daníelsdóttir, Svava Mat- hiesen, Sigríður Helgadóttir, Klara Stephensen og Geirþrúður Bernhöft. Á myndina vantar frú i Biöreu Ellinersen. sem var erlendis. ga?iiBapoiPagy^g!g sfc ÖLDIN SAUTJANDA Ný „Öld” hefur bætzt vlð þær sex, sem fyrir voru, Öldin sautjánda, tekin saman af Jóni Helgasyni. Þetta nýja bindi gerir skil sögu vorri í heila öld, 1601-1700 Þaö er aö sjálfsögöu í nákvæmlega sama formi og fyrri bindi verksins: byggt upp sem samtíma fréttablað og prýtt fjölda mynda. IVIá fullyrða, að það rtiuni ekki falla lesendum síður i geð en fyrri bindi verksins. árin 1601-1700 JfcÖLDIN ATJANDA •• 1701-1800 Lifandi saga liðinna atburða í máli og myndum *ÖLDIN SEM LEIÐ l-ll *• 1801-1900 *ÖLDIN OKKAR l-ll •• 1901-1950 „Aldirnar” eru tvímælalaust vinsælasta ritverk, sem út hefur komiö á íslenzku, jafneftirsótt af konum sem körlum, ungum sem öldnum. Þær eru nú orönar samtals sjö bindi,og gera skil sögu vorri í sam- fleytt 350 ár í hinu lífræna formi nútíma fréttablaðs. Samanlögð stærð bókanna samsvarar nálega 4000 venjulegum bókarsíðum. Myndír eru hátt í 2000 að tölu, og er hér um að ræða einstætt og mjög fjölbreytt safn íslenzkra mynda. „Aldirnar" fást nú allar, bœði verkið i helld Og einstök bindl. Verð eldri bindanna sex án söluskatts er kr. 410,00 hvert bindi, en nýja bindisins kr. 520,00. Verð verksins í heild, sjö binda er kr. 3.204,00 að meðtöldum söluskattL Eignizt „Aldirnar” allar, gætið þess að yður vanti ekki einstök bindi verksins, sem er alls sjö bindi. Nú er tækifærið! IÐUNN Skeggjagötu 1 - Símar 12923 og 19156 Viö seljum ”Aldimar"með hagstæöum afborgunarkjörum um 40 árum hafa margar hjúkr- unarkonur komið við sögu RKÍ. Minntist frú Ragnheiður á starf Guðnýjar Jónsdóttur, sem var fyrst í starfinu, Kristínar Thor- oddsen og Sigríðar Bachmann, sem síðar urðu yfirhjúkrunar- konur Landsspítalans. Þær og fleiri ferðuðust um landið á veg- um RKÍ, héldu hjúkrunarnám- skeið, unnu mikilsvert starf 1 sjúkraskýlum. Hjúkrunar- kvennaskortur og fjárþröng hafa gert þetta stárf ókleift á síðustu árum, en það er verkefni að vinna að bæta þar úr. Síðan rakti frú Ragnheiður kaup RKÍ á sjúkrabifreiðum, ótal námskeið í hjálp í viðlög- um og hvernig reynt var að bæ<a úr þörfinni á að veita kenns'u i meðferð sjúkra og slasaðra. Einn ig annast Rauði krossinn útgáfu tímaritsins Heilbrigt líf, og sá um skeið um útgáfu Unga ís- lands. Á styrjaldarárunum átti RKÍ virka aðild að brottflutningi barna úr höfuðborginni til sum- ardvalar í sveit og gegndi einn- ig mikilsverðu þjónustustarfi við íslendinga í Mið-Evrópu með sendingu bréfa og matvæla, með því að hafa samband við þá og veita aðstoð við þá er vildu koma heim. Og langt yrði upp að telja all- ar þær safnanir til bágstaddra 1 heiminum sem RKÍ hefur á myndarlegan hátt gengizt fyrir. Og bágindi fólks hér á landi hef- ur RKÍ leitazt við að bæta úr með söfnunum eða með veitingu fjár úr hjálparsjóði sínum. Sá sjóður er of lítils megnugur. Eitt verkefnið er að bæta þar um. RKÍ hefur ekki getað séð um rekstur sjúkrahúsa, sem víða ’er- lendis gerist, en nýlega átti RKf frumkvæði að þjálfun sjúkra- liða sem nú er komin á góðan rekspöl við 5 sjúkrahús, og að útvegun blóðbíls til landsins, eu r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.