Morgunblaðið - 10.01.1967, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1« T \NÚAR 1967.
M
Dr. Hemtann Einarsson
fiskiíræðingur — Minning
hafi og önnur um ansjósuna í
Kyrrahafi.
Það var skaði fyrir íslenzkar
fiskirannsóknir að Dr. Hermann
Einarsson skyldi fara af alndi
burt á miðri starfsævi, en enn
meiri skaði er það þegar manni
með slíka hæfileika er kippt
burtu á bezta aldri.
Eftirlifandi konu han frú Öldu
Snæhólm, aldraðri móður hans
frú Helgu og syni hans Einari
Axel, tjái ég innilega samúð
mína. Við starfsbræður hans vott
um honum virðingu fyrir vel
unnið starf og þökkum fyrir
samveruna.
Jón Jónsson.
DR. HERMANN Einarsson fiski-
fræðingur lézt af slysförum í
Aden á jóladag s.l., en þar hafði
hann undanfarið dvalið við
skipulagningu á líffræðirann-
sóknum í Rauðahafinu á vegum
Matvæla- og landbúnaðarstofn-
unar Sameinuðu þjóðanna.
Hann fæddist í Reykjavík
9. desember 1913, sonur hjón-
arina Einars yfirprentara Her-
mannssonar í Gútenberg, sem
látinn er fyrir nokkrum árum
og Helgu Helgadóttur tónskálds
Helgasonar. Hermann lauk stúd-
entsprófi við Menntasólann í
Reykjavík árið 1934. Háskóla-
menntun sína hlaut hann í Kaup
mannahöfn og varð þar magister
í dýrafræði árið 1941. Dvaldist
hann í Kaupmannahöfn fram til
órsins 1945, en það ár varði hann
doktorsritgerð sína um ljósátuna
í Norður-Atlantshafi, mikið rit
og vandað.
Þegár hann hóf störf á Is-
landi árið 1945 við þáverandi
Fiskideild hafði hann fyrst með
höndum sjó- og svifdýrarannsókn
ir stofnunarinnar, en eftir að
dr. Unnsteinn Stefánsson tók við
því starfi 1949 einbeitti Her-
mann sér að svifdýrarannsókn-
um og síðar að síldarrannsókn-
um. Árið 1947 og 1948 stjórnuð-
um við Hermann til skiptis öll-
um leiðöngrum stofnunarinnar
©g var það oft löng útivist á
lélegum skipum, aðallega mótor-
bátum. Safnaði Hermann mikl-
um gögnum um hrygningu fiska
hér við land og hefur mikið af
því verið unnið upp, en fáar
niðurstöður enn birzt á prenti.
Er það fiskiranrisóknum okkar
mikill skaði að Hermanni skyldi
ekki auðnast að ganga frá því
mikla verki.
Nokkrum árum eftir að hann
kom heim byrjaði hann einnig
rannsóknir á suðurlandssíldinni,
þ.e. íslenzku síldarstofnunum
tveimur, vorgotssíld og sumar-
gotssíld og skrifaði nokkrar rit-
gerðir um athuganir sínar. Fann
hann m.a. aðferð til þess að
greina milli þessara tveggja
stofna og notaði til þess ein-
kenni í kvörnunum og hafa
t.d. Skotar tekið þetta upp í
síldarrannsóknum sínum. Eftir
að asdic-tæki höfðu verið sett
I Ægi árið 195*3 lagði Hermann
ásamt Jakobi Jakobssyni fiski-
fræðingi grundvöllinn að þeirri
síldarleit, sem síðar átti eftir að
bera jafngóðan árangur og raun
ber vitni.
Magisterritgerð hans fjallaði
um botndýr í Faxaflóa og síðar
kom eftir hann yfirlitsrit um
skrápdýr við ísland. Hann skrif-
aði merka ritgerð um sandsílið
við Vestur-Grænland, ísland og
Færeyjar, skarkolann í Hamars-
firði og útbreiðslu karfaseiða í
hafinu á milli íslands og Græn-
lands. Þessi fáu dæmi sýna
hversu alhliða hann var í verk-
efnavali sínu.
Ritstjóri Náttúrufræðingsins
var hann um fjögurra ára skeið
og auk þess skrifaði hann marg-
ar greinar í blöð og tímarit um
fiskirannsóknir. Hann var af-
kastamikill fræðimaður, frjór í
hugsun og hugmyndaríkur, vel
lesinn í fræðum sínum og
skemmtilegur í viðræðum, hvort
sem um var að ræða fagleg eða
almenn málefni.
Á árunum 1956—58 yann Her-
mann að skipulagningu haf- og
fiskirannsókna í Tyrklandi á
vegum Sameinuðu þjóðanna, en
síðan hjá Fiskideildinni í tvö ár
eftir það, unz hann réðst til'Mat-
væla og landbúnaða'rstofnunar
Sameinuðu þjóðanna í Perú og,
starfaði hann þar við haf- og
fiskirannsóknir þar til fyrir
rúmu ári síðan er hann tók að
sér starfið í Aden. Liggj á etfir
hann ritgerðir frá þessu starfi
m.a. ein um ansjósuna í Svarta-
ritmysk
leikfimi
fyrir konur
Skólinn tekur aftur til starfa í dag.
Rytmik, afslöppun.
Innritun í síma 21724 til fimmtu-
dagskvölds.
HAFDÍS ÁRNADÓTTIR
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Bæjarsjóðs Kópavogs, Innheimtumanns
ríkissjóðs, Iðnaðarbahka íslands h.f. og Útvegs-
banka íslands verða bifreiðarnar Y-334,
Y-394, Y-407, Y-782, Y-922, Y-1448, Y-1521,
Y-1554, R-9463, seldar á opinberu uppboði sem
haldið verður við Félagsheimili Kópayogs þriðju-
daginn 17. janúar 1967 kl. 15.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
BÆJARFÓGETINN í KÓPAVOGI.
Útsalan í
GuBrúnarbúð
á Klapparst 27
Dragtir
Regnkápur
Sérstaklega skal bent á að í síðustu kápu-
sendingu fyrir jól skemmdust nokkrar
kápur af vatni og verða þær seldar við
mjög vægu verði.