Morgunblaðið - 28.01.1967, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ,
5
Lífið verður bara blæbrigðarík-
ara ef öll áformin rætast ekki
Rætt við Guðbrand í Rroddanesi
HANN er lágur maður vexti, þétt
ur á velli og svo kvikur og rösk-
legur að enginn skyldi trúa að
þar færi áttræður bóndi norðan
af Ströndum. Þetta er Guðbrand
ur Benediktsson í Broddanesi í
Fellshreppi á StrÖndum. Hann
hefur undanfarna tvo vetur
sést mikið á ferli í Reykjavík,
því nú hefur hann fengið sér
atarf í höfuðborginni og það á
sjálfu Alþingi. Við tókum Guð-
brand tali skömmu eftir átt-
ræðisafmælið hans um daginn.
— Þegar ég lít til baka, þá sé
ég að ýmsar mínar fyrirætlanir
hafa brugðizt og aðrar rætzt. En
þó maður komi ekki öllu fram,
sem maður ætiai sér, þá getur
það líka verið ávinnirwgur í líf-
inu, sagði Guðbrandur. Maður
leitar bara annað, þegar eitt
bregzt, og við það verður lífið
fjölbreyttara og fleiri blæbrigði
á því.
— Þú hefur ef til vill ekki
ætlað þér að verða bóndi?
— Ja, ég hefði nú kannski
gjarnan viljað vera á annarri
hillu. Ég hefi aldrei talið mig
mikinn bónda. En á þeim tíma,
sem ég byrjaði að búa, um líföO,
var ekki margra kosta völ. Ég
byrja þá búskap í Garps-
dal í Geirdalshreppi, norðan
megin Gilsfjarðar. Þetta kom
svona af sjálfu sér. í Garpsdal
var ég í yfir 30 ár. Ég var á
fyrsta misserinu tekinn í fóstur
af hjónunum, sem þar bjuggu,
Birni Björnssyni og Sigríði Þor-
valdsdóttur. Foreldrar mínir
voru unglingar og varð ekkert
á milli þeirra annað en þetta. En
ég lenti hjá mjög góðu fólki,
sem ég var svo hjá upp frá því og
þau arfleiddu mig sem eitt af
sínum börnum. Og 1920 kivænt-
ist ég svo bóndadóttur úr Geira
dalnum. Hún var einmitt dóttur
dóttir fóetru minnar. Það var
því ekki nema eðlilegt að við
færum að búa þarna.
— Þú hefur semsagt orðið ást
JCanginn þarna heima á æskusióð
unum og það sett þig fastan.
— Ég var nú kominn yfir þrí
tugt og þá löngu búinn að verða
ástfanginn. Farið að snjóa yfir
sumar gömlu ástirnar. En svo
var það mín meðfædda hagsýni.
Ég sá að ekki var gott að vera
svona alla ævi. Það er víst kall-
að núna að vera raunsær. Og
þetta lánaðist ágætlega. En fyrri
konu mína missti ég eftir fjögur
ár. Hún dó úr mislingum árið
1924. Ég var nærri- dauður úr
þeim líka, ag það er eina rúm-
legan sem ég hefi átt um æv-
ina. Það hefur verið mér til mik
ils léttis á langri ævi, hve heilsu
hraustur ég hef verið.
— En þú hafðir ekki ætlað
þér að setjast svona um kyrrt
heima?
— Það var ákaflega mikil út-
þrá f mér og eitthvert eirðar-
leysi. Og ég fór i Flensborgar-
skólann árið 1910 og var þar
í tvo vetur. Það var þó nokkurt
fyrirtæki að fara norðan úr
landi og í skóla suður í Hafnar-
fjörð þá. Skólastjóri var Ög-
mundur Sigurðsson og kennarar
sr. Janus Jónsson og Helgi Val-
týsson, sem allt voru mjöig góð-
ir kennarar. Ég hefi ekki notið
mikillar kennslu, en Helgi var
hvað mig áhrærði einíhver sá
allra bezti kennari sem hugsast
gat. Hann var einn af fyrstu
ungmennafélagsmönnunum og ég
varð fyrir miklum áhrifum af
þeirri hreyfingu. Helgi hafði ver
ið í lýðháskólum í Noregi og
kom með þessar hugsjónir heún
og hann framfylgdi þeim með
mælsku og áhuga. Ungmenaa-
félagsandi var því mjög ríkjandi
í skólanum í Flensborg. Skólaté-
lagið okkar var líka kallað ung-
mennafédag. Þetta gerði mann
víðsýnni, og þegar ég kom heim
frá þessu námi, voru þar fleiri
sama sinnis. Það var stofnað ung
mennafélag, sem er enn við liði.
og hefur oft verið mikið líf í því.
Á fyrsta ári var ráðist í að
byggja samkom-uhús, bæði með
gjöfum og sjálfboðaliðsvinnu
Það var mikill eldmóður í okk-
ur og hefur þess alltaf gætt hjá
mér síðan. Yfii'leitt var líka rikj
andi mikill féiagsandi meðal
eldri kynslóðarinnar á þessum
tíma og því góður jarðvegur
fyrir þessa nýju hreyfingu unga
fólksins. Ungmennafélagshreyf-
ingin hafði mikil áhrif á okkar
kynslóð alla, og ég held að við
höfum notið hennar alla ævi,
þannig að fyrir hana höfum við
átt betra með að taka þeim gíf-
urlegu breytingum, sem orðið
hafa á þessum tíma.
— Eftir að ég kom heim frá
námi í Flensborg, þá vann ég á
búinu heima í Garpsdad og við
barnakennslu á veturna. Þá var
farkennsla í sveitinni og kennt
heima á heimilum og í samkomu
húsum.
— En hvernig lentir þú svo
í Broddanesi?
— Eftir að ég missti fyrri kon
una, leiddist mér einlífið. Að
tveimur árum liðnum fer ég að
hugsa til að kvongast aftur. Ég
hélt þá þeirra erinda yfir Stein-
dalsheiði, að Broddanesi, þvi þar
var ung heimasæta ólofuð, Ing-
unn Þorsteinsdóttir. Hún hafði
verið alin upp hjá Sigurði Magn
ússyni og Ingunni Jónsdóttur í
Broddanesi. Og af því svona var
ástatt um okkur bæði, við vor-
um uppalningar hjá öðrum, þá
áttum við nokkuð sameiginlegt.
Sigrún, fyrri kona mín, var líka
búin að segja jnér að þetta væri
prýðisstúlka, en þær voru skóia-
systur. Og ég komst að raun um
að það var rétt. Ég iðrast vissu-
lega ekki eftir að hafa leitað í
Broddanes þarna um árið. Við
Ingunn erum búin að vera sam-
an í 40 ár og eigum 6 börn. En
þannig flutti ég sem sagt í
Broddanes, og undi þar vel í
40 ár. Ég hefði ekki breytt til
eftir að ég kom þangað.
Búskapurinn í Broddanesi
er fjölbreyttari en var á fyrri
búskaparárum mínum. Þetta er
mikil jörð, þríbýli þá og hefur
verið fram á þennan dag.
Broddanes er mikil hlunninda-
jörð, bæði dúntekja og selur. Og
það er mjög gaman að svodeiðis
búskap. Dúntekjan er skemmt.i-
leg búgrein, ef menn leggja rækt
við hana. Ég hefi lifað margar
góðar vornætur í sambandi við
dúntekjuna í Broddanesi.
— Yfirleitt hefi ég verið mik
ið barn náttúrunnar og liðið bet
ur úti en inni. Ég er nokkuð hrif
næmur og nýt þess sem fyrir
ber, þó ekki sé það nema augn'a
blik. Svo hefi ég verið svo hepp
inn að vera í fögru umhveríi,
bæði við Húnaflóa og þá ekki
síður við Breiðafjörð. En góður
bóndi hefi ég aldrei þótzt vera.
Bæði var nú það, að fóstri minn
var á sínum tíma mikill bóndi
og ég fann að ég var ekki hans
jafnoki og svo hefur áhuginn
ekki verið jafn mikill hjá mér.
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
En það hefur gengið sæmilega.
Þetta hefur allt verið ákaflega
hversdagslegt og ég hefi eklú
frá neinu sérstöku að segja. Ég
hefi verið svona hæfilega hrif-
næmur og hæfilega hagsýnn,
eins og ég sagði um kvenval
mitt.
— Guðbjörg í Broddanesi
skrifaði um heimkynni sín, var
það ekki?
— Jú, Guðbjörg var afasystir
mín. Hún skrifaði skemmtilega
æskuminningar sínar frá Brodda
nesi. Kannski var það fremur
eins og hún vildi hafa það en
eins og það var. En það er sjálf-
sagt ekki óvanalegt. 1 Brodda-
nesi bjuggu þrjár systur með
mönnum sínum. Guðbjörg, Ragn
heiður og Ingunn, fóstra konu
minnar. Afkomendur Ragnheið-
ar og Guðbjargar búa þar enn,
en Ingunn arfleiddi fósturbörn-
in að sínum hluta og dóttir okk-
ar Sigríðar býr nú á þeim parti,
Framihald á bls. 19
Guðbrandur Benediktsson í Broddanesi.
B1FREIÐAEIGENDUR
HAGTRYGGING HEFUR FORUSTUNA, MEÐ
LÆGSTU IÐGJÖLD FYRIR GÖÐA ÖKUMENN
TJÓN ALLT AÐ KR. 2.500
VALDA EKKI IBGJALDAHÆKKUN
Á ÁBYRGÐARTRYGGINGU
HAGTRYGGING vctr sem kunnugt er, stofnuð fyrii
tilhlutan bifreiðaeigenda um land allt, vegna óeðli-
legra hœkkana á bifreiðatryggingariðgjöldum, vorió
1965. HAGTRYGGING hafði þá forustu um lœkkun
bifreiðatryggingariðgjalda, með breyttu iðgjaldakerfi,
sem önnur tryggingafélög hafa síðan að nokkru leyti
tekið upp.
Lœgstu ársiðgjöld ábyrgðartrygginga biireiða írá 1. maí 1967.
4 m. bifr. t.d. Skoda, Volkswagen......
5 m. bifr. t.d. Opel, Taunus, Jeppar ....
6. m. bifr. t.d. Rambler, Ford, Chevrolet
Vörubifreið (sendif.) til einkaafnota..
Vörubifreið til atvinnureksturs .......
1. áh.sr. 2. áh.sv. 3. áh.sv.
1.900,— 1.100,— 800,-
2.100,— 1.100,— 1.000,-
2.600,— 1.600,— 1.300,-
2.200,— 1.500,— 1.000,-
5.300,— 3.200,— 2.100,-
FARÞEGA- OG ÖKUMANNSTRYGGING
Tekin með ábyrgðartryggingu bifreiðar. —
Tryggir gegn örorku og dauða lyrir allt að
300.000 krónur. Arsiðgjqld aðeins 250 krónur.
ALÞJÖÐLEG BIFREIÐATRYGGING
—GREEN CARDS—
iyrir þá viðskiptavini, sem
fara með biíreiðir sinar til
útlanda.
HAGTRYGGING býður viðskiptavinum sínum einnig KASKÖTRYGGINGAR með mismunandi eigin-
ábyrgð, á mjög hagstœðum kjörum. Höfum einnig haft frá byrjun HALF-KASKÖ tryggingar gegn
hvers konar rúðubrotum, bruna- og þjófnaðartjóni á bifreiðum.
Skrifstofan er opin f hádeginu tH þjónuslu fyrir þá, sem ekki geta komið
á öðrum tíma, — Reynið viðskiptin. — Góð bílastœói.
HAGTRYGGING HF
AÐALSKRIFSTOFA - TEMPLARAHÖLLINNI
EIRÍKSGÖTU 5-SÍMI 3 8 5 8 0 5 LÍNUR