Morgunblaðið - 28.01.1967, Blaðsíða 26
26
MORGUNB LAÐIÐ
^ ..................................................-—................ ....v ............ ,..............^ 'qv • •: :^í iii n r i '
Keppt í 600 m. hlaupi
í (þróttahöllinni í dag
IR og KR með samelgínlegt mót
f DAG fer fram í Iþróttahöll-
inni fyrsta innanhússmótið í
frjálsum íþróttum og fara nú ÍR-
og KR-ingar að haetti stórþjóða
og efni til keppni í hringhlaup-
um. Verður í dag keppt í 600
m. hlaupi á hringbraut í stóra
salnum, auk annara greina.
Mótið hefst kl. 4 og verða
keppniegreinar 600 m. hlaup,
3x40 m. grindahlaup (þ.e. vega-
lengdin hlaupin þrisvar og sam-
anlagður tími ræður úrslitum).
>á er keppt í hástökki með at-
Danir
koma
■ o
ÍSLENDINGAR og Danir
heyja landsleik í körfuknatt-
leik í fþróttahöllinni í Laugar
dal 2. apríl n.k. Hafa Danir
tekið boði Körfuknattleiks-
sambands íslands um að koma
hingað. Munu Danir koma L
april, leika landsleik sunnu-
daginn 2. apríl og við íslands
meistarana 3. apríl. Þeir halda
svo utan 4. apríl.
Fundur um knatt-
spyrnumál á Akra-
nesi
Knattspyrnuráð Akraness
gengst fyrir fundi um knatt-
spyrnumál í Rein n.k. sunnudag
kl. 3. Reynir Karlsson landsliðs
þjálfari mætir á fundinum og
auk þess verða sýndar knatt-
spyrnukvikmyndir.
Knattspyrnumenn á Akranesi
í meistaraflokki, 1. 2. og 3. flokki
eru beðnir að mæta (stundvís-
lega).
Knattspyrno
í íþróttn-
hölllnnl
f TILEFNI af 55 ára af- '
m
mæli Vals heldur knattspyrnu ;
deild félagsins „innanhúss“- •
knattspyrnumót n.k. fimmtu- ;
dags- og föstudagskvöld. I
Keppnin fer fram i Laugar- ;
dalshöllinni, og taka þátt í ■
henni 16 lið. Öll Reykjavíkur ;
félögin, Valur, K.R., Fram, !
Víkingur og Þróttur, enda 1 ;
lið hvert til keppninnar, einn !
ig koma 2 lið frá Keflavik og ;
Akranesi og eitt frá Breiða- !
bliki og Haukum.
■
Leikið verður eftir nýjum !
reglum frá K.S.f., og er leik- ;
tími 2x7 mín., og keppendur !
í hverju liði 7, þar af 4 í leik ■
hverju sinnL
rennu og í þrístökki og lang-
stökki án atrennu.
Möguleikar frjálsíþróttamanna
til innanihúskeppni hafa að sjálf
sögðu stórbatnað með tilkomu
Laugardalshallarinnar. Hefur þó
til þessa skort ýmis tæki en
væntanlega hefur þegar úr þvi
rætzt. Á fyrsta innanfélagsmót-
inu sem þar fór fram varð Jón
Þ. Ólafsson að hætta keppni er
hann hafði stokkið rúma tvo
metra — því ekki var hægt að
hækka frekar af því að súlurnar
voru of stuttar. Vonandi skeður
slíkt aldrei aftur í Laugardals-
hölL
Það er alger nýlunda að sjó
hér keppni í hringhlaupum inn-
anhúss. Að vísu er hringurinn
þröngur og mun þurfa um 4
hringi til að ná 600 m. vegalengd
og þröngi hringurinn gerir kröf-
ur til hlauparanna. En gaman
verður að sjá hvernig til tekst í
þessari fyrstu tilraun með þetta
hér á landL
Framkvæmdastjórn fsf ásamt framkv.stjóra. Frá vinstri: Hermann Guðmundsson framkv.stj^
Gunnlaugur J. Briem, Sveinn Björnsson, Gísli Halldórsson forseti, Guðjón Einarsson, Þorvarð-
ur Árnason.
Iþróttasambandið 55 ára
f DAG eru 55 ár liðin frá því að
fþróttasamband íslands var stofn
að. Minnist stjóm ÍSÍ támamót-
anna með því að hafa opið hús
í Tjarnarbúð í dag frá kl. 3.30 til
5 síðdegis og væntir þess að sjá
þar vini og forystumenn íþrótta-
hreyfingarinnar.
Með stofnun ÍSÍ sameinuðust
íþróttafélögin á einskonar „æðra
Að ofan: Jón Árnason og Óskar Guðmundsson. Að neöan: Gunn-
ar Felixson (t.h.) og Friðleifur Stefánsson.
plani“ til að vinna að framgangi
íþróttamálanna án þess að félags
rígur eða dægurþras réði ríkj-
um. Samtökin sýndu það þegar
í verki að þeirra var nauðsyn.
ÍSÍ hefur ætíð staðið á verðin-
um. Samtökin hafa haft forystu
um öll þau framfaramiál sem
mest og bezt hafa elft íþrótita-
líf í landinu. Að sjáHsögðu hefur
sótzt misjafnlega hratt, en ávallt
miðað að markinu. Löngum hef-
ur fjárskortur verið starfi sam-
bandsins fjötur um fót, og er það
að vissu leyti enn, þó aldrei hafi
verið bjartara £ þeim efnum en
hin síðustu ár er íþró'ttahreyfing
in fékk nokkurn veginn fastan
tekjulið.
íþróttahreyfingin er nú fjöl-
mennasta æskulýðshreyfing
landsins, og ótaldir eru þeir,
menn og konur, sem með þakk-
látum huga geyma minningar
um íþróttaiðkanir og ánægjuleg-
ar stundir meðal íþróttafólks.
Það eru því margir, sem renna
þakklátum huga til þeirra sem
hafa fórnað starfi og tíma í þágu
ÍSÍ, því það starf, sem þar er
unnið, er upphaf og endir að
eflingu Mkamlegrar menntar
þjóðarinnar.
Fram sigraöi Víking
í jöfnum leik 23:19
FRAMARAR máttn sannarlega
þakka fyrir að hljóta bæði stig-
in í viðureign þeirra við Viking
á fimmtudagskvöld. Víkingar
komu mjög ákveðnir til leiks og
léku þeir yfirvegað, til að byrja
með. Skutu ekki nema svo til ör-
uggt væri að nötturinn lenti
í netinu og vörn þeirra var frem-
Jón Árnason og Gunnar
Fel. sigruðu í einliðaleik
— á hinu opna móti TBR
JÓN ÁRNASON frá T.B.R. sigr-
aði í meistaraflokki, og Gunnar
Felixson frá KR í 1. flokki í
skemmtilegu og fjölmennu ein-
liðaleiksmóti, sem Tennis- og
badmintonfélag Reykjavíkur
stóð fyrir nú nýskeð.
1 keppninni tóku þátt um 30
manns, og voru margir leikirnir
skemmtilegir og tvísýnir. Mesta
athygli vakti frammistaða Jóns
Árnasonar frá T.B.R., sem nú
virðist skara mjög framúr öðr-
um íslenzkum badmintonleikur-
um. Hann bar hærri hlut í úr-
slitaleik meistaraflokks gegn
Óskari Guðmundssyni frá KR,
með 12:15 — 15r9 og 15:4. Það
er jafnan viðburður fyrir badm-
intonunnendur þegar þessir
menn hittast á keppnisvelli, og
hefur um margra ára skeið oltið
á ýmsu um úrslitin. þó Jón hafi
að vísu borið hærri hlut í flest-
um viðureignum þeirra á sl. ári
og eins nú.
Af öðrum keppendum meista-
araflokks vakti einna mesta og
eftirtekt frammistaða Reynis
Þorsteinssonar frá KR, sem í
löngum og hörðum leik bar sig-
urorð af Steinari Petersen frá
T.B.R.
Eins og áður segir vann Gunn-
ar Felixson frá KR 1. flokkinn.
Hann er kunnari af knattspyrnu
velli en badmintonvelli, enda
mun harðsnúnari á þeiim fyrr-
nefnda, og á hann sigur sinn í
þessu móti fyrst og fremst að
þakka góðu þoli, — sem hann
hefur trúlega öðlazt í knattspyrn
unni. Gunnar hefur svipfallegan
badmintonstíl, en virðist sjaldan
spila til sigurs, og er ekki árásar-
gjarn.
Friðleifur Stefánsson frá KR,
sá er háði við hann úrslitaleik-
inn var kominn mjög nálægt
sigrinum, en skorti útthald á enda
sprettinum á móti hinum þol-
góða knattspyrnukappa. Gunnar
vann með 15:10 — 7:16 og 18:14.
Af öðrum 1. flokks mönnum
ber að nefna Harald Kornelíus-
son frá T.B.R , sem nú þegar er
eldri og sterkari mönnum mik-
ill ógnvaldur, og svo Kolbein
Kristinsson T.B.R., hinn gamal-
kunna stangarstökkvara, sem
sýndi ágæta frammistöðu, en
skorti nokkuð á í þolL
Keppni þessi var einskonar
inngangur að stærri og meiri or-
ustum, sem nú eru á döfinni hjá
badmintonfólki, en keppnir eru
nú margar framundan, enda æf-
ingar stundaðar af miklu kappi.
Mótsstjóri var Kristján Benja-
mínsson.
ur þétt. Árangurinn var líka sá,
að eftir 10 mínútna leik var stað-
an orðin 5:1 þeim í vil. En þá
var líka draumurinn búinn fyrir
þá. Fram setti hraða í spU sitt og
Víkingarnir gættu ekki að sér
og svöruðu með hinu sama. Fóru
þeir þá að skjóta í ótíma og lögðu
ekki heldur nógu mikla áherzlu á
vörnina. Og taflið snerist við, —
Fram tók öll völd í sínar hendur
og skoraði hvert markið á fætur
öðru og voru í hálfleik búnir að
ná yfirburðastöðu 15 mörkum
gegn 9.
En Víkingar létu ekki mótlætið
á sig fá og spiluðu skemmtilega
í síðari hálfleik, sem þeir unnu
með 10 mörkum gegn 8. Breyttu
þeir vörn sinni og settu menn tfl
höfuðs þeim Gunnlaugi og Ing-
ólfi og var þeirra það vel gætt,
að þeir „hurfu" alveg í hálfleikn-
um. Með þessum varnaraðgerð-
um tóku Víkingar alveg brodd-
inn úr sókn Fram, og máttu
Framarar heppnir heita, að Vík-
ingur beitti ekki þessari aðferð
frá upphafi. En árekstralaust
gekk þetta ekki fyrir sig. Mikið
var um stimpingar og pústra og
nokknun Víkingum var vísað út
af leikvelli, — einu sinni tveim-
ur í einu. Stórskyttur Víkings,
þeir Jón og Einar, nutu sín vel
í hálfleiknum og skoruðu þeir
mörg falleg mörk með föstuim
skotum af löngu færi.
Þegar 10 mínútur voru eftir
af leik höfðu svo Víkingar næar
unnið upp þá 6 marka forustu
sem Fram hafði í hálfleik. Va»
þá staðan 18:17 og þegar 6 míu.
voru eftir var aftur 1 marka
munur 19:18. Þá skoruðu Fram-
arar 3 mörk í röð og gerðu þtur
Framhaid á bls. 34