Morgunblaðið - 15.02.1967, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.02.1967, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1967. BÍLALEICAN FERÐ SÍMI 34406 Daggjöld kr. 300,00 og kr. £,50 á ekinn km. SENDU M MAGIMÚSAR SKIPHOtTI 21 SÍMAR 21190 eftir lokutvsimi 40381 ^ sími 1-44-44 Hverfisfötn 103. Sími eftir lokun 31160. LITLA bílaleigan Ingólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald. Bensin innifalið í leigugjaldi. Sím/14970 BÍLALEIGAN VAKUR Sundlaugaveg 13. Simi 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. ==*BHA.lftGAM RAUÐARÁRSTÍG 31 SlWI 22022 BÍLALEIGAN EKILL sf. Kópavogi. Sími 40145 • Páfagaukarnir verðlaunaðir ? Móðir skrifar: „Kæri VelvakandL Mig langar til þess að biðja þig að birta eftirfarandi: Ég get ekki orða bundizt vegna umferðakeppninnar í barnaskólum borgarinnar, sem fram fór í gær. Það vill svo til, að ég hefi fylgzt nokkuð með undirbúningi þessarar keppng vegna þess að sonur minn var í hópi bama, er kepptu fyrir skóla sinn. Þessi hópur var bú- ínn að vinna mikið í málinu og búa sig vei undir að taka þátt í keppninni. Mér er kunnugt um, að sum þeirra kunnu megn ið af umferðalögunum utan að, voru búin að lesa lögreglusam- þykktir, umferðalög, spurning- ar úr gömlum ökuprófum og þar fram eftir götunum. Þau voru 7 í hópi og skipulögðu námið vel og m.a. þannig, að hver þeirra skyldi hafa eitt atriði eða tvö sem sína „sér- grein“, enda átti að haga keppn inni þannig, að hópurinn svar- aði sem einn þátttakandi. En hvað skeður svo? Þegar á hólm inn kom, er bömunum sagt, að þau megi ekki vera fleiri en 5. Þá var tekið það ráð að láta tvo vikja og var þar íarið eftir úrslitum I prófi um efnið, sem áður hafði farið fram í skól- anum. En það hróplegasta i þessu máli er svo prófið sjálft og með ferð umferðalögreglunnar á þessum greindu bömum. Þeim er m.a. hvað eftir annað sýnd- ar myndir úr umferðinnL og þá er ekki tekið gilt, þótt börn- in viti hið rétta, heldur spurt um ómerkilegar vLsur i kveri nokkru, sem umferðalögreglan dreifði í barnaskólana í vetur. Það nægði sem sé ekki að vita það rétta og segja það með sín- um orðum, heldur varð að fara með bögurnar, og þau börn, sem kunnu þennan kveðskap, án þess að nokkur trygging væri fyrir því að þau gerðu sér ljósa grein fyrir merkingu vís- unnar, þegar út í umferðina væri komið, fengu sem sé rétt svar. Hin, sem gerðu grein fyr- ir málinu með sínum eigin orð- um og skilgreindu, hvers vegna þetta eða hitt væri ekki leyfi- legt, fengu núll. Allir hljóta að sjá, hve furðu leg vinnubrögð eru hér á ferð og, að greindum börnum er misboðið á hinn herfilegasta hátt með slíku „prófi“. Mig furðar eiginlega á því, að skólastjórar barnaskólanna skyldu ekki mótmæla þessu, en það tjóar líklega ekki að deila við yfirvaldið og „Allir hlýða löggunni, sem vaxnir eru upp úr vöggunni!“ eins og segir í fyrstu grein umrædds kvers. En hrædd er ég um, ao virðing barnanna fyrir umfreðalögregl unni hafi beðið mikinn hnekk við þessi samskipti og það er afleitt, ef ekki er hægt að finna menn innan lögreglunnar, sem eru starfi sínu vaxnir til þess að vinna að þessu ágæta og mikilvæga máli. Með þökk fyrir birtinguna. Móðir". • Vítin, sem varast ber Einar skrifar: „Velvakandi! Þriðjudaginn 7. febrúar 1967, skrifar „16 ára skólastúlka" í dálkinn „um unglingavanda- mál“. Telur hún sig, að eigin sögn, málsvara æskunnar!, og vonar að þrátt fyrir það taki einhver mark á sér, skinninu. Ég er sjálfur æskumaður, innan við tvítugt og námsmaður, eins og hún, en ég vona hjartanlega, að æskan eigi sér einhvem betri málsvara en telpuna þessa. Hún virðist alls enga reynslu hafa, ekki einu sinn þá reynslu sem þeir „13—17 ára ungling- ar“, sem hún talar um, venju- lega hafa. Allt bréf hennar ber vott um bamaskap og lélegan utanaðlærdóm, og er æskunni sem hún telur sig útvalinn mál- svara fyrir, nánast til skamm- ar. Er ég henni alls ósammála um að orð hennar eigi erindi til allra. Orðrétt segir hún: „En því miður eru ekki allir frá góðum heimilum, og þeir unglingar, sem eru svo „óhamingjusamir“ að vera frá óregluheimilum, eru auðvitað eins og þeir, sem gefa þeim fordæmið." Þokka- legt það. Og síðar: „En það er tilgangslaust að prédika, að þetta eða hitt sé bannað, það verður að sýna unglingunum fram á þetta vandamál með áþreifanlegum dæmum.“ Hver, hver af öllum mönnum hefur áþreifanlégra og voðalegra dæmi um þær afleiðingar, sem ofdrykkja getur haft í för með sér en einmitt sá, sem kemur frá heimili, sem er undirlagt af ofdrykkju? Enda er það stað reynd að slíkum unglingum óár sífellt við að feta í spor drykkjumanna, og eru miklu síður í hættu vegna áfengis- nautnar. Enn segir stúlkutetrið, að prestar, skátaforingjar og fleiri postular láti mikið til sín taka, og sé árangurinn sá, sem raun ber vitni! Aumingja mennirn- ir. Fleira segir hún, margt tóm- an barnaskap og annað úttugg inn og jagaðan sannleik, sem aldrei hefur verið komið í fram kvæmd, en það litla, sem virð- ist koma frá henni sjálfri, ber ekki vitni um þroska eða þekk- ingu á því vandamáli, sem hún er að ræða. Vona ég, að ef aðr- ir telja sig útvalda málsvara æskunnar, hafi þeir örlítið meira til síns máls en stúlkan, og fari betur með hugmyndir sinar opinberlega í nafni æsk- unnar. Einar". • Vinstri - hægri Ein 18 ára skrifar: „Kæri Velvakandi! Ég las grein sem birtist i Velvakanda, þann 7. febrúar sL sem 16 ára skólastúlka hafði skrifað inn vandamál ungling- anna. Greinin var mjög vel skrifuð og ég er henni alveg sammála. Það var mikið rætt og rit- að um ólætin í unglingunum, aðfaranótt 28. janúar sl. En það er alls ekki nóg að „ræða og rita“ um vandamál ungling- anna!! Það á að gera eitthvað í þess um málum ! ! Það er ákaflega lítil fyrir- höfn að setjast niður með penna og skrifa að æskan sé gjörspillt. Af hverju ekki að reyna að gera eitthvað imglingunum til hjálpar? Hvert eiga Unglingar á aldrin um 14—17 ára, að fara til að skemmta sér, á laugardags- kvöldum ? ? All flest veitingahús hafa vín veitingar og þar af leiðandi er þar aldurstakmark. Og að lokum. Það er jpisjafn sauður i mörgu fé. Það eru ekki allir unglingar eins og þeir, sem héldu uppi . skrílslátunum í miðbænum, að- faranótt 29. janúar sl. Ein 18 ára.“ • Meira um æskuna Bifreiðaeigandi skrifar: „Kæri Velvakandi! Er ég hef lesið grein séra Áre liusar Níelssonar, er birtist í Velvakanda þann 8. þ.m. verð- ur eigi hjá því komizt að hafa fleiri orð um þá framkvæmd, sem nú er á döfinni. Það er að segja, hægri handar aksturinn. Ég er í fullu og öllu sammála séra Árelíusi um þau atriðL sem hann bendir á í grein sinni, og veit að svo mun vera um fleiri. Og skora því á alla bfireiða- eigendur, sem hlut eiga að máli að taka höndum saman og sam- einast í einu stórátaki sem mið ar að því að fyrna okkur þeim vandræðum, sem slik fram- kvæmd á eftir að hafa í för með sér. Grein séra Árelíusar Nielssonar þarfnast ekki skýr- inga. Hún skýrir sig sjálf. Þvi hver hugsandi maður hlýtur að láta þessi mál til sín taka, nú á síðustu og verstu tímum. — Bifreiðaeigandi.“ PÁSKAFERDIR 1967 RHODOS 16 DAGAR . 19. MARZ NOREGUR 9 DAGAR . 21. MARZ LONDON S DAGAR . 25. MARZ ^ERDASKRIFSTOFAN iðND 9, Lé»0IR « <.DA'.5Tg«TI 8 8ÉTKJAVIK SlMA* J4jll 2Cói Eyrbekkingar og Stokkseyringar Þökkum ágæta sambúð í rúm tuttugu ár, sýnda vel- vild ásamt veglegum gjöfum fyrr og nú. Við óskum ykkur alls góðs. Sigr. og Bragi Ólafsson. Sjónvarpsloftnet Nýkomin sjónvarpsloftnet, kapall o. fl. loft netsefni fyrir Reykjavik, Keflavík og Eyrar bakkastöðina. Þeir smásalar, sem pantað hafa hjá okkur loftnet, gjöri svo vel að end umýja pantanir, sem fyrst. Radíónaust Laugavegi 83 — Sími 16525. Atvinna óskast! Ungur maður óskar eftir atvinnu frá og með 1. marz nk. Hefur „Skandinaviska" verzlunarskólamenntun og þekkingu á inn- og útflutningi, hefur einnig góða kunnáttu í ensku og á enskum verzlunarbréfaskrif- um. Tilboð óskast sent afgr. Mbl. með upplýsingum um kaup og framtíðarmöguleika, merkt: „Reglusam- ur — 8880“. SVEFNBEKKIR SVEFNSÓFAR D 1 V A N A R Allt á verkstæðisverði. Svefnbekkjaiðjan Laufásvegi 4 (gengið inn sundið). Sími 13492 (15581).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.