Morgunblaðið - 15.02.1967, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1«. FEBRÚAR 1967,
21
EYJAN Tasmanía, sem liggnr
fyrir sunnan meginland
Ástralíu, hefur komiff tals-
vert við sögu að nndanförnu.
Ástæðan fyrir því eru ofboðs-
legir skógareldar, sem valdið
hafa geysilegum skaða og
miklu manntjóni á þessari
annars friðsælu eyju. Fyrir
helgina var talið, að um 60
manns hefðu misst lífið, og
yfir 3500 manns hefðu misst
heimili sin í eidunum, sem
ekki hafa þyrmt neinu, þar
sem þeir hafa farið yfir, held-
nr skilið eftir sviðna jörð og
flutt mönnum og málleysingj
um dauða og tortimingu. Má
halda".
telja víst, að tölur þær, sem
nefndar voru hér að framan,
eigi enn eftir að hækka, því
að ennþá hefur ekki tekizt að
vinna bug á eldunum, þrátt
fyrir það, að flestum hugsan-
legum nýtízku aðferðum sé
beitt í baráttunni gegn þeim.
Þá hefur epla- og humalupp-
skeran á Tasmaníu, sem er
mjög mikil, farið nær algjör-
lega forgörðum í eldunum,
en einnig hefur orðið mikið
tjón á mörgum verksmiðjum
og á öðrum atvinnutækjum.
Er þvi líkast því, sem eyjan
hafi verið slegin plágu. Eric
Reece, forsætisráðherra Tas-
maníu: „Þetta hefur flutt
Hjón horfa á heimili sitt brenna í Sorrell á Tasmaníu, eftir að það hafði orðið skógareldun-
um að bráð. Mynd þessi gefur glögga hugmynd um þá eyðileggingu, sem skógareldamir
hafa valdið, en yfir 3.500 manns hafa misst heimili sín með þessum hættL Neyðarástandi
hefur verið lýst yfir á eyjunni.
Skögareldarnir á Tasmaníu
manns hefur farizt — Gífurlegt tjón
Ein helzta ástæðan fyrir
skógareldunum er, hvernig
hinum algenga Ástraláurunna
er farið. Þetta er tré, sem
brennur afar auðveldlega,
Þegar tréð vex, fellur af því
talsvert af berki, sem leggst
eins og lag í kring. Börkur-
inn er einnig mjög eldfimur
og er þvi ljóst af þessu,
hversu ofboðelegir skógareld
arnir kunna að verða, en
ástralskur kjarreldur getur
orðið eitt hið ægilegasta, sem
mannleg vera stendur frammi
fyrir. Ekki bætir það úr skák,
að þegar eldarnir á einlhverju
svæði hafa náð vissu stigi, þá
valda þeir sterkum vind-
blæstri, sem svo aftur auka
enn á bálið.
Á meðal þeirra vopna, sem
beitt er gegn eldinum eru flug
vélar, sem beitt er til þess
að kanna eldsvæðin en ekki
sízt til þess að varpa sérstök-
um gerðum sprengja á eld-
inn, sem eiga að slökkva í hon
um. Einnig er beitt ýmsum
gerðum ökutækja, sem dreifa
vatni eða efnum sem slökkt
geta í eldinum. En samt er
það enn svo, að það eru fyrst
og fremst einstaklingarnir,
sem vinna með öllum hugsan
legum ráðum að því að hefta
útibreiðslu eldsins, er skipta
mestu máli.
Enn hefur ekki tekizt að
ráða niðurlögum eldanna á
Tasmaníu, enda þótt farið sé
að draga úr þeim. Ljóst er
þegar, að þarna hefur orðið
mikill harmleikur, sem enn
verður ekki séð fyrir endann
á. Tjónið eir gífurlegt, eins og
minnst var á hér í upphafi og
hætt er við, að langur tími
líði, að Tasmanía og fbúar
hennar nái sér að fullu eftir
Tasmaníu 10 ár aftur á bak.
I guðanna bænum, við
þurfum á bráðri hjálp að
Grimmúðleg náttúra.
íbúar Tasmaniu, sem er
svipuð að stærð og Stootland,
eru noktouð á fjórða hundrað
iþúsund, og heitir hötfuðborg-
in þar Hobart með um 60.000
Ibúa. Nafn sitt dregur eyjan
af hollenzka sæfaranum Abel
Tasman, sem fann eyna árið
1642.
Skógareldarnir nú haft fært
heim sanninn um, að Tasman-
ía og Ástralía yfirleitt, sem
þrátt fyrir auðæfi þau, er hún
lætur börnum sínum í té, er
land, þar sem náttúran getur
verið með afbrigðum grimm-
úðleg og erfið viðureignar.
Skógareldarnir eru oft kjarr-
eMar eins og nú eða geisa á
svæðum, þar sem trén eru
hærri, og valda þá auk ann-
ars tjóns, einnig miklu tjóni
fyrir skógarihögg landsins og
þann iðnað, sem á þvi bygg-
ist. Yfirleitt koma upp kjarr-
og skógareldar 15-17 þúsund
sinnum á ári, og enda þótt
oftast takist að kæfa þá í fæð-
ingunni, valda þeir á hverju
ári feiknarlegu tjóni.
Kemur ekki fyrir aftur.
Ástralíumönnum ætti að
vera fullljóis sú hætta, sem
stafar af skógareldunum, en
samt er það svo, að þegar
ógæfan skellur yfir, kemur
hún oft sem reiðarslag. Ástæð
an fyrir því er sú, að þrátt
það að fólk gerir sér grein
fyrir háskanum af skógáreld-
unum, eru menn ektoi alltaf
viðbúnir. Eitt svæði enda þótt
það sé alltaf í einhverri
hættu, kann að vera svo hepp
ið, að vera laust við stoógar-
elda í fimm, tóu eða jafnvel
tuttugu ár. Bjartsýnd fólks
gagnvart hættunni vex, og
það slakar ómeðvitað á var-
úðarráðstöfunum. „Þetta mun
ekki koma fyrir aftur“, er al-
gengur talsháttur á þeim
Eins og röð af grafsteinum. Reykháfarnir, sem myndin sýnir, eru raunverulega hið eina, sem
eftir stendur, eftir að skógar eldarnir höfðu farið yfir svæðið, þar sem þessi heimili stóðu að-
eins 1 mílu frá Hobart, höfuðborg Tasmaniu. Gerðist það hinn 7. febrúar sl.
Þjónustukönnuninni að
Ijúka gagnakönnun hefst
ÞÁTTTAKA i þjónustukönnun
Neytendasam takanna hefur ver-
19 góð, og mun betri en ýmsir
höfðu spáð. Hefur hún þegar náð
því marki, sem stjórn samtak-
anna setti sem lágmark, til þess
að hægt væri að birta niðurstöð-
ur könnunarinnar. Neytendasam
tökin í Bandaríkjunum hafa í
áratugi haft hliðstæðar kannanir
árlega, og hafa svörin orðið flest
um 10% af útsendum eyðublöð-
um. Það var sett sem lágmark
hér, og hefur það einmitt náðst.
FLEIRI SVÖR MJÖG ÆSKILEG
Þrátt fyrir það eru það ein-
dregin tilmæli Neytendasamtak-
anna til allra þeirra, sem Neyt-
endablaðið haifa með höndum, að
þeir sendi svör sín hið allra
fyrsta, svo að þau nái að styrkja
og breikka enn þann grundvöll,1
wm niðurstöðurnar verða byggð-,
ar á. Vegna fámennis þjóðarinn-
ar, en þó fjölbreytni heimilis-
tækja, er brýn nauðsyn, að svör-
in verði sem flest að tölu. Neyt-
endasamtökin íslenzku eru marg
faldlega hin fjölmennustu í
heimi miðað við fólksfjölda, en
um leið hin fámennustu að
höfðatölu.
Fulltrúar á síðasta þingi Al-
þýðusambandsins og kennarar
um land allt, sem blaðið var sér-
staklega sent til, eru eindregið
hvattir til að leggja þessu hags-
munamáli alþjóðar lið með þátt-
töku sinni, en tilgangur þjón-
ustukönnunarinnar er sá einn að
stuðla að bættri þjónustu og
auknu öryggi til handa neytend-
um, og í þessu tilfelli sérstak-
lega þeim, sem kaupa og nota
heimilistæki, sem ætlað er að
gegna mikilvægu hlutverki um
langt árabil á hverju heimili.
Þeir sem ekki hafa fengið
Neytendablaðið, en gerast félags-
menn næstu daga, fá það sent
um hæl í pósti og gætu þá tekið
þátt í könnuninni. Innritunar-
símar Neytendasamtakanna eru:
1 97 22 og 21 666.
AF HVERJU ÞESSI TÍMI
VAR VALINN
Rétt þykir nú að skýra frá því,
af hverju annatíminn fyrir jólin
var valinn. Það þótti ýmsurn
óhyggilegt með tilliti' til þátt-
töku. Ástæðan var sú, að könn-
uninni var ætlað að haifa áhrif
þegar í upphafi með því að fara
fram einmitt á þeim tíma, sem
fles* kaup eru gerð á þessurn
hlutum. Þess vegna var minnt á
þjónustukönnunina með auglýs-
ingum í útvarpi og á annan hótt
nær daglega allan nóvember og
fram að jólum. En það sem mun-
að hefur í þátttöku vegna jól-
anna, er nú hægt að bæta upp
næstu viku.
(Frá Neytendasamtökunum).
SAMKOMUR
Kristni boðssam bandið
Almenn samtooma í kvöld
kl. 8.30 í kristniboðshúsinu
Betaníu, Laufásvegi 13. Séra
Frank M. Halldórsson, talar.
Allir velkomnir.
Samkomuhúsið Zion,
Óðipsgötu 6 6.
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Allir velkomnir.
Heimatrúboðið.
Kvenkápur
Dacron-efni (hliðstætt terylene).
Verð kr. 995
••NtMMMHM...................—.uuuuum.éíu«imíí
tMMWIMNHW I
HMMtHHMtMl
flnmniHiinttl
•.<<•« I.
**' ” <VnV. i N ■" " l" "M.M MNN.mÍh." N.""« O HM" • **»»» ’ ’ *
Lækjargötu 4.