Morgunblaðið - 15.02.1967, Side 10

Morgunblaðið - 15.02.1967, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1967. fundi með Humbling miðli BLAÐAMANNI frá Morgun- blaðinu var sl. sunnudag boð- ið að vera viðstaddur miðils- fund hjá brezka miðlinum Horace S. Hambling, sem stadd wr er hér á landi á vegum Sál- arrannsóknarfélags fslands. Ekki skal hér greint í einstök- um atriðum frá því, sem gerð- ist á fundi þessum, en miðils- starf Hamblings er einkum fólg ið í því að láta „umdeildan op- inskáan norður amerískan Indíánastjórnanda, Moon Trail“ tala í gegnum sig. Hefur Moon Trail þessi fengið orð fyr- ir mælsku og fagurt tungutak, og jafnvel verið talað um að hann hafi silfurtungu. í upphafi fundarins í skrif- •tofu Sálarrannsóknarfélagsins skýrði Hambling frá miðils- starfsemi sinni og gat um sam- band sitt við Moon Trail. Síð- an lýsti hann því, sem gerast mundi þegar hann félli í dá- svefn. Fyrst mundi Moon Trail skýra í stuttum fyrirlestri frá inntaki kenninga sinna, ef svo mætti segja, en því næst gætu fundarmenn spurt hann spurn- inga og svaraði hann þá hverj- um einstökum. Fór þetta allt fram eins og Hambling hafði fyrir sagt og var fullt ljós í her berginu meðan á dásvefninum stóð. Horace S. Hambling gat þess í upphafi að starf hans miðaðist ekki, eins og flestra annarra miðla, að því að sanna mönnum framhaldslífið með því að hafa samband við farna ættingja viðstaddra, heldur talaði Moon Trail einkum til þeirra, sem ef uðust ekki um líf eftir dauðann og gerði þeim grein fyrir hug- myndum sínum um tilveruna og efstu rök. Hambling gat nokkurra dæma máli sínu til stuðnings, sagði m.a. að frægur enskur sálkönn- uður hefði boðið honum heim eftir að hann hafði verið á fjöl- mennum fundi hjá honum í Lundúnum. 'Sálfræðingur þessi sagði, að hann gæti á fimm mín útum séð, ef brögð væru 1 tafli, en hann hefði þvert á móti ver- ið sannfærður um það eftir tíu mínútur, að hér væri eitthvað merkilegt að gerast. En í við- ræðum þeirra, sálfræðingsins og Hamblings, varpaði hinn síð arnefndi í lokin fram þeirri spurningu hvort verið gæti, að í dásvefninum væri að verki „hinn helmingurinn“ af Hambl- ing. Auðvitað vildi sálfræðing- urinn ekki taka af skarið. Sú spurning verður að liggja á milli hluta, hvort þarna sé um að ræða Moon Trail eða ann- að sjálf Hamblings — og bezt að fullyrða sem minnst um það efni, enda ekki í verkahring blaðamanna að ráða í lífsgátur sem færustu vísindamönnum heims hefur ekki tekizt að út- kljá. En fundurinn var hinn at- hyglisverðasti Og ef hér er ekki um að ræða Moon Trail heldur sé það Hambling sjálfur sem flytur upp úr sér þessar íögru og mælsku ræður verð- ur vart of djúpt í árinni tekið þó sagt sé að hann sé í hópi ©rðfimustu manna. Eitt af því, sem ýmsir rýn- endúr í spíritísk og guðfræði- leg efni hafa velt fyrir sér síð- ustu ár, er sú spurning hvort ekki muni á næstunni vera von nýs mannkynsfræðara í þenn- an syndumspilta heim. Ýmsir hafa þótzt sjá þess nokkur merki. En þegar Horace S. Hambling var að því spurður, hvort Moon Trail vissi af slík- um spámanni, svaraði hann því neitandi. Hann hefði ekki séð nein merki þess að nýr spámað- ur væri á næstu grösum. Þá var hann spurður um manninn andspænis Guði, og sagði hann að Moon Trail full- yrti að sérhver maður væri „Guð í sköpun“ — og má í því sambandi geta þess að hann leggur, eins og aðrir miðlar og stjórnendur þeirra, höfuð- áherzlu á kærleikann. Hefur Moon Trail í því sambandi vitn að iðulega í orð Ellu Wheeler Wilcox um kærleikann: „Kær- leikurinn kveikir fleiri elda, en hatrið slekkur, og eftir því sem heimurinn eldist, verða menn- irnir betri“. Moon Trail hefur einnig lagt áherzlu á, að hinn samvizkulausi syndari sé ekki til: „Það er ekki til alger synd- ari — allir eru guðmenni í sköp un, hversu illir sem þeir kunna að virðast. Þið hafið bara kynnzt þeim í einni af sveifl- unum aftur á bak“, hefur Moon Trail sagt í einni af ræðum sín um, en hann staðhæfir að sveifl urnar aftur á bak eða neikvæðu sveiflurnar milli gagnstæðn- anna verði sífellt styttri en sveiflurnar fram á við, eða já- kvæðu sveiflurnar lengist stöð- ugt. „f stórum dráttum má því segja að hreyfingin færist smám saman til jákvæðis og hverfi þá neikvæði, þannig er alls- herjar framrás frá ranglæti til réttlætis, jafnvel þótt öðru hverju verði sveiflur aftur á bak til ranglætis, segir Horace S. Hambling í riti sínu: Boð- skapur Moon Trails. Enda kom það vel fram í inngangserindi Monn Trails á fundi Sálarrann- sóknarfélagsins á sunnudag, hversu mikla áherzlu ræðumað ur leggur á þessar hreyfingar í tilverunni. Kemst hann raun- ar að þeirri niðurstöðu, að því aðeins væri dauði til ef stöðn- un væri í náttúrunni, en þess sæjust hvergi merki. Þegar Moon Trail minnist á hreyfingu, á hann við líf. Hann segir sem sagt að engin kyrr- staða sé neins staðar x tilver unni og því sé enginn dauði til, „því að einungis kyrrstaða er dauði. Ekkert í alheiminum er kyrrstætt — allt er á hreyf- ingu“. Lýsti Moon Trail þessu á fyrrnefndum fundi með vör- um og tungu Horace S. Hambl- ings, og má segja að orð hans hafi ýmist streymt fram eins og fljót eða tær lækur svo mælskur var hann — eða til að slá nauðsynlegan varnagla: svo mælskt er hið ókunna sjálf Hamblings. ★ Hambling hefur oft gagnrýnt aðferðir sálarrannsóknarmanna og ófáguð vinnubrögð sumra miðla. Má geta þess að 1920 þegar hann var blaðamaður og fullur efasemda, tók hann sér fyrir hendur að afhjúpa spírit- ismann sem mestu blekkingu veraldar, en varð djúpt snort- inn þegar á fyrsta fundi. Hann lítur ekki á sig sem „eðlilegan eða venjulegan miðil.“ Hann hefur margsinnis brýnt fyrir áhugamönnum, að ekki er hægt að stytta sér leið í miðilsstörfum. Enda þótt hann hafi oftlega gagnrýnt að- ferðir spíritista, fór Eric W. Stuart, forseti Brezka sálar- rannsóknarfélagsins, viður- kenningarorðum um hann í formála fyrir síðasta riti hans, „Boðskapur Moon Trails", sem fyrr er nefnt. Stuart, sem ver- ið hefur fundarstjóri í mörg skipti þegar þessi miðill hefur haldið fyrirlestra, skrifar á þessa leið: „Á löngu samstarfi við Moon Trail og Horace Hambling hef ég sannfærzt örugglega um að þeir eru tveir sérstakir persónuleikar, þó að hugur Hamblings hafi í löngu samstarfi mótazt mjög af stjórnandanum.“ Hambling hélt fyrstu miðils- fundi sína í Skotlandi og seg- ir, að það sé ef til vill ástæð- an fyrir skozkum hreim í mál- fari stjórnandans. Moon Tráii krafðist þess, segir Hambling, að miðill hans aflaði sér starfs reynslu og góðrar þjálfunar í framsögn. Segist Hambling hafa þjálfað sig af fremsta megni, og hvetur aðra miðla til að gera slíkt hið sama, því að hann leggur mikla áherzlu á vönduð vinnubrögð. Hambling var spurður að því á fundinum hvort hann hefði séð Moon Trail, og svaraði hann því játandi; meðal ann- ars einu sinni mjög nákvæm- lega þegar hann var örmagna orðinn og hafði í huga að segja skilið við þennan stjórnanda sinn. Kom Moon Trail þá til hans og sárbændi hann að halda sambandi þeirra áfram, að sögn Hamblings, og varð það úr. Og að því kom að mælska Moon Trails fyllti Hambling — stærstu sali Lundúnaborgar. Síðan hefur ekkert lát verið á aðsókn að miðilsfundum Hor- aces Hamblings, og væri of langt að fara út í þá sálma. Að sögn ’ hafa ýmsar furður gerzt á fundum þessum, jafn- vel lækningakraftaverk að sumra dómi, en ekki urðum við Islendingarnir vitni að neinu slíku og ekki er hægt að segja að Hambling hafi aukið á sannfæringu okkar um til- vist annars lífs og æðri orku, þó ræður hans slagi hátt upp í gullkorn testamenntanna. A laugardagskvöld síðastlið- ið hafði Hambling fund að við- stöddum þremur íslenzkum miðlum, og var Hafsteinn Björnsson meðal þeirra. Ég spurði Hafstein, hvað hann hefði séð. Finnst mér ástæða til að birta svar hans orðrétt og fer það hér á eftir: „Áður en Hambling fór í transinn, sá ég hvít kraftský byrja að myndast bæði á bak við hann og eins inni í hringnum. Svo kom stjórnandinn til hans og stóð á bak við hann, meðan á transinum stóð, studdi hendi á öxl hans og ég sá hugasanaþráð inn sem liggur á milli þeirta. Ég sá band um höfuð stjórn- andans, hár hans var svart og sítt, nefið íbjúgt með stórum lið, augun ákaflega opin og sterk og skær. Augnaumbúnað- ur allur mikill. Á bak við hann sá ég hálfhring af hvítklædd- um verum, sem virtust standa vörð um hann. Litarof sem lá upp frá miðlinum og breiddi sig yfir stofuna var í ýmsum litum, mest bar á fölbláum lit og ljósgrænum og voru þeir á hreyfingu út frá kraftabylgj- unum, mjög fallegt að sjá. Þegar fundinum var lokið byrjuðu iitimir <*5 ieysast upp og voru horfnir, þegar Hambl- ing kom úr dásvefninum." ★ Moon Trail hefur verið kallaður byltingamaður. Sagði Hambling í formálsorðum sin- um á fundinum með okkur, að segja mætti að hann sé eins konar „vinstri sinni“ í hópi stjórnenda. Hann vitnaði oft í orð Krists, en er þeirrar skoð- unar að hann hafi verið eins og aðrir menn, en alls ekki einn útvaldur sonur Guðs. Kristur hafi borið guðdóminn í sér eins og allir, sem líf hafa öðlazt, en þó í enn ríkara mæli. Kemur þessi skoðun okkur mörgum á óvart, en mundum við ekki vera menn til að fjalla um hana eins og aðrar ráðgát- ur tilverunnar? Guð. Hvernig skýrir Moon Trail þetta orð, þetta brenn- andi hugtak allra tíma? Guð er ekki maður, en þó eru all- ir menn guð — eða öllu heldur „guðir í sköpun". Þegar um spurninguna „hver eða hvað er Guð?“ er að ræða, má segja að Guð sé fremur „hvað“ en „hver“. Stytzta svarið er að líkindum: „Guð er allt — ekki: Guð er í öllu. Á því tvennu er töluverður munur“, segir Hambling og bendir á að „þessi greinarmunur sé þýðingarmik- ill þegar hann hjálpar okkur til að skilja hið ósundurgreini- lega, alltumlykjandi eðli Guðs. Sökum þess að Guð er ekki eins konar háæruverðugt tign- armenni, sem situr einhvers staðar uppi í skýjunum lí'kt og allsherjareftirlitsvald, getum við ekki talað xxm „hann“ eða ,;Hann“, heldur verðum við að segja „Í>AГ. Og Hambling segir ennfremur: „Óneitanlega leiðir það til eyðingar hins per- sónulega, ef við köllum Guð það. Þetta er fyrsta áfallið, því að okkur hefur verið kennt — í „transi". (Ljósm. MbL Ól. K. M.) að treysta á einhvern persónu- gerðan „ytri“ mátt. Þannig höf um við til allrar óhamingju tekið að erfðum veikleika og vanmáttarkennd. Slægir prest- ar hafa séð sér hag í að við- halda þeirri blekkingu að „það, sem ómögulegt er fyrir mönn- um er mögulegt fyrir Guði.“ Sálusorgarar okkar og fræðar- ar endurtaka sýknt og heilagt setningar sem þessar úr Bibl- íunni; „Þér eruð borin og getin í synd“, og „dyggðir yðar eru sem saurgað klæði.“ Ef við við- urkennum þetta sem sannleik, er þá nokkur furða að við finnum til magnleysis? Hvað er eðlilegra en hinn frumstæði ótti okkar við einveruna, og alger skortur á sjálfstrausti veki okkur í faðm hins persónu lega Guðs? Við vitum ekki að gnægð — já, ofgnótt — guð- legrar orku býr innra með okk ur sjálfum og því skiljanlegt að við leitum til einhvers æðra Aðeins ósveigjanleg fastheldni við hina tötralegu sekki klerk- anna, en ösku hinnar út- brunnu, óheilbrigðu kreddu- trúar — niðurlægjandi, sálar- drepandi — myndi geta staðið að baki spurningunum, sem ég er svo oft spurður: „En er það ekki villutrú að skipa sjálfum sér sess við hlið Guðs?“ — Er þetta ekki eins konar smánandi stærilæti?“ eða „að staðhæfa, að maður sé jafn Guði, er þó hroki af verstu tegund." Látum Moon Trail svara: „Einu sinni var maður, sem gekk um strendur Galíleu og birti í sjálfum sér hið æðsta andlega líf — það hástig, sem nefnist Krists — eða Mahatma- stigið. Það, sem hann gerði, áminnti hann ykkur um að gera einnig, og eitt af því, sem hann gerði var að lýsa yfir með einurð að „ég og faðir minn erum eitt.“ Hefðuð þið farið eftir þessari áminningu, myndi kraftur orðanna lyfta sálum ykkar upp í hið allra helgasta, þar sem sameining- in við Guð er ekki lengur lotn- ingjavekjandi en neikvæð í- myndun, heldur jákvæður raunveruleiki. Og þið mynduð vita að Guð veit að þið þekk- ið það eins og það þekkir ykk- ur — það er einmitt þetta sem Jesús átti við.“ Moon Trail leggur áherzlu á nauðsyn þes „að sleppa.“ „Hið erfiðasta við að flytja yður þennan boðskap er það, að þér eruð íþyngdir hefðbundn- um trúarkenningum. Hvort sem þér eruð kristnir, Gyðingar, Búddatrúar, Múhameðstrúar- menn eða hvaða trú, sem þér hafið, þá biðjum vér yður að gleyma trúarsetningunum. Tak ist yður það ekki, eigið þér enga von um hamingju eða fögnuð.“ Og ennfremur: „Eigi tjáir yður að hlusta á boðskap okk- ar öðru vísi en sem lítil börn, sem laus eru við fyrirfram- ákveðnar fordæmingar, enda getum vér ekki á annan hátt hvatt yður til framtaks af eig- in hálfu. Yður ber að taka á yður sökina fyrir það, sem illa hefur farið í heimi yðar og ákveða að ráða á því bót. Gerið það og gleymið öllu nema því, að þér eruð hluti af Guði.“ Samkvæmt þessari kennihgu er lögð áherzla á að menn sleppi hugmyndinni um Guð í mannsmynd. Hann fullyrðir að það sé fjarstæða að láta sér detta í hug að unnt sé að taka alvarlega gamla goðsögn um þau efni. „Moon Trail álítur hið geypilega stærilæti karl- mannsins eiga sinn þátt í hinni útbreiddu hugmynd um Guð í mannsmynd“, segir Hambling í fyrrnefndri bók sinni, „og það kemur fram öðru hverju í fyrirlestrum hans, þar sem hann berst fyrir auknum rétt- indum kvenna: ',,Ef Kristur kemur aftur til jarðar von- umst við til að sjá hann birt- ast í kvenlíkama", hefur Moon Trail sagt: „Hið hrokafulla karldýr hefur nógu lengi hald- ið völdum. Greinilegasta dæm- ið um oflæti karlmannsins er notkun karlkyns persónufor- nafnsins Hann í sambandi við Guð. Hvers vegna, spyrjum við, þarf Guð endilega að vera Hann og faðir, þegar allir hin- ir fegurri kvenlegu eiginleik- ar móðurinnar — óeigingjörn ást, blíð umhyggja, óendanleg þolinmæði, milt umburðalyndi og rausnarlegt örlæti — hljóta jafnt að tilheyra Guði og hin- ir karlmannlegu eiginleikar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.