Morgunblaðið - 21.03.1967, Blaðsíða 4
4
x?XVJX!*TUTf.DLiAr/lX7, 13T11T7J UJJAVJfUIl 21. JYL/VTCZi IWI.
BÍLALEICAN
FERÐ
SÍMI 34406
Benstn innifalið í leigugjaldi.
SENDU M
magmúsar
skiphoit»21 símar21190
eftir loWun sirrti 40381 ~
siH11-44-44
\mum
Hverfisgötn 103.
Sími eftir lokun 3116ó.
LITLA
bíloleigon
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald.
Bensin innifalig í leigugjaldi
Sími 14970
BÍLALEIGAN
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
Eftir Iokun 34936 og 36217.
«7=*B/iAir/GAJr
LyM.ty/ÆF
RAUDARABSTlG 31 SlMI 22022
Hópferðab'rlar
allar stærðir
/B)iubtau ---------
eiN(iin^n ,
Fjaðrir, fjaðrabioð, hljoðkútar
púströr oJL varahlutir
í margar gerðir biíreiða.
Bílavörubáðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168. — Simi 24180.
jr Sjóstangaveiðimót
Á sunnudaginn sagði ég frá
því að sjóstangaveiðimót yrði
haldið í Keflavík á næstunni.
Halldór Snorrason, oddviti sjó
stangaveiðimanna í Reykjavík,
hringdi til mín og sagði, að nú
hefði verið ákveðið að flytja
mótið til Vestmannaeyja. Þar
yrði það haldið að þessu sinni
og veitt umhverfis Surtsey.
Sagðist hann eig,a von á er-
lendum þátttakendum, því
þetta er alþjóðamót eins og öll
þau fyrri. Auk þess koma
blaðamenn frá tveimur brezk-
um stórblöðum, Daily Tele-
graph og Sunday Times. Ætla
þeir að Ijósmynda og skrifa um
mótið — væntanlega með Surts
ey sem baksvið.
Keppendur munu dveljast á
Hótel HB, eins og áður, þegsir
sjóstangaveiðimótið fór fram í
Eyjum. Velvakandi sótti fyrsta
mót þessarar tegundar í Eyj-
um fyrir nokkrurn árum og
voru menn þá ekki á einu máli
um ágæti hótelsins. — En það
hefur iagazt síðan, segir Hall-
dór.
Vertíðin
Ekki virðist vertíðin ætla að
verða óvenjulega fengsæL
Þessi ótíð er næstum ein-
stæð. En það er ekki þar með
sagt, að vel aflaðist þótt oft-
ar gæfi á sjó en raun ber vRni.
Annars skilst mér að togararn
ir hafi einmitt sannað það og
sýnt að undanfömu, að þeirra
tími er ekki úti. Að vísu er
ekki hægt að miða eingöngu við
aflaskipið Maí i HafnarfirðL
En aðrir togarar munu hafa
gert það sæmilegt.
Þegar menn hrista höfuðið
vegna litils afla virðast þeir
ekki hafa skilið — eða vera
vantrúaðir á það, sem fiski-
fræðingarnir hafa sagt. £g á
þar við yfirlýsingarnar um að
við getum ekki vænzt meiri
þorskafla á næstunni. Það er
sennilega kominn tími til að
allir átti sig á þessu og farl
að hegða sér í samræmi við
það.
jt Veðrið
Og þá eru páskarnir næstum
komnir. Veðurlagið að undan-
förnu lofar ekki góðu um páska
veðrið — eða öllu heldur: Það
lofar engu. Rigning í morgun,
snjókoma í kvöld — með raki,
stilla í fyrramálið, rigning og
rok annað kvöld. Þannig hef-
ur það gengið að undanförnu.
Snjóinn getur tekið upp þrisv-
ar sinnum og allt getur jafn-
framt fennt í kaf þrisvar sinn
um yfir páskana norður á Siglu
firði, en þar á skíðalandsmót-
ið að fara fram. Keppandi núm
er eitt gæti farið af stað i
frosti — en þegar röðin kæmi
að siðasta manninum gæti
snjórinn verið horfinn eftir
ofsarigningu, komið frost og
byrjað að fenna aftur.
Segið þið svo að lífið sé ekki
tilbreytingaríkt á íslandi.
jt Samgöngur —
landsmót
Annars er vart hægt að gera
ráð fyrir því að landsmenn
fjölmenni til Siglufjarðar yfir
páskana. Bæði er gistiaðstaða
ekki ótakmörkuð þar og sam-
göngur fremur erfiðar. Þau
þéttbýlishéruð, sem ekki eru i
daglegum flugsamgöngum við
aðra landshluta (einkum
Reykjavík), teljast nú orðið ein
angruð eða því sem næst.
A.m.k. finnst okkur það hér
syðra. Enda er höfuðstaðurinn
í daglegu flugsambandi við
löndin beggja vegna hafsins —
og fólk miðar ósjálfrátt við
útlandið. Að komast til Siglu-
fj>arðar tekur a.m.k. jafnlang-
an tima og að fljúka til New
York. En það er auðvitað mats
atriði hvsur samgöngur eru góð
ar — og hvar slæmar. Við verð
um að taka tillit til aðstæðna
hverju sinnL
jt Pósturinn
Þetta gildir víst ekki aðeins
um ferðalög fólks, heldur
margt fleira — t.d. póstflutn-
inga, eða póstburð. Fyrir nokkr
um árum bjó ég í KópavogL
Eg var í útlöndum og skrifaði
alloft heim. Öll mín bréf fóru
í flugpóst. Samt voru þrjú
bréfa minna borin út eftir að
ég var sjálfur kominn heim. —
Bréf berást hraðar milli ís-
lands og útlanda en milli bæja
á Islandi, jafnvel þótt samgöng
ur séu daglegar. Mér hefur bor
izt bréf fljótar frá Chicago en
frá Isafirði. Um slíkt er hægt
að nefna ótal dæmi. Jafnvel
innanbæjarpóstur i Reykjavík
er lengur á leiðinni en póstur
frá erlendum stórborgum hing
að til fslands.
Þetta er auðvitað ekki nógu
gott. Það gæti áreiðanlega ver
ið betra.
j{ Stúlkur skrifa
Loks eru hér bréf;
„Velvakandi,
Ég sá að þú svaraðir bréfi
frá einni jafnöldru minni, sem
var í vandræðum með kærast-
ann sinn. £g er líka í vandræð
um. Minn kærasti vill ekki
dansa. Hvað á ég að gera? —
Ein átján ára“.
Svar: Fyrst verður þú að
átta þig á því hvor þér er
kærari; Kærastinn eða dans-
inn. — Eftir það verður þú
ekki í neinum vandræðum.
Svo sem bréfritari segir rétti
lega svaraði ég tveimur tán-
ingabréfum hér í dálkunum fyr
ir nokkrú. Þetta hefur hleypt
skriðunni af stað. En Velvak-
andi er sennilega ekki sá rétti
til að leysa úr persónulegum
vandamálum unga fólksins,
þótt hann vilji auðvitað gera
sitt bezta. Hér kemur annað:
„Góði Velvakandi,
Ég er í miklum vandræðum.
Unnusti minn neitar næstum
því að fara út með mér eftir
að ég fékk mér nýjan og aga-
lega sætan kjól. Hann segir að
kjólinn sé of stuttur. Það er
rétt, kjóllinn er stuttur. En
hann er ekkert styttri en kjól-
ar, sem vinkonur mínar fara
í. A ég að láta kjólinn hanga
inni í skáp — eða á ég að fara
mínu fram. Maður verður að
fylgja tizkunni, eða er það
ekki. — J. G.“
Svar: Það er sjálfsagt mats-
atriði hve mikið ungar stúlk-
ur eiga að sýna af líkama sín
um — og hverjum. Maður þarf
ekki að ganga Austurstræti
nema einu sinni til þess að sjá
að stúlkur eru misjafnlega
djarfar hvað þetta varðar —..
og mér virðist, að sumar þeirra
hefðu fremur átt að sikka pils-
in en að stytta þau. Unnust-
inn er mér sjálfsagt sammála.
Farðu með hann í „Notað og
nýtt“ og reyndu að losna við
hann — þ.e.a.s. kjólinn.
jc Happdrætti
„Kæri Velvakandi
Okkur langar til að biðja þig
að koma orðsendingu á fram-
færi til forráðamanna hinna
ýmsu opinberu happdrætta.
Okkur þykir vænt um, ef
hægt væri að lesa skrá yfir
vinningana í Ríkisútvarpinu,
daginn eftir að dráttur hefur
farið fram, þannig að hvert
byggðarlag yrði lesið sérstak-
lega upp, svo að eigendur miða
þyrftu ekki að hlusta á fleiri
þúsund miða, sem þeir hafa
enga vinningsvon L Samgöng-
ur að vetri, eru oft svo erfið-
ar, að blöð eða annar póstur,
kemur ekki langtimunum sam
an, en margir vildu gjarnan
heyra, hvort heppnin hefur vei
ið með.
Kærar þakkir fyrir birting'
una.
Nokkrir seríuspilarar*'
Eldhús - Vinnustofa - Paradís
Hvað eigum við að kalla aðal-
bækistöð húsfreyjunnar þegar
búið er að klæða allt með
Formica? Það skiptir sjálfsagt
ekki máli.
En að húsmóðirin sé ham-
ingjusöm, skiptir máli og það
veit eiginmaðurinn, sem lætur sig ekki muna
um að kaupa það bezta — FORMICA —
C. Þorsteinsson & Johnson hf.
Ármúla 1 — Grjótagötu 7. Sími 2-42-50.