Morgunblaðið - 21.03.1967, Blaðsíða 30
Korfuknattleikur:
IR vann KR 66 - 60
1 fyrri hálfleik liðanna í íslandsmötinu
TTNDANFARNAR vikur hefur loka. Kolbeinn á of fasta gjöf
á Hjört og ÍR nær knettinum
og skorar 62:60, og fyrir endur-
tekin mistök KR-inga tekst ÍR-
liðinu að skora fjögur stig í við
bót og innsigla réttlátan sigur
sinn 66:60. ÍR-liðið átti í heild
mjög góðan leik og ber ekki
að nefna neinn sérstakan í
þeim efnum. Stig liðsins skor-
uðu Agnar 19, Jón 16, Birgir
13, Skúli 8, Hólmsteinn og
Pétur 4 hvor. Hjá KR voru
Hjörtur og Gunnar beztir en
stig liðsins skoruðu: Hjörtur 18,
Gunnar 12, Einar 11, Kolbeinn
10 og Kristinn 9. Dómarar voru
Jón Eysteinsson og * Marinó
Sveinsson og dæmdu vel. —E.M.
KFR — Ármann 66-51, I. deild.
Ármenningar byrjuðu vel og
eftir stutta stund er staðan 7:0
þeim í vil. >á tekur Þórir sig
til og rennir 10 stigum í röð
ofan í körfu Ármenninga og
leikurinn jafnast. KFR-ingar ná
síðan yfirhöndinni í leiknum og
hafa í hléi tryggt sér öruggt
forskot 35:20, sem þeir nákvæm
lega halda til loka leiksins og
sigra örugglega 66:51. Beztur
hjá Ármanni var Birgir Örn
með 23 stig, en hjá KFR var
Þórir beztur með 34 stig. Dóm-
arar í leiknum voru Guðmund-
ur Þorsteinsson og Ólafur Geirs
son.
FH og Fram unnu
— og mætast í úrslitaleik
mönnum verið alltíðrætt um
skipan ýmissa mála innan körfu
knattleiksíþróttarinnar og oft
verið minnzt á liðin 1R og KR í
því sambandi. Hið forna veldi
ÍR og núverandi veldi KR hef-
ur verið títt nefnt í þessum um-
ræðum. Þessir margreyndu og
fomu fjendur leiddu saman
hesta sína sl. sunnudag í fyrri
leik þessara liða í I. deild Is-
landsmótsins. Eftir þá geysilegu
orustu sem endaði með sann-
gjörnum sigri ÍR 66:60 virðist
„vogarskál valdanna“ nokkurn
veginn lárétt. Bæði liðin sýndu
mjög góðan körfuknattleik og
var vamarleikur liðanna beggja
mjög til sóma, þó svo að hin
mikið auglýsta og djarfa pressu
vörn KR-inga hafi að mestu far
ið fyrir ofan garð og neðan, eink
um fyrir snjallar mótaðgerðir
ÍR-inga. Þrátt fyrir betri byrj-
un KR liðsins var aldrei um
neinn verulegan mun að ræða
og leiddu KR-ingar með 4ra
stiga mun í hléi. Síðari hálf-
leikur var geysispennandi og
skiptust liðin á naumri forystu.
Þegar tæp mínúta er eftir af leikn
um er staðan 60:60. KR liðið
nær upphlaupi en sending til
Hjartar er of föst og ÍR-ingar
ná knettinum og skora síðustu
sex stigin eftir endurtekin mis
tök KR liðsins, og sigra réttiiega
66:60.
1 I. deild léku einnig Armann
og KFR og sigruðu hinir síðar-
nefndu örugglega 66:51, og eru
KFR-ingar nú örugglega í 3ja
sæti i deildinni á eftir ÍR og
ÍR — KR I. deild, 66:60.
KR-ingar byrjuðu betur og ná
yfirhöndinni en ÍR-liðið er ekki
af baki dottið og sýndi mikinn
baráttustyrk og leikgleði. Þrátt
fyrir u.þ.b. tíu stiga fbrskot KR
um eitt skeið, missa ÍR-ingar
ekki máttinn og ná að bæta
stöðu sína í 25:29 í hléi. Síðari
hálfleikur var geysispennandi
og skemmtilegur á að horfa. KR
ingar beittu sinni þekktu pressu
vörn og áttu ÍR-ingar skemmti-
Jega einfalt svar við henni og
kom það greinilega KR-liðinu
greinilega úr jafnvægi hve auð
veldlega ÍR-ingarnir sluppu frá
þeim, og verður ekki annað sagt
en KR-liðð haf tapað á þessar
varnaraðferð. Skömmu eftir
miðbik síðari hálfleiks voru ÍR-
in-gar með fimm stiga forskot en
KR-liðið sígur á og jafnar 60:60
þegar tæp mínúta er til leiks-
FRAM og FH sem nú hafa sam
eiginlega forystu í I. deild hand
knattleiksins léku bæði næst
síðasta leik sinn í 1. deildinni
á sunnudag. FH vann Val með
25-15 og Fram vann Víking
31-16. Eins og markatalan gefur
til kynna var um yfirburða-
sigra að ræða í báðum tilvikum
og standa málin svo, að um
hreina úrslitabaráttu verður að
ræða milli FH og Fram þeg-
ar til úrslitaleiksins — Ioka
leiks íslandsmótsins — kemur
um miðjan apríl.
FH náði þegar í upphafi góð-
um tökum á Valsliðinu og ekki
leið á löngu áður en séð varð að
Valsmenn megnuðu ekki að
ógna sigri FH — hvað þá meira.
Og er á leið varð áhugi Vals-
manna æ minni og leikurnn því
aldrei verulega skemmtilegur.
1 hálfleik stóð 13-8 fyrir FH.
í upphafi síðari hálfleiks var
eins og lifnaði aðeins yfir Vals-
mönnum og markamunurinn
komst í 3 mörk. En síðan náðu |
FH-ingar algerum tökum á
leiknum og unnu eftir vel út j
færðan leik og góðar skipting-1
ar Sigurðar Júliussonar með
10 marka mun.
Fram og Víkingur háðu jafn-
ari baráttu framan af. Fram
náði byrjunarforskoti, en Vík-
ingar sóttu síðan á og er 20.
mín. voru liðnar af leik var
staðan jöfn 7-7. En litlu síðar
náði Tómas Tómasson forskoti
fyrir Fram 8-7 og síðan skor-
aði Gunnlaugur 4 mörk í röð
svo staðan var 12-7 og útséð
um úrslit. 1 hléi var staðan
13-7.
í síðari hálfleiknum komu
yfirburðir Framara enn betur í
ljós og sigurinn varð stór 31-16.
Yfirburðir sigurliðanna voru
svo miklir um það er lauk að
leikirnir urðu ekki skemmtileg-
ir. En leikir beggja sigurlið-
anna gefa til kynna að úrslita-
baráttan á þessu móti verður
ekkert gamanspil og um úrslit-
in skal engu spáð.
/ kvöld
í KVÖLD kl. 20.15 verður körfu
knattleiksmótinu fram haldið í
íþróttahöllinni í Laugardal.
Fara fram tveir leikir í 1. deild.
Fyrst leika KR og Stúdentar og
síðan Ármann og ÍR.
Leeds og Notting
hom unnn
í GÆR fóru fram tveir leikir
mikilsverðir Jeikir í Englandi.
í bikarkeppninni vann Notting-
ham Forest Swindon með 3-0.
Nottingham mætir Everton í
Swindon 8. apríl.
Sunderland — Leeds 1-2.
Leeds mætir Manc. City í 8
liða úrslitum.
Átta barna f aöir mdti Clay
Aðfaranótt fimmtudags mæt
ast þeir í keppni um heims-
meistaratitii í þungavigt
hnefaleika Cassius Clay og
Zora Folley. Keppnin fer
fram í New York. Hvort sem
Folley vinnur eða tapar hef-
ur hann fyrirfram tryggt sér
að mestn peningaupphæð er
hann hefur hlotið fyrir hnefa
leik eða 75 þús. dali.
Folley er 34 ára gamall og
átta barna faðir. Mestu tekj-
ur hans til þessa eru þegar
hann fékk 40 þús. dali fyrir
kappleikinn gegn Sonny List
on 1960. Annars man Folley
ýmislegt frá fyrri dögum í
sambandi við tekjur og
minnstu tekjur sem hann hef
ur haft af kappleik voru 16
dalir. Þa, var 1954 og vann
Folley þá á stigum í ein-
hverri erfiðustu orustu sem
hann hefur gengið til.
Alls hefur hann inn unnið
um 200 þús. dali í sinum at-
vinnukappleikjum. Það eru
þó smáaurar móti tekjum
Clays sem hefur auðgast um
3 millj. dala á kappleikjum
sínum. Fyrir leikinn nú fær
Clay um 300 þús. dali.
Allir spá Clay nú sigri og
eru veðmálin Folley í vil
minni en varðandi fyrirrenn
ara hans.
I"idsflokkaglíman:
Ármann lagöi aíia
sína keppinauta
Landsflokkaglíman 1967 var
háð í íþróttahúsinu að Háloga-
landi sunnudaginn 19. marz
1967. Glímt var i þremur flokk-
um fullorðinna og þremur ald-
ursflokkum drengja: Þátttak-
endur voru alls 31.
Mótið var sett af Kjartani
Guðjónssyni formanni Glímu-
sambands íslands.
Verðlaun afhenti Sigurður
Erlendsson varaformaður Glímu
sambandsins en mótinu sleit
Valdimar Óskarsson formaður
Ungmennafélagsins Víkverja.
Ungmennafélagið Víkverji sá
um framkvæmd mótsins. Úrslit
í einstökum flokkum urðu sem
hér segir:
1. þyngdarflokkur.
1. Ármann J. Lárusson, UBK 6
2. Sveinn Guðmundsson, HSH 5
3. Sigtryggur Sigurðsson KR 4
4. ívar H. Jónsson, UBK 3
2. þyngdarflokkur.
1. Már Sigurðsson, HSK 2
2. Guðmundur Jónsson, KR 1
3. Garðar Erlendsson, KR 0
3. þyngdarflokkur.
1. Valgeir Halldórsson, Á. 4
2. Elías Árnason, KR 2 + 1
3. Gunnar Tómasson, UV 2+0
Unglingaflokkur.
1. Hjálmur Sigurðsson, UV 3
2. Rögnvaldur Hraundal, Á. 4
3. Þorsteinn Hraundal, Á 3
4. Guðmundur Ólafsson, Á. 2
Drengjaflokkur.
1. Ríkharður Ö. Jónsson, UBK 4
2. Árni P. Jóhannsson, HSH 3
3. Magnús Ólafsson, TJV 2
Sveinaflokkur.
1. Bragi Björnsson, KR 3t4
2. Einar Gunnarsson, Á. 21ó + l
3. Jón Mikhaelsson, UV 2V4+0
Jón Þ. 01.
stökk 2,05
ÍR EFNDI tö innanfélagsmóts 1
hástökki innanhúss á laugardag
inn og varð árangur sean hér
segir:
1. Jón Þ. ólafsson, ÍR 2.09
2. Valbjörn Þorláksson, KR 1.73
3. Kjartan Guðjónsson, ÍR 1.79
Hástökk án atrennu:
1. Jón Þ. Ólafsson, ÍR 1.70
2. Valbjörn Þorláksson, KR 1.55
3. Erlendur Valdemars. ÍR 1.49
Badminton á ísafirði
TENNIS- og badmintonfélag
ísafjarðar hyggur á stórræði um
páskana. Gengst félagið fyrir
móti á skirdag og á laugardag
fyrir páska og meðal keppenda
eru fjórir af beztu badminton-
mönnum Reykjavíkur.
Þeir sem heimsækja ísfirð-
inga eru Jón Árnason núver-
andi Islandsmeistari í einliða-
leik, Viðar Guðjónsson, Garðar
Alfonsson og Steinar Petersen.
Allir eru þeir úr TBR.
Mótið hefst á skírdag kl. 4
og lýkur á laugardag fyrlr
páska og hefst keppni þann dag
einnig kl. 4.
Á mótinu verða 8 keppend-
ur frá ísafirði. Aðeins er keppt
í karlaflokki.
Áhugi á badminton hefur ver
ið mjög mikill á Isafirði að und
anförnu og væntanlega nota í*-
firðingar tækifærið til að sjá
gestina leika og þá ekki sizt
íslandsmeistarana Jón Árna-
son.