Morgunblaðið - 23.03.1967, Side 1

Morgunblaðið - 23.03.1967, Side 1
BLAÐ II Fimmtud. 23. marz mctttitiStfftfetfr EFTIR BJÖRN JÓHANNSSON. UM miðjan febrúarmánuð árið 1963 kom einn ritstjóranna að máli við mig og bað mig um að eiga viðtal við mann, sem hefur orðið mér einna minni- etæðastur allra þeirra, sem ég hef hitt á blaðamannsferli mín- ■um — Hans Lenz, fyrrum vís- indamálaráðherra Vestur-Þjóð- verja. Ritstjórinn hafði verið að lesa þýzkt blað og rekizt þar á grein um ráðherra, sem í des- emermánuði 1962 hafði verið skipaður í nýtt embætti í ríkis- stjórn Konrad Adenauers, embætti vísindamálaráðherra. Nafn hans var Hans Lenz og í greininni um hann sá ritstjór- inn að hinn nýi ráðherra hafði m. a. stundað nám við Háskóla íslands. Honum lék því hugur á að vita nánar um dvöl hans hér á landi. Fyrir milligöngu þýzka sendi ráðsins í Reykjavík féllst ráð- herrann á að veita viðtalið sím- leiðis. Óskaði hann eftir því, að það færi fram snemma morg- uns áður en hann færi í ráðu- neyti sitt í Bonn, en hann bjó í Bad Godesberg, sem er skammt frá höfuðborginni. Samkvæmt umtali átti ég að hringja til Lenz klukkan 9 að morgni hinn 22. febrúar, að þýzkum tíma að sjálfsögðu. Það þýddi, að ég þurfti að vera mættur á ritstjórn Morgun- blaðsins fyrir kl. 7 um morgun inn og það um hávetur. Það er ekki alltaf sældarbrauð að vera blaðamaður. Á réttum tíma fékk ég sam- talið við Lenz. Hann var hress í bragði og það virtist pleðja hann að heyra frá fslandi. Lenz sagði frá því, að hann hefði lagt stund á tungumálanám og verið i tímum hjá Alexander Jóhannessyni og Sigurði Nor- dal í háskólanum i Revkíavík 1930—1931 og m. a. skrifað rit- '.•.v.v.v.v.: gerð um íslenzkar fornsögur. Ráðherrann minntist á ýmsa kunningja og vini frá Islands- dvölinni, sagði frá því að hann hefði farið gangandi frá Akur- eyri til Reykjavíkur, leikið 1 Faust í litlu leikhúsi við Tjörn- ina (jú pað hét Iðnó), haft gam an af að hlusta á Jónas Jónas- son tala á Alþingi, og verið ást fanginn af íslenzkri stúlku. Hann drap á margt annað og lýsti þeirri von sinni, að hann gæti komið til fslands þá um sumarið enda lengi þráð að koma hingað aftur. Þegar viðtali okkar Lenz var lokið leitaði ég í MorgunbiaS- inu að umsögnum um Faust- Aðalpersónur voru Mohr, er lék Faust, Lenz er lék Djoful- inn, og Auður Auðuns, er lék Gretchen. Áður en leikurinn hófst út- skýrði dr. Alexander Jóhann- esson Frum-Faust. Beztur þótti leikur Lenz. Mohr tókst ekki eins vel með Faust-hlutverkið, var sýnilega of ungur og óreyndur. Tilþrif voru í leik Auðar Auðuns og tiltakanlega vel gert af henni að leika jafnvel og hún lék á þýzka tungu og hafa aldrei til Þýzkalands komið. Óvíst er, hvort leikið verður aftur.“ Síðar um daginn talaði ég Morgunblaðinu daginn eftir, 23. febrúar 1963 og vakti mikla at hygli. Það varð allt í einu ljóst, að ísland átti góðan talsmann og vin I vestur-þýzku ríkisstjórn- inni, ráðherra, sem þráði að endurnýja gömul tengsl. Gylfi Þ. Gislason, menntamálaráð- herra, og ríkisstjórnin ákváðu því að bjóða Hans Lenz vísindamálaráðherra Vestur- Þýzkalands, til fslands. • Hinn 1. september 1963 kom Hans Lenz til Reykjavikur ésamt li onu sinni og dóttur. Menntamálaráðherra fagnaði þeim vel og sýndi hinn mesta sýninguna f Iðnó, enda hafði Lenz sagt að hún hefði fengið góða dóma. f ljós kom, að þann 9. april 1931 hafði ,Ahorfar.di“ skrifað um sýninguna i Morg- unblaðið. Þar sagði: „Hin fyrsta þýzka leiksýn- ing. sem hér hefur verið hald- in, Faust-sýning þýzku stúdent anna í Iðnó í fyrrakvöld, var leikin fyrir fullu húsi og vel tekið. við frú Auði Auðuns og skýrði henni frá viðtalinu við Hans Lenz. Hún mundi vel eftir hon um og kvaðst eiga í fórum sínum mynd af leikendum. Fékkst myndin góðfúslega lán- uð. H'm var tekin í vinnu- stofu Guðmundar Einarssonar frá Miðdal, en hann var mikill vinur Lenz. Viðtalið við Lenz og mvndin af leikendahópnum birtist í sóma. Varð fslandsferðin Lenz ógleymanleg, konu hans og dóttur. Þriðjudaginn 3. september bauð menntamálaráðherra hin- um þýzku gestum í hringferð um Þingvelli. G”ysi, Gullfoss, Skálholt og Hvera«erði. Ákveð ið var, að ég skvldi fara í þessa ferð af hálfu Morgunblaðsins til að skrifa um hana. Lagt var af stað um kl. 10.30 árdegis og stóð ferðalagið fram á kvöld. Var hún einstaklega vel heppn uð, enda er Gylfi Þ. Gíslason frábær gestgjafi. Blíðskaparveður var um morguninn og fagurt um að lit- ast á Þingvöllum er þangað var komið. Fyrst var stanzað við út sýnisskífuna við Almannagjá. Þá sá ég Hans Lenz fyrst í eigin persónu. Hann er fremur lágur vexti, þrekinn og þéttur á velli. At- hyglin beindist begar að því. að hann gengur við hækjur. Hann særðist alvarlega í heimsstyrj- öldinni og fætur hans eru svo illa farnir að hann á mjög erfitt með gang, þrátt fyrir hækjurnar. Það kostar hann mikla áreynslu og fyrirhöfn að fara inn og út úr bíl, og það tekur hann margar mínútur að kom- ast nokkra metra, gangandi við hækjur sínar. Samt vildi Lenz ekki heyra á annað minnzt, en að hann færi upp á klettinn að útsýnisskífunni til að virða fyrir sér fegurð Þingvalla. Þessi ákvörðun hans kostaði ofur- mannlegt átak við að fylgja hinum eftir. Það var einmitt þá að ég held, sem aðdáun mín á manninum vaknaði. Lenz hafði kohaið einu sinnl til Þingvalla á stúdentsárum sinum og var hann mjög hrærð ur að líta staðinn aftur. Rúmir þrír áratugir höfðu liðið frá þvl hann kom þar fyrst. En það var meira en tíminn þar á milli, það var baráttan við nazist- anna, sem eyðilögðu draum hins unga stúdents að verða prófessor í málvísindum, það voru hörmungar heimsstyrjald- arinnar, sem hafði krafizt fóta hans, það var hrun Þýzkalands. Nú var hann einn áhrifamesti ráðamaður lands síns, ham- ingjusamlega kvæntur og þriggja barna faðir, hafði not- ið ánægjunnar af því að stuðla að uppbyggingu Vestur-Þýzka- lands innan raða frjálsra demo krata. Það fór ekki m’lli mála, að Hans Lenz var hamingjusamur fjölskyldufaðir. Eiginkona hans og dóttirin Sabena sýndu hon- um mikla nærfærni og voru ætíð reiðubúnar að aðstoða hann. Höfðu þær auga með því, að hann ofreyndi sig ekki, en aldrei hevrði ég þær vera með úrtölur við hann, er hann var ákveðinn að sigrast á torfær- um, sem þeim leizt ekki á. 1 ValhöU beið hádegisverður hópsins. Áður en sezt var að borðum kynnti Gylfi okkur Lenz og sagði honum, að ég væri blaðamaðurinn, sem hefði átt við hann viðMig. Lenz tók mér vel og sniöUuðum við sam- an stutta stund. Lenz dró mig afsíðis þakkaði mér fyrir viðtalið og sagði mér, að sendi*-t>ð;ð í P'-vViavfk h°fði sent sér það þýtt á þýzku. Hefði fiölskyldan safnazt sam- an til að hlusta á það lesið upp. Nú vottaði fyrir brosi hjá Lenz og sagði hann mér, að það hefði verið hlustað með sérstakri at- hygli á kaflann, þar sem minnst var á, að hann hefði ver ið ástfanginn í Reykjavik. Sagði hann að þetta væri að vísu rétt, en oft mætti satt kyrrt Ugja. Það runnu á mig tvær grím- ur. Mér hafði ekki komið til hugar, að þetta gæti komið hon um í bobba. En ég huggaði mig við það, að greinílega væri kona hans búin að fyrirgefa honum (Ef þýzka sendiráðið lætur þýða þessa grein heíd ég að það sé rétt að sleppa þess- um kafla greinarinnar. Allur er varinn góður). í Valhöll var fyrirtaks lax snæddur og drukkið kaffi á eftir á stéttinni fyrir utan. Þetta var hihn ágætasti fagn- aður og kom menntamálaráð- hera öllum í sólskinsskap með smellnum sögum, m. a. af Kjar- val. Þegar lagt var af stað til Gull foss og Geysis var veður farið að versna. dimmt var yfir, kalt Framhald á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.